Morgunblaðið - 07.10.2007, Page 43

Morgunblaðið - 07.10.2007, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 43 endur og það sem við eigum sameiginlegt hefur meira að segja en þeir hagsmunir sem eru ólíkir. Stjórnvöld þurfi að taka sig á og standa við gefin loforð en einstaklingarnir geti lagt mikið af mörk- um. Í bók sinni tekur hann mýmörg dæmi af ein- staklingum sem hafa látið til sín taka, allt frá hjón- unum Bill og Melindu Gates til barna í New York. Fólk geti gefið ýmist fé eða tíma en allir geti gert eitthvað. Warren Buffett, næstríkasti maður Bandaríkjanna á eftir Bill Gates, ákvað að gefa næstum alla sína peninga og fela Gates-stofnun- inni að ráðstafa þeim. Clinton kveðst í bókinni hafa spurt Buffett hvers vegna hann hefði tekið þessa ákvörðun: „Mín gjöf er ekki neitt. Ég get veitt mér allt sem ég þarfnast fyrir minna en eitt prósent af auðæfum mínum. Ég fæddist í réttu landi á réttum tíma og launin fyrir vinnu mína hafa verið í miklu ósamræmi við laun kennara og hermanna. Ég er bara að borga til baka umframfé sem er mér einkis virði en getur gert heilmikið fyrir aðra. Fólkið sem ég dáist að í raun eru þeir sem gefa lítið og neita sér um að sjá kvikmynd eða fara út að borða til að hjálpa þeim sem þarfnast þess meira.“ Heill heimur þarfnast ykkar Í lok bókarinnar vegur Clinton að hugs- unarhætti nútímans: „Mikið af samtíma- menningu okkar einkennist af frásögn- um af firringu og sjálfstortímingu. Mikið af pólitík samtímans snýst meira um persónulegar árásir en ærleg skoð- anaskipti. Mörgum fjölmiðlum nútímans ráða menn sem maka krókinn á að niðurlægja aðra, sýna þá þegar verst stendur á og nýta sér sárs- auka þeirra. Hver er hamingjusamastur? Sá sem sameinar eða sá sem sundrar? Sá sem byggir upp eða sá sem rífur niður? Sá sem gefur eða sá sem tekur? Ég held að þið vitið hvert svarið er. Það er heill heimur sem þarfnast ykkar, hvort sem það er neð- ar í götunni eða hinum megin við hafið. Gefið.“ Clinton hefur orðið mikið ágengt í góðgerðar- málum. Hann fær fólk til að opna vasa sína og hef- ur getað lagt mönnum lið sem tilbúnir eru að leggja vinnu í uppbyggingu og aðstoð, meðal ann- ars til að ráða niðurlögum alnæmis. Honum hefur því tekist vel að finna sér hlutverk og ná sér á strik eftir að forsetatíð hans lauk og breyskleikar hans og niðurlæging hefur gleymst. Clinton hefur alltaf verið vinsæll stjórnamálamaður, meira að segja þegar repúblikanar á þingi hugðust koma honum frá vegna meinsæris þegar hann átti í tygjum við Monicu Lewinsky. Hann nýtur meiri vinsælda meðal demókrata um þessar mundir en þegar hann fór úr embætti. 88% þeirra líta hann nú með velþóknun. Hillary Clinton og arfleifð eiginmannsins Ý mislegt bendir til þess að hann gæti verið á leið í Hvíta húsið að nýju, nú sem eiginmaður forseta. Á for- síðu nýjasta tölublaðs vikuritsins The Economist er mynd af Clint- on-hjónunum og vísar fyrirsögnin til þess að þau hafi þann eiginleika að geta alltaf náð sér á strik á ný þótt á móti blási. Um þessar mundir virðist allt ganga Hillary Clinton í haginn. Hún hefur 33 prósentustiga forskot á Barak Obama samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Wash- ington Post og ABC og 40 prósentustiga forskot á John Edwards. Á þriðja fjórðungi þessa árs tókst henni að safna meira fé en Obama sem fram að því hafði staðið sig betur en hún og gekk mun betur en Edwards. Kannanir sýna einnig að hún myndi sigra frambjóðendur repúblikana yrði kosið nú, þar á meðal Rudy Giuliani. Í Færeyjum var hann spurður hvaða möguleika Hillary Clinton kona hans ætti á að verða næsti forseti Bandaríkjanna. Hann kvaðst telja líkur hennar góðar en tók fram að enn væri ekki búið að telja eitt einasta atkvæði. Hann sagði að hún væri hæfari en andstæðingar henna úr röðum demó- krata, þótt vissulega væru þeir hæfir, en kvaðst óttast að meðal repúblikana væru frambjóðendur sem væru færir um að framkalla minnisleysi með- al þjóðarinnar um stjórnartíð George W. Bush. Þar hefur hann ugglaust haft Giuliani í huga. Margir eru þeirrar hyggju að það stór hluti kjós- enda sé neikvæður í garð Hillary Clinton að það muni standa henni fyrir þrifum sigri hún í for- kosningunum. Hún sé sigurstranglegust í viður- eign við aðra demókrata en eigi erfiðara uppdrátt- ar en þeir þegar kemur að því að eiga við andstæðing úr röðum repúblikana. Í könnun frá Pew kom fram að 39% kjósenda líta hana með van- þóknun. Karlar eru neikvæðari í hennar garð en konur. Eins og The Economist bendir á hefur George Bush hins vegar sýnt að það er hægt að sigra í kosningunum þótt fjöldi manns hafi óbeit á manni. Hillary Clinton kemst ekkert undan arfleifð eig- inmanns síns í kosningaherferð sinni frekar en aðrir frambjóðendur demókrata – hvort sem þeim líkar betur eða verr. Í nýlegri grein í tímaritinu The New Yorker er því lýst hvernig hún fer með pólitíska fortíð hans eins og hlaðborð, velur þá rétti, sem henni líkar við og sniðgengur hina. Þótt Clinton hafi verið í Færeyjum á mánudag og hald- ið þaðan til Danmerkur helgar hann nú konu sinni mestallan tíma sinn. Hann kemur fram á fundum og fer í sjónvarpsviðtöl til að leggja konu sinni lið og hvetur gamla vini sína til að styðja hana. Bill Clinton verður því nálægur í baráttunni fyrir næstu forsetakosningar í Bandaríkjunum. Spurn- ingin er hins vegar hvort það verður til trafala eða ekki. Staða repúblikana er slæm eftir afleita frammistöðu Bush í embætti. Eins og fram kemur í The Economist var stuðningur við demókrata og repúblikana jafn fyrir fimm árum og kenndu 43% sig við hvorn flokk. Nú kenna 50% sig við demó- krata, en aðeins 35% við repúblikana. Forseta- frambjóðendur demókrata hafa safnað 70% meira fé en keppinautar þeirra úr röðum repúblikana og sýnir það á hvorn flokkinn þeir, sem eiga pen- ingana, veðja næsta kjörtímabil. Vitaskuld er rúmlega ár í kosningar og því ekki hægt að slá neinu föstu en takist Hillary Clinton að verða fyrsta konan til að verða forseti Banda- ríkjanna yrði það einnig í fyrsta skipti sem hjón næðu því að verða bæði kjörin forsetar. Síðastliðin 20 ár hafa forsetar Bandaríkjanna ýmist borið eft- irnafnið Bush eða Clinton. Nú gæti Clinton-veldið hafist til valda á ný. »Mikið af samtímamenningu okkar einkennist af frásögnumaf firringu og sjálfstortímingu. Mikið af pólitík samtímans snýst meira um persónulegar árásir en ærleg skoðanaskipti. Mörgum fjölmiðlum nútímans ráða menn sem maka krókinn á að niðurlægja aðra, sýna þá á sínum verstu augnablikum og nýta sér sársauka þeirra. Hver er hamingjusamastur? Sá sem sameinar eða sá sem sundrar? Sá sem byggir upp eða sá sem rífur niður? Sá sem gefur eða sá sem tekur? rbréf Morgunblaðið/Karl Blöndal Tekið eins og rokkstjörnu Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, talar við blaðamenn fyrir utan Hótel Færeyjar á mánudag. Clinton hélt erindi á viðskiptaþingi í Þórshöfn ásamt Hans Blix.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.