Morgunblaðið - 15.11.2007, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
F
Y
R
IR
F
Ó
L
K
S
E
M
G
E
R
IR
K
R
Ö
F
U
R
KRINGLUNNI / SMÁRALIND
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
SVO gæti farið að ný Bónus-búð yrði
opnuð í Húsasmiðjuhúsinu á Granda
í vesturbæ Reykjavíkur – svo til
beint á móti nýlegri Krónu-verslun,
en Krónan er sem kunnugt er helsti
keppinautur Bónuss – í stað þeirrar
sem verið hefur á Seltjarnarnesi.
Bónus missir senn húsnæði sitt á
Seltjarnarnesi vegna áforma bæjar-
yfirvalda þar um byggingu íbúðar-
húsnæðis á reitnum og er nú útséð
um það að Bónus opni aðra verslun í
sveitarfélaginu, að sögn Guðmundar
Marteinssonar framkvæmdastjóra.
Guðmundur segir að ákvörðun um
staðsetningu nýrrar Bónus-verslun-
ar muni liggja fyrir í næstu viku en
rýma þarf húsnæðið á Seltjarnarnesi
fyrir 1. febrúar nk. „Við erum ein-
faldlega í þeirri aðstöðu að bæjar-
stjórnin á Nesinu hefur bara ekki
áhuga á að hafa Bónus á Nesinu og
eitthvað þurfum við að gera. Við er-
um að skoða ýmsa kosti og þetta er
svona einn af þeim kostum sem hafa
komið upp,“ sagði hann.
Aðspurður um það hvaða kosti
aðra þeir hafi til skoðunar segir hann
að fátt sé um fína drætti í þeim efn-
um. „Það eru samt tveir aðrir kostir
sem við höfum skoðað og erum svona
að vega og meta.“
Guðmundur kvaðst ekki geta upp-
lýst hvaða kostir það væru en stað-
festi þó, þegar eftir því var spurt, að
til umræðu hefði komið að breyta
Hagkaupum á Eiðistorgi í Bónus-
verslun. „Það var í stöðunni líka en
það húsnæði er bara ekkert sérstak-
lega hagkvæmt.“
Guðmundur segir að helst hefðu
menn viljað byggja nýja Bónus-
verslun á þeim reit sem núverandi
verslun er á, en einnig hefði komið til
greina af hálfu fyrirtækisins að reisa
verslun á landfyllingu sem á einum
tíma voru uppi áform um að gera fyr-
ir norðan byggðina við Eiðistorg.
Bæjaryfirvöld vilji hins vegar ekkert
með Bónus hafa. „Þeir segjast ekk-
ert hafa neitt til að bjóða okkur,“
segir Guðmundur. „Þetta er pólitísk
ákvörðun og það er ekkert við því að
segja.“
Guðmundur staðfestir að viðræð-
ur hafi farið fram milli Bónuss og
Húsasmiðjunnar um húsnæði. Hann
kveðst aðspurður ekki vita hvað
stjórnendur Húsasmiðjunnar hygg-
ist fyrir ef þessi kostur verður ofan á
en segir að þeir hafi aldrei verið sér-
staklega ánægðir með verslunina
eða húsnæði hennar.
Húsasmiðjuhúsið á Granda
til skoðunar hjá Bónus
Framkvæmdastjóri Bónuss segir útséð um að ný verslun rísi á Seltjarnarnesi
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
EKKI er talið ólíklegt að meiri hafís geri vart við
sig hér við land á komandi vetri en var veturinn
2005 og í fyrravetur. Það stafar m.a. af því að
óvenju mikið af fjölærum hafís, þ.e. tveggja ára
og eldri ís, hefur streymt suður um Framsund,
milli Grænlands og Svalbarða, vegna sérstæðra
vindaskilyrða í norðurhöfum. Þessi ís berst suð-
ur með austurströnd Grænlands og nýmyndaður
ís bætist sífellt við hann yfir vetrarmánuðina.
„Það stefnir í að það verði meiri ís á Græn-
landssundi í vetur en verið hefur. Bæði 2005 og í
fyrravetur voru mjög langvarandi suðvestan-
áttir. Þá var ekki svo mikill ís á Grænlandssundi
en vindurinn feykti honum hér yfir. Mér finnst
mjög líklegt að það geti orðið heldur meiri ís hér
í vetur en varð bæði 2005 og áður á þessu ári,“
sagði Ingibjörg Jónsdóttir, dósent í landfræði við
HÍ. Hún sagði að það mundi ráðast mjög af vind-
áttum hvort ísinn ræki að Íslandi eða ekki. Ólík-
legt er að hann verði jafnmikill og á hafísár-
unum á 7. áratug 20. aldar.
Útstreymi hafíss úr Norður-Íshafinu á sinn
þátt í því að útbreiðsla hafíss á norðurhveli náði
sögulegu lágmarki í september síðastliðnum. Þá
mældist ísþekjan vera 4,1 milljón km2 en fyrra
lágmark frá 2005 var 5,3 milljónir km2. Lág-
marksflatarmál ísþekjunnar til lengri tíma litið
hefur verið 6,7 milljónir km2 að meðaltali.
Bráðnun hafíssbreiðunnar er mun hraðari en
hafði verið spáð. Talið var að áratugir væru
þangað til ísbreiðan yrði jafn lítil og hún er nú.
Nýjustu niðurstöður mælinga á hafísþekjunni
voru kynntar nýlega á ráðstefnu IICWG, al-
þjóðlegs vinnuhóps um hafískortlagningu.
Umferð um hafísslóðir hefur aukist mjög,
einkum umferð olíuflutningaskipa og skemmti-
ferðaskipa. Líklega á slík umferð enn eftir að
aukast. Alþjóðlegi hafíshópurinn bendir á að
áfram muni hætta stafa af hafís og borgar-
ísjökum. Þörfin á nákvæmum hafískortum hafi
aukist ef eitthvað er með aukinni umferð.
Líkur á meiri hafís við Ísland
Hafísbreiðan á norður-
hveli í sögulegu lágmarki
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
gæsluvarðhaldsúrskurð héraðs-
dóms yfir tveim Litháum sem kærð-
ir voru fyrir nauðgun í húsasundi í
miðbænum um síðustu helgi.
Konan sem kærði mennina sagð-
ist hafa orðið þeim samferða upp
Laugaveginn og inn í húsasund þar
sem þeir hefðu ráðist á hana með
ofbeldi og þröngvað henni til kyn-
maka.
Hæstiréttur segir í dómum sínum
að annar maðurinn hafi í yfir-
heyrslum hjá lögreglu skýrt frá
kynmökum, en neitað því að þau
hafi verið gegn vilja konunnar.
Hinn bar fyrir sig minnisleysi.
Gæsla stað-
fest í nauðg-
unarmáli
KEILIR, miðstöð vísinda, fræða og
atvinnulífs, hefur fengið allt að 150
íbúðir til úthlutunar fyrir náms-
menn á háskólasvæðinu á Vallar-
heiði í Reykjanesbæ. Gert er ráð
fyrir að íbúðirnar verði teknar í
notkun í desember og janúar nk. að
því er fram kemur í tilkynningu.
Námsmenn búa nú þegar í 350
íbúðum á varnarliðssvæðinu gamla
og þegar 150 bætast við um áramót
fer heildarfjöldi íbúa þar í ríflega
1.100. Íbúðirnar eru ætlaðar nem-
um sem stunda nám við háskóla á
höfuðborgarsvæðinu en innifalið í
hagstæðu leiguverði er rafmagn,
hiti, net og strætó sem tengir Keil-
issvæðið við háskóla í Reykjavík.
Keilir úthlutar
150 íbúðum
ÍSLENSKIR aðdáendur bókanna um
Harry Potter geta keypt eintak af ís-
lensku þýðingunni á síðustu bókinni
í bókaröðinni um
leið og bókaversl-
anir verða opn-
aðar í dag en í
bókaverslun Ey-
mundssonar í
Austurstræti í
Reykjavík verður
boðið upp á góð-
gæti fyrir yngri
kynslóðina í til-
efni dagsins milli
klukkan 14 og 16
í dag. Í þessari síðustu sögu þurfa
Harry og félagar meðal annars að
finna og eyða helkrossum hins ógur-
lega Voldemorts. Harry Potter og
dauðadjásnin er sjöunda og að sögn
höfundar síðasta bókin í bókaröðinni
um ævintýri galdradrengsins og
vina hans. Bókina íslenskaði Helga
Haraldsdóttir.
Síðasta Harry
Potter-bókin í
búðir í dag
Daniel Radcliffe
sem Harry Potter.
ÁSTÆÐA er til að varðveita hús-
eignina að Silfurgötu 5 á Ísafirði,
Norska bakaríið svokallaða, að
mati Húsafriðunarnefndar ríkisins,
en bréf þar að lútandi var tekið fyr-
ir á fundi umhverfisnefndar Ísa-
fjarðarbæjar í gær. Nefndin telur
húsið hafa mikið varðveislugildi
m.a. sökum aldurs, en það var
byggt árið 1884.
Norska bakar-
íið varðveitt
PÉTUR Björnsson,
fyrrverandi forstjóri
og aðaleigandi Verk-
smiðjunnar Vífilfells
hf., andaðist á Dvalar-
og hjúkrunarheimilinu
Holtsbúð í Garðabæ
aðfaranótt 14. nóvem-
ber, 77 ára að aldri.
Pétur var fæddur 22.
maí 1930 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru
Björn Ólafsson for-
stjóri og alþingismaður
og Ásta Pétursdóttir
húsfreyja.
Pétur lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í Reykja-
vík 1949 og stundaði síðan nám við
Sorbonne-háskóla í París 1950-51,
Trinity College í Cambridge 1952-53
og Florida State University 1954-56.
Kominn heim frá námi fór Pétur
að sinna viðskiptum og fyrirtækja-
rekstri. Hann varð aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Verksmiðjunnar Víf-
ilfells hf. 1960 og formaður stjórnar
og framkvæmdastjóri
fyrirtækisins frá 1977.
Einnig var Pétur
stjórnarformaður og
framkvæmdastjóri
heildverslunarinnar
Þórður Sveinsson &
Co. hf. frá 1975 og
hafði áður verið með-
forstjóri fyrirtækisins
frá 1963.
Pétur var mikill
áhugamaður um golf
og var m.a. stofnandi
og formaður Golf-
klúbbs Ness á Sel-
tjarnarnesi 1964, með-
stofnandi og ritari Sambands
íslenskra einkaklúbba í golfi 1966 og
stofnandi og meðritstjóri Golfblaðs-
ins 1968.
Pétur kvæntist Sigríði Hrefnu
Magnúsdóttur 26. maí 1957 og lifir
hún mann sinn. Þau eignuðust þrjár
dætur, Ástu, Erlu og Guðrúnu Sylv-
íu. Barnabörn Péturs eru ellefu og
barnabarnabörnin þrjú talsins.
Andlát
Pétur Björnsson