Morgunblaðið - 18.10.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.10.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 284. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is Má bjóða þér sæti? >> 45 Leikhúsin í landinu ENGA STEYPU LÖGÐUST Í FERÐALÖG Í STAÐINN FYRIR AÐ KAUPA SÉRBÝLI >> 24 FRÉTTASKÝRING Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is HJÁ tveimur stærstu lögregluemb- ættum landsins, lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu og lögreglunni á Suðurnesjum, gegna lögreglunemar í starfsþjálfun algjöru lykilhlutverki og í raun er vandséð að embættin gætu án þeirra verið. Undanfarið hefur mikið verið fjallað um manneklu hjá lögreglu og m.a. komið fram að á þessu ári hafi 40 lögreglumenn tilkynnt uppsagnir auk þess sem 13 eru í launalausu leyfi en slíkt er oft fyrsta skrefið að því að menn láti af störfum. Til þess að reyna að stöðva þetta brottfall var fyrir þremur vikum ákveðið að lögreglumenn fengju 30.000 króna álagsgreiðslu á mánuði. Samkvæmt upplýsingum frá Landssambandi lögreglumanna virðist sem auka- sporslan hafi haft áhrif, þótt of snemmt sé að segja til um það. Manneklan hefur bitnað harðast á almennu deildunum en þar eru laun- in lægst (a.m.k. ef vaktaálag er ekki tekið með) og þaðan sækja menn upp á við í betur launuð störf, s.s. í sérsveit og í rannsóknardeildum. Á höfuðborgarsvæðinu eru nemar nú um 30% þeirra sem ganga vaktir í al- mennri deild og á Suðurnesjum er fjórðungur lögreglumanna á al- mennri deild nemar og hvorki meira né minna en 15% allra lögreglu- manna. Reynt er eftir megni að tryggja að vanir lögreglumenn séu með þeim að störfum en komið hefur fyrir að t.d. nemi og afleysinga- maður séu saman á lögreglubíl. Yf- irleitt er það í lagi en þeir geta þurft að sinna bráðaútköllum, s.s. að veita bílum eftirför eða stöðva átök, og þá skiptir reynsla miklu máli. Að sögn Arnars Guðmundssonar, skólastjóra Lögregluskólans, eru nemar fullnuma í atriðum á borð við handtökur og valdbeitingu þegar þeir hefja starfsnámið og fyllilega í stakk búnir til að takast á við öll al- menn lögreglustörf. Neyðarakstur sé á hinn bóginn ekki kenndur sér- staklega og langan tíma taki að öðl- ast góða færni í honum. Morgunblaðið/Júlíus Löggæsla Skortur er á lögreglu- mönnum í höfuðborginni. Nemar eru lykil- menn Manneklan mest á almennum deildum ÞAU Elíza og Guðmundur Péturs- son fóru mikinn á sviðinu á Nasa á fyrsta kvöldi tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves í gærkvöldi en hátíðin er nú haldin í níunda skipti. Fjöldi erlendra gesta kemur til Ís- lands í tilefni hátíðarinnar en neysluáhrifin eru talin nema 400- 500 milljónum. | 48-49 og Viðskipti Morgunblaðið/Ómar Iceland Airwaves í níunda sinn LISTAVERKIÐ Fivefold eye eftir Ólaf Elíasson seldist á margföldu matsverði á uppboði hjá uppboðsfyr- irtækinu Christie’s í London á sunnu- dag. Verkið, sem er skúlptúr úr stáli og speglum, var slegið á rúmlega 80 milljónir króna en var metið á 11 til 15 milljónir. Þetta er að öllum líkindum hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir verk eftir Íslending og slær þar með út verkið Hvítasunnudag eftir Jóhann- es S. Kjarval sem seldist á tæpar 20 milljónir fyrr á árinu. Líklega dýrasta íslenska listaverkið Skúlptúr Fivefold Eye eftir Ólaf Elíasson. MIKLAR breytingar verða á gatna- kerfinu í kringum Smáralind og Smáratorg með tilkomu nýrra húsa á svæðinu. Umferðarþungi er mikill á Fífuhvammsvegi og Dalvegi og framkvæmdir eru hafnar til að létta umferðarálagið. Má þar m.a. nefna brú (ramp) sem mun tengja Reykja- nesbraut sameiginlegu bílastæði Smáralindar og Smáratorgs. Lind- arvegur liggur ofan atvinnu- húsnæðis, sem fasteignafélagið Smáragarður ehf. er að reisa við Skógarlind, og í bígerð er að fram- lengja Lindarveg og tengja hann við frárein frá Reykjanesbraut upp á brúna milli Mjóddar og Breiddar. Skógarlind mun liggja frá Lindar- vegi, fara í göng undir Reykjanes- braut, þar sem nú er göngustígur, og tengjast Dalvegi. Í atvinnuhúsnæðinu sem Smára- garður er að reisa munu verða, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins, m.a. verslanirnar Elko, Intersport og Krónan. Þessar verslanir, auk Byko, eru í eigu Norvik. | 20 Götubylting í Kópavogi Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is SAMRÁÐSNEFND um húsaleigu- bætur hefur lagt til við Samband ís- lenskra sveitarfélaga að framlög til húsaleigubóta hækki um rúmar 200 milljónir króna á næsta ári og um aðr- ar rúmar 200 milljónir kr. á árinu 2009. Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga lýsti sig á síðasta fundi sínum tilbúna til viðræðna við ríkis- valdið um hækkun húsaleigubóta, en forsenda þeirra viðræðna er að sá kostnaðarauki sem af þessu hlytist fyrir sveitarfélögin yrði að fullu bætt- ur. Í bréfi samráðsnefndarinnar kemur fram að grunnfjárhæðir húsaleigu- bóta hafi ekki hækkað frá árinu 2001 og í sumum tilvikum jafnvel ekki frá 1999. Á sama tíma hafi húsaleiga hækkað verulega þannig að hlutfall bótanna af húsaleigu hafi lækkað mjög mikið og er vísað til þess að á þessu tímabili hafi húsaleiguvísitalan hækk- að um 110% á sama tíma og almennt verðlag hafi hækkað um tæp 48%. Vandinn á húsnæðismarkaði hefur aukist síðustu misserin, meðal annars í kjölfar mjög hækkaðs fasteignaverðs og aukinnar greiðslubyrði vegna vaxtahækkana á langtímalánum. Um 2.700 manns eru á biðlistum eftir fé- lagslegu húsnæði nú. Nefnd á vegum félagsmálaráðherra, sem skipuð var í sumar, vinnur að tillögum um úrbæt- ur í húsnæðismálum. Ráðherra lagði fyrir nefndina að skila tillögum um næstu mánaðamót en óvíst er hvort það tekst, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Þá hefst ársfundur Alþýðusambands Íslands í dag og verða þar m.a. til umræðu áherslur sambandsins í velferðarmálum. Í hús- næðismálum eru tillögur um t.a.m. að taka upp eitt kerfi húsnæðisbóta í stað núverandi kerfis húsaleigu- og vaxtabóta og að veita þeim sem eru að kaupa fasteign í fyrsta skipti sérstaka fyrstukaupastyrki. Er gert ráð fyrir að húsnæðismál verði ofarlega á baugi í kjarasamningunum sem eru framundan. Vilja hækka húsaleigubætur um rúmar 400 milljónir kr. Í HNOTSKURN »Deilur um kostnaðarskipt-ingu húsaleigubóta hafa staðið milli ríkis og sveitarfé- laga í mörg ár. »Hjón eru bara 12% af þeimsem fá húsaleigubætur og 44% bótaþega eru með minni tekjur en 1,1 milljón.  ASÍ vill að þeir sem eru að kaupa húsnæði í fyrsta skipti fái sérstaka styrki  Leigumarkaðurinn | Viðskipti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.