Morgunblaðið - 07.10.2007, Síða 44

Morgunblaðið - 07.10.2007, Síða 44
44 SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Lágmúla 4 • 585 4000 • www.uu.is Bókaðu strax á www.uu.is/golf Golfferð með öllu í viku! 99.900kr.* Vikuferðir til El Rompido á Spáni 16. og 23. október. Lúxus gisting, morgunverður, kvöldverður og ótakmarkað golf á tveimur 18 holu völlum við hótelið. *Verð á mann í tvíbýli Innifalið: Flug, flugvallarskattur, akstur milli flugvallar og hótels erlendis, gisting, morgun- og kvöldverðarhlað- borð, fararstjórn og ótakmarkað golf á 2 glæsilegum 18 holu völlum (nema komu- og brottfarardag). Sértilboð í vikuferðir 16. og 23. október ÍS L E N S K A /S IA .I S /U R V 3 92 83 0 9/ 07 KÆRI Össur. Það er ekki langt um liðið síðan við sátum á ritstjórn gamla DV, þú sem yfirmaður, allra manna hugljúfi, vel liðinn, sanngjarn og samvinnufús. Það er aðallega þess vegna sem ég sendi þér nú línur til að reyna á þol- inmæði þína í nýju embætti við að svara nokkrum spurningum sem brenna á mér og mörgum öðrum um hversu mikil alvara býr að baki hjá þér um að veita sérleyfi fyrir olíu- borunum, sem þú segir í undirbún- ingi. Og leyfi mér að treysta því, að þú eigir við svæðið við Norðaust- urland Íslands. Ekki „norðausturhluta landhelginnar“ – við Jan Mayen! Frétt frá iðn- aðarráðuneyti Í frétt á netmiðl- inum vísi.is, 26. sept. sl. er haft eftir þér, að nú sé unnið að tillögu um útboð á rannsókn- arborunum eftir olíu. Og ennfremur: „Það er mikil vinna sem liggur að baki útboði sem þessu. Það þarf meðal annars lagabreytingu til og einnig þarf að ákveða með hvaða hætti ríkissjóður fái greitt fyrir þessar bor- anir ef olía finnst.“ Netmiðillinn visir.is hefur ekki fleira eftir þér orðrétt, en bætir við til frekari skýringar, að þú hafir tekið fram, að þetta mál sé ekki nýtt af nálinni, því það hafi ver- ið rætt á Alþingi, síðast árið 1991. Á þeim tíma hafi olíuverð verið of lágt til að slík vinnsla gæti borgað sig og tækni heldur ekki til staðar þar sem bora þarf niður fyrir 1000 metra sjáv- ardýpi. „Norðausturhluti landhelginnar“? Netmiðilinn visir.is greinir svo sjálfur frá því, að svæðið sem hér um ræðir sé í norðausturhluta íslensku landhelginnar kallist „Drekasvæðið“, og liggi að miðlínunni við Jan Mayen. – Og bætir við í lokin, að reikna megi með að töluverður áhugi sé til staðar á að fá leyfi fyrir rannsóknarbor- unum í kjölfar fregna um mikinn ol- íufund úti fyrir ströndum Austur- Grænlands! Áhugamenn um fullkönnun setlag- anna við norðausturströnd Íslands fullyrða, að ekkert sé skylt með olíu- leit eða könnun á setlögum á marg- nefndu „Drekasvæði“ við Jan Mayen og þeim setlögum sem fundust á svæðinu út af Eyjafirði og Skjálfanda fyrir tilstuðlan SHELL Int- ernational árið 1970. Frá þeim tíma til ársloka 1974 bár- ust íslenskum stjórnvöldum óskir frá 25 erlendum aðilum um leyfi til leitar að olíu og gasi hér við land. Ekki þótti rétt að veita þeim jákvæða af- greiðslu, utan hvað leyfi var veitt til SHELL International í Haag í Hol- landi til að framkvæma jarð- fræðilegar mælingar á landgrunni Íslands. Feluleikurinn um landgrunnið Málið liggur svo í skúffum ís- lenskra ríkisstjórna og ráðuneyta allt til ársins 1996, að 6 þingmenn Sjálf- stæðisflokks, undir forystu Guð- mundar Hallvarðssonar alþm., leggja fram tillögu til þingsályktunar um að fela ríkisstjórninni að stuðla að því að hefja markvissar rann- sóknir á því hvort olía eða gas finnist á landgrunni Íslands með vísan til þeirra svæða á landgrunninu sem fyrri rannsóknir benda til að líkleg- ust séu til að geyma slíkar auðlindir og leitað samstarfs við erlenda aðila um rannsóknirnar. Ekkert gerðist og líklegt að málið hafi hreinlega verið svæft. Þessi feluleikur virðist enn á fullu, samanber þögnina og takmarkaða umræðu ráðamanna – og fjölmiðla – um gas og olíusetlög hér við land. Frétt vísis.is 26. sept. sl. sýnist ein- mitt því marki brennd. Ég á bágt með að trúa því að þú hafir verið alls kostar sáttur við þesa takmörkuðu umfjöllun vísis.is undir fyrirsögninni Sérleyfi fyrir olíu- rannsóknir í undirbúningi. – Þar sem sífellt er klifað á „Drekasvæðinu“ við Jan Mayen eins og það sé mikilvæg- asta hafsvæðið til olíuleitar fyrir okk- ur Íslendinga! Þú átt leik, Össur Nú er mál að spyrja þig, Össur Skarphéðinsson sem iðnaðarráð- herra: Hvað finnst þér um þetta mál allt? Er ekki nærtækara að láta full- kanna hvað nærri 5 km þykk setlög á Skjálfanda og Öxarfirði hafa að geyma, frekar en Drekasvæðið við Jan Mayen? Ég á ekki von á að þú farir með veggjum ef ég þekki þig rétt, vegna þessa máls, en látir linna feluleiknum um svo mikilvægt atriði sem setlögin kunna að vera fyrir okkur Íslend- inga. – Það er vísast enginn áhugi á raunhæfum rannsóknum á marg- nefndu Drekasvæði, hvað þá við Austur-Grænland samkvæmt nýj- ustu fréttum, en því meiri á rann- sóknum hér við land. Alþingi ályktaði að fela iðn- aðarráðherra að skipa starfshóp með þátttöku vísindamanna að meta hvort rétt sé hefja markvissar rann- sóknir á olíu eða gasi á landgrunni Ís- lands. Þetta var samþykkt á Alþingi 13. maí 1997. – Nú átt þú leik, Össur. Með kveðju til þín og óskum um velgengni í nýju starfi. Olíuvæn setlög við Norðausturlandið Geir R. Andersen skrifar opið bréf til iðnaðarráðherra »Er ekki nærtækaraað fullkanna hvað nærri 5 km þykk setlög á Skjálfanda og Öx- arfirði hafa að geyma, frekar en Drekasvæðið við Jan Mayen? Geir Andersen Höfundur er blaðamaður. FYRIR tveimur árum hafði ég for- ystu um að flytja frumvarp á Alþingi um reykleysi á veitinga- og skemmti- stöðum. Urðu miklar og heitar um- ræður um málið í sam- félaginu í kjölfarið þar sem sitt sýndist hverj- um um ágæti málsins. Héldu sumir því fram að með samþykkt þess væri vegið að frelsi ein- staklinga, sem ættu sjálfir að ákveða hvort þeir reyktu eður ei á veitinga-og skemmti- stöðum. Einnig heyrð- ust þau furðulegu sjón- armiði að ekki væri sannað að óbeinar reykingar væru skað- legar. Hið rétta er að slíkt er búið að margsanna. Margir studdu frumvarpið, s.s. ýmis félög á heil- brigðissviði og mik- ilvægir hags- munaaðilar í veitingarekstri, s.s. stéttarfélagið Efling, Matvæla- og veitinga- samband Íslands (Matvís) og Samtök ferðaþjónustunnar (SAF). Vinnuvernd Reykleysið var síðan samþykkt af Alþingi nokkru síðar á grundvelli vinnuverndar þ.a. starfsfólk á veit- inga- og skemmtistöðum fékk þannig sama rétt og annað starfsfólk á því að anda að sér hreinu lofti í vinnunni, laust við tóbaksreyk frá öðrum. Í vor varð á ný umræða um reykleysið vegna reglugerðasmíði um hvernig búið skyldi að reykjandi gestum skemmtistaðanna utandyra. Loks var heit umræða um reykleysið nú í haust í tengslum við tímabærar og velheppnaðar aðgerðir lögreglunnar við að stemma stigu við skrílslátum og slæmri umgengni í miðborg Reykjavíkur á helgarkvöldum og nótt- um. Í þeirri umræðu var reynt að tengja slæma umgengni á göt- um úti í of miklum mæli við reykleysið á skemmtistöðunum, en allir vita, sem til þekkja, að umgengnin var orðin slæm löngu áður en reykleysið kom til. Reykleysi vel tekið Þótt umræðan hafi oft á tíðum verið hörð um nýja reykleysið á skemmtistöðunum er alveg ljóst að afar vel hefur tekist til með hin- ar breyttu reglur. Skoðanakannanir hafa sýnt um nokkurt skeið að þorri almennings tekur reykleysinu vel og styður það. Nýjasta könnunin var birt 2. október sl. en hún sýnir að um 82% styðja reyk- leysið. Sú niðurstaða er mjög gleðileg og sýnir að breið sam- staða og almenn ánægja ríkir með hið breytta fyrirkomulag. Nú geta allir, bæði starfsfólk og gestir, notið við- veru á veitinga- og skemmtistöðum án þess að anda að sér skaðlegum tóbaksreyk frá öðrum. Reykleysi skemmtistaða Siv Friðleifsdóttir skrifar um reykingabannið á veitinga- og skemmtistöðum » Þótt umræðanhafi oft á tíð- um verið hörð um nýja reykleysið á skemmtistöð- unum er alveg ljóst að afar vel hefur tekist til með hinar breyttu reglur. Siv Friðleifsdóttir Höfundur er alþingismaður.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.