Morgunblaðið - 10.11.2007, Side 4

Morgunblaðið - 10.11.2007, Side 4
4 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Girnileg nýjung með 2 í pakka. Fæst í næstu verslun. Meistara- flokkssúpur Masterklass        Nýjung NORÐURSIGLING, sem er hvalaskoðunarfyrirtæki á Húsavík, fékk í gær Nýsköpunarverðlaun SAF – Sam- taka ferðaþjónustunnar. Kristján Möller samgöngu- ráðherra afhenti Herði Sigurbjarnarsyni, fram- kvæmdastjóra Norðursiglingar, verðlaunin við hátíðlega athöfn á Hilton Reykjavík Nordica. Í rökstuðningi dómnefndar segir að þrennt hafi eink- um orðið til þess að Norðursigling fékk verðlaunin. Fyrirtækið hafi frá upphafi staðið fyrir samfelldri ný- sköpun og vöruþróun í þeirri viðleitni að gera hvala- skoðun að eftirsóknarverðri afþreyingu. Einnig skipti máli virðing fyrirtækisins fyrir sögu strandmenningar og hvernig því hafi tekist að skapa Húsavík þá ímynd að ferðamönnum sé nauðsyn að heimsækja hana. Morgunblaðið/Frikki Norðursigling verðlaunuð Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is PÁLL Magnússon, stjórnarformaður Landsvirkj- unar, segir að einhugur hafi ríkt innan stjórnar- innar um þá ákvörðun að hefja viðræður um raf- orkusölu við fyrirtæki sem hyggjast byggja upp netþjónabú á Íslandi og fyrirtæki á sviði kísil- hreinsunar fyrir sólarrafala, fremur en ganga til samningaviðræðna við fyrirtæki sem hyggja á byggingu nýrra álvera á Suður- eða Vesturlandi. Hann vill ekki kannast við að ímyndarsjónarmið hafi legið til grundvallar, þ.e. að menn vilji bæta ímynd Landsvirkjunar og þannig mögulega auka líkur á því að leyfi fáist fyrir virkjun Þjórsár. „Fyrir þessari ákvörðun liggja viðskiptalegar forsendur. Það þjónar einfaldlega hagsmunum fyrirtækisins að leita eftir sem bestu verði við raf- orkusöluna og síðan höfum við viljað auka fjöl- breytni viðskiptavina og þar með dreifa áhætt- unni, þannig að við séum ekki bara háð einni atvinnugrein í þessum hópi stórnotenda.“ Páll bætir því við að hitt sé annað mál að þetta sé í fyrsta sinn sem Landsvirkjun hafi úr fjölda áhugasamra kaupenda að velja. Ljóst sé að eft- irspurnin eftir orku sé langt umfram framboð. Hann vill ekki tjá sig um hverjir mögulegir kaup- endur orkunnar eru en segir að viðræður hafi farið fram við þrettán aðila um fimmtán verkefni og nið- urstaðan sem nú liggi fyrir hafi verið tekin á grundvelli þeirra viðræðna. Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra og fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis, segist ekki efast um að ákvörðun Landsvirkjunar sé skynsamleg. „Ég sé ekki að þetta eigi að breyta nokkru um mögu- leika Suðurkjördæmis til uppbyggingar á orku- frekri starfsemi. Mér sýnist ennþá að það séu verkefni í Þorlákshöfn sem eru ofarlega á lista hjá þeim og hvað Helguvíkurframkvæmdina varðar þá er þar um að ræða orku frá öðrum aðilum [Hita- veitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur].“ Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, tek- ur í sama streng, þetta hafi ekki áhrif á áform um nýtt álver í Helguvík og ánægjulegt sé að Lands- virkjun ætli að hjálpa til við uppbyggingu annarra áhugaverðra verkefna á svæðinu. | Miðopna Rætt við þrettán aðila Fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis og bæjarstjóri Reykjanesbæjar telja ekki að ákvörðun Landsvirkjunar komi til með að hafa neikvæð áhrif á atvinnumál á svæðinu Árni Sigfússon Árni M. Mathiesen Í HNOTSKURN »Í stjórn Landsvirkjunar sitja Ágúst Ein-arsson rektor, Jóna Jónsdóttir við- skiptafræðingur, Páll Magnússon, bæj- arritari í Kópavogi, Valdimar Hafsteinsson framkvæmdastjóri og Valur Valsson, fyrr- verandi bankastjóri. »Landsvirkjun er ekki aðili að samn-ingum um orkusölu til Norðuráls vegna fyrsta áfanga nýs álvers í Helguvík. Páll Magnússon TILLAGA borg- arstjóra um að kanna möguleika á þráðlausu há- hraðaneti í Reykjavík hefur verið samþykkt í borgarráði. Í byrjun verð- ur horft til mið- borgarinnar, há- skólasvæðisins og svæðisins í kringum Vatnsmýri, auk viðskiptahverfisins við Borg- artún. Borgin vill á þennan hátt kanna möguleika á bættri þjónustu við borgarbúa á þessu sviði. Tæknilegar útfærslur verða skoðaðar auk hugsanlegrar sam- þættingar við ljósleiðaranet Orku- veitu Reykjavíkur eða annarra að- ila, til að greiða fyrir gagnaflutningum í borginni. Kanna á áhuga háskóla, ríkis og fyr- irtækja um samstarfsvilja við verk- efnið. Niðurstöðum athugunarinnar skal skila til borgarráðs fyrir 15. desember næstkomandi. Þráðlaust háhraðanet í Reykjavík Möguleikar á neti í miðborg kannaðir Dagur B. Eggertsson ALLMÖRG mál hafa komið á borð lögreglunnar undanfarið sem vekja upp ýmsar spurningar um hátterni fólks, að því er fram kem- ur á lögregluvefnum. Þar eru rak- in nokkur dæmi um framkomu ökumanna. Bíll var kyrrstæður á miðri götu í Vogahverfinu. Ökumaður á öðr- um bíl kom þar að og flautaði á þann kyrrstæða. Ökumaður hans, sem var að tala í síma, vatt sér þá út og skyrpti á þann sem flautaði. Á Vesturlandsvegi var ökumað- ur sem flautaði á annan, eltur uppi og hótað öllu illu. Á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar kom til handalögmála þegar tveir öku- menn biðu eftir grænu ljósi. Annar þeirra hafði reykspólað heldur hressilega að mati hins. Þegar sá síðarnefndi vildi koma athugasemd á framfæri fór allt í bál og brand. Í Grafarholti ofbauð manni ofsa- akstur í tiltekinni götu. Hann setti kúst fyrir framan bíl glannans sem reiddist því mjög og sló til þess sem ætlaði að spyrna við frekari háskaakstri. Ótrúlegt hátterni NÝTT fæðing- armet var slegið á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akranesi aðfara- nótt 9. nóvember sl. þegar lítill drengur kom í heiminn. Fæð- ingar voru flest- ar 238 talsins árið 2006 en eru nú þegar komnar í 239. Mikið annríki hefur verið á deild- inni nánast allt árið og er flest sem bendir til þess að svo verði áfram, þar sem a.m.k. 30 konur eru skráð- ar til áramóta. Konur koma af öllu Vesturlandi og í auknum mæli af höfuðborgarsvæðinu. Ein af ástæð- um þess er sú að sjúkrahúsið getur boðið upp á lengri sængurlegu en í Reykjavík og margar konur vilja gjarnan nýta sér það, ekki síst frumbyrjurnar, segir í frétt frá sjúkrahúsinu. Nýtt met í fæðingum LÖGREGLUSTJÓRARNIR á Hvols- velli og Eskifirði hittust í Freysnesi í fyrradag og undirrituðu sam- starfssamning, að því er fram kem- ur á lögregluvefnum. Markmið samningsins er að efla og samhæfa almenna löggæslu og auka hreyfanleika lögregluliðanna á Eskifirði og Hvolsvelli. Lögregluliðið í Vestur-Skafta- fellssýslu sameinaðist lögreglunni á Hvolsvelli um síðustu áramót. Lög- reglan í Austur-Skaftafellssýslu heyrir undir lögreglustjórann á Eskifirði. Umdæmi þessara tveggja lögregluembætta mætast því á Skeiðarársandi. Samstarf lög- regluembætta VIÐ lokun í gær höfðu Skipulags- stofnun borist 615 tölvupóstar og a.m.k. 25 bréf í hefðbundnum pósti með athugasemdum við Bitruvirkj- un sem OR hyggst reisa á Hellis- heiði. Skilafrestur athugasemda var til miðnættis í gær þannig að tölvupóstur sendur fyrir þann tíma sem og sendibréf sem póstlögð og dagsett voru í gær verða tekin gild. Endanlegar tölur um fjölda at- hugasemda ættu því að liggja fyrir á mánudag en ljóst er þegar að fjöldi athugasemda hefur slegið öll fyrri met. 640 athuga- semdir borist „ÉG TEL að það megi ekki bíða lengur að allir eigendur Orkuveit- unnar komi saman og ræði stöðuna,“ segir Bryndís Hlöðversdóttir, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR) en stjórn OR ákvað á fundi sínum í gær að boða til eigendafundar föstudaginn 16. nóv- ember nk. þar sem málefni Reykja- vík Energy Invest (REI) verða til umræðu. Eigendur OR eru sem kunnugt eru Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgar- byggð. Gunnar Sigurðsson, fulltrúi Akra- neskaupstaðar í stjórn OR, lét í til- efni umræðu um útrásarmál bóka að hann væri sammála Degi B. Egg- ertssyni borgarstjóra um það að stefnan ætti að vera sú að Orkuveit- an yrði áfram í útrásinni og að alls ekki væri útilokað af hálfu aðaleig- anda fyrirtækisins að af frekara samstarfi kynni að verða við Geysir Green Energy, líkt og nýleg ákvörð- un um áframhaldandi verkefni á Fil- ippseyjum sýndi, en þar vinna fyr- irtækin saman sem og innan Enex. Í samtali við Morgunblaðið sagð- ist Kjartan Magnússon, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokks og stjórn- armaður í OR, fagna því að eigendafundur væri framundan, enda væri gott að geta rætt málin og farið yfir næstu skref. Hafliði Helgason, talsmaður REI, segist vonast til þess að fljótlega komi niðurstaða í málinu og skýr skilaboð, enda væri ekkert verra en að vera í óvissu án þess að markvisst skref væri tekið í aðra hvora áttina. Þess má að lokum geta að boðað hef- ur verið til hluthafafundar í REI laugardaginn 17. nóvember. Eigendafundur OR boðaður Allir vilja sjá niðurstöðu sem fyrst

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.