Morgunblaðið - 10.11.2007, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
BARNA- og unglingageðdeild
Landspítalans hefur eignast óvænt-
an stuðningsaðila. Íslandsvinkonan,
óperusöngkonan heimskunna, Dame
Kiri Te Kanawa, syngur á styrktar-
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands og BUGL með Garðari Thór
Cortes föstudaginn 7. desember.
Tónleikarnir bera yfirskriftina: Lífið
kallar! en fjárfestingafélagið FL
Group stendur að tónleikunum með
Sinfóníuhljómsveitinni.
Kiri Te Kanawa er einhver dáð-
asta söngkona heims og hefur sung-
ið við öll helstu óperuhús veraldar.
Hún hefur sungið inn á fjölmargar
hljómplötur hjá EMI-útgáfunni, hún
söng við brúðkaup Díönu prinsessu
og Karls bretaprins og hefur verið
öðluð af bresku krúnunni. Hún hefur
verið gestur á öllum helstu tónlistar-
hátíðum heims.
Óspör á tíma sinn
Dame Kiri er Íslendingum að
góðu kunn. Hún hefur verið tíður
gestur á Íslandi síðustu ár. Hún kom
fyrst til landsins 2002 til tónleika-
halds en síðan hefur hún komið
margsinnis til veiða og afþreyingar.
Hún verið rausnarleg og meðal ann-
ars tekið söngvara frá Söngskól-
anum í Reykjavík á einkanámskeið
án þess að þiggja krónu fyrir.
Garðar Thór Cortes er tvímæla-
laust ein bjartasta von Íslendinga á
tónlistarsviðinu. Hann gaf út hljóm-
plötu sína, Cortes, í Bretlandi í vor,
og fór hún beint í fyrsta sæti Klass-
íska sölulistans. Eftir tónleikana 7.
desember heldur Garðar til Bret-
lands og syngur við sjósetningu
skipsins Queen Victoria að við-
staddri bresku konungsfjölskyld-
unni.
Þetta er í annað skipti sem Garðar
og Kiri Te Kanawa syngja saman en
þau sungu saman í haust á fjáröfl-
unartónleikum á Jersey, eyju milli
Frakklands og Englands.
Miðasala hefst á mánudag.
Dame Kiri
kemur á ný
Syngur með Garðari
Thór á styrktar-
tónleikum BUGL
Góð Dame Kiri te Kanawa.
ANNAÐ kvöld, þann 11. nóv-
ember kl. 20 mun kammerkór-
inn Schola cantorum flytja
kirkjuleg kórverk í Hallgríms-
kirkju. Tónleikarnir bera yf-
irskriftina A cappella – frá end-
urreisn til samtíma . Flutt
verður evrópsk kórtónlist, en
kórinn flutti þessa efnisskrá
nýverið í Þýskalandi. Þangað
var honum boðið til þátttöku í
alþjóðlegu a cappella hátíðinni
í Ruhr. Kammerkórinn Schola cantorum var
stofnaður 1996 af stjórnanda kórsins, Herði Ás-
kelssyni og hefur hann verið tilnefndur til Tónlist-
arverðlauna Norðurlandaráðs 2007.
Tónlist
Perlur evrópskrar
kórtónlistar
Hörður
Áskelsson
Í ÞRIÐJA sinn á skömmum
tíma hefur útgáfufélagið Bjart-
ur undiritað útgáfusamning
fyrir hönd Jóns Kalmans Stef-
ánssonar. Að þessu sinni er það
sænska spútnikútgáfan Svante
Weyler forlagið sem kaupir út-
gáfurétt á nýrri bók Jón Kal-
man, Himnaríki og helvíti sem
hefur hlotið góða dóma. Auk
þess hyggst forlagið gefa út
tvær aðrar bækur eftir hann,
Sumarljós og svo kemur nóttin, sem hlaut Ís-
lensku bókmenntaverðlaunin 2005 og Ýmislegt
um risafurur og tímann, sem var tilnefnd til Bók-
menntaverðlauna Norðurlanda.
Bókmenntir
Bækur Jóns
Kalmans í Svíþjóð
Jón Kalman
Stefánsson
GUNNAR Kvaran sellóleikari
og Anna Áslaug Ragnarsdóttir
píanóleikari munu í dag halda
tónleika í Hömrum og hefjast
þeir kl.15. Gunnar leikur eina
af sellósvítum Bachs og Anna
Áslaug leikur Ítalskan konsert.
En saman munu þau leika til-
brigði Beethovens um stef úr
Töfraflautunni og sónötu í e-
moll eftir Brahms. Tónleikarn-
ir eru 2. áskriftartónleikar
Tónlistarfélags Ísafjarðar og áskriftarkort gilda.
Einnig verða seldir miðar við innganginn á kr.
1.500, lífeyrisþegar greiða kr. 1.000, en skólanem-
endur 20 ára og yngri fá ókeypis aðgang
Tónlist
Sellósvítur og
konsertar á Ísafirði
Hamrar.
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
BJÖRGÓLFUR Guðmundsson og
RÚV munu í sameiningu leggja 200
til 300 milljónir í framleiðslu á ís-
lensku leiknu dagskrárefni á næstu
þremur árum, samkvæmt samningi
sem undirritaður var í gær. Vinna er
þegar hafin við gerð tveggja þátta-
raða sem byggjast íslenskum saka-
málasögum. Efnið verður framleitt
af einkafyrirtækjum, en verkefnaval
verður í höndum dagskrárstjóra
Ríkissjónvarpsins.
Björgólfur sagði við undirritunina
að sjónvarpið væri mesti áhrifavald-
urinn í menningarlífi þjóðarinnar og
bætti við: „Ég er bæði að hugsa um
menninguna í sjónvarpinu og að
tryggja og efla þá atvinnu sem er í
kringum það.“
„Þetta er kannski sú listgrein sem
hefur orðið hvað mest útundan,“
sagði Páll Magnússon. Hann benti á
að hver mínúta af leiknu íslensku
efni væri mjög kostnaðarsöm, en
með samningnum væri sú upphæð
tvöfölduð sem varið yrði til þess á
tímabilinu.
Mannaveiðar og Svartir englar
Alls er ráðgert að fjórar til sex
þáttaraðir verði framleiddar á þeim
þremur árum sem samningurinn
tekur til og leggja báðir aðilar til jafn
mikið fé. „Stefnan er sú að sjón-
varpsáhorfendur sjái eina til tvær
þáttaraðir á hverjum vetri.“ segir
Þórhallur Gunnarsson dagskrár-
stjóri RÚV.
Tvö verkefni sem njóta góðs af
samstarfinu eru þegar komin í
vinnslu. Sakamálaþættirnir Manna-
veiðar í leikstjórn Björns Brynjúlfs
Björnssonar verða teknir til sýninga
eftir áramótin, en handrit þeirra er
gert eftir bókinni Aftureldingu eftir
Viktor Arnar Ingólfsson. Hin þátta-
röðin sækir efnið líka í glæpasögurn-
ar, en þar verða Svartir englar eftir
Ævar Örn Jósepsson færðir á skjá-
inn í leikstjórn Óskars Jónassonar.
Þó að tökur hefjist ekki fyrr en eftir
ármót, er þegar búið að ganga frá
sölu þeirra til sænska ríkissjónvarps-
ins.
„Þetta eru fyrstu leiðirnar til þess
að tryggja okkur peninga,“ segir
Þórhallur. „En við verðum að hafa
aðgang að peningum til þess að ýta
verkefnum úr vör, áður en við getum
farið að sannfæra aðra um gæði
þeirra.“ Hann segir sölu þáttanna til
Svíþjóðar ekki skila miklum tekjum í
sjálfu sér, en hún veiti aðgang að
norrænum sjóðum og öðrum mögu-
leikum á fjármagni í verkefnið.
Efnið ekki framleitt af RÚV
Ríkissjónvarpið framleiðir ekkert
af því efni sem peningum verður var-
ið til í gegnum þetta samkomulag,
heldur verður leitað til fyrirtækja og
einstaklinga í kvikmyndaiðnaðinum
um samstarf. „Kvikmyndagerðin er í
miklum blóma og mikið af hæfileika-
fólki í kvikmyndabransanum, segir
Þórhallur. „Þau eru að koma með
hugmyndir að handritum til okkar og
við erum að leita til þeirra. Mér
finnst að við verðum að plægja þann
akur.“
Björgólfur segir margt kvik-
myndagerðarfólk hafa leitað til sín í
vandræðum við að koma hugmynd-
um sínum í framkvæmd. „Ég hef líka
kynnst því hvað það eru margir sem
hafa lagt upp í langt og strangt nám
og það þarf að tryggja að þeir hafi
viðeigandi aðstöðu til þess að gera
eitthvað. Þetta getur orðið ágætis at-
vinnugrein hér. Ég er ungur maður
sem hef gaman af því að sjá hlutina
gerast.“
„Er það ekki fyrirtækið
mitt eins og allra hinna?“
Björgólfur segist hafa ákveðið að
beina fjármagninu í gegnum RÚV
vegna þess að þar sé mikilvæg kunn-
átta til staðar og sambönd við aðila
um allan heim sem nýtist vel í mark-
aðssetningu. „Þetta er stofnun sem
stendur á gömlum merg og það er
mikil þekking þarna inni. En hún á
ekki að framkvæma þetta sjálf.“
Aðspurður segir Björgólfur ekki
ástæðu til að tortryggja það þó að
ríkisfyrirtæki leggi í samstarf með
einkaaðilum á þennan hátt. „Hvað er
ríkisfyrirtæki?“ spyr hann. „Er það
ekki fyrirtækið mitt eins og allra
hinna? Ég hef áhuga á því að vera
þátttakandi í hópnum og ég vil hvetja
hópinn og vera með. Þar sem ég hef
komið að, til dæmis í bókaútgáfu, hef
ég aldrei haft áhrif á það hvað yrði
gefið út. Ég er frumkvöðull og hef
áhuga á því að sjá hlutina gerast. Ég
hef ekki endilega hæfileika til þess
að velja hvað eigi að gera,“ segir
Björgólfur og Þórhallur tekur í sama
streng: „Það er mjög skýrt í þessum
samningi að ég vel verkefnin og þeir
leggja til fjármagn ásamt okkur.
Þeir koma ekki að vali á verkefnum.“
200-300 milljónir í leikið efni
Björgólfur Guðmundsson og RÚV leggja til jafnmikið fé Tvær sakamála-
seríur í undirbúningi Verkefnaval í höndum RÚV, en efnið framleitt utanhúss
Morgunblaðið/G.Rúnar
Samningur Þórhallur Gunnarsson, Björgólfur Guðmundsson og Páll Magnússon í Iðnó í gær.
úr þegar litið er til baka, og erfitt að
nefna eitthvað eitt.
„Sú hljómsveit sem mér hefur
hins vegar þótt hvað vænst um, ef ég
má orða það svo, er hljómsveitin
Ham. Þetta er langur tími og ég hef
eignast marga vini í gegnum þetta
þannig að það er erfitt að ætla að
pakka því öllu inn í eina setningu.
En Ham á sérstakan stað í hjarta
mínu.“
Þakkar eiginkonunni
En hvaðan kemur þessi óbilandi
áhugi á því að skrifa um tónlist?
„Það var mikil tónlist á heimili
mínu þar sem ég ólst upp. Sem
krakki hafði ég til dæmis gríð-
arlegan áhuga á Beethoven og lærði
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
BJARKARLAUFIÐ var afhent í
fyrsta sinn á Degi íslenskrar tónlist-
ar í gær, en afhendingin fór fram við
hátíðlega athöfn á Hótel Borg í há-
deginu. Árni Matthíasson, tónlistar-
blaðamaður á Morgunblaðinu, hlaut
verðlaunin. „Tilfinningin er mjög
góð og þetta er gott klapp á bakið,“
segir Árni sem fékk afhentan forláta
verðlaunagrip sem Katrín Péturs-
dóttir hannaði.
Árni hefur skrifað þúsundir
greina um íslenska tónlist í Morgun-
blaðið á rúmlega 20 ára ferli, og hef-
ur haft mikil áhrif á íslenskt tónlist-
arlíf. Hann segir margt standa upp
„Óðinn til gleðinnar“ eftir Schiller
utan að, og söng með án þess að
skilja orð í því sem ég var að syngja.
Þá hef ég verið svona sjö eða átta
ára gamall þannig að tónlistaráhug-
inn hefur eiginlega fylgt mér alla
tíð,“ segir Árni.
„Ég fór hins vegar að skrifa um
tónlist fyrir hálfgerða slysni. Ég
byrjaði að skrifa um blús fyrir
Moggann svona 1986, og þegar ég
var byrjaður á því fannst mér svo
súrt að ekkert skyldi vera skrifað
um íslenska tónlist. Ég hafði lengi
hlustað á hana og þekkti marga tón-
listarmenn, og byrjaði þess vegna að
skrifa um íslenska músík. Það
hljómar kannski eins og einhver
þjóðerniskennd, en það er nú svo að
það sem sprottið er úr okkar menn-
ingu, og okkar umhverfi, talar sterk-
ar til okkar heldur en það sem kem-
ur að utan.“
Árni segir að lokum að hann hefði
aldrei fengið þessi verðlaun nema
vegna eiginkonu sinnar, Bjargar
Sveinsdóttur ljósmyndara.
„Ég hefði nefnilega aldrei nennt
að fara á alla þessa tónleika ef hún
hefði ekki komið með mér,“ segir
hann að lokum.
Þykir hvað vænst um Ham
Morgunblaðið/Ómar
Tónlistarforsetinn Árni Matthías-
son með Bjarkarlaufið um hálsinn.
Í HNOTSKURN
» Bjarkarlaufið var afhent ífyrsta sinn í gær, en verð-
launin verða veitt árlega hér
eftir.
» Verðlaunin verða veitteinstaklingum sem styrkja
íslenskt tónlistarlíf með einum
eða öðrum hætti.