Morgunblaðið - 18.10.2007, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
NÚ STENDUR yfir rannsóknaverk-
efni í veiðitækni í samstarfi Hafrann-
sóknastofnunarinnar og HB Granda.
HB Grandi bauð stofnuninni að
leggja til Örfirisey RE 4 við rann-
sóknirnar sem fara fram þessa dag-
ana. Verið er að gera tilraunir með að
aðskilja þorsk og ýsu í botnvörpu
þannig að tegundirnar hafni í sitt
hvorum vörpupokanum.
Hófust í Ísafjarðardjúpi
Er rannsóknin framkvæmd þannig
að þil úr neti er sett í endilanga vörp-
una þannig að fiskur sem heldur sig
ofarlega í vörpunni safnast í annan
hluta poka en sá sem heldur sig í
neðri hluta vörpunnar. Þannig má
t.d. aðgreina ýsu og þorsk því þekkt
er að þessar tegundir sýna mismun-
andi atferli gagnvart botnvörpu.
Rannsóknirnar hófust í Ísafjarðar-
djúpi og voru gerðar þar meðan verið
var að gera þær breytingar á vörp-
unni sem þurfa þótti. Örfirisey er nú
komin á hefðbundna togaraslóð þar
sem rannsóknirnar halda áfram út
vikuna.
„Náist tilætlaður árangur standa
vonir til að nota megi mismunandi
möskvastærð í aftasta hluta vörpunn-
ar þannig að hámarka megi veiðni
hennar með því að nota eina möskva-
stærð til að halda ýsu skv. gildandi
reglum um undirmál. Um leið má
nota aðra möskvastærð til að sleppa
t.d. smáþorski út úr vörpunni,“ segir
um rannsóknirnar á heimasíðu Haf-
rannsóknastofnunarinnar.
Mikil óánægja
Mikil óánægja er með rannsókn-
irnar meðal Vestfirðinga og hefur
Elding, félag smábátaeigenda, meðal
annars sent frá sér ályktun vegna
þeirra.
„Stjórn Eldingar harmar þau mis-
tök að leyfa eitt þúsund tonna verk-
smiðjutogara, b/v Örfirisey RE-4, að
toga inn eftir öllu Ísafjarðardjúpi í
heila viku. Djúpið er eitt af aðal upp-
eldissvæðum nytjastofna við Ísland.
Fullvíst má telja að þessar botn-
trollsveiðar á grunnsævi hafi nú þeg-
ar valdið miklum skaða. Stjórn Eld-
ingar mótmælir harðlega að þúsund
tonna verksmiðjutogara sé leyft að
eyðileggja lífsbjörg smærri báta, sem
stundað hafa þessa veiðislóð þegar
veður eru válynd utan Djúpsins.
Stjórn Eldingar mótmælir enn
fremur öllum botnvörpuveiðum inn-
an 12 mílna.
Elding lýsir yfir furðu sinni á að
Hafrannsóknastofnun standi að botn-
vörpuveiðum vegna veiðarfærarann-
sókna á þúsund tonna skipi innfjarð-
ar. Veiðarnar eru í hróplegri mótsögn
við þær friðunaraðgerðir sem stofn-
unin hefur staðið fyrir undanfarið.
Bent skal á að ekki hefur verið
unnt að hleypa bátum til rækjuveiða
á þessum tíma vegna mikils magns
seiða og smáfisks í Djúpinu nú nýlega
þegar m/b Dröfn RE stundaði rann-
sóknir þar á vegum stofnunarinnar,“
segir meðal annars í ályktun elding-
ar.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunarinnar, segir
að Örfiririsey hafi verið inni á Ísa-
fjarðardjúpi í þrjá sólarhringa. „Að-
stæður til rannsókna af þessu tagi
eru taldar góðar á þessum slóðum,
þarna er mjúkur botn og tegunda- og
stærðarsamsetning á fiskinum heppi-
leg. Þarna var líka verið var að gera
betrumbætur á veiðarfærinu við
samvinnu við Fjarðarnet á Ísafirði.
Við kappkostum að sjálfsögðu að
valda ekki skaða á lífríkinu við rann-
sóknir okkar og reynum að gera þær
í sátt við heimamenn á hverjum stað.
Það var ætlunin að vera utar við
Djúpið en þar voru línubátar á veið-
um og því var ákveðið að fara innar.
Sérfræðingar okkar á svæðinu voru
við stjórnvölinn og ég tel ólíklegt að
skaði hafi hlotizt af þessum tilraun-
um. Það er því miður að einhverjum
hafi mislíkað þetta, enda tilgangurinn
góður“ segir Jóhann Sigurjónsson
Reyna að aðgreina þorsk og ýsu
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Rannsóknir Tilraunaveiðar togarans Örfiriseyjar inni á Ísafjarðardjúpi
hafa gert mönnum fyrir vestan gramt í geði.
Togarinn Örfirisey í veiðarfæratilraunum inni á Ísafjarðardjúpi Heimanenn ósáttir við tilraunirnar
sem þeir telja að hafi valdið miklum skaða Forstjóri Hafró segir miður ef mönnum mislíki þetta
ÚR VERINU
VERKEFNI munu færast til milli
ráðuneyta ef frumvarp sem for-
sætisráðherra mælir fyrir á Al-
þingi í dag verður samþykkt.
Markmiðið er að einfalda stjórn-
sýsluna og hafa sömu málaflokk-
ana undir einni stjórn.
Ferðamál færast t.a.m. frá sam-
gönguráðuneyti til iðnaðarráðu-
neytis, Skógrækt ríkisins og Land-
græðsla ríkisins fara frá
landbúnaðarráðuneyti til umhverf-
isráðuneytis og málefni Nýsköp-
unarsjóðs atvinnulífsins fara frá
viðskiptaráðherra til iðn-
aðarráðherra. „Þar sem frum-
varpið varðar eingöngu tilfærslu
verkefna milli ráðuneyta og hag-
ræðingu sem því fylgir mun það
fyrst og fremst hafa áhrif á stjórn-
sýsluna sjálfa. Ætla má að hún
verði almennt talað betur í stakk
búin en fyrr til að sinna verk-
efnum sínum,“ segir í greinargerð
með frumvarpinu.
Breytingar á
stjórnsýslunni
Birkir Jón Jónsson 17. október
Alfreð í heimsókn
Ég borðaði með Alfreð Þorsteins-
syni í hádeginu í dag í þinginu. Það
hefur staðið lengi til
að við hittumst en
loksins varð það að
veruleika […]. Ann-
ars var gaman að sjá
það í dag að Alfreð
þekkir marga þing-
menn þeirra flokka
sem stóðu að R-listanum á sínum
tíma …
Meira: birkir.blog.is
Björn Bjarnason 16. október
Engin rök
Mér heyrðist ágætur flokksbróðir
minn og samþingmaður, Sigurður
Kári Kristjánsson,
rökstyðja aukið að-
gengi að áfengi í
verslunum á þann
veg, að hér verði til
einhver Miðjarðar-
hafsdrykkjumenn-
ing við breytingu í
þá átt. Þessi rök voru notuð við
breytingar á áfengislöggjöf í Bret-
landi fyrir fáeinum árum. Allir virð-
ast nú á einu máli um, að þar hafi
drykkjumenning síður en svo færst í
átt að Miðjarðarhafi.
Meira: bjorn.is
EINKAFRAMKVÆMDIR koma til
greina við byggingu nýs fangelsis
hér á landi og einnig í rekstri
ákveðinna grunnþátta innan fang-
elsisins. Þetta kom fram í svari
Björns Bjarnasonar dómsmála-
ráðherra við fyrirspurn Sivjar Frið-
leifsdóttur, þingmanns Framsókn-
arflokksins, á Alþingi í gær. Siv
lýsti áhyggjum sínum af húsnæð-
isvanda fangelsa hér á landi og
sagði að loka þyrfti bæði kvenna-
fangelsinu í Kópavogi og Hegning-
arhúsinu við Skólavörðustíg.
Siv sagði jafnframt að til greina
kæmi að fela einkaaðilum að sjá um
byggingu nýs fangelsis en varaði
eindregið við því að einkaaðilar
yrðu látnir sjá um rekstur.
Fleiri þingmenn tóku undir með
Siv en Björn nefndi aðeins að það
kæmi til greina að bjóða út bygg-
ingu og hugsanlega einhverja þætti
í grunnrekstrinum. „Ég hef reynslu
af því að standa að slíkri einka-
framkvæmd í Iðnskólanum í Hafn-
arfirði þar sem bæði var verið að
bjóða út bygginguna en einnig
grunnþætti í skólastarfinu án þess
að væri farið inn á kennsluna
sjálfa,“ sagði Björn en í máli hans
kom jafnframt fram að hann ætti
ekki von á að fangelsismál yrðu
komin í varanlegt horf árið 2009
þegar undanþágan sem var veitt
fyrir rekstri Hegningarhússins
rennur út.
Einkaframtakið í fangelsi?
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hvað svo? Hegningarhúsið er rekið á undanþágu fram til 2009.
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ÞAÐ er afar brýnt að setja sam-
ræmdar reglur um töku þvagsýna,
sagði Kristján L. Möller samgöngu-
ráðherra á Alþingi í gær en hann
hefur nýlega skipað nefnd sem m.a.
mun taka á því máli. „Það er lykil-
atriði að gætt verði að virðingu og
mannlegri reisn við framkvæmd
þessarar sýnatöku,“ sagði Kristján.
Katrín Júlíusdóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar, beindi fyrir-
spurn til hans í gær vegna frétta af
því að lögreglan á Selfossi hafi tek-
ið þvagsýni úr konu, sem var tekin
fyrir ölvunarakstur, án hennar sam-
þykkis. „Ég tel að þarna hafi verið
beitt ofbeldi,“ sagði Katrín.
Þorvaldur Ingvason, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, tók undir með
Katrínu og sagði ljóst að efnin sem
leitað var að haldist í allt að tvo sól-
arhringa í þvagi og valdbeiting hafi
því ekki verið þörf og að auki
hættuleg út frá heilbrigðissjónar-
miðum.
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri
grænna, gagnrýndi verknaðinn
einnig harðlega: „Það er algjörlega
augljóst í mínum huga og allra sem
þekkja til slíkra mála að þetta inn-
grip var brot á friðhelgi einkalífs
sem varið er af stjórnarskránni,“
sagði hann. Kristinn H. Gunnars-
son, þingmaður Frjálslyndra, var á
sama máli en bætti við að það væri
eðlilegara að hlutum væri þannig
háttað að fólk sem ekki hlýddi lög-
reglu gæti átt von á meiri refsingu.
„Menn eiga ekki að geta bætt stöðu
sína gagnvart sakhæfu athæfi með
því að neita fyrirmælum lögreglu,“
sagði hann.
Verði gætt að virðingu
og mannlegri reisn
Ráðherra telur brýnt að setja reglur um töku þvagsýna
Dýr fiskur?
Skuldastaða í sjávarútvegi var til um-
ræðu á Alþingi í gær en Guðjón Arn-
ar Kristjánsson,
formaður Frjáls-
lynda flokksins,
var málshefjandi í
utandag-
skráumræðum.
Guðjón hafði
þungar áhyggjur
af auknum skuld-
um í sjávarútvegi
og sagði þær
hafa nær þrefald-
ast á tíu árum. Skuldasöfnunin væri
að stórum hluta vegna kvótakerf-
isins; kaupa og sölu á aflaheim-
ildum. „Ætla menn bara að sitja og
aðhafast ekki nokkurn skapaðan
hlut?“ spurði Guðjón.
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði hins vegar að hlut-
fallsleg skuldaaukning í sjávarútvegi
væri minni en í mörgum öðrum at-
vinnugreinum. Stóra spurningin væri
hvort sjávarútvegurinn stæði undir
þessu eða hvort hann væri að fara í
þrot. „Við vitum að svo er ekki,“
sagði Einar og lagði áherslu á að það
væri fyrirtækjanna að taka ákvarð-
anir um þessi mál en ekki stjórn-
málamanna.
Stríð, dóp,
klám og fiskur
Atli Gíslason, þingmaður VG, deildi
áhyggjum Guðjóns af skuldasöfnun
og ekki síst af
ársvöxtum sem
fyrirtækin þurfa
að greiða. „Svona
vaxtaokur og
vaxtabyrði gengur
ekki upp nema í
hergagnaiðn-
aðinum, klámiðn-
aðinum og fíkni-
efnaiðnaðinum,“
sagði Atli. „Ég hef
mestar áhyggjur af þessu vaxtaokri
og ég hef mestar áhyggjur af fram-
göngu einokunarbankanna sem fara
fram án samfélagslegs tillits, hugsa
bara um ofsagróða.“
Dagskrá þingsins
Þingfundur hefst kl. 10.30 í dag og
sautján mál eru á dagskrá, þar á
meðal önnur umræða um frestun
vatnalaga. Frumvarp um léttvín og
bjór í búðir er á dagskrá í þriðja sinn
í vikunni en fjórir þingmenn voru enn
á mælendaskrá þegar þingfundi
lauk sl. þriðjudag.
Guðjón A.
Kristjánsson
ÞETTA HELST …
Atli Gíslason
♦♦♦