Morgunblaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 27
mér og gat verið í eldhúsinu. Þar stóð hún og smurði brauð í gríð og erg allan daginn.“ Kolaeldavélin yljar Eldhúsið er rúmgott miðað við stærð hússins. Þar er kolaeldavél sem heldur hita á íbúunum og á henni er eldaður matur og hitað vatn í kaffi, sem yljaði okkur á köldum haustdegi þegar tækifæri gafst til að skoða bústaðinn. Gengið er út úr eldhúsinu og út á stétt norðan við húsið. Þar segir Gréta yndislegt að vera á sumarkvöldum, grilla, og horfa á útsýnið því Snæ- fellsjökull blasir hér við og allur Faxaflóinn. Ekkert vatn er í húsinu og heldur ekki rafmagn og verður hvorugt lagt í það úr þessu því trú- lega styttist í að Reykjavíkurborg fari að sækjast eftir landinu, sem er leiguland, og borgarbyggðin teygir sig hratt í allar áttir. „Hér áður fyrr þegar við vorum hér öll sumur og Bragi vann í bæn- um kom hann með tvo stóra brúsa, fulla af vatni, á hverju kvöldi,“ seg- ir Gréta, „en ég notaði rigning- arvatn í þvotta. Það var heldur ekk- ert klósett í þá daga.“ Nú er öldin önnur því sonur hjónanna inn- réttaði litla snyrtingu í hluta af gamla húsinu. „Það er svo nota- legt að vera kominn með snyrt- inguna, því annars var bara úti- kamarinn.“ Bragi segir að alltaf sé eitthvað verið að dytta að húsinu. Lengi vel var það klætt innan með striga og maskínupappír en á vet- urna bólgnaði þetta upp en strekktist svo aftur þegar hlýnaði á ný. „Ég ákvað að panelklæða bústaðinn og við það varð hann miklu hlýlegri. Reyndar er mask- ínupappírinn enn á eldhúsveggj- unum og minnir á gamla daga. Framan af voru gólfin ferniseruð og dökknuðu því mikið en nú eru þau harðlökkuð,“ segir Bragi sem getur verið stoltur af speg- ilgljáandi gólfunum. Bústöðunum hefur fækkað Margir bústaðir voru á þessum slóðum fyrr á árum en þeim hefur fækkað mikið. Gamlir vegir segja sögu um þéttari byggð. Víða liggja vegarspottarnir að fallegum rjóðr- um þar sem eitt sinn stóðu bústaðir sem eru nú löngu horfnir. Að sögn Braga var lengi vel brotist inn af og til og stundum unnar nokkrar skemmdir. Það stafaði m.a. af því að óreglumenn höfðu tekið sér ból- setu í húsum þarna nærri og var það ein af ástæðum þess að mikið dró úr því að hjónin dveldust næt- urlangt í bústaðnum. Eftir að Bragi hætti að vinna eru þau flesta daga í sveitinni sinni og ekki fækkaði ferðunum í veðurblíð- unni í sumar og Bragi segir þau hafa verið þarna nánast hvern ein- asta dag í júní og júlí. Það er líka margt að gera og mörgu að sinna þótt heimilið sé ekki stórt. Til dæmis þarf að setja niður kartöflur og taka þær upp aftur að hausti og koma þeim fyrir í kartöflugeymsl- unni sem stendur við hliðina á bú- staðnum. Svo þarf að mála og það fer ekki fram hjá neinum sem kem- ur í Lyngholt að viðhaldinu er sinnt af mikilli natni. Fennti í kafi Í lokin spyr ég Grétu og Braga hvort ekki sé vindasamt svona hátt upp í hæðinni? „Stundum getur blásið, en þá sest maður bara niður í einhverja lautina og lætur fara vel um sig.“ Bak við húsið er ein slík laut og þar átti móðir Braga sína holu eins og Gréta kemst að orði og sat aldrei annars staðar en í henni. Önnur laut inni á milli trjánna dregur nafnið af systur Grétu og er alltaf kölluð Huldulaut. Ástæðan er sú að bæði börn og fullorðir skemmtu sér gjarnan í sveitinni í alls konar leikjum á góðviðr- isdögum og Hulda notaði alltaf tækifæri og skaust í lautina og faldi sig þar. Á meðan við sötrum heitt kaffið sýna hjónin mér myndir af bú- staðnum sem teknar voru í mars 1989. Þær eru ótrúlegar því bústað- urinn er svo til algjörlega í kafi í snjó. Aðeins mænir og strompur sjást. Það eru því ekki nema tæp 20 ár síðan kuldaskeið ríkti á Íslandi og hús gátu horfið í snjó meira að segja þótt þau stæðu hátt upp í hlíðum þar sem varla festir snjó vegna hvassviðris. Morgunblaðið/RAX MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2007 27 MIRALE Síðumúla 33 108 Reykjavík sími: 517 1020 Opið mán.–föstud. 11–18 laugardag 11–16 sunnudag 13–16 www.mirale.is TILBOÐ laugardag og sunnudag BOURGIE lampinn frá Kartell kr. 17.900,- áður kr. 24.900,- takmarkað magn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.