Morgunblaðið - 18.10.2007, Síða 16

Morgunblaðið - 18.10.2007, Síða 16
BANDARÍKJAÞING veitti í gær Dalai Lama, andlegum leiðtoga Tíbeta, gullorðuna svokölluðu en meiri virðingu getur þingið ekki veitt einstaklingi. Athygli vakti að George W. Bush Bandaríkja- forseti kom fram opinberlega með Dalai Lama, en það er í fyrsta skipti sem forseti Banda- ríkjanna gengur svo langt í sam- skiptum sínum við hinn 72 ára gamla handhafa friðarverðlauna Nóbels. Raunar afhenti Bush Dalai Lama orðuna. Kínverjar eru allt annað en sáttir við fram- göngu forsetans, en þeir líta á Dalai Lama sem aðskilnaðar- sinna. Áður hafði Bush hitt Dalai Lama í fyrradag en þá var lögð sérstök áhersla á að engin mynd af þeim Bush og Dalai Lama sam- an bærist út. Kínverjar ósáttir við Bush Reuters 16 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is LÍNURNAR í forkosningabaráttu bandarísku stjórnmálaflokkanna eru farnar að skýrast og virðist fátt geta komið í veg fyrir að Hillary Clinton verði frambjóðandi demókrata í for- setakosningunum að ári og Rudy Giuliani frambjóðandi repúblikana. Könnun, sem CNN-fréttasjón- varpsstöðin birti í fyrradag, sýnir, að Giuliani er með gott forskot á keppi- nauta sína meðal repúblikana, er með 27%, en næstur honum er kvik- myndaleikarinn Fred Thompson með 19%. Hann mældist raunar með 27% í síðasta mánuði en nú þykir ljóst, að hann hefur ekki staðið undir þeim vonum, sem margir bundu við hann. Hafa málflutningur hans og kosningabarátta þótt heldur líflaus. Samkvæmt CNN-könnuninni er John McCain með 17%, Mitt Romn- ey 13% en aðrir með miklu minna. Meðal demókrata hefur Hillary Clinton algera forystu. Í síðasta mánuði hafði hún 23 prósentustig umfram Barack Obama, sem kom næstur henni, 46% á móti 23%, en nú er munurinn 30 prósentustig, 51% á móti 21%. John Edwards er með 15% en aðr- ir varla í augsýn. Giuliani í vandasamri stöðu Stuðningur við demókrata er al- mennt 13 prósentustigum meiri en við repúblikana en þegar spurt er beint um stuðning kjósenda við lík- legustu forsetaefni flokkanna fær Clinton stuðning 49% en Giuliani 47%. Munurinn er sem sagt ekki marktækur. Fréttaskýrendur eru sammála um, að mikið fylgi við Giuliani megi skýra með því, að hann er ekki hinn dæmigerði repúblikani og höfðar því betur en ella til hófsamra og óháðra kjósenda. Þeir munu þó ekki tryggja honum sigur í forkosningunum og af þeim sökum hefur Giuliani verið að færa sig nær hinum hefðbundnu gildum flokksins. Það getur aftur á móti orðið til að draga úr sigurlíkum hans í forsetakosningunum. Clinton og Giuliani eru komin með örugga forystu ÞESSI afganska stúlka var að reyna að koma flugdrek- anum sínum á loft uppi á hæð fyrir ofan Kabúl en til- efnið var, að í gær var alþjóðlegur baráttudagur gegn fátækt. Þá var skorað á afgönsk stjórnvöld að gera allt, sem í þeirra valdi stæði, til að auka atvinnu. „Burtu með fátæktina“ stendur á flugdrekanum. AP „Í burtu með fátæktina“ OFFITA er ekki aðeins sök þeirra, sem af henni þjást, heldur líka sam- félagsins. Kemur þetta fram í opin- berri, breskri skýrslu. Í skýrslunni er hvatt til þess, að unnið verði gegn „offituumhverfinu“ með því að skipuleggja bæi og borgir þannig, að fólk geti farið flestra ferða sinna gangandi eða hjólandi. Þá verði að stórauka áróður fyrir hollu mataræði. Offita hefur tvöfaldast í Bretlandi á 25 árum en 2004 hrjáði hún nærri fjórðung fullorðinna í landinu. Talið er, að það muni taka að minnsta kosti 30 ár að vinda ofan af þessari þróun. Margir sérfræðingar segja, að í raun komi ekkert nýtt fram í skýrsl- unni. Fyrir löngu hafi verið ljóst í hvað stefndi en stjórnvöld hafi ekk- ert gert. Hleypt hefur verið af stokkunum herferð fyrir heilbrigðu lífi í bresk- um skólum en nú er áætlað, að verði ekkert að gert, muni 86% karla þjást af offitu eftir 15 ár og 70% kvenna eftir 20 ár. Með öðrum orðum: Hálf þjóðin mun þá eiga erfitt með hreyfa sig úr stað. Unnið gegn „offituum- hverfinu“ ÞEIR eiga ekki margt sameigin- legt, þeir Barack Obama, sem sæk- ist eftir því að verða forsetaefni demókrata, og Dick Cheney, vara- forseti Bandaríkjanna. Í pólitíkinni eru þeir á öndverðum meiði og ekki sviplíkir. Annar dökkur á brún og brá en hinn bjartur yfirlitum. Samt eru þeir frændur. Lynne, eiginkona Cheneys, hefur skýrt frá því. Faðir Obama var frá Kenýa en móðir hans var af frönskum húgenotta- ættum. Þar koma ættir Obama og Cheneys saman í áttunda lið. Fátt er líkt með skyldum Ankara. AFP. | Þing Tyrklands samþykkti í gær að heimila stjórn landsins að senda hermenn til Norður-Íraks til að leita uppi Kúrda, sem gert hafa árásir í Tyrklandi, þrátt fyrir andstöðu stjórnvalda í Írak og Bandaríkjunum við slíkan hernað. Heimildin gildir í eitt ár og stjórninni er það í sjálfsvald sett hvenær hún lætur til skarar skríða og hversu mörgum hermönnum verður beitt. 507 þingmenn af 550 samþykktu heimildina og aðeins nítján greiddu atkvæði gegn henni. Áður hafði George W. Bush Bandaríkjaforseti skorað á Tyrki að hefja ekki hernað í Norður-Írak. „Við gerum Tyrkjum það ljóst að við teljum ekki að það þjóni hags- munum þeirra að senda hermenn til Íraks,“ sagði Bush á blaðamanna- fundi í Washington. Forseti Sýrlands, Bashar al-Ass- ad, kvaðst hins vegar styðja innrás Tyrkja í Norður-Írak til að „upp- ræta starfsemi hryðjuverkamanna“. Tyrknesk stjórnvöld segja að 3.500 vopnaðir liðsmenn Verka- mannaflokks Kúrdistans eigi örugg- an griðastað á yfirráðasvæði Kúrda í Norður-Írak og notfæri sér það til að gera árásir í Tyrklandi. Tyrkir og mörg fleiri ríki líta á Verka- mannaflokk Kúrdistans sem hryðju- verkahreyfingu og hann hefur bar- ist fyrir sjálfstjórn Kúrda í suð- austanverðu Tyrklandi frá árinu 1984. Sú barátta hefur kostað yfir 37.000 manns lífið. Forsætisráðherra Íraks, Nouri al-Maliki, skoraði í gær á Tyrki að senda ekki hermenn yfir landamær- in og kvaðst hafa fyrirskipað yf- irvöldum á sjálfstjórnarsvæðum Kúrda í Norður-Írak að láta til skarar skríða gegn liðsmönnum Verkamannaflokks Kúrdistans. Stjórn Kúrda í Norður-Írak for- dæmdi samþykkt tyrkneska þings- ins og sagði að innrás í landið væri brot á þjóðarétti og gæti kveikt ófriðarbál á svæðum Kúrda. Recep Tayyip Erdogan, forsætis- ráðherra Tyrklands, hefur gefið til kynna að stjórnin bíði með að fyr- irskipa hernað í Norður-Írak til að láta á það reyna hvort þarlend yf- irvöld láti til skarar skríða gegn liðsmönnum Verkamannaflokks Kúrdistans. Þing Tyrkja heimilar árásir Tayyip Erdogan Írakar mótmæla yfirvofandi innrás

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.