Morgunblaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 67
VW árg. '06 ek. 15 þús. km. Grár,
diesel, filmur, ssk, ek.15000 km.
Áhvílandi gott bílalán, um 2,2 m.
Mán. afb. er 35-37 þús. Verðhug-
mynd: 2.950 þús. Mjög vel með fa-
rinn, reyklaus bíll. Engin skipti. Uppl.
í síma 895 0648. Helgi.
Toyota árg. '92 ek. 113 þús. km
Nýskoðuð Corolla, 5 dyra, hvít. Lítið
ekin. Í sömu fjölsk. frá upphafi.
Verð/tilboð. Uppl. Hannes 660-1000.
Nissan árg. '00 ek. 107 þús. km.
Nissan Almera Luxury, ´00, ek. 107 þ.
Beinsk., nýskoðaður og smurður, 1,8
vél. Verð 600.000, 550.000 stgr.
Upplýsingar í síma 690-6143.
M. Benz árg. ‘03, 220 CDI dísel. Vel
búinn aukabúnaði. Verð 3.490, stgr.
3,1.lán getur fylgt. Sími 893 5005.
Bílasala.is, sími 533 2100
Hyundai Santa Fe árg. '05 ek.
71.000 km.
Vel með farinn Hyundai Santa Fe
2005 (2,4 bensín, 71 þ km) til sölu á
tilboðsverði 2 millj. Áhv. er 1.920 þús.
Fæst á yfirtöku + 80.000.
Uppl. í síma 662 0435
Bílar
Þjónustuauglýsingar 5691100
Smáauglýsingar 5691100
AÐ LOKNU Evrópumeistaramóti
unglinga sem fram fór í smábænum
Sibinek í Króatíu seinni hluta sept-
embermánaðar geta Íslendingar
sennilega nokkuð vel metið stöðu
sína á alþjóðvettvangi skákarinnar
hvað varðar þennan aldurshóp.
Fremstu skákþjóðir heims með
Rússa í broddi fylkingar sendu mik-
inn fjölda keppenda til mótsins en
alls voru þátttakendur 758 talsins og
var teflt í fimm aldursflokkum pilta
og stúlkna. Þar af voru Rússar með
78 keppendur. Austurblokkin er hin
endanlega viðmiðun í skákinni og í
Króatíu var mikill meirihluti þátttak-
enda úr þeirri áttinni. Þó Rússar beri
ægishjálm yfir aðrar þjóðir eftir að
Sovétríkin liðu undir lok hafa þeir átt
i harðri samkeppni við Úkraínu-
menn, Armena og jafnvel Azera á al-
þjóðmótum.
Fulltrúar Íslands á mótinu voru
Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir,
Sverrir Þorgeirsson og Hjörvar
Steinn Grétarsson. Hallgerður tefldi
í flokki stúlkna 16 ára og yngri og var
sennilega yngst þátttakenda því hún
verður 15 ára í árslok. Hún varð í 43.
– 50. sæti af 70 keppendum og hlaut 4
vinning af níu mögulegum.
Sverrir tefldi í flokki pilta 16 ára og
yngri og hafnaði í 38. – 52. sæti af 92
keppendum með 4 ½ vinning af níu
mögulegum. Hjörvar Steinn Grét-
arsson tefldi í flokki pilta 14 ára og
yngri. Hjörvar varð í 6. – 15. sæti í
sínum flokki, hlaut 6 vinninga úr 9
skákum. Keppendur voru 84 talsins.
Samtals hlutu þau 14 ½ v.af 27
mögulegum Sá sem þessar línur ritar
var fararstjóri og þjálfari.
Það sem blasir við á jafn stóru móti
og því sem fram fór í Króatíu er
hvernig tölubyltingin hefur umbylt
skákinni. Upplýsingar hrúgast upp í
miklu magni; vandinn að skilja kjarn-
ann frá hisminu. Hér í eina tíð voru
menn að rogast með þetta 10–15 kíló
af bókum á milli móta. Stundum
þurfti að toga út úr mönnum bulletin
sem svo voru kölluð, skrár yfir tefld-
ar skákir á einhverju móti sem fram
hafi farið vikum eða mánuðum fyrr.
Friðrik Ólafsson vann Kavalek í Las
Palmas í apríl 1974 með miklum
glæsibrag og beitti leikaðferð sem
hann hafði séð í skák sem tefld var í
Wijk aan Zee í Hollandi í janúar
sama ár.
Í dag er hægt að fylgjast með öll-
um helstu mótum beint á netinu og
alls ekki hægt að gera ráð fyrir að
koma andstæðingi sínum á óvart með
nýjustu upplýsingum.
Að mörgu er að hyggja þegar und-
irbúa þarf viðureign dagsins. Dag-
skráin var í stuttu máli þessi: Kl. 9–
10 morgunverður Kl. 10–12. farið yfir
líklegar byrjanir 12–13. Hádegis-
verður. 13.–14.30. Meiri undirbún-
ingur og hvíld. 15–20. Taflmennska
og eftirárannsóknir. 22–23.30.
Skákbyrjanir kvíslast í allar áttir
og aldrei hægt að taka alla möguleika
með í reikninginn en sennilega hægt
að byggja upp aðferðir til að mæta
hinu óvænta. Hér á eftir fara tvær
sigurskákir Sverris og Hjörvars þar
sem undirbúningur gekk að öllu leyti
upp. Í þeirri fyrri leikur Sverrir 18.
g3, sem við höfðum undirbúið fyrir
skákina. Samanburðarfræði og ein-
hverjar óljósar hugmyndir um fyrir-
brigði sem kalla má leikþröng í mið-
tafli og setning sem Spasskij lét falla
eftir sigurskák við Curt Hansen á af-
mælismóti SÍ árið 1985 kom okkur á
bragðið:
„Ég tefli eins og Tsjígorin,“ sagði
heimsmeistarinn fyrrverandi og
horfði fast á viðstadda.
Hvað meinar maðurinn? Ívitnun í
viðtal nokkrum árum síðar:
„Ég kann best við þær skákbækur
sem skrifaðar voru í Rússlandi fyrir
byltingu.“ Þessar þessar setningar
fundust mér upplýsandi um Spasskij,
fræðilegan bakgrunn hans og lífsaf-
stöðu.
Minnihlutaárás hvíts gekk full-
komlega upp í þessari skák og eftir
að Sverrir nær að mola varnir svarts
26. Rxf7 gat hann unnið skákina á
hvern þann hátt sem hann lysti.
EM Sibinek; 5. umferð:
Sverrir Þorgeirsson – Filip Bek-
arovsky (Makedonía)
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4.
Rxe4 Bf5 5. Rg3 Bg6 6. h4 h6 7. Rf3
Rd7 8. h5 Bh7 9. Bd3 Bxd3 10. Dxd3
e6 11. Bd2 Dc7 12. O-O-O Rgf6 13.
Re4 Rxe4 14. Dxe4 Rf6 15. De2 O-
O-O 16. c4 c5 17. Bc3 Bd6
18. g3 Hhe8 19. Re5 a6 20. f4 Bf8
21. Kb1 Hd6 22. dxc5 Hxd1+ 23.
Hxd1 Bxc5 24. g4 He7 25. g5 Re8 26.
Rxf7 Rd6 27. g6 b5 28. Be5 Hd7 29.
cxb5 Db6 30. Dd3
– og svartur gafst upp.
Meran-afbrigðið í slavneskri vörn
og kennt er við bæinn Merano á Ítal-
íu er eitt beittasta vopn svarts gegn
drottningarpeðsbyrjunum. Hjörvar
gat valið milli þess að leika 8. .. b4, 8.
.. a6 eða 8. .. Bb7 en valdi síðast-
nefnda leikinn. Staðan var í jafnvægi
lengst af en Frakkanum sást yfir
hinn snjalla leik, 33. .. Rc3. Í stað 33.
Dxb3 gat hann leikið 33. Kg2 með
hugmyndinni 33. .. b2 34. Db3! o.s.frv.
EM í Sibinek; 8. umferð:
Antoine Manouvre ( Frakkland ) –
Hjörvar Steinn Grétarsson
Slavnesk vörn
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. e3 e6
5. Rc3 Rbd7 6. Bd3 dxc4 7. Bxc4 b5
8. Bd3 Bb7 9. O-O a6 10. e4 c5 11. d5
Dc7 12. dxe6 fxe6 13. De2 c4 14. Bc2
Bd6 15. He1 Bc5 16. Bg5 O-O 17.
Be3 Rg4 18. Bxc5 Rxc5 19. h3 Re5
20. Rxe5 Dxe5 21. a3 Bc6 22. De3
Hac8 23. Hf1 Hcd8 24. Had1 Hxd1
25. Hxd1 a5 26. g3 b4 27. f4 Dh5 28.
g4 Dh4 29. Re2 Ba4 30. Bxa4 Rxa4
31. axb4 axb4 32. b3 cxb3 33. Dxb3
Rc3
34. Rxc3 Dg3+ 35. Kh1 Dxh3+ 36.
Kg1 Dxg4+ 37. Kf2 Hxf4+ 38. Ke3
Df3+ 39. Kd4 Hxe4+ 40. Kc5 Dxc3+
- og hvítur gafst upp.
Einvígi Guðlaugar og
Hallgerðar
Einvígi Guðlaugar Þorsteinsdótt-
ur og Hallgerðar Helgu Þorsteins-
dóttur um titilinn Íslandsmeistari
kvenna 2007 hófst í gær en þær urðu
jafnar á Íslandsmótinu á dögunum
hlutu báðar 7 ½ vinning úr átta skák-
um. Alls verða tefldar fjórar skákir
en Guðlaug hafði hvítt í fyrstu skák-
inni í gær. Ef jafnt verður eftir fjórar
skákir fer fram bráðabani.
Skákin á tímum tölvunnar
helol@simnet.is
Helgi Ólafsson
Fulltrúar Íslands F.v. Sverrir Þorgeirsson, Hallgerður Helga Þorsteins-
dóttir og Hjörvar Steinn Grétarsson.
SKÁK
EM ungmenna
Sibinek í Króatíu
13. – 24. september
Pera vikunnar:
4 20 17 9
8 19 6 15
12 3 0 5
11 17 2 13
Byrjaðu í rúðunni með töluna 8.
Þú getur fært þig þaðan til einnar
af grannrúðunum 5 og svo áfram
til annarra grannrúðna.
Færðu þig nú frá rúðunni með
tölunni 8 og yfir 4 aðrar rúður
þannig að summan af tölunum 5
verði 50.
ATH. grannrúður eru rúður sem
snertast á hlið eða horni.
Skilafrestur fyrir réttar lausn-
ir er til kl. 12 mánudaginn 15.
október. Lausnir þarf að senda á
vef skólans, www.digranesskoli-
.kopavogur.is en athugið að
þessi Pera verður ekki virk þar
fyrr en eftir hádegi þann 8.
október.
Frekari upplýsingar eru á vef
skólans.
Stærðfræðiþraut Digranesskóla og Morgunblaðsins
NÝNEMASTYRKIR Háskólans í Reykjavík voru af-
hentir í fyrsta sinn mánudaginn 1. október síðastliðinn,
við hátíðlega athöfn.
34 nýnemar (16 piltar og 18 stúlkur) í grunnnámi við
HR hlutu styrk, sem þýðir að þeir fá felld niður skóla-
gjöld á fyrstu önn náms, auk þess sem þeir fá 150.000
króna framfærslustyrk. 19 þessara nema stunda nám í
tækni- og verkfræðideild, 6 eru í viðskiptadeild, 6 í laga-
deild, 2 eru við kennslufræði- og lýðheilsudeild og einn
nemandi er úr tölvunarfræðideild. Landsbanki Íslands
er bakhjarl þessara nýnemastyrkja og greiðir hvort
tveggja, skólagjöld og framfærslustyrk nemanna. Sig-
urjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, og dr.
Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, afhentu
styrkþegunum viðurkenningarskjöl, en þeir voru valdir
út frá umsóknum sem þeir sendu inn snemma í sumar.
Valið byggðist á heildarmati á skólaumsókn þeirra, með
sérstakri hliðsjón af árangri á stúdentsprófi.
Framúrskarandi nýnemar heiðraðir