Morgunblaðið - 26.10.2007, Blaðsíða 25
mælt með
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2007 25
SMÁRATORG 3, 200 KÓPAVOGUR TLF.: 55 00 800
Til
bo
ði
ð
gi
ld
ir
til
og
m
eð
2
8.
10
.2
00
7
og
a
ðe
in
s í
S
m
ar
at
or
g.
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r o
g
vö
ru
fra
m
bo
ð.
062569
FLEXI-TRAX DINO 312
Sett með 312 brautarhlutum,
2 bílum með ökuljósum,
risaeðluhreiður með
risaeðluunga, 4 árasagjarnar
risaeðlur, búr, göng með
„grjóthruni“, löng og lítil
trébrú, klettagöng, hæð,
sporbreytir, 3 skiptiteinar o.fl.
Notar 2 C-rafhlöður.
Okkar eðlilega lágvöruverð er
8.999,-
063115
SPIDER-MAN 3 HÚÐFLÚRSVÉL
Með húðflúrspenna, 9 myndir og
3 liti. Notar 2 C-rafhlöður.
Okkar eðlilega lágvöruverð
er 2.499,-
116290
PLAY2LEARN GÖNGUBÍLL
Með marga möguleika, hljóðum og
geymsluplássum. Frá 1 ára. Okkar
eðlilega lágvöruverð
er 2.999,-
146545
HÚÐFLÚRSSETT
Með nálabyssu,
5 vantstússpennum,
20 húðflúrsmyndum,
glimmergeli og
límmiða. Notar
4 B-rafhlöður.
2.399,-
532050
FURÐULEGUR HEIMUR ÁLFADÍSANNA
Töfraheimili þar sem þú getur virkjað
ímyndunaraflið! Okkar eðlilega
lágvöruverð er 5.799,-
31 x 52 x 51
SM
1.499,-
ÞÚ SPARA
R 1.500
,-
4.499,-
ÞÚ SPARA
R 4.500
,-
1.249,-
ÞÚ SPARA
R 1.250
,-
2.899,-
ÞÚ SPARA
R 2.900
,-
1.199,-
ÞÚ SPARA
R 1.200
,-
ÞAÐ ER ALLTAFOPIÐ LENGIVirkadaga
10-19
Nema fi mmtudaga 10-21
laugadaga
10-18
Sunnudaga
12-18
Kristján Bersi Ólafssonskrifar hugleiðingu á
föstudegi „af því að mig grunar
að einhverjir félaga okkar muni
hafa í huga að væta kverkarnar
örlítið í kvöld, þá finnst mér ekki
út í hött að minna á séra Ólaf
Jónsson á Söndum í Dýrafirði
(1560-1627). Ég er afkomandi
hans í tíunda lið og kannski er
það ættarfylgja frá honum, að ég
hef gaman af vísum og hafna
ekki bjór eða öðrum veigum
þegar svo ber undir. En séra
Ólafur var í fremstu röð skálda á
sinni tíð og orti mikið, einkum
sálma og andlegar vísur, en
einnig veraldlegar. Eftir hann er
til að mynda vísubrot sem margir
halda að sé úr þjóðkvæði:
Eitt sinn fór ég yfir Rín
á laufblaði einnar lilju;
lítil var ferjan mín.
Séra Ólafur orti kvæði um
öldrykkju sem hann kallaði
Drykkjuspil. Það var ort í stíl síns
tíma með viðlagi og var upphaf
þess á þessa leið,
Hýr gleður hug minn
hásumartíð.
Skæran lofi skapara sinn
öll skepnan blíð.
Skín yfir oss hans miskunnin.
– Hýr gleður hug minn.
Gleður mig enn sá góði bjór,
guði sé þökk og lof;
þó mín sé drykkjan megn og stór
og mjög við of,
mun þó ei reiðast drottinn vór.
– Hýr gleður hug minn.
Mjög leikur nú við manninn ört
hið mæta drottins lán.
En þó með því að illt sé gjört
og aukin smán,
af því magnast syndin svört.
– Hýr gleður hug minn.
Vond öldrykkjan veldur oft
að vináttan forgár öll,
sundurþykkja er senn á loft
og sárleg föll.
Sumum fer það heldur gróft.
– Hýr gleður hug minn.
En þegar dánumenn drekka vel,
sem drjúgum oft hefir skeð,
þá vex af ölinu vináttuþel
og virðing með.
Veislu góða eg svoddan tel.
– Hýr gleður hug minn.
Gott er að drekka það góða öl,
gleður það mannsins líf,
meðan að enginn bruggar böl
né byrjar kíf
og bróðurleg elska ei líður kvöl.
– Hýr gleður hug minn.
Þessar vísur séra Ólafs held ég
geti verið gott vegarnesti þeim
sem skella sér út á lífið á
föstudagskvöldi. Kveðja,
Bersinn.“
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af brag og
öldrykkju
Kynlaust og litblint fólk
Um helgina gefst einstakt tækifæri til að
setja sig vel inn í jafnréttisumræðuna og hafa
loks á takteinum fleyg orð feminista. Á morg-
un verður nefnilega haldin ráðstefna Fem-
inistafélags Íslands, Kynlaus og litblind, í
Rúgbrauðsgerðinni en efni hennar er jafn-
réttið og margbreytileikinn. Ráðstefnan er
haldin í tilefni af Evrópuári jafnra tækifæra og
þar kemur fram fólk úr ýmsum áttum sem á
það sameiginlegt að vera virkt í einhvers kon-
ar jafnréttisbaráttu út frá kyni, kynhneigð,
uppruna eða fötlun. Meðal þess sem er á dag-
skránni má nefna athyglisverða vinnustofu
sem ber yfirskriftina „Hvítur, gagnkyn-
hneigður, innfæddur karlmaður – hverju á
hann að berjast fyrir?“ og er í höndum Gísla
Hrafns Atlasonar og Viðars Þorsteinssonar.
Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.
Taktu á móti vetri
Fyrsti vetrardagurinn er á morgun og því
ærin ástæða til að taka vel á móti vetri kon-
ungi, hálft í hvoru til að hafa hann góðan. Og
hvar fer betur á því en úti í náttúrunni? Oft eru
hæg heimatökin hjá þeim sem búa svo vel að
hafa náttúruna allt um kring en hinir þurfa
kannski að tölta örlítið lengra, og þá helst út
fyrir malbikaðar og skipulagðar slóðir.
Náttfatapartí hjá Sinfóníunni
Fyrstu tónleikar vetrarins í fjölskyldu-
tónleikaröðinni Tónsprotanum hjá Sinfón-
íuhljómsveit Íslands verða haldnir í Há-
skólabíói á morgun. Yfirskrift tónleikanna er
náttfatapartí enda næturtónlist af ýmsum toga
í hávegum höfð. Hljómsveit og stjórnendur
verða í náttfötunum og áhorfendur eru líka
hvattir til þess arna og bangsar og brúður fá
ókeypis inn í fylgd með börnum!
Rafmagnslaust á Eyrarbakka
Í október og nóvember eru rafmagnslausir
dagar í Rauða húsinu á Eyrarbakka og í kvöld
spilar Eyjólfur Kristjánsson einn með gít-
arinn. Tilvalið fyrir Árnesinga og nærsveita-
menn í austri og vestri að skella sér – að líta
Rauða húsið sjálft augum er svo algjör bónus.
Liggur lífið við?
Nú er tími til kominn að fríska upp á andann
með innblæstri frá sprækum háskólanemum.
Annað kvöld frumsýnir Stúdentaleikhúsið al-
varlega skrifstofufarsann Lífið liggur við í
leikstjórn Hlínar Agnarsdóttur en hún endur-
skrifaði leikritið í samvinnu við Stúdentaleik-
húsið. Sýningin hefst kl. 20.
Morgunblaðið/Sverrir
Morgunblaðið/Sverrir