Morgunblaðið - 18.10.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 51
Skyndibitakeðjur
með hreinlætis-
vandamál
Borgin hyggst
selja hlut sinn í
REI
Innbrotum fækkar
ár frá ári
Morð íVesturbænum
Ein af hverjum sex
konum missir fóstur
DV særir Dorrit
- kemur þér við
Að vera fjórtán og
koma út úr skápnum
Þvagleggsmálið
í þingsölum
Stórmarkaðir undir-
búa sölu á ódýru öli
Konur fleiri í nefndum
borgarstjórnar
iP d-tollurinn er
kominn til að vera
Bernskir borgarfull-
trúar, segir Jón Sig.
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Starf í athvarfi
Rauði krossinn í Kópavogi auglýsir eftir sjálfboða-
liðum í athvarf fyrir fólk með geðraskanir.
Markmið verkefnisins er að rjúfa félagslega einangrun
fólks með geðraskanir, auka á lífsgæði gesta og hjálpa
þeim til virkrar þátttöku í samfélaginu.
Sjálfboðaliðar þurfa að hafa náð 18 ára aldri og sækja
undirbúningsnámskeið. Hlutverk þeirra er meðal annars
að hafa athvarfið opið á laugardögum. Þeir taka þátt í
starfsemi athvarfsins og veita gestunum félagsskap.
Nánari upplýsingar í síma 554 6626
og á raudikrossinn.is
styrkir þetta verkefni
BLESER
leggings
MOORE
hásokkar
Kaupauki
fylgir vöru frá Oroblu
Kynningar á n‡ju vetrarvörunum
frá Oroblu í Lyf og heilsu
Fimmtudag, kl. 13-17 á Melhaga
Föstudag, kl. 13-17 í Mjódd
Laugardag, kl. 13-17 í Kringlunni
Laugardag, kl. 13-17 í Austurveri
ÞEGAR tón-
listarmenn hafa
verið að eins lengi
og Rúnar Júl-
íusson og gert
eins marga
geisladiska og
hann er stundum eins og diskarnir
séu bara að koma út af gömlum vana
og þörfin fyrir að skapa sé ekki leng-
ur drifkrafturinn. Rúnar sannar að
þetta á alls ekki við hann á nýjustu
plötu hans Snákar í garðinum, þótt
þetta sé líklega hans 15. sólóplata og
hann hafi einnig gert tugi annarra
platna með félögum sínum í Hljóm-
um, Trúbroti og mörgum öðrum
sveitum.
Á nýjustu plötunni fær hann hina
og þessa listamenn til að semja texta
við lög sín eða lög við texta sína og
samvinnan er langoftast mjög vel
heppnuð. Fyrsta lag plötunnar, sem
heitir einfaldlega ,,Segðu mér frá ást-
inni“, er með texta Einars Más Guð-
mundssonar við lag Rúnars og er það
örlítið dularfullt en jafnframt gríp-
andi og flott. Það er eins og örli að-
eins á GCD-áhrifum í þessu lagi og
mætti segja að það töffaralegasta úr
GCD sé hér í bland við eitthvað sér-
Rúnarískt. Annað gott dæmi um
þetta er titillag plötunnar sem er al-
veg ofursvalt, og sérstaklega ber að
hrósa mjög flottum munnhörpuleik
KK sem gerir lagið endanlega alveg
skothelt. Nokkur lög til viðbótar eru
með smá GCD-fíling og Bjartmar
Guðlaugsson semur einmitt svona
GCD-slagara við ákaflega fyndinn og
skemmtilegan texta Rúnars. Þetta er
lagið ,,Stemning í stíl“ og í því má
finna æðislegar textalínur eins og:
,,Hér er glímt við alþekktar hvatir,
hér er þrýst á geggjun inn á við.
Menn eru ýmist hressir eða latir er
þeir virkja hin ótrúlega dimmu og
djúpu svið – þá á ég við Stemningu í
stíl …“.
Ekki eru öll lögin 13 þó jafn
skemmtileg, og lagið ,,Ástin hjálpar
þér“ eftir Jóhann Helgason er til að
mynda fullvæmið fyrir minn smekk.
Það er reyndar ótrúlegt hvað Rúnar
kemst samt vel frá því lagi, en hann
er líka alvöru töffari og slíkir töffarar
komast upp með allt og eru bara
sjaldnast væmnir. Fáir aðrir hefðu
getað flutt lagið án þess að fara langt
yfir strikið. Nokkur önnur lög eru
virkilega skemmtileg, eins og til
dæmis lag Torfa Ólafssonar við texta
Rúnars, ,,Ég þrauka enn“, sem er
hressilegt og lag Magga Kjartans við
texta Rúnars, ,,Óskiljanlegt“, sem er
falleg melódía. Blúsrokkarann ,,Ein-
tómur blús“ eftir Tryggva Hübner
við texta Rúnars er líflegur og flottur
og lagið ,,Daginn í dag“ eftir strákana
í Deep Jimi & the Zep Creams við
texta eftir Júlíus Frey Guðmundsson
er afar grípandi og flott lag en restin
er slakari. Það er þó ekki þar með
sagt að platan sé ekki góð því hún
rennur vel í gegn og mér telst til að
ég fíli nokkuð vel 8-9 lög af þrettán.
Platan endar á bababa-laginu um-
deilda ,,Ó, Keflavík“, eftir Jóhann
Helgason, og verður að segjast að
það er líklega hinn fullkomni popps-
mellur sem á eflaust eftir að lifa vel
og lengi hjá landsmönnum, hvort sem
þeir telja sig vera frá Reykjanesbæ,
Keflavík eða annars staðar frá. Al-
vöru töffarar.
Töffarinn
TÓNLIST
Geisladiskur
Rúnar Júlíusson – Snákar í garðinum
Ragnheiður Eiríksdóttir
EVA Longoria
mun leika kyn-
þokkafullan
skólastjóra í
nýrri gam-
anmynd sem ber
heitið Lower Le-
arning og segir
frá rannsókn á
skóla sem er með
lægstu einkunnir
í ríkinu. Mótleikari hennar í mynd-
inni er American Pie-leikarinn Jas-
on Biggs, hann fer með hlutverk að-
stoðarskólastjórans. Myndin verður
í leikstjórn Marks Laffertys sem
þreytir þarna frumraun sína í leik-
stjórastólnum. Framleiðsla á mynd-
inni hefst á næstunni en hún verður
líklega frumsýnd seint á næsta ári.
Þess má einnig geta að handrits-
höfundur Aðþrengdra eiginkvenna
hefur bannað Longoriu að verða
þunguð eftir að þungun Marciu
Cross flækti söguþráð sjónvarps-
þáttanna nokkuð.
„Tony og ég erum spennt fyrir því
að eignast börn, en vegna þess að
Marc hefur bannað mér að verða
ólétt á þessu ári ætlum við bara að
njóta þess að vera hjón og styrkja
grunn sambands okkar áður en við
fæðum barn í heiminn,“ sagði Lon-
goria.
Leikur
skólastjóra
Eva Longoria
STJÖRNUSTRÍÐ er á leiðinni í
sjónvarpið. Alls kyns varningur og
sögur hafa vissulega ávallt fylgt
hinum tvöfalda bíóþríleik George
Lucas en nú mun hann sjálfur hafa
hönd í bagga við gerð sjónvarps-
þátta um Stjörnustríð. Þættirnir
munu þó einbeita sér að ýmsum
aukapersónum seríunnar og þegar
hefur verið gefið út að Skywalker-
fjölskyldan – en til hennar teljast
Anakin/Svarthöfði, Luke og Leia –
mun hvergi koma við sögu. Enn á
þó eftir að sannfæra sjónvarps-
stöðvarnar um ágæti hugmynd-
arinnar, þrátt fyrir fáheyrða vel-
gengni myndanna. „Þeir segja að
þetta passi ekki í litlu kassana okk-
ar. Og ég svara þeim: Þetta er
Stjörnustríð. Auðvitað passar
Stjörnustríð ekki inn í kassann ykk-
ar,“ fullyrðir Lucas sem hlýtur þó
að takast að selja hugmyndina á
endanum.
Lucas Virðist vera búinn að ná sér
eftir misjafnar viðtökur seinni
Stjörnustríðsþríleiksins.
Sjónvarps-
stríð vænt-
anlegt