Morgunblaðið - 14.10.2007, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 39
um aflað okkur gríðarlegrar þekk-
ingar á sviði ál- og virkj-
anaframkvæmda sem og
viðskiptasambanda sem er grunn-
forsenda góðs gengis í útrásinni.
Með tilkomu fjárfestingarfyr-
irtækja í okkar iðnaði og fjárfest-
ingarvilja bankanna er komin upp
ný staða. Tækifærin liggja því í
samþættingu fjármagns og
sérfræðiþekkingar í bland við
stórhug, áræði og nýsköpun.
Svo mæltu Skapti Valsson stjórn-
arformaður og Kolbeinn Björnsson
framkvæmdastjóri í samtali við Ís-
lenska orku. Verkfræðistofurnar
Línuhönnun og Afl hönnuðu eina öfl-
ugustu háspennulínu Evrópu. Línan
getur flutt 4.500 MW en uppsett afl
íslenskra virkjana er um 1.600 MW.
Verkefnið fékkst í útboði franskra
og pólskra verktaka. Ásamt Raf-
teikningu stofnuðu stofurnar verk-
fræðifirmað Adison um línuhönnun í
Rússlandi og opnuðu skrifstofu í
Pétursborg. Gunnar Ingi Gunnars-
son, einn stofnenda, kvað mögu-
leikana gífurlega, enda raflínur í
Rússland margfalt lengri en ís-
lenska byggðalínan:
Áhrifavaldar Frá vinstri Emanuel R. Meyer, Paul Müller og Thor Jensen.
Kerfin eru orðin 50-60 ára gömul
og kominn tími á almenna end-
urnýjun. … Þetta er gríðarleg
verkefni því Rússar þurfa að
byggja og endurnýja mörg þúsund
kílómetra af háspennulínum á
næstu árum. Til þess að setja hlut-
ina í samhengi er byggðalínan á
Íslandi um það bil 1.500 til 2.000
kílómetra löng.5
Og nú eru það djúpboranir. Ís-
lensk orkufyrirtæki hyggjast verja
milljörðum í djúpboranir. Með jarð-
varmavirkjunum hafa Íslendingar
náð dýrmætu forskoti á aðrar þjóðir.
Iðnaðarráðherra boðar stórfellda út-
rás hins íslenska orkugeira. Forseti
Íslands er óþreytandi að kynna sér-
stöðu Íslands. Erindi Íslands á 21.
öld verður að færa heiminum þekk-
ingu íslenskra orkufyrirtækja; þekk-
ingu sem hefur skapast með öflugum
heimamarkaði sem tók að þroskast
þegar Neil Armstrong spókaði sig á
tunglinu; „Lítið skref fyrir mann en
risaskref fyrir mannkyn.“
Arfleifð Meyers,
Müllers og Thors Jensen
Engir útlendingar hafa haft meiri
áhrif á íslenskt atvinnulíf en Em-
anuel Meyer og Paul Müller. Helst
til að jafna föðurlaus danskur piltur
sem sumarið 1878 steig á land á
Borðeyri, lærði íslensku, varð Ís-
lendingur. Thor Jensen stóð í stafni
fyrstu atvinnubyltingar íslenskrar
þjóðar. Hann setti öðrum viðmið.
Meyer og Müller eru frumkvöðlar að
annarri atvinnubyltingu þjóðarinnar.
Hvað ef það hefði verið skýjað þenn-
an haustdag í október 1960 þegar
þeir flugu yfir landið? Hannes Haf-
stein dreymdi um kraft úr fossa
skrúða, stritandi vjelar, starfsmenn
glaða og prúða. Einar Benediktsson
hvatti þjóðina til þess að reisa viljans
merki – vilji væri allt sem þyrfti.
Skáldjöfurinn var sannspár:
Hve mætti bæta lands og lýðs vors kjör
að leggja á bogastreng þinn kraftsins ör –
1 Http://www.fjarmalaraduneyti.is/media/
Thjodarbuskapurinn/Thjodarbuskap-
urinn_Sumar_2007.pdf
2www.samorka.is/Apps/WebObjects/
Samorka.woa/1/wa/dp?deta-
il=1000294&id=1000091&wo-
sid=lzhgXn8xov8ouhZXmx5Kkg
3 Íslensk orka, 1. tbl. 2007. Útgefandi Land
og saga.
4 Morgunblaðið 18. júní.
5 Morgunblaðið 16. júlí 2007.
Morgunblaðið/RAX
Í þágu friðar Verður friðarsúlan táknmynd um frið og vistvæna orku?
Höfundur er framkvæmdastjóri
og fyrrverandi blaðamaður
á Morgunblaðinu.
Viltu selja eða
kaupa fyrirtæki?
Firma Consulting, Þingaseli 10, 109 Reykjavík,
GSM: (+354) 820 8800 og (+354) 896 6665,
Fax: (354) 557 7766, Veffang: firmaconsulting.is
Magnús Hreggviðsson viðskiptafræðingur og lög-
giltur fyrirtækja-, fasteigna- og skipasali. Magnús er
með áratuga reynslu af endurskoðunarstörfum, sem
rekstrarráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgef-
andi, fasteignarekandi, „land-developer“ í Smára-
hvammi og starfandi stjórnarformaður í nokkrum
fyrirtækjum. Er aðalráðgjafi hjá Firma Consulting.
(magnus@firmaconsulting.is)
Firma Consulting (www.firmaconsulting.is) er
ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við
kaup og sölu millistórra og stórra fyrirtækja.
Express Fer›ir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
BORGARFERÐ
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
9.–12. nóvember
Fararstjóri: Hjálmar Sveinsson
Helgarferð
til Berlínar
Verð á mann í tvíbýli
53.900 kr.
OPIÐ HÚS VEGHÚSUM 31
í dag sunnudag kl. 17 - 18
Stórglæsileg 3. herbergja íbúð, nr. 903
Kristján sölufulltrúi, 896 3867
VINNUVERND
vellíðan í vinnu
Vinnuverndarvikan 22.-26. október 2007
Vinnuvernd ehf • Brautarholti 28 • 105 Reykjavík • sími 578 0800 • www.vinnuvernd.is
Líkamsbeiting og vinnutækni
– “hæfilegt álag er heilsu best”
Í tengslum við Vinnuverndarvikuna dagana 22. - 26. október
mun Vinnuvernd ehf. bjóða uppá sérstakan fræðslufund fyrir
vinnustaði um líkamlegt álag við vinnu.
Sjúkraþjálfarar Vinnuverndar munu annast fræðsluna og er
miðað við að hún taki 40 - 60 mínútur.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 578 0800
Vinnuvernd er þjónustufyrirtæki á sviði vinnu- og heilsuverndar og sinnir fjölmörgum
fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum á því sviði. Meðal þeirrar þjónustu sem
Vinnuvernd veitir er þjónusta trúnaðarlækna, fjarvistaskráning, heilsufarsskoðanir og
-mælingar, vinnustaðaúttektir, áhættumat, ráðgjöf sálfræðinga og fjölbreitt fræðsla
á sviði vinnu- og heilsuverndar.