Morgunblaðið - 10.11.2007, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 10.11.2007, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2007 21 AKUREYRI             BÆJARSTJÓRANUM á Akureyri voru í gær afhentir undirskriftalist- ar með nöfnum rúmlega eitt þús- und manns, sem mótmæla hug- myndum um lækkun Akureyrar- bæjar á niðurgreiðslu til foreldra vegna dagvistunar. Í skjalinu eru bæjaryfirvöld hvött til þess að stíga varlega til jarðar í þessu máli. Sig- rún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri segir Akureyrarbæ bjóða bestu þjónustu á landinu á þessu sviði og svo verði áfram. Það var Berglind Bergvinsdóttir tvíburamóðir sem afhenti bæjar- stjóranum undirskriftalistana í Ráðhúsinu að viðstöddu nokkru fjölmenni. Í fréttatilkynningu frá þeim sem stóðu að söfnun undir- skriftanna segir: „Hjá stjórnendum Akureyrarbæjar hefur að undan- förnu verið til umræðu að lækka niðurgreiðslu til foreldra sem eru með börn hjá dagforeldrum um rúmlega 12.000 krónur á mánuði miðað við 8 klst. dvöl á dag. Þetta eru margir bæjarbúar ósáttir við …“ Í tilkynningunni segir að einung- is ár sé síðan ákveðið var að bærinn niðurgreiddi dvöl barna hjá dagfor- eldrum þannig að kostnaðurinn fyr- ir foreldra væri sambærilegur við kostnað af dvöl á leikskólum bæj- arins. „Þessari ákvörðun var á sín- um tíma fagnað mjög og varð hún m.a. til þess að fleiri sáu sér fært að taka þátt í atvinnulífinu. Það að lækka niðurgreiðsluna svona mikið í einu er of stór biti fyrir margar fjölskyldur og fyrirsjáanlegt er að einhverjir hafi ekki lengur efni á þessari þjónustu.“ Sigrún Björk Jakobsdóttir bæj- arstjóri sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að vinna við fjár- hagsáætlun næsta árs stæði yfir og lyki síðari hluta nóvember „Akur- eyri býður bestu þjónustu á Íslandi í þessum málaflokki og við ætlum okkur að gera það áfram,“ sagði Sigrún Björk. Of stór biti fyrir marga Í HNOTSKURN »Í tilkynningu frá þeim semstóðu að söfnun undir- skriftanna segir meðal annars: „Með mótmælunum er skorað á stjórnvöld Akureyrarbæjar að stíga varlega til jarðar í þessu máli og sýna staðfestu með þeirri stefnumótandi ákvörðun sem tekin var fyrir ári síðan.“ Mótmæli Berglind Bergvinsdóttir og Sigrún Björk Jabobsdóttir bæj- arstjóri í Ráðhúsinu í gær. „Akureyri ætlar áfram að bjóða bestu þjónustuna“ GEYSIGÓÐ stemning var á tón- leikum Mugisons og hljómsveitar hans á Græna hattinum í fyrra- kvöld; félagarnir fimm rokkuðu af krafti. Það sló bandið ekki út af lag- inu þótt rafmagnið færi af sviðinu um tíma – þá gripu þeir Mugison og Pétur Ben kassagítarana, gengu út á meðal fólksins og léku rólegt og fallegt lag við góðar undirtektir. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Kostulegir KONUR í Zontaklúbbi Akureyrar hafa unnið sýningu um ævi og störf Jón Sveinssonar – Nonna, í tilefni þess að 150 ár eru liðin frá fæðingu hans 16. nóv nk. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri opnar sýn- inguna í Amtsbókasafninu á Akur- eyri í dag kl. 14. Nonnasýning MATTI og Kati Saarinen frá Finn- landi koma fram á tónleikum í Laugarborg á morgun, sunnudag, kl. 15. Á fyrri hluta tónleikanna flytur Matti ýmis verk fyrir klass- ískan gítar. Í síðari hlutanum syng- ur Kati dægurlög og blús við gít- arundirleik Matti. Finnar spila SKÓLANEFND Akureyrar heldur opinn fund um málefni leikskóla og grunnskóla í Lundarhverfi í sal Lundarskóla þriðjudaginn 13. nóv- ember kl. 20. Fjallað verður m.a. um stöðu skólanna og líklega þróun næstu árin, umhverfi skólanna, að- gengi, umferðarmál og fleira. Skólamál Selfoss | Undirritaður hefur ver- ið samningur á milli Sveitarfé- lagsins Árborgar og Fræðslunets Suðurlands um sí- og endur- menntun starfsmanna sveitarfé- lagsins. Í tilkynningu sveitarfélagsins segir: „Samningurinn felur í sér að Árborg getur leitað til Fræðslunetsins vegna fram- kvæmda námskeiða, ráðstefna og annarra námstilboða fyrir starfs- fólk sitt. Sveitarfélagið væntir mikils af þessu samstarfi sem er liður í markvissri þekkingaröflun starfsmanna, þeim og starfsemi sveitarfélagsins til heilla.“ Það voru Ragnheiður Hergeirs- dóttir bæjarstjóri og Ásmundur Sverrir Pálsson framkvæmda- stjóri Fræðslunetsins sem undir- rituðu samninginn. Tryggja markvissa þekkingaröflun Morgunblaðið/Sigurður Jónsson ÁRBORGARSVÆÐIÐ Eftir Jón H. Sigurmundsson Þorlákshöfn | Unglingalandsmót UMFÍ, það 11. í röðinni, verður haldið í Þorlákshöfn dagana 1. til 3. ágúst á næsta ári. Í gær voru und- irritaðir samningar í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn annars vegar á milli unglingalandsmótsnefndar og sveit- arfélagsins Ölfuss og Ungmenna- félags Íslands og Héraðssambands- ins Skarphéðins hins vegar. Mikil uppbygging á eftir að eiga sér stað fyrir mótið, búið er að tyrfa knattspyrnuvöllinn og byggja mön í kringum hann. Mönin mun nýtast sem áhorfendasvæði og gefa skjól á vellinum. Malbikað verður undir hlaupabrautina strax í vor og stefnt að því að völlurinn verði tilbúinn snemma sumars. Vinna við nýja sundlaug gengur samkvæmt áætlun og fram hefur komið áhugi að efla keppni í hestaíþróttum á mótinu. Á unglingalandsmótinu verður keppt í frjálsum íþróttum, glímu, golfi, hestaíþróttum, knattspyrnu, körfuknattleik, skák og sundi. Í at- hugun er að keppt verði einnig í mótókrossi og jafnvel í fimleikum en ákvörðun um það liggur fyrir síðar. Spennandi tímar Ólafur Áki Ragnarsson, bæjar- stjóri í Sveitarfélaginu Ölfusi, sagði eftir undirritunina að sveitarfélagið væri afar stolt með að hafa fengið þetta verkefni sem unglingalands- mótið er. „Þetta á eftir að þjappa fólki saman og hvetja okkur sveit- arstjórnarfólkið til dáða. Við fórum í miklar framkvæmdir þó þær tengist ekki allar beint mótinu sjálfu, en það hvatti okkur eigi að síður að ráðast í þær samhliða mótinu. Við ætlum að standa okkur vel hvað mótið sjálft varðar og ég held að það eigi eftir að verða öllum til sóma,“ sagði Ólafur. Ragnar Sigurðsson, formaður unglingalandsmótsnefndar, sagði það mikla áskorun að taka svona mót að sér. Undirbúningur stæði yf- ir af fullum krafti og allt ferlið gengi samkvæmt áætlun. „Samfara þessu móti á sér stað gríðarleg uppbygg- ing. Það stóð ýmislegt til áður en unglingalandsmótið kom til en þó kom til þess að framkvæmdum var flýtt á ýmsum sviðum. Við sjáum fyrir okkur að mótið muni fara fram við fyrsta flokks aðstæður í öllum greinum. Það eru tvímælalaust spennandi tímar framundan í Þor- lákshöfn,“ sagði Ragnar. Framkvæmdastjóri mótsins verð- ur Ómar Bragi Stefánsson, starfs- maður UMFÍ. Hann hefur verið framkvæmdastjóri á undanförnum unglingalandsmótum. Undirbúningurinn þjappar fólki saman Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson Samtaka Ragnar Sigurðsson, Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, Ólafur Áki Ragnarsson og Gísli Páll Pálsson, formaður HSK. Í HNOTSKURN »11. unglingalandsmótUMFÍ verður haldið í Þor- lákshöfn um verslunarmanna- helgina á næsta ári. »Undirbúningur fyrir mótiðgengur vel, og verður öll aðstaða hin besta og hlakka Þorlákshafnarbúar til að taka á móti mótsgestum. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.