Morgunblaðið - 07.10.2007, Side 65

Morgunblaðið - 07.10.2007, Side 65
því að margir iðnaðarmenn fóru til Svíþjóðar þar sem eftir þeim var sótt. Reynir var einn í þeim hópi. Einn morguninn skömmu eftir að hann kom til Málmeyjar og vinna skyldi hefjast spurði sænski verk- stjórinn hvort einhver hér gæti ekki talað svolítið í skandinavísku. Bönd- in bárust strax að Reyni og fyrr en varði var hann orðinn flokkstjóri í hópi Íslendinga. Þau hjónin, Reynir og Hólmfríður undu sér vel í Svíþjóð, náðu strax svo góðum tökum á málinu að inn- fædda grunaði ekki að Reynir væri útlendingur. Í Veddinge á Skáni reistu þau sér einbýlishús með góð- um garði. Þangað var gott að koma og gisti ég þar ófáar nætur. Son- urinn Baldur undi líka hag sínum vel og býr hann enn í Svíþjóð. En römm er sú taug er rekka dregur föðurtúna til – og þegar hillti undir starfslok Reynis árið 1998 fluttu þau hjónin heim til Íslands. Fyrstu tvö árin bjuggu þau á Sauð- árkróki en síðan á Akureyri þar sem þau áttu ljúft ævikvöld. Eftir að Hólmfríður dó, í desember 2006, tók heilsu Reynis verulega að hraka þótt minni héldi hann til hinstu stundar. Í sumar hitti ég þennan góða æskuvin tvisvar sinnum á Akureyri, í seinna skiptið rétt viku áður en hann dó. Þá leyndi sér ekki hvað í vændum var. Eftir því sem árin liðu var okkur kærara að minnast æskudaganna við Arnarfjörð og nú kveð ég þig með söknuði, kæri vinur og frændi og bið þér allrar blessunar. Fjölskyldu þinni færi ég hugheilar samúðar- kveðjur. Sigurjón Einarsson. Fjölskylduvinur er fallinn frá. Eftir langa og litríka ævi, þar sem sannarlega skiptust á skin og skúrir, mætti ætla að Reynir Ragnarsson hafi verið hvíldinni feginn. Hann tók á sig nokkrar langferðir yfir heims- ins höf um ævina en nú er komið að þeirri síðustu. Upp kemur fjöldi minningabrota frá æskuárunum þegar Reynir og Hólmfríður voru tíðir gestir á Hóla- veginum, jafnvel þó að þau kæmu um lengri veg en flestir gestir á þeim árum, alla leið frá Svíaríki. Þau voru trygg vinum sínum og slepptu ekki heimsókn á Hólaveginn í Ís- landsferðum sínum, þá gjarnan um jól og áramót er þau komu „heim“ að halda upp á afmælisdaga sína í faðmi fjölskyldu og góðra vina. Fyrir ungan og ósigldan dreng voru þetta spennandi og framandi gestir, þó svo hlýleg, lífsglöð og heimilisleg. Skemmtilegast fannst mér að hlusta á sögurnar sem Reyn- ir sagði svo skemmtilega, með sínum sænska hreim, og litlu skipti þó að maður skildi ekki alltaf allar sænskusletturnar. Reynir var ákaflega hlýr maður og með létta lund, hafði frábæra frá- sagnargáfu og algjört stálminni þeg- ar kom að gömlum tímum og horfn- um samferðamönnum. Reynir og faðir minn heitinn, Björn Guðnason, kynntust á Krókn- um er Reynir flutti þangað sem ung- ur maður til smíðastarfa. Úr varð að þeir stofnuðu ásamt Braga Jósafats- syni og fleirum Byggingafélagið Hlyn árið 1954, sem kom að bygg- ingu fjölda húsa á Sauðárkróki á uppgangstímum þess bæjarfélags. Á milli Reynis og pabba mynduðust sterk vinar- og tryggðabönd, sem héldust vel þó að Reynir flytti til Svíþjóðar, og slitnuðu ekki fyrr en pabbi dó fyrir 15 árum. Missir okk- ar fjölskyldunnar var mikill en ég veit til þess að missir Reynis var litlu minni, hann þá kominn á átt- ræðisaldur og farinn að huga að heimferð frá Svíþjóð til að eyða efri árunum á ættjörðinni. Söknuður eftir góðum vini var sár og honum þótti erfitt að geta ekki verið við- staddur útförina. Því miður urðu samskiptin ekki jafn mikil eftir að Reynir og Hólm- fríður fluttu heim til Íslands, jafnvel þó að þau byggju á Króknum um tíma, enda „litli drengurinn“ þá löngu fluttur að heiman. En gaman þótti mér að fá símtal frá Reyni fyr- ir fáum árum, er hann var kominn aftur til Akureyrar, á sína endastöð, og leitaði aðstoðar við að finna grein í frumskógi veraldarvefsins. Í ljós kom að hann hafði fylgst með „litla drengnum“ úr fjarlægð og það var gott að heyra þessa hlýju rödd aft- ur, þar sem enn örlaði á sænska hreimnum, en því miður urðu sam- tölin ekki fleiri. Leiðir hefur skilið í bili og eftir lifa æskuminningar um góðan mann. Nú eru þeir Reynir og pabbi áreiðanlega farnir að bauka eitt- hvað saman á æðri tilverustigum og rifja upp gömul bernskubrek. Ef til vill hefur Hlynur verið endurreistur og hamarshöggin farin að dynja á ný! Fjölskyldan á Hólaveginum send- ir syni Reynis og systur innilegar samúðarkveðjur, með þökk fyrir vináttu hans og hlýhug alla tíð. Björn Jóhann. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 65                               ! "# $!% &   ' (!!%  ! $) (!!*% !! +! ( (!!*% , ( '$  (!!*% - $ .! $  (!!*% /  0  (!!*% 0  1 ! (!!*% ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför BIRGIS BRANDSSONAR, Heiðarbrún 36, Hveragerði. Sérstakar þakkir til lögreglu- og sjúkraflutninga- manna á Selfossi og starfsfólks Heilsugæslunnar í Hveragerði. Jóhanna Þórhallsdóttir, Þórhallur Birgisson, Ingibjörg Helga Baldursdóttir, Lárus Stefán Þráinsson, Kristján Stefán Þráinsson, Þorsteinn Birgisson, Guðbjörg Konráðsdóttir, Birgir Þór Þorsteinsson, Konráð Þór Þorsteinsson. ✝ Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar dóttur okkar, systur, mágkonu og barnabarns, EDDU SIGRÚNAR JÓNSDÓTTUR, Álftamýri 8, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks og fyrrum samnemenda í Kvenna- skólanum í Reykjavík, einnig til starfsfólks leikskólans Hofs fyrir ómetanlega aðstoð sem vart á sér hliðstæðu. Anna Reynisdóttir, Jón Baldvin Sveinsson, Halldór Jónsson, Helena H. Júlíusdóttir, Guðbjörg R. Jónsdóttir, Brynjar Ingason, Sigurður R. Jónsson, Svala Hilmarsdóttir, Kristinn S. Jónsson, Hólmfríður E. Gunnarsdótti, Kjartan V. Jónsson, Olga B. Bjarnadóttir, Svandís E. Jónsdóttir, Ólafur Þráinsson, Hrefna V. Jónsdóttir, Tómas Rúnarsson, Anna Sigurjónsdóttir, Kristján J. Ólafsson. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- konu minnar og móður okkar, HELGU DAGBJARTSDÓTTUR, Syðstu- Mörk, undir Eyjafjöllum. Guðjón Ólafsson, Pétur Guðjónsson, Björgvin Guðjónsson. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa, langafa og vinar, GUÐBJARTS GUÐMUNDSSONAR, Árskógum 6, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki heima- hlynningar Landspítala og líknardeildar Landspítala Landakoti fyrir kærleiksríka umönnun. Linda Guðbjartsdóttir, Magnús Ársælsson, Steinunn Hlín Guðbjartsdóttir, Erlendur Magnússon, Pétur Guðbjartsson, Birna Margrét Guðjónsdóttir, Jónína Guðbjartsdóttir, Kolbeinn Ágústsson, barnabörn og barnabarnabörn. Anna Kristín Linnet. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, FANNEYJAR JÓNSDÓTTUR, Dalbraut 20, Reykjavík. Kærar þakkir til allra þeirra er önnuðust hana og studdu í erfiðum veikindum. Guð blessi ykkur öll. Arngrímur H. Guðjónsson, Haraldur B. Arngrímsson, Klara Sæland, Guðjón Þ. Arngrímsson, Brynhildur J. Gísladóttir, Sólveig G. Arngrímsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug, styrk og stuðning við andlát og útför okkar áskæru eiginkonu, móður, dóttur, systur, mágkonu, tengdadóttur og barnabarns, INGERAR TÖRU LÖVE ÓMARSDÓTTUR, Hjallahlíð 29, Mosfellsbæ. Sérstakar þakkir sendum við stjórnendum EJS og leikskólanum Huldubergi, Mosfellsbæ. Vignir Steindórsson, Gréta Guðný Snorradóttir, Vignir Ómar Vignisson, Ómar Másson, Þóra Löve, Sigrún Helga Löve Rud, Svein Erik Rud, Þórhildur Löve, Guðlaug Elíasdóttir, Sigurjón H. Valdimarsson , Steindór Gunnarsson, Þorbjörg Gísladóttir, Helga Guðbrandsdóttir og fjölskyldur. Litli bróðir, þú fórst áður en ég gat kvatt þig. Þín systir, Ásthildur. Fyrirgefningin. Við þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast þér, Guðjón Björgvin Guðmundsson. Frá myrkri til ljóss. Frá lygi til sannleika. Frá dauðleika til ódauðleika. (Mantra úr sanskrít.) Við kynntumst Guðjóni sem lífs- glöðum ungum dreng. Lífið blasti við í minningunni þegar hann ásamt dóttur minni, barnsmóður sinni, ók í burt á nýkeyptum gömlum Audi og fjölskyldan stóð í dyrunum og veif- aði. Hún var öðruvísi kveðjustundin sem við áttum fyrir skömmu þegar við kvöddumst í hinsta sinn. Sorgin er ómæld, ekki síst sorgin yfir því sem hefði getað verið. Með því að fá að syrgja þökkum við þér einnig það sem þú hefur gefið okkur dýrmæt- ast, hana elsku dóttur þína. Þú gafst okkur einnig aðra hluti sem er erf- iðara að horfast í augu við, tilfinn- inguna fyrir eigin vanmætti. Vertu Guð faðir faðir minn í frelsarans Jesú nafni. Hönd þín leiði mig út og inn svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson.) Við skoðum hver sitt hjarta og biðjum Guð og góðu englana að geyma þig og leiða þig áfram til ljóssins. Lind Völundardóttir. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birt- ist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minn- ingargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveim- ur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.