Morgunblaðið - 26.10.2007, Side 6

Morgunblaðið - 26.10.2007, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is HÁSKÓLARÁÐ hefur ákveðið að breyta skipulagi Háskóla Íslands þannig að í stað ellefu deilda verði til fimm svið. Fjögur þeirra eru mynduð úr núverandi deildum og það fimmta, menntavísindasvið, verður til með sameiningu Háskól- ans og Kennaraháskóla Íslands. Tillögurnar byggjast á vinnu starfshóps sem háskólaráð skipaði í september á síðasta ári en for- maður hans var Ólafur Harðarson, prófessor í félagsvísindadeild. Bæta þarf stoðþjónustu Í lokatillögum hópsins segir að bent hafi verið á alvarlegan skort á stoðþjónustu við kennara og nemendur innan skólans. Tillög- urnar miða að því að bæta úr þessu. Við breytingar á skipulagi skólans hafi verið farin sú leið að efla það stjórnunarlag sem kennt er við fræðasvið í núverandi stjórnkerfi skólans. Fjögur fræða- svið hafi átt hvert sinn fulltrúa í háskólaráði, fjármálanefnd, dóm- nefndum og ýmsum öðrum nefnd- um Háskólans auk margvíslegra rannsóknasjóða. Fræðasviðin hafi því langa reynslu af umtalsverðri samvinnu. Kjarni tillagnanna er efling grunneininga, dreifing valds, styrkari forysta á öllum stjórn- stigum og stórefld stoðþjónusta við nemendur og kennara. Breytingarnar fela í sér að ýmis verkefni færast frá rektor og yf- irstjórn til fræðasviðanna og for- seta þeirra. Endanlegt vald í til- teknum málum, s.s. í tengslum við nýráðningar, starfsmannahald, fjármál og fagleg málefni, verður í höndum fræðasviðanna. Deildir HÍ verða grunneiningar skólans og bera ábyrgð á kennslu og rannsóknum. Komið verður á fót forsetanefnd en í henni eiga sæti rektor og forsetar fræðasviða. Ennfremur verður komið á fót stjórn fræðasviðs sem samhæfir starf deilda innan hvers sviðs. Erlendir háskólar hafa gert svipaðar breytingar Í fréttatilkynningu frá Háskól- anum er bent á að undanfarin ár hafi margir háskólar í nágranna- löndum okkar farið í gegnum svip- aða endurskipulagningu og Há- skóli Íslands sé að ráðast í. „Víðast hvar er þessu breytinga- ferli stýrt að utan með stjórn- valdsákvörðunum en Háskóli Ís- lands hefur sjálfur haft frumkvæði að því að leiða breytingarnar, sem lið í að framkvæma stefnu sína og ná því markmiði að komast í röð fremstu háskóla í heiminum.“ Forsenda þeirra breytinga sem háskólaráð samþykkti sl. þriðju- dag að ráðast í er stórauknar tekjur Háskóla Íslands á komandi árum. Samningur Háskóla Íslands við menntamálaráðuneytið í upp- hafi þessa árs um viðbótarfjár- magn til uppbyggingar kennslu, rannsókna og framhaldsnáms er stórt skref í þá átt, að mati stjórn- enda skólans. Auk þess gerir stefna Háskóla Íslands ráð fyrir verulegri aukningu sértekna, sem nú eru um 40% af veltu. Ellefu deildir Háskóla Íslands verða að fjórum fræðasviðum Morgunblaðið/Kristinn Kynning Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor kynnti tillögurnar fyrir starfsmönnum Háskóla Íslands í hátíðarsal skólans í hádeginu í gær. Í HNOTSKURN »Stefna Háskóla Íslands fyrirárin 2006-2011 kveður á um endurskoðun á skipulagi skólans. »Stefnan gerir einnig ráð fyrirað efla rannsóknarvirkni við skólann og jafnframt að fjölga kennurum. »Háskólinn stefnir einnig aðþví að fjölga doktorsnemum. Erlendum doktorsnemum hefur sömuleiðis verið að fjölga en það er oft notað sem mælikvarði á gæði háskóla. Róttækar breyt- ingar á skipulagi og stjórnkerfi HÍ KRISTÍN Ingólfsdóttir háskóla- rektor segir að markmið breytinga á skipulagi og stjórnkerfi Háskóla Íslands sé að efla grunneiningar skólans, dreifa valdi, styrkja for- ystu á öllum stjórnstigum og stór- efla stoðþjónustu. Kristín sagði að náðst hefði all- góð sátt um þessar breytingar inn- an Háskólans. „Þetta er auðvitað gífurlega stórt verkefni og snertir marga. Eðli málsins samkvæmt hafa skoðanir verið skiptar. En eft- ir því sem við höfum talað meira saman höfum við náð að sætta sjón- armið og náð góðri niðurstöðu. Ég er gífurlega ánægð með þessa nið- urstöðu.“ Í tillögunum er talað um að brýnt sé að efla stoðþjónustu við kennara og nemendur. „Við náum ekki markmiðum skólans ef kennarar okkar eru uppteknir við að sinna skrifstofustörfum og fjár- málaumsýslu. Þá er ég að tala um hluti allt frá ljósritun, pöntun á tækjum og viðgerð á tækjum sem bila. Þetta eru allt nauðsynleg verk, en þetta fólk var ekki ráðið til að sinna þessum störfum. Með því að hafa einingarnar færri og stærri getum við nýtt bet- ur fjármuni og sett fjármuni sem um munar í að efla þessa þjón- ustuþætti.“ Kristín sagði að stækk- un sviða myndi þýða að vald og ábyrgð yrði flutt til sviðanna. „Þetta þýðir m.a. að stjórnun á svið- unum verður sinnt í fullu starfi, en ekki í hjáverkum. Við gerum ráð fyrir að stöður sviðsstjóra verði auglýstar á innlendum og erlendum vettvangi.“ Skipulagsbreytingarnar þýða að til verður nýtt svið heilbrigðisvís- inda, en það verður myndað úr hjúkrunarfræðideild, lyfjafræði- deild, læknadeild, tannlæknadeild, sálfræði og matvæla- og næring- arfræði. „Við teljum að þetta eigi mjög vel saman. Þessi sameining byggist á því að þessar einingar telja að þeir eigi mesta faglega samleið.“ Kristín sagði að Háskólinn og menntamálaráðuneytið væru nú að skoða hvort breytingarnar kölluðu á einhverja lagabreytingu. Gert er ráð fyrir að breytingin taki formlega gildi um mitt næsta ár um leið og sameining HÍ og Kennaraháskólans á sér stað. Krist- ín sagði að þessi ákvörðun leiddi til breytinga á skrifstofuhaldi. Ánægð með þessa niðurstöðu   !   "   # " #  $  % &"    '' &""  #(   )  - . ' '  '' '/ 0.1.  . 2 &  . ' ' 3  . ' ' 3. ' ' 4. ' ' 0..  . 5  . )  6  * ,' 7 . ' ' & '' ' 89 '' '/ 5  . 2 -  :16 . ' ' 3' ' -  ; NEGRASTRÁKAR, kynvillingar og fávitar voru mepal þess sem rætt var á fundi í Alþjóðahúsinu í gær. Þar var velt upp hugtakanotkun í málefnum innflytjenda og var kveikjan endur- útgáfa bókarinnar Negrastrákarnir eftir Gunnar Egilson, með myndum eftir Mugg. „Við vildum ræða í víðu samhengi hvað væri í lagi að segja og hvað ekki,“ segir Einar Skúlason, fram- kvæmdastjóri Alþjóðahússins, en að hans sögn höfðu fundargestir ólíkar hugmyndir um ýmis orð, til dæmis svertingja og negra. „Fram komu sjónarmið um að óvarlegt væri að rit- skoða bækur á borð við Negra- strákana en síðan væri alltaf spurn- ing um hvað væri við hæfi og mörgum þótti bókin ekki við hæfi. Kristján B. Jónasson benti á að Edda útgáfa hefði fyrir nokkrum árum ákveðið að gefa bókina ekki út aftur. Almennt af því að um barnabók er að ræða fannst fólki að gera mætti strangari kröfur,“ segir Einar. Sjálfum finnst honum að í formála hefði mátt hjálpa foreldrum að nálgast efnið með börnunum. „Í bókinni deyja negrastrákarnir tíu hver af öðrum sökum heimsku og á myndunum virðast þeir ekki sérlega klárir. Þegar þeir sem muna eftir þessari bók úr æsku voru að alast upp voru engir ungir svartir strákar í skólunum. Það er gjörbreytt. Þetta er eins og til hefði verið bók um tíu litlar húsmæður. Ein straujaði yfir sig og þá voru eftir níu. Ein var ekki með matinn á réttum tíma, þá lamdi mað- urinn hennar hana og þá voru eftir átta. Myndum við endurútgefa hana?“ Rætt um negrastráka, svertingja og tíu litlar húsmæður í Alþjóðahúsinu Negrastrákar Endurútgáfa sögunnar um negrastrákana tíu var kveikjan að hádegisumræðum í Alþjóðahúsinu um hvað mætti segja og hvað ekki. STARFSMENN Vinnumálastofn- unar eru flognir til Póllands ásamt mökum þar sem þeir ætla að halda sína árshátíð um helgina. Ferðin er þó ekki síður fræðsluferð fyrir starfsmenn stofnunarinnar því í borginni Krakow, þar sem hópurinn dvelur fram á sunnudag, verður fræðst um starfsemi systurstofnun- ar Vinnumálastofnunar. Þá munu Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu- málastofnunar og starfsfólk hans, deila með Pólverjunum þeirri starf- semi sem hér fer fram á þessu sviði. Tengsl milli stofnananna tveggja eru þegar komin á í gegnum Vinnu- miðlun Evrópu, Eures, enda eiga þær sameiginlegra hagsmuna að gæta, m.a. velferðar pólskra verka- manna. Árshátíð og fræðsluferð til Póllands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.