Morgunblaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 8
SIÐANEFND Blaðamannafélags Íslands hefur komist að þeirri nið- urstöðu, að Trausti Hafsteinsson, blaðamaður DV, hafi brotið með al- varlegum hætti gegn siðareglum BÍ með umfjöllun í ágúst sl. um for- stöðumann meðferðarheimilis fyrir unglinga. Siðanefndin segir m.a. í niður- stöðu sinni að umfjöllun DV þann 24. ágúst sl. hafi verið óvönduð og víða pottur brotinn. Blaðið dragi nokkuð í land með athugasemdum sínum hinn 27. ágúst en þær dugi hvergi nærri til þess að rétta hlut kæranda. Auðveldlega hefði mátt afla nákvæmari og réttari upplýs- inga um þau mál sem fjallað var. Alvarleg brot blaðamanns DV 8 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SIÐANEFND Blaðamannafélags Íslands hefur komist að þeirri nið- urstöðu að Ríkisútvarpið hafi ekki brotið gegn siðareglum félagsins í umfjöllun um mótmæli Saving Ice- land hér á landi í sumar. Samtökin kærðu bæði fréttaflutning í kvöld- fréttum og umræður í Kastljósi Sjónvarpsins. Í kvöldfréttum kom m.a. fram að félagar í Saving Ice- land fengju greiðslur ef þeir væru handteknir af lögreglu vegna mót- mæla en því hafa samtökin vísað á bug. Í niðurstöðu sinni segist siða- nefnd BÍ ekki fjalla um umræður í Kastljósi þar sem skoðanir ein- staklinga komi fram. Hvað frétta- flutninginn varðar er það mat siða- nefndar að sjónarmið samtakanna hafi komið nægilega vel fram í um- fjöllun fréttastofunnar. Morgunblaðið/Frikki Mótmæli Frá mótmælum Saving Iceland á Austurvelli. Ekki brotlegt BRESKA sendiráðið heldur minn- ingarathöfn um þá hermenn, er létu lífið í heimsstyrjöldunum tveimur, í hermannagrafreitnum í Fossvogskirkjugarði, sunnudaginn 11. nóvember klukkan 10.45. Athöfnina leiðir sendiherra Bret- lands á Íslandi, Alp Mehmet. Fulltrúar annarra þjóða taka einnig þátt í athöfninni. Séra Arn- grímur Jónsson stjórnar minning- arathöfninni og eru allir velkomnir, Minningarathöfn BJÖRN Bjarna- son dómsmála- ráðherra sat ráð- herrafund Schengen- ríkjanna í Bruss- el 8. nóvember sl. Hann ræddi m.a. við Franco Fratt- ini, varaforseta framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins og framkvæmdastjóra innanríkis- og dómsmála hjá framkvæmdastjórn- inni. Í byrjun næsta árs stefna ráð- herrann og framkvæmdastjórinn að því að hittast til að ræða um stöðu Íslands í Evrópusamstarfinu hvað varðar lög- og réttargæslu í ljósi hins nýja stofnsamnings ESB, sem kenndur er við Lissabon. Þá verður einnig rætt um aðild Íslands að framkvæmd tillagna um nýjar aðgerðir í baráttunni gegn hryðju- verkjum, sem Frattini kynnti á fundinum, auk þess aðild Íslands að samstarfi evrópskra lögregluliða. Ræða lögreglumál Björn Bjarnason Eftir Andra Karl andri@mbl.is FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn Reykjavíkur sóttu hart að Degi B. Eggertssyni borgarstjóra síðastliðinn þriðjudag. Fremst í flokki fór Hanna Birna Kristjáns- dóttir sem þráspurði borgarstjóra hvenær málefnasamningur meiri- hlutans yrði kynntur. Dagur svaraði því til að honum þætti það ekki lyk- ilatriði að gerður yrði slíkur samn- ingur. „Að meirihluti sem er búinn að vera hér við völd í dálítinn tíma skuli ekki hafa gefið sér eina helgi eða nokkrar kvöldstundir í það að fara yf- ir þessi mál og semja einhvern mál- efnasamning er náttúrlega óviðun- andi og forkastanlegt,“ sagði Hanna Birna eftir að fulltrúar meirihlutans höfðu komið upp í pontu til að skýra frá sýn sinni á hvern málaflokk. Hanna Birna sagðist enga pólitík hafa merkt af ræðum fulltrúanna, skautað hefði verið framhjá stóru málunum og pólitísku spurningun- um. Segir borgarstjóra kunna alla frasana Dagur B. sagði Hönnu Birnu gera furðulítið úr kynningu fulltrúanna sem hefði verið út frá haldbestu gögnum sem beitt er við stjórn borg- arinnar, þ.e. starfs- og fjárhagsáætl- un. „Pólitík hins nýja meirihluta er pólitík hins daglega lífs. Það er póli- tíkin sem gengur út á það að manna leikskólana, standa með leikskóla- kennurum í þeirra störfum, umönn- unarstéttunum, það er pólitíkin sem vill framúrskarandi skóla. Það er pólitíkin sem mun hrinda í verk bú- setuúrræðum fyrir aldraða, fá öfluga þjónustu inn á heimilið þannig að fólk þurfi ekki að búa við öryggisleysi. Þetta er pólitík hins daglega lífs. Þetta er líka pólitík hinnar blómlegu borgar,“ sagði Dagur en uppskar litla aðdáun Hönnu Birnu fyrir. Hún sagði borgarstjóra hafa farið með alla þá frasa sem oft hefðu heyrst áður. Hanna Birna spurði því aftur út í málefnasamninginn, nú í ljósi þess að allt lægi svo klárt og skýrt fyrir hjá borgarstjóra. Dagur sagði þá að meirihlutinn vildi vera dæmdur af verkum sínum og fyrst og fremst yrði talað í gegnum verkin. „Það vekur að sjálfsögðu furðu vegna þess að öll fórum við hingað inn í þennan sal, múruð og með í okk- ar huga ákveðna sýn og ákveðna póli- tíska stefnumótun og öll hljótum við að þurfa að setja það niður á blað og segja kjósendum nákvæmlega hvað við ætlum að gera,“ sagði Hanna Birna og spurði enn og aftur: „Stend- ur ekki til að byggja þetta samstarf á neinum málefnasamningi?“ Dagur B. sagði þetta býsna þunnt roð að hanga á fyrir minnihlutann og það sem aðallega skipti máli væri að meirihlutinn ynni að sínum hugsjón- um og kæmi því að sem sagt var í kosningabaráttunni. „Ég hef sagt það alveg skýrt hér að mér finnst það ekkert lykilatriði að við gerum svo- kallaðan málefnasamning og kynnum hann sérstaklega.“ Minnihluti sjálfstæðismanna í borgarstjórn gagnrýnir að ekki sé enn kominn fram málefnasamningur meirihlutans Pólitík meirihlutans er „pólitík hins daglega lífs“ Dagur B. Eggertsson Hanna Birna Kristjánsdóttir Ráðhús Nýr meirihluti í borgarstjórn vill verða dæmdur af verkum sínum. LEIKSKÓLARÁÐ og menntaráð Reykjavíkur hafa samþykkt að setja á laggirnar opinn umræðu- og samráðsvettvang, svokallaða Brú, til að fjalla um faglegt starf á fyrstu skólastigunum. Þar mun öllum sem láta sig skólamál varða gefast tækifæri til að setja fram hugmyndir, kynna verkefni og ræða samstarf skóla og skóla- stiga. Í fréttatilkynningu segir að leiðarljós í starfsemi Brúar sé að nemandinn sé ávallt í brenni- depli, að leik- og grunnskóli vinni saman og að skólagangan sé sam- felld og ánægjuleg. Markmið er að skapa frjóan umræðuvettvang fyrir stjórnmálamenn og skóla- fólk sem tekur mið af báðum skólastigum. Þannig verður í Brúnni hægt að miðla þekkingu, máta hugmyndir og undirbyggja ákvarðanir beggja fagráða borg- arinnar sem fara með mennta- mál. Aðgengilegar fyrir alla Brú verður því eins konar þanka- banki þar sem hugmyndir fæðast og mótast áður en þeim er fylgt eftir í fagráðunum. Fundargerðir þessa samráðsvettvangs verða lagðar fram í ráðunum og gerðar aðgengilegar fyrir alla borg- arbúa. Fyrsti fundur Brúar verður 28. þessa mánaðar, en gert er ráð fyrir einum samráðsfundi í mán- uði. Brú – vett- vangur um skólastarf Í forystu Sigrún Elsa Smáradóttir og Oddný Sturludóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.