Morgunblaðið - 18.10.2007, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Noregur er paradís gönguskíðafólks enda er stundum sagt að
Norðmenn fæðist með gönguskíði á fótunum. Nú bjóðum við upp á
óvenjulega ferð til Noregs þar sem gengið er að hluta til á milli staða.
Í þessari ferð gefst færi á að reyna meira á sig, en einnig koma
dagar inn á milli þar sem hægt er að slappa af og fara styttri
dagleiðir. Dagana þegar gengið er á milli gististaða fáum við leiðsögn
heimamanna sem þekkja svæðið eins og lófana á sér, en á meðan er
farangurinn fluttur á milli. Flogið til Oslóar og ekið um 200 km í
norðurátt til Hallingdal og Valdres, en leiðin liggur um Golsfjellet,
Sanderstølen, Vaset og Storefjell.
Fararstjórar: Íris Marelsdóttir sjúkraþjálfari
Verð: 144.800 kr.
9. – 16. mars
Sp
ör
-
Ra
gn
he
ið
ur
In
gu
nn
Ág
ús
ts
dó
tti
r
Noregur
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
GÖNGUSKÍÐAFERÐ
Nú steinhættir þú öllu brölti, Bjössi, það er kominn friður.
VEÐUR
Dagur B. Eggertsson borgarstjórier maður hinna mörgu orða (og
innihaldslausu orða að margra
mati). Hann ætlar að vera „fumlaus,
faglegur og lýðræðislegur“ í vinnu-
brögðum eftir því sem hann sjálfur
segir.
Nú er beðið eftir því að hann verði„fumlaus“ í vinnubrögðum við
að hækka laun
kennara og þar á
meðal leikskóla-
kennara.
En þá bregðursvo við að
hinn „fumlausi og
faglegi“ borg-
arstjóri hefur
áhyggjur af því
að „gríðarleg spenna í efnahagslíf-
inu“ geti haft áhrif á launakjör
kennara ef orð hans í RÚV í gær-
morgun eru rétt skilin.
Hann þarf líka að ræða við rík-isvaldið um málið.
Eru það bara launakjör kennaraog leikskólakennara sem geta
haft áhrif á hið spennta efnahagslíf?
Hefur borgarstjórinn engaráhyggjur af því að kauprétt-
arsamningarnir hjá Reykjavík
Energy Invest geti haft áhrif á
spennuna í atvinnulífinu?
Það er ekki að sjá.
Af hverju eru það bara hófsamirkjarasamningar við kennara
sem geta haft áhrif á efnahagslífið
en ekki kaupréttarsamningar hinna
útvöldu að mati forystumanna Sam-
fylkingarinnar?
Það mun áreiðanlega ekki standaá manni hinna mörgu orða að
útskýra það.
STAKSTEINAR
Dagur B.
Eggertsson
Maður hinna mörgu orða
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
!
!
!
!"
"
# #
$#
:
*$;< ###
!
*!
$$; *!
%
&'#
#& #
(
=2
=! =2
=! =2
%
' #)
*
+#,-
!-
;
" # $ % & ' % ()*
/
+ $, % )*
, -
=7
$
! .
% $
/ % ()* 0
./ # #00
# #1
#)
*
3'45 >4
>*=5? @A
*B./A=5? @A
,5C0B ).A
$
"$"
$"
2
2
2
$ $""
3$ $ $"3
$ 3
$
3$ 3$ 3$ $"
$"
$"
$ $ 2
2
2
2
2
23
2
2
23
2
2"
2"
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Davíð Logi Sigurðsson | 16. október
Athyglisverðar
kosningar
Það er akkúrat í ár að
kosið verður milli Ís-
lands, Austurríkis og
Tyrklands vegna
tveggja lausra sæta í
öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna. Öll tilheyra
löndin WEOG-grúppunni svokölluðu
(Western Europe and others, lesist:
Ástralía, Kanada og Nýja Sjáland).
Það var verið að kjósa inn ný ríki í
öryggisráðið í dag en engin WEOG-
ríki að þessu sinni …
Meira: davidlogi.blog.is
Páll Vilhjálmsson | 17. október
Verðkannanir ASÍ
Umræðan um hvort
verðlagseftirlit ASÍ
megi gera verðkann-
anir í Baugsversluninni
er svo himinhrópandi
vitlaus að það tekur
ekki tali. Verklags-
reglur um verðkannanir eru álíka út í
bláinn og að nota glærukynningu til
að kenna fimm ára barni að grípa
bolta. Eina rétta aðferðin til að gera
verðkönnun er að fara út í búð eins og
hver annar neytandi og kaupa sam-
kvæmt fyrirfram ákveðnum lista …
Meira: pallvil.blog.is
Ómar Ragnarsson | 17. október
Yfirborðskennd tala
Tölur um fleiri vinnu-
stundir karla en
kvenna á vinnumark-
aðnum kunna að vera
réttar en segja þó að-
eins hálfa sögu og geta
því gefið ranga mynd.
… Gott dæmi um yfirborðskennda
tölu er talan um þjóðarframleiðslu
og þjóðartekjur og dæmisagan um
ráðskonuna, sem giftist karlinum
sem hafði hana í vinnu og vinnur eft-
ir það á heimilinu sem húsmóðir án
sérstakra launa fyrir það …
Meira: omarragnarsson.blog.is
Huld S. Ringsted | 17. október
Burt með fordómana
Ég á dóttur sem er
greind með ADHD (at-
hyglisbrestur með of-
virkni). Stundum á ég
ekki til orð yfir for-
dóma samfélagsins
gagnvart þessum
krökkum, þeir fordómar geta verið
særandi, ekki bara fyrir mig sem
móður hennar heldur sérstaklega
fyrir hana. Þessir krakkar finna fyr-
ir fordómunum á marga vegu, frá
öðrum krökkum, frá kennurum, frá
foreldrum og allt of oft frá fjöl-
skyldu. Þessir fordómar gera það að
verkum að krakkar með ADHD fara
að trúa því að þau séu verri en aðrir
krakkar, hafa lítið sjálfsálit og eiga í
miklum erfiðleikum í lífinu. Ég skrif-
aði pistil fyrir svolitlu síðan sem ég
kallaði Mitt Hjartans mál. Núna
langar mig að skrifa um okkar líf og
hvernig það er að eiga barn með
ADHD. Dóttir mín er rétt að verða
13 ára, mitt fyrsta barn. Fljótlega
kom í ljós að ekki var allt í lagi hjá
henni en greiningin kom ekki fyrr en
hún var á þriðja ári í skóla. Frá byrj-
un var hún erfið og svo sannarlega
handfylli. Hún eirði aldrei, svaf ekki
nema örstutta stund í einu en glað-
leg var hún og brosmild svo hún
bræddi hjarta mitt inn á milli þess
sem ég grét af þreytu og svefnleysi.
Ofvirknin er það sem er mest áber-
andi áður en skólaganga hefst, ekki
mátti líta af henni eina sekúndu því
hún var uppi á öllu, ofan í öllu og inni
í öllu enda voru slysin eftir því. Að
fara með hana með sér í búðir var
tremmi (ef þið sjáið mömmu með
argandi barn sem prílar upp hillur,
hendir vörum um allt gólf og hendir
sér svo gargandi í gólfið, verið þol-
inmóð, þetta gæti verið mamma í
svipuðum sporum og ég), fljótlega
gafst ég upp á því að fara með hana í
búðir eða heimsóknir til fólks því
vanþóknun og leiðinlegar at-
hugasemdir særðu meira en nokk-
urn grunar. Heima tók hún köst
(sem margir mundu kalla frekju-
köst) yfir engu, þá fékk ekkert frið
fyrir henni hvorki húsgögn, munir
né fólk en líðanin hjá henni á eftir
var ofsalega sár grátur. Mikill léttir
var fyrir mig þegar hún fékk inn á
leikskóla, þá gat ég farið að vinna
hálfan daginn og fyrir mig var það
eins og sumarfrí … það hafa allir
galla og kosti ekki bara þessi börn.
Meira: ringarinn.blog.is
BLOG.IS