Morgunblaðið - 07.10.2007, Page 68
68 SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Al-þingi var sett á
mánu-daginn og hófst
at-höfnin að venju með
messu í Dóm-kirkjunni.
Ólafur Ragnar Grímsson,
for-seti Íslands, sagði í
á-varpi sínu að hinn mikli
auður, sem um-svif á
er-lendum vett-vangi hafa
skapað, mætti ekki verða til
þess að böndin sem hafa
bundið þjóðina saman
trosnuðu. Vaxandi auð-legð
ætti heldur að út-rýma
fá-tækt hér á landi.
Sam-kvæmt
fjárlaga-frumvarpinu 2008,
sem Árni M. Mathiesen
fjármála-ráðherra lagði
síðan fram í þing-sölum,
verður ríkis-sjóður rekinn
með sam-tals tæp-lega 100
milljarða króna tekju-afgangi
árin 2007 og 2008.
Í stefnu-ræðu sinni á
þriðju-daginn sagði Geir H.
Haarde forsætis-ráðherra að
stefnt væri að því að lækka
skatta bæði á ein-staklinga
og fyrir-tæki, m.a með því
að hækka
persónu-afsláttinn og
endur-skoða skatt-kerfið og
almanna-tryggingar til að
bæta hag lágtekju- og
millitekju-fólks.
100 milljarða króna tekju-afgangur
Morgunblaðið/Sverrir
Á blaðamanna-fundi á
miðviku-daginn var til-kynnt
um samkomu-lag stjórnar
Reykjavík Energy Invest
(REI), sem er dóttur-félag
Orku-veitu
Reykjavíkur
(OR), og
Geysir Green
Energy (GGE)
um
sam-einingu
fé-laganna
undir
merkjum REI.
Heildarhluta-fé er 40
milljarðar króna.
Hannes Smárason,
stjórnar-formaður í GGE og
for-stjóri FL Group, sagði að
sam-einingin væri leið til
þess að stækka hraðar, en
REI væri í sam-keppni við
risa-stór orku-fyrirtæki.
Mikil óánægja er meðal
full-trúa D-listans í stjórn
OR, því stefna OR stangast
á við sjónar-mið
sjálfstæðis-manna um skil
milli einka-framtaks og
opin-bers rekstrar.
Svandís Svavarsdóttir,
full-trúi Vinstri grænna,
segir það óviðunandi fyrir
stjórnar-meðlimi að fá bara
nokkrar klukku-stundir til að
taka ákvarðanir um
gríðar-lega hags-muni og
þar með umtals-verða
ráð-stöfun á almanna-fé.
Hún efast um lög-mæti
fundarins.
REI og GGE
sam-einast
Hannes
Smárason
Fær Mýrin Óskarinn?
Kvik-myndin Mýrin eftir
Baltasar Kormák verður
fram-lag Íslands til for-vals
Óskars-verðlaunanna í
flokknum besta er-lenda
myndin árið 2008. Það voru
með-limir Íslensku
kvik-mynda- og
sjónvarps-akademíunnar
(ÍKSA) sem völdu myndina
með raf-rænni kosningu.
Börnin best
Kvik-myndin Börn eftir
Ragnar Bragason var valin
besta myndin á al-þjóðlegri
kvikmynda-hátíð í
Kaupmannahöfn. Myndin
fékk Gullna svaninn,
aðal-verðlaun há-tíðarinnar.
Ragnar tók sjálfur við
verð-laununum.
Konung-legt brúð-kaup
Jóakim Dana-prins hefur
trú-lofast franskri unnustu
sinni, Marie Cavallier.
Brúð-kaup fer fram snemma
á næsta ári. Jóakim er
næst-elsti sonur Margrétar
Dana-drottningar og á tvo
syni frá fyrra hjóna-bandi.
Fólk
Vladímír Pútín, for-seti
Rúss-lands, ætlar að taka
efsta sæti á lands-lista
stærsta flokks landsins í
komandi þing-kosningum 2.
desember. Þá verður hann ef
til vill forsætis-ráðherra, og
það tryggir að hann verði enn
við völd eftir að hann lætur af
embætti forseta Rússlands á
næsta ári.
Stjórnmála-skýrendur halda
að þetta muni efla þingið og
ríkis-stjórnina á kostnað
forseta-embættisins, og
jafnvel leiða til
grundvallar-breytinga á
stjórn-kerfi landsins.
Pútín sagði að það væri
„alger-lega raun-hæft“ að
hann yrði forsætis-ráðherra
eftir þing-kosningarnar.
Pútín áfram
við völd?
Valur tryggði sér Íslands-meistara-titilinn í
knatt-spyrnu í loka-umferð
Landsbanka-deildarinnar á laugardags-kvöld
fyrir viku. Valur sigraði þá HK 1:0. Þetta er í
21. skipti sem Valur fagnar
Íslands-meistara-titlinum, en það gerðist
síðast fyrir 20 árum, árið 1987. Þjálfari Vals
er Willum Þór Þórsson.
Undan-farin tvö ár hefur liðið hvergi átt
heima. Leik-menn Vals hafa þurft að æfa út
um alla borg og við ýmsar að-stæður sem er
mikil áskorun fyrir leik-mennina.
Fram-herjinn snjalli, Guðmundur
Benediktsson, hefur átt stóran þátt í
vel-gengni Vals-manna í sumar. „Ég er ekki í
vafa um að mörg lið hefðu brotnað við þá
að-stöðu sem við Vals-menn höfum þurft að
búa við síðustu ár en við náðum að búa til
ein-staka stemningu innan hópsins sem
skilaði sér svo sannar-lega alla leið,“ sagði
Guðmundur eftir sigurinn.
Valur Íslands-
meistari
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Í dag lýkur Alþjóð-legri
kvikmynda-hátíð í Reykjavík.
Finnski
kvikmynda-gerðar-maðurinn
Aki Kaurismäki fékk verð-laun
há-tíðarinnar fyrir
framúr-skarandi list-ræna
kvikmynda-sýn. Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, af-henti Kaurismäki
verð-launin á Bessa-stöðum.
Hann hefur leik-stýrt 15
kvik-myndum í fullri lengd.
Þýska stór-stjarnan Hanna
Schygulla fékk sér-stök
heiðurs-verðlaun fyrir
ævi-starf sitt í þágu
kvikmynda-leiks. Hún hefur
leikið í um 80 kvik-myndum.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgar-stjóri veitti henni
verð-launin.
Kaurismäki og
Schygulla verð-launuð
Hanna Schygulla
Óstað-festar fregnir herma að
öryggis-sveitir
herforingja-stjórnarinnar í
Búrma hafi hand-tekið
þúsundir manna til að kveða
niður fjölda-mótmæli.
Mót-mælendurnir eru í
bráða-birgða-fangelsum í
gömlum verk-smiðjum og
háskóla-byggingum.
Ekki er vitað hversu margir
létu lífið í að-gerðunum.
Sendi-maður Sam-einuðu
þjóðanna, Ibrabim Gambari,
ræddi við leið-toga
herforingja-stjórnarinnar,
Than Shwe, til að reyna að
binda enda á þessa blóð-ugu
her-ferð. Síðan fékk hann að
hitta Aung San Suu Kyi,
leið-toga
stjórnar-andstöðunnar og
friðar-verðlauna-hafa Nóbels,
sem er í stofu-fangelsi.
Than Shew segist vera
til-búinn að ræða við Aung
San Suu Kyi, ef hún hættir að
styðja refsi-aðgerðir gegn
herforingja-stjórninni.
Þúsundir
manna í haldi?
Reuters
Suu Kyi og Ibrahim Gambari
Netfang: auefni@mbl.is