Morgunblaðið - 07.10.2007, Side 45

Morgunblaðið - 07.10.2007, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 45 “ÍS-MYND”, GRILL,ÍS,DVD NÝJU VERSLUNARMIÐSTÖÐINNI HVERAGERÐI MIKIL VELTA ORRAHÓLAR- 3. HERBERGJA STÓRKOSTLEGT ÚTSÝNI Í 3 ÁTTIR STÓRAGERÐI- 3. HERBERGJA STÓRKOSTLEGT ÚTSÝNI Mikið endurnýjað fjölbýli. Bílskúrsréttur. Upplýsingar í sala@firmus.is eða í 694 3401 Frábært verð : kr. 22.900.000,- Skiptu tímanlega, vertu öruggur og forðastu biðraðirnar! Umhverfisvænn valkostur í stað nagladekkja Harðskeljadekk - Umhverfisvænni lausn! Frá framleiðanda ársins árið 2007 kemur byltingarkennt ofurdekk sem hentar við hörðustu vetraraðstæður líkt og ríkja gjarnan á Íslandi. TOYO nýtir sér eiginleika valhnetuskelja, eins harðasta efnis sem fyrirfinnst í náttúrunni. Þannig næst á umhverfisvænni hátt aukið öryggi, minni loftmengun og lágmarks malbiksskemmdir. Í fyrstu hálku ár hvert verður fjöldi árekstra sem flesta hefði mátt koma í veg fyrir. Að setja vetrardekkin undir snemma losar þig við biðraðir og stress, og eykur öryggi þitt til muna. Settu TOYO harðskeljadekkin undir strax í dag. Ekki bíða! TOYOHarðskeljadekkByltingarkennt svar viðauknum kröfum umumhverfisvænni dekk ogaukið öryggi í vetrarakstri! Fiskislóð 30 Sími 561 4110Vagnhöfða 23 - S: 590 2000 Ha rð sk el ja de kk in se ld us t u pp í f yr ra ! EFTIR að nýr meirihluti Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks tók við stjórn í OR voru þau útrás- arverkefni sem í vinnslu hafa verið hjá Orkuveitunni færð í sérstakt dótturfélag, Reykjavík Energy In- vest (REI). Hinn 11. september var svo óvænt tilkynnt á blaðamanna- fundi, án samráðs við minnihlutann og án þess að stjórn Orkuveitunnar hefði fjallað um málið, að Bjarni Ár- mannsson hefði keypt hlut í REI fyrir 500 milljónir. Síðan þá hefur Bjarni gegnt stjórnarformennsku í REI en með honum í stjórn sitja þeir Björn Ingi Hrafnsson og Hauk- ur Leósson. Minnihluti stjórnar OR hefur ekki átt neina aðkomu að stjórn REI og því ekki haft nein tök á að hafa eft- irlit með hraðri framvindu mála í dótturfélaginu. Með nokkurra klukkustunda fyrirvara var svo boð- að til stjórnar- og eigendafundar hjá OR síðastliðinn miðvikudag. Minni- hluti stjórnar fékk að morgni síðast- liðins miðvikudags fund með stjórn- arformanni OR og forstjórum OR og REI til að fara yfir efni boðaðs fund- ar. Á þeim fundi var minnihlutanum gerð grein fyrir því að síðar um dag- inn stæði til að sameina íslensku fé- lögin sem starfa að íslensku orkuút- rásinni, Geysir Green Energy og REI. Forkaupsréttarsamningar samþykktir á laun Á þessum undirbúningsfundi fór minnihlutinn fram á ýmis gögn um REI, meðal annars var gengið hart eftir því að lagður yrði fram listi yfir lykilstarfsmenn og stjórnendur sem stjórn REI hafði þá samþykkt að veita forkaupsrétt í félaginu. Þegar sá listi var á endanum lagður fram er óhætt að segja að mönnum hafi brugðið. Enda kom í ljós að þeir kaupréttarsamningar sem stjórn REI hafði samþykkt að gera við starfsmenn og tímabundna ráðgjafa voru langt út fyrir öll velsæm- ismörk. Fyrir utan almenna furðu á slíkum kaupréttarákvæðum í op- inberu eða hálfopinberu fyrirtæki var bent á að forkaupsréttur sumra einstaklinga á listanum gæti skapað beina hagsmunaárekstra milli per- sónulegra hagsmuna og hagsmuna OR. Þessi gagnrýni varð til þess að ákveðið var að fjarlægja sex nöfn af listanum en önnur látin haldast, þar á meðal nafn kosningastjóra Björns Inga frá því í síðustu kosningum en hann hefur nýlega verið ráðinn til REI sem skemmtanastjóri (Event manager) og nýtur þar kaupréttar. Fyrirhuguð stjórnarlaun Þá var formaður stjórnar OR og stjórnarmaður í REI, Haukur Leós- son, inntur eftir því hver stjórn- arlaunin væru í stjórn REI og svar- aði hann því til að þau hefðu verið ákveðin 350 þúsund og tvöföld fyrir formennsku. Nokkur umræða varð um þetta á fundinum enda svona töl- ur fyrir stjórnarsetu fáheyrðar. Eftir að þessi stjórnarlaun kom- ust í hámæli hafa menn reynt að draga í land. Bent hefur verið á að ekki hafi verið haldinn aðalfundur eftir að Bjarni Ármannsson keypti sig inn í REI og því hafi engar form- legar breytingar verið gerðar á stjórnarlaunum og því séu launin enn þau sömu og þau voru, eða 120 þúsund. Það er gott ef umræðan verður til þess að koma í veg fyrir að stjórnarmenn í REI leggi í þann leiðangur að skammta sér hærri laun því 120 þúsund hljóta að teljast mjög rífleg stjórnarlaun. Krafa um fagleg vinnubrögð Það er því ljóst að ýmislegt vafasamt hefur farið fram í þessari eftirlitslausu stjórn REI. Á stjórnar- og eig- endafundinum þar sem samruninn var samþykktur lögðu borgarfulltrúar Sam- fylkingar og Vinstri grænna í stjórn OR því fram þá formlegu tillögu að fulltrúar OR í stjórn REI verði vald- ir út frá faglegum forsendum að höfðu samráði við minnihlutann. En til vara fór minnihlutinn fram á að annar fulltrúi OR í stjórn REI kæmi frá minnihlutanum, ef meirihluti stjórnar OR kysi áfram að velja póli- tíska fulltrúa til setu í stjórn REI. Þessari tillögu var frestað til næsta fundar stjórnar OR. Samruni útrásarfyrirtækja Augljóst er að þeir sem hafa setið sem fulltrúar Orkuveitunnar í stjórn REI hafa blindast af þeirri hagn- aðarvon sem vissulega er í útrás- arverkefnum OR. Það er mjög miður hvernig græðgi, vinapot og pólitísk spilling hafa sett ljótan svip á sam- runa þessara útrásarfélaga. Því samruni REI og GGE getur þrátt fyrir allt verið skref í rétta átt í útrás íslenskra orkufyrirtækja. Ekki leik- ur vafi á því að sameinað fyrirtæki stendur sterkar að vígi í verkefnum sínum erlendis en fyrirtækin sitt í hvoru lagi. Annað sem er ánægju- legt við þennan samrunasamning er að viðskiptavild og orðspor Orku- veitu Reykjavíkur er metið í samn- ingnum á 10 milljarða. Þessir 10 milljarðar eru þannig metnir til við- bótar við framlag OR í peningum og efnislegum eignum, meðan aðrir eignast sinn eignarhlut í félaginu með því að leggja eignir og peninga inn í félagið. Í samningnum um sam- runann er Orkuveita Reykjavíkur því að njóta þeirrar þekkingar og reynslu sem orðið hefur til í fyr- irtækinu og íslenska orkuútrásin byggist á. Næstu skref Nú bíður ærið verkefni við að end- urvinna traust almennings. Sam- fylkingin er tilbúin að taka þátt í því að koma útrásarverkefnum Orku- veitunnar aftur í eðlilegt og heilbrigt horf þannig að almannahagsmuna sé gætt og allir geti verið stoltir af. Athafnastjórnmál í Orkuveitunni Dagur B. Eggertsson og Sigrún Elsa Smáradóttir skrifa um sameiningu Geysir Green Energy og REI Sigrún Elsa Smáradóttir Höfundar eiga sæti í stjórn og vara- stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Dagur B. Eggertsson » Það er mjög miðurhvernig græðgi, vinapot og pólitísk spill- ing hafa sett ljótan svip á samruna þessara út- rásarfélaga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.