Morgunblaðið - 18.10.2007, Side 41

Morgunblaðið - 18.10.2007, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 41 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Jónshúsi kl. 19 og Garðabergi kl. 19.15. Félagsstarf Gerðubergs | Helgistund kl. 10.30, umsj. sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Frá hádegi eru vinnustofur opnar, m.a. myndlist og perlusaumur. Á morgun kl. 10.30 er fjölbreytt leik- fimi o.fl. í ÍR-heimilinu við Skógarsel, á eftir er heitt á könnunni og málin rædd. S. 575-7720. Furugerði 1, félagsstarf | Aðst. við böðun kl. 9, smíðar. „Viltu vera memm“-samverustund kl. 14, kaffi- veitingar kl. 15. Á morgun er messa kl. 14. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, boccia kl. 10, leikfimi kl. 11, hádeg- ismatur kl. 12, félagsvist kl. 14 og kaffi kl. 15. Hraunsel | Moggi rabb og kaffi kl. 9, leikfimi kl. 11.20, tréskurður kl. 13, bingó kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir kl. 9- 16 hjá Þorbjörgu, boccia kl. 10-11, fé- lagsvist kl. 13.30, vinningar. Kaffiveit- ingar í hléi. Böðun fyrir hádegi. Hár- snyrting. Hæðargarður 31 | Müllers-æfingar alla þriðjudaga kl. 9.15. World Class- hópur 3 í viku. Ferð á Ljósmyndasafn Rvk. mánudag kl. 13. Hjördís Geirs alla fimmtudaga kl. 13.30. Miðar á Vín- arhljómleika Sinfó 5. jan. 2008. Uppl. 568-4132. Korpúlfar, Grafarvogi | Listasmiðjan á Korpúlfsstöðum er opin á morgun föstudag kl. 9-12 og kl. 13-16. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu- stund og spjall kl. 9.45, boccia, karla- klúbbur, kl. 10.30, postulínsmálun kl. 13, boccia, kvennaklúbbur, kl. 13.30, kaffiveitingar kl. 14.30. Laugarból, Íþr.hús Ármann/Þróttur, Laugardal | Leikfimi fyrir eldri borgara kl. 11. Norðurbrún 1 | Smíðastofan og vinnu- stofan í handmennt opin. Leirlist- arnámskeið. Hugmynda- og listastofa. Boccia kl. 10. Félagsstarf Árskógar 4 | Bað kl. 9.30, handav. kl. 8-16, smíði/útskurður kl. 9-16.30, leik- fimi kl. 9, boccia kl. 9.45, myndlist kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð- un, fótaaðgerð, jóga, morgunkaffi/ dagblöð, almenn handavinna, hádeg- isverður, bókband. Bingó kl. 13.30. Dalbraut 18-20 | Lýður mætir með harmonikkuna. Leikfimi kl. 10. Postu- línsnámskeið. Guðsþjónusta. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Færeyjafarar hittast á morgun kl. 13. Námskeið í framsögn hefst 23. október, leiðbeinandi Bjarni Ingvars- son, skráning á skrifstofu FEB. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og kl. 9.55, rammavefnaður kl. 9.15, málm- og silfursmíði kl. 9.30, ró- leg leikfimi kl. 13, bókband kl. 13, mynd- listarhópur kl. 16.30, stólajóga kl. 17, jóga á dýnum kl. 17.50. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa- vinna kl. 9, ganga kl. 10, hádegisverður kl. 11.40, brids og handavinna kl. 13 og jóga kl. 18.15. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Bókband kl. 10, gler og leir kl. 13, vatnsleikfimi kl. 12, karlaleikfimi kl. 13, boccia kl. 14, handavinnuhorn kl. 13 og námskeið í bútasaumi og handavinnu kl. 13. Leikhúsferð kl. 20, rúta fer frá Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu | Skák í kvöld í fé- lagsheimilinu Hátúni 12. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl, 9 boccia, kl. 9.15-14 aðstoð v/böðun, kl. 9.15-15.30 handa- vinna, kl. 10-12 spænska, framh., kl. 11.45 hádegisverður, kl. 13 leikfimi og kaffiveitingar kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, bókband kl. 9, morgunstund kl. 9.30, boccia kl. 10, hárgreiðslu- og handavinnustofan opnar frá kl. 9, upp- lestur kl. 12.30, mósaík kl. 13, frjáls spilamennska kl. 13-16.30. Uppl. í síma 411-9450. Þórðarsveigur 3 | Bænastund og samvera kl. 10, leikfimi kl. 13.15 og fé- lagsvist kl. 14.30. Kirkjustarf Árbæjarkirkja. | Starf með 6-9 ára börnum (STN) kl. 15-16. Starf með 10- 12 ára börnum (TTT) kl. 16-17. Áskirkja | Foreldramorgunn kl. 10, kynning frá Rauða krossi Íslands, söngstund með organista og kaffiveit- ingar. Kl. 14 klúbbur 8 og 9 ára, kl. 17 TTT-starfið. Samkirkjuleg bænastund kl. 16.30. Samverustund með nýbúum kl. 17.30. Spjall, súpa og brauð. Breiðholtskirkja | Biblíulestur í umsjá dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar kl. 20. Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl. 10-12, leikfimi ÍAK kl. 11, bænastund kl. 12, 6-9 ára starf kl. 16-17. Æskulýðs- starf Meme fyrir 8. bekk kl. 19.30- 21.30. Fræðsla fyrir foreldra kl. 20, fjallað um bænina og barnatrúna. (www.digraneskirkja.is ) Dómkirkjan | Opið hús í safn- aðarheimilinu Lækjargötu 14a kl. 14- 16. Kaffi og spjall. Kvöldkirkjan er opin kl. 20-22. Bænastundir kl. 20.30 og 21.30. Hægt er að eiga samtal við prest, taka þátt í bænastundum. Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar kl. 10-12. Fræðandi samverustundir, ýmiss konar fyrirlestrar. Kaffi, djús og brauð fyrir börnin. TTT fyrir 10-12 ára kl. 15-16, í Víkurskóla. Grensáskirkja | Hversdagsmessa kl. 18.15, Þorvaldur Halldórsson leiðir söng. Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, íhugun, bænir. Málsverður í safnaðarsal eftir stundina. Háteigskirkja | Íhugunartónlist, orð Guðs, bænir, kvöldmáltíð Drottins, fyr- irbæn með handayfirlagningu og smurningu kl. 20. Vinafundur eldri borgara kl. 14, í Setrinu í október og nóvember. KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUM. Farið verður í heimsókn til Knatt- spyrnufélagsins Hauka í Hafnarfirði sem stofnað var af KFUM árið 1931. Hugleiðing: Ásgeir M. Jónsson. Mæt- ing í íþróttahús Hauka á Ásvöllum kl. 20. Kristniboðsfélag kvenna | Háaleit- isbraut 58-60. Fundur í Kristniboðs- salnum hefst með bænastund kl. 16.30. Gestur fundarins er Kristín Bjarnadóttir kristniboði. Laugarneskirkja | Kyrrðarstund kl. 12, orgeltónlist í kirkjuskipi kl. 12-12.10, að bænastund lokinni, kl. 12.30, er máls- verður í boði í safnaðarheimilinu. Adr- enalín gegn rasisma kl. 17, (9.-10. bekk- ur), umsjón hefur Hildur Eir Bolladóttir prestur. Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10. Sjónarhorn föður ungbarna, kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lárusdóttir. Selfosskirkja | Fundur í Æskulýðs- félagi Selfosskirkju kl. 20. Leiðtogi er stud. theol. Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir. Vídalínskirkja, Garðasókn | Biblíu- fræðsla kl. 20, sr. Ólöf Ólafsdóttir fjallar um ,,Brúðkaupið í Kana og þátt kvenna í Jóh.guðspjalli“. Anna J. Guð- mundsdóttir verslunarmaður tjáir sig um sama efni og kemur af stað um- ræðum. Fyrirbænastund kl. 21. Mola- sopi á eftir. 80ára afmæli. Í dag 18.október er Jón Helga- son, fyrrv. framkvstj. Lífeyr- issjóðs Sameiningar, Mýr- arvegi 111, Akureyri, áttatíu ára. Jón og kona hans Snjó- laug Þorsteinsdóttir halda daginn hátíðlegan í faðmi fjöl- skyldunnar. dagbók Í dag er fimmtudagur 18. október, 291. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Og þótt þér elskið þá, sem yður elska, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar elska þá líka, sem þá elska. (Lk. 6, 32.) Samtökin ’78 halda Málþing umhjónabandið og staðfesta sam-vist 19. október næstkomandi. Flutt verða fjögur erindi: dr. Sólveig Anna Bóasdóttir siðfræð- ingur talar fyrir því sjónarmiði að hjónabandið skuli standa opið öllu full- veðja fólki sem lifa vill saman í skuld- bindandi ástartengslum. Hulda Guð- mundsdóttir guðfræðingur fjallar um umræðuna sem átt hefur sér stað um hjónavígslumál síðustu misseri og ár og Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur lýsir lagaumhverfi hjónabands og stað- festrar samvistar. Loks munu feðg- arnir Kristján Kolbeins og Eyjólfur Kristopher Kolbeins lýsa samskiptum sínum, en Eyjólfur er samkynhneigður. Hulda Guðmundsdóttir segir um- ræðu síðustu missera hafa einkennst af töluverðum misskilningi: „Rugling- urinn hlýst ekki síst af því að á Alþingi komu á sama tíma fram tvær breyting- artillögur, annars vegar breyting á lög- um um staðfesta samvist sem veitti trú- félögum heimild til að framkvæma vígsluna, og hins vegar tillaga um að hjúskaparlögunum yrði breytt þannig að þau næðu til allra para óháð kynja- samsetningu,“ segir Hulda. Að sögn Huldu má hins vegar rekja umræðuna allt aftur til 1994, þegar nefnd forsætisráðuneytis um afnám misréttis gagnvart samkynhneigðum setti fram þá ósk að lög um staðfesta samvist gerðu ráð fyrir bæði borg- aralegri og kirkjulegri vígslu: „Við- bragð biskups Íslands var að árið 1998 heimilaði hann svokallaða blessunar- athöfn, en þjóðkirkjan hefur í raun aldrei fjallað um þann möguleika að vígja pör í staðfesta samvist,“ segir Hulda. „Hafa þarf í huga að á Íslandi búum við við þá ríku hefð að langflest hjón eru gefin saman með lögformlega bindandi hætti af presti og þar sem sú blessunarathöfn sem kirkjan hefur boðið samkynhneigðum upp á hefur ekki haft lagalegt gildi er skiljanlegt að samkynhneigðir skuli gera þá kröfu að þeirra sambúðarvígsla fái nákvæmlega sömu meðferð innan kirkjunnar og vígsla gagnkynhneigðra para.“ Málþing föstudagsins hefst kl. 13.30 og stendur til 16.30 og fer fram í Þjóð- minjasafninu. Að loknum erindum verða pallborðsumræður. Á dagskrá er einnig tónlistaratriði Páls Óskars Hjálmtýssonar og Moniku Abendroth. Fundarstj. er Ólafur Stephensen ritstj. Jafnréttismál | Málþing um samkynhneigð og kirkjulega vígslu 19. okt. Að gifta, eða blessa?  Hulda Guð- mundsdóttir fædd- ist á Fitjum í Skorradal 1960. Hún lauk stúdents- prófi frá MH 1980. Hún starfaði við bókhaldsstörf sem gjaldkeri og hús- móðir þar til hún hóf nám við Háskóla Íslands. Þaðan lauk hún BA-gráðu djáknanáms 2004 og meistaranámi í guðfræði 2007. Hulda er ekkja og á þrjú börn. Tónlist Fríkirkjan í Reykjavík | Tónleikar í kl. 20, með Vox Femine. Hannan El-Shemouty frá Kaíró, Steingrímur Guðmundsson á slag- verk og Hilmar Örn Agnarsson á orgel. Flutt verða þjóðlög úr ýmsum áttum þar á meðal íslensk þjóðlög sem leikin verða í nýjum búningi. Langholtskirkja | Finnski stúlknakórinn Larte Youthchoir ásamt Gradualekór Lang- holtskirkju heldur tónleika kl. 19. Aðgangur ókeypis. Myndlist Galleri Thors | Linnetsstíg 2, Hafnarfirði. Rósa Helgadóttir hönnuður opna sýningu í dag kl. 17-19. Sýningin er opin daglega kl. 11- 18 og laugardaga kl. 11-16. Sýningin stendur til 1. nóvember. Grensáskirkja | Sýning á vatnslitamyndum eftir Björgu Þorsteinsdóttur stendur yfir. Sýningin verður opin á sama tíma og kirkj- an mánudaga-föstudaga kl. 10-15, fyrir og eftir messur og við aðrar athafnir og sam- verustundir í kirkjunni. Sýningin stendur til 15. nóvember. Fyrirlestrar og fundir Geðhjálp | Sjálfshjálparhópur þeirra sem þjást af kvíða er starfræktur á fimmtudög- um kl. 18, í húsi Geðhjálpar að Túngötu 7, 101 Reykjavík. Landakot | Fræðslufundur Rann- sóknastofu í öldrunarfræðum RHLÖ, verð- ur kl. 15, í kennslusalnum á 7. hæð. Ársæll Jónsson öldrunarlæknir fjallar um hrum- leika meðal aldraðra. Sent út með fjar- fundabúnaði. Samtökin ́78 | Arna Gunnarsdóttir flytur fyrirlestur kl. 21, í Regnbogasal Samtak- anna ’78 sem nefnist Táknmál líkamans. Í honum er áhorfendum sýnt hvernig lesa má viðhorf og hugsanir annarra og þeir jafnframt vaktir til umhugsunar um eigið táknmál og líkamstjáningu. Fréttir og tilkynningar Siglufjörður | Dagana 18.-20. október fer fram ljóðahátíðin Glóð á Siglufirði. Á dag- skrá eru ljóðakvöld, námskeið, leiksýning o.fl. Gestir eru m.a. Sigurður Skúlason leik- ari og ljóðskáld, Þórarinn Torfason ljóð- skáld og Elfar Logi Hannesson leikari. Umf. Glói og Herhúsfélagið á Siglufirði standa fyrir hátíðinni. Start Art listamannahús | Start Art Lista- mannahús, Laugavegi 12b, kvöldopn- unarganga, Skorrdal kynnir nýja línu „Ull á köldum klaka“ kl. 17-21. Myndlistarsýningar Hjartar Hjartarson og Steingríms Eyfjörðs eru einnig opnar þetta kvöld. Skemmtanir Fóstbræðraheimilið | Forsala að- göngumiða á árshátíð Dýrfirðingafélagsins í Reykjavík verður í Fóstbræðraheimilinu v/ Langholtsveg í dag kl. 18- 20. Ath. að ekki er hægt að greiða með korti. Nánari uppl. á www.thingeyri.is ÞESSI tyrknesku börn eru á heimleið í þorp sitt nálægt Cizre í Sirnak-héraði í Tyrklandi. Í baksýn má sjá fjöllin sem marka landamæri Tyrklands og Íraks. FRÉTTIR Lýsa vantrausti á Margréti Sverrisdóttur STJÓRN Landssambands kvenna í Frjálslynda flokkn- um, harmar að sundrung skyldi verða í Frjálslynda flokknum sl. vetur þegar Margrét Sverrisdóttir og nokkrir stuðningsmenn henn- ar kusu að segja sig úr Frjálslynda flokknum eftir að hafa tapað í varaformanns- kjöri fyrir Magnúsi Þór Haf- steinssyni, segir í ályktun frá sambandinu. Þar segir ennfremur m.a.: „Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknum bendir á að Margrét Sverrisdóttir benti réttilega á hversu óeðli- legt það er að kjörinn fulltrúi stjórnmálaflokks skipti um flokk á miðju kjörtímabili og sitji áfram í þeirri trún- aðarstöðu sem hann var kos- inn til upphaflega. Þegar Gunnar Örlygsson sem kosinn var á Alþingi fyrir Frjáls- lynda flokkinn gekk í Sjálf- stæðisflokkinn lýsti Margrét Sverrisdóttir því yfir að þetta væri bæði ólöglegt og ósið- legt að Gunnar skyldi ætla að halda þingsætinu sem með réttu tilheyrði Frjálslynda flokknum. Hún kærði athæfi Gunnars síðan til umboðs- manns Alþingis. Nú er Mar- grét Sverrisdóttir í sömu stöðu og situr áfram í sæti sem tilheyrir Frjálslynda flokknum í borgarstjórn Reykjavíkur þó að hún hafi sagt sig úr flokknum. Það er sama siðleysið og hjá Gunnari Örlygssyni á sínum tíma. Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknum lýsir vantrausti á Margréti Sverr- isdóttur og öll vinnubrögð hennar þar sem hún gekk úr flokknum en situr samt í umboði hans í borgarstjórn. Margrét var ekki kosin per- sónukjöri heldur voru það atkvæði flokksins sem veittu henni setu sem varamanni í nafni Frjálslynda flokksins. Landssamband kvenna í Frjálslynda flokknum skorar á Margréti Sverrisdóttur að fylgja því siðferði sem hún áður boðaði að ætti að gilda í stjórnmálum og segja af sér sem varaborgarfulltrúi þannig að raunverulegur fulltrúi Frjálslynda flokksins setjist í borgarstjórn í stað þeirra sem farnir eru úr flokknum.“ Útsýni til Íraks Námskeið Norræna félagsins NORRÆNA félagið á Íslandi hefur nýlega haldið upp á 85 ára af- mæli sitt og hefur verið í örum vexti síðustu árin. Félagið hefur frá upphafi verið virkur vettvangur til að efla fjölbreytt menningar- tengsl milli Norðurlandanna og móta norrænt samstarf. Hér má nefna Nordjobb, lýðháskólatengsl, símaþjónustu fyrir þá sem hyggja á flutning á milli Norðurlanda og einnig fjölbreytt nám- skeið í tungum frændþjóðanna. Í fréttatilkynningu segir að námskeið Norræna félagsins séu lif- andi og skemmtileg; oft óhefðbundin kennsla og samvera fyrir al- menning. Það sem ber hæst er íslenskunámskeið fyrir Norð- urlandabúa bæði fyrir nýbyrjendur og fyrir þá sem vilja „fínpússa“ íslenskuna. Haustnámskeið hefst mánudaginn 22. október kl. 18 hjá Nor- ræna félaginu á Óðinsgötu 7, Óðinstorgi. Önnur áhugaverð námskeið í boði hjá Norræna félaginu að þessu sinni eru samtalsnámskeið í sænsku og dönsku, dönsku- námskeið fyrir börnin, byrjendanámskeið í pólsku og einnig ís- lenskunámskeið fyrir Pólverja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.