Morgunblaðið - 18.10.2007, Síða 29

Morgunblaðið - 18.10.2007, Síða 29
út í loftið MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 29 máli fyrir alla, bílstjór- ann sjálfan og vegfar- endur, hjólandi, gang- andi eða akandi. Og að þessum orðum sögðum er spáð sunn- anátt næstu daga, hlý- indum og rigningu. Ekkert sérstakt útivist- arveður í Hvalfirðinum, þótt á hinn bóginn sé alls ekki leiðinlegt að vera þar á ferli í rign- ingu, sé maður rétt bú- inn og með allt á hreinu. x x x Ekki þurfa borgar-búar að fara upp í Hvalfjörð til að komast í gott útivist- arsvæði, því Geldinganesið í miðri höfuðborginni er gott svæði líka. Nokkuð er um að þangað sæki fólk að næturlagi, leggi bílum á eiðinu og stundi þar nautnalíf. Um þetta vitna bjórdósir, sígarettustubbar og smokkar sem fleygt er á jörðina. Þeir sem vilja bæta um betur, koma með heilu ruslasekkina af garðaúrgangi og fleygja þarna á veginn. Aðrir láta hunda skíta á veginn og fjöruna. Vík- verja er ekki kunnugt um að nokkur hafi fengið tiltal eða sektir fyrir brot á lögreglusamþykktum Reykjavíkur- borgar á þessu svæði, en það segir ekkert. Fyrsti vetrardagurer 27. október og senn er haustið á enda. Víkverji fann vægt frostið bíta í eyrna- sneplana í gærmorgun, miðvikudagsmorgun og fannst það satt að segja hressandi, enda veður stillt og fallegt. Það var ekki fyrr en að lokinni 70 sekúndna gönguferðinni að bíln- um sem Víkverji datt úr þessari skemmti- legu stemningu, því þá hófust skyldustörfin gagnvart klárnum, skafa rúður og fá mið- stöðina til að gera eitthvert gagn. Síðan hófst aksturinn og nú var sólin ekki lengur vinsamleg, heldur með einbeittan vilja til að blinda bílstjór- ann í gegnum bílrúðurnar og stríða honum eins og mögulegt var. Og morgunumferðin var ekki til að hressa neinn eða kæta. Ó, hvað Víkverji hefði viljað vera kominn upp í Hvalfjörð með kaffi á brúsa til að njóta kyrrðar og haust- sólarinnar án þess að þurfa að píra augun á móti henni í gegnum óhrein- ar bílrúður. Það eru engar ýkjur að hreinar bílrúður á svona sólríkum vetrardögum, að ekki sé talað um hrein sólgleraugu geta skipt höfuð-              víkverji skrifar | vikverji@mbl.is ÖLL göngum við á umhverfi okkar og nátt- úru með einum eða öðrum hætti enda hafa vestrænir lifnaðarhættir undanfarna áratugi verið býsna kröfuharðir við móður jörð. Þetta er þó að breytast og flest erum við að vakna til vitundar um nauðsyn þess að draga úr þessum umhverfis- spjöllum okkar. Það getur þó verið erfitt að taka sig á þegar ekki liggur ljóst fyrir hvar skórinn kreppir, né hversu um- hverfisvæn eða -slæm við erum í raun. Á Netinu má finna fjölmörg hjálpartæki til að komast nær þess- um sannleik. Heimasíðan sustain- ability.publicradio.org/consumer- consequences/ býður þannig notendum sínum að reikna út hversu margar jarðir þyrfti ef allir höguðu lífi sínu eins og þeir. Þessi síða miðar reyndar við bandarískan veruleika svo gott getur verið að hafa mælieiningabreyti við höndina til að umreikna kílómetra í mílur o.s.frv. Slíkan mælieiningabreyti er t.d. að finna á www.onlineconver- sion.com Þeir sem eru sleipari í skandi- navísku gætu reynt heimasíðuna www.gronnhverdag.no/miljospeilet. Í þessum umhverfisspegli er hægt að sjá hversu vel maður stendur sig gagnvart umhverfinu að teknu tilliti til ýmissa þátta í lífinu, s.s. íbúðar- húsnæðis, orkunotkunar, innkaupa, ferðalaga og sorpflokkunar, svo eitt- hvað sé nefnt. Gefin eru stig upp að 100 fyrir hvern flokk þannig að með því að fara í gegnum prófið á síðunni fær maður nokkuð góða mynd af því hvar maður getur bætt ráð sitt. Á heimasíðu norska dagblaðsins VG, á slóðinni www2.vg.no/ klimatesten, má taka annað próf sem er nokkuð einfalt og fljótlegt en með því má reikna út hversu mörg kíló af gróðurhúsalofttegundum við- komandi lætur frá sér árlega með lífsstíl sínum. Athugið að á þessari síðu þarf að gefa upp fjögurra tölu- stafa norskt póstnúmer til að fá að- gang að prófinu. Allar tölur milli 0000 og 9999 virka. Morgunblaðið/Ásdís Vafrað á veraldarvefnum Á netinu er að finna fjölmörg hjálpartæki til að sjá hversu vel eða illa maður stendur sig gagnvart umhverfinu. Hversu mikið mengar þú? sustainability.publicradio.org/ consumerconsequences/ www.onlineconversion.com www.gronnhverdag.no/ miljospeilet www2.vg.no/ AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111 Kringlan Sími 533 4533 Smáralind Sími 554 3960 SKIN CAVIAR LUXE EYE LIFT CREAM Bjóðum 10% kynningarafslátt og kaupauka. Vinnur á öllum sjö þáttum öldrunar á augnsvæðinu: • Styrkir • þéttir • mýkir • verndar • dregur úr þrota og dökkum baugum. Gefur augnsvæðinu lyftingu og ljóma! Vertu velkomin á kynningu til okkar á eftirtöldum dögum milli kl. 13-17 Í dag fimmtud. 18. okt. í Hygeu Kringunni og föstudaginn 19. okt. í Hygeu Smáralind

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.