Morgunblaðið - 07.10.2007, Síða 83
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 83
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
0
7
-1
0
7
3
NÝ ÍSLENSK DAGSKRÁRGERÐ Í SJÓNVARPINU – Á HVERJUM DEGI Í VETUR
SILFUR EGILS
Stjórnmálamenn, stjórnmálaskýrendur, fjölmiðla-
fólk og fleiri sem eitthvað hafa til málanna
að leggja ræða um landsins gagn og nauðsynjar
í Silfri Egils.
SUNNUDAGA KL. 12.30
ÞRÁTT fyrir að söng- og leik-
konan Jennifer Lopez hafi neitað
orðrómi þess efnist að hún gengi
með barn undir belti virðist það
þó vera satt.
Lopez hélt tónleika í Connecti-
cut á miðvikudagskvöldið, hún var
klædd í víðan topp og þegar vind-
hviða blés honum upp var ekki um
að villast að þar leyndist óléttub-
umba undir.
„Hún var mjög snögg að ýta
toppnum niður. En síðan talaði
hún um það að þetta ár virtist
vera ár nýjunga hjá henni,“ sagði
einn tónleikagesta.
Giskað er á það að Lopez ætli
að tilkynna óléttuna á tónleikum í
Madison Square Garden í kvöld.
Barn á
leiðinni?
Reuters
Lopez Á tónleikum í lok september í Taj Mahal spilavítinu í Atlantic City.
SEXTÁN MÁNAÐA sonur Gwen
Stefani kann að „slamma“. Stefani
segir að Kingstone, sonur hennar
og Gavin Rossdale gítarleikara
Bush, hafi erft tónlistarhæfileika
foreldra sinna.
Hún sagði InStyle tímaritinu:
„Hann syngur mikið með sjálfum
sér og hlustar á tónlist. Hann er
líka búinn að læra að slamma.“
Söngkonan segir að hún reyni að
eyða eins litlum tíma fjarri Kings-
ton og hún geti. „Ég elska hann svo
mikið, hann er það besta sem hefur
komið fyrir mig.“ Hún tók hann
með sér í The Sweet Escape tón-
leikaferðina og hefur innréttað
hljómleikarútu sína með tilliti til
þarfa hans. Reuters
Sonurinn
slammar
SEAN Ono Lennon er kominn til
landsins til að vera við vígslu frið-
arsúlunnar í Viðey á afmælisdegi
föður síns, Johns Lennons, 9.
október. Hann flaug frá New York
í gærmorgun.
Mikið hefur verið rætt um það
seinustu daga hvort Bítillinn
Ringo Starr muni mögulega verða
viðstaddur einnig. Það ýtir ef til
vill enn frekar undir þennan orð-
róm að í tölvupósti Icelandair til
félaga á breskum póstlista fyr-
irtækisins voru ferðamenn hvattir
til að koma til Íslands í október
„þegar áætlað er að Paul McCart-
ney og Ringo Starr afhjúpi frið-
arsúlu Yoko Ono í Viðey“. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Icelandair
á Íslandi var það skrifstofa Ice-
landair í London sem skrifaði
póstinn.
Morgunblaðið/Ómar
Friðarsúla Sean Lennon er kominn
til landsins til að vera viðstaddur
vígslu friðarsúlunnar í Viðey.
Bítlar og
bítlabörn
ALLS söfnuðust 150 milljónir á
minningartónleikunum um Díönu
prinsessu sem haldnir voru í Lond-
on í sumar. Þetta var tilkynnt í
gær.
Það voru synir Díönu, Harry og
William, sem stóðu fyrir tónleik-
unum í tilefni þess að 10 ár eru síð-
an hún lést. Tónleikarnir voru
haldnir 1. júlí, á afmælisdag Díönu,
en hún hefði orðið 46 ára hefði hún
lifað. Tónleikunum var sjónvarpað
til 140 landa og mun peningunum
sem söfnuðust verða skipt á milli 8
góðgerðarsamtaka. Heimilislausu
fólki í London mun meðal annars
verða hjálpað, alnæmisveikum og
munaðarlausum börnum í Lesotho
og krabbameinssjúkum á Royal
Marsden-sjúkrahúsinu í London.
Söfnuðu 150
milljónum