Morgunblaðið - 15.11.2007, Blaðsíða 24
ferðalög
24 FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
O
kkur hafði lengi dreymt um að fara
í Interrail-ferðalag og eftir að hafa
lokið stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Kópavogi síðastliðið
vor ákváðum við að slá til og skella
okkur í slíka ferð,“ segja þau Unnur Ágústa
Guðmundsdóttir og Hjörvar Hermannsson um
tilurð ævintýrisins.
Parið byrjaði á því að fljúga til Danmerkur á
tveggja daga fund vinar sem stundar nám í
Herning á Jótlandi og þaðan var haldið til Ham-
borgar í Þýskalandi. „Við höfðum lagt mikið á
okkur við að finna svefnstað í borginni, en án ár-
angurs. Við vorum búin að ganga um borgina í
þrjá tíma þegar okkur var loksins bent á gist-
ingu í útjaðri hennar. Við mælum því með að
fólk sem ætlar að leggja leið sína til Hamborgar
verði sér úti um gistingu þar áður en lagt er
í’ann. Í borginni nutum við hinsvegar Gwen
Stefani-tónleika og heimsóknar í Hagenbeck-
dýragarðinn, sem er svakalega stór og flottur.
Gaman er að labba um St. Paul-götuna að
kvöldlagi og kíkja á fiskmarkaðinn á sunnudög-
um.
Sjö tíma lestarferð tók við frá Hamborg til
Prag. Borgin er stútfull af ferðamönnum enda
margt að sjá. Króatar reykjandi maríjúana og
syngjandi Led Zeppelin-lög voru þó fyrstu gest-
irnir sem við hittum fyrir á annars ágætu far-
fuglaheimilinu og fjöldi Íra fyllti bæði pöbba og
matsölustaði, en þeir komnir voru í borgina til
að hvetja sína menn í landsleik Íra og Tékka.
Við skelltum okkur auðvitað á leikinn og
skemmtum okkur konunglega með frændþjóð-
inni enda eru Írar sannir gleðimenn,“ segir
Hjörvar.
Ódýrt í Bratislava
Sólin heilsaði þeim skötuhjúum hátt á lofti í
Austurríki. „Vín er þægileg borg til rölts þar
sem gaman er að kíkja í búðir og skoða minnis-
varða. Eitt kvöldið afréðum við að taka okkur
far með elsta parísarhjóli heims, sem var ágæt
lífsreynsla en afar ótraustvekjandi með tilheyr-
andi braki og brestum allan tímann.
Við ákváðum að gista eina nótt í Bratislava í
Slóvakíu sem er aðeins í klukkutíma lestar-
fjarlægð frá Vín. Í þann hálfa sólarhring sem
við stoppuðum í borginni kíktum við út á lífið
með öðrum gestum gistiheimilisins og fórum
svo um morguninn í smá gönguferð um bæinn
og reyndum hvað við gátum að eyða upphæð
sem við höfðum tekið út úr hraðbanka og sam-
svaraði þrjú þúsund íslenskum krónum á fínum
veitingastað. Það gekk þó ekki eftir sem skyldi
þar sem allt verðlag er mjög hagstætt á þessum
slóðum.“
Ótíð og læti í Zagreb
Fyrstu kynni þeirra af Búdapest í Ungverja-
landi reyndust ekki góð þar sem þau bæði týnd-
ust og fengu misvísandi leiðbeiningar þegar
spurt var til vegar.
„Að lokum náðum við þó gististað, sem
reyndist vera vel staðsettur. Heitt var í borginni
og sjaldan höfum við innbyrt jafnmikinn ís og
einmitt þarna. Við gengum meðfram Dóná,
kíktum á helstu byggingar og fórum í risastóra
verslunarmiðstöð án þess þó að geta verslað
mikið þar sem við vorum bara bakpokaferða-
langar,“ segir Unnur.
Kuldatíð tók á móti íslensku turtildúfunum í
Zagreb í Króatíu sem þau eru nú ekkert alltof
hrifin af. „Það var ekki mikið að skoða og fólkið
var heldur ekkert sérlega vingjarnlegt. Við
skelltum okkur þó á fótboltaleik þar sem Zag-
reb Dynamo tók á móti hollenska liðinu Ajax.
Slagsmál í bland við sprengingar og neyðarblys
loguðu allan leikinn og við ákváðum að tala
hvort við annað á ensku þar sem okkur hafði
verið sagt að Króatar gerðu lítinn greinarmun á
íslensku og hollensku. Við hefðum því getað lent
í vondum málum líkt og tveir hollenskir strákar
sem ráðist var á eftir að þeir höfðu sér það til
sakar unnið að horfa á æfingu Ajax daginn fyrir
leik,“ segir Hjörvar.
Iðandi fiskar í tærum sjó
Eftir kuldann í Zagreb afréðu þau að ná sér í
nokkra sólargeisla og ákváðu að halda til
strandbæjarins Split í Króatíu. „Sex tíma
lestarferðin var einkar óþægileg, en útsýnið á
leiðinni hreint unaðslegt. Split er mikill túrista-
staður með öllu tilheyrandi. Það var því legið á
ströndinni, farið á sæskíði, snorklað og siglt.
Þarna er hreint stórkostlegt að snorkla í tærum
sjó iðandi af fiskum. Eyjar eru þarna allt í
kring. Við sóttum eina þeirra heim og reyndist
hún sannkölluð paradís í góðu veðri. Um kvöldið
skall á þrumuveður svo planið okkar um góða
slökun þarna fauk út í veður og vind því ekki er
mikið við að vera á svona stöðum í vondu veðri.
Við ákváðum að kveðja og tókum tíu tíma ferju
yfir til Ítalíu og svo lest til Rómar, sem hefur
margt að bjóða. Við náðum þó ekki að gera allt
það sem við ætluðum okkur því helstu túrista-
staðirnir voru troðfullir af Ameríkönum. Við
skelltum okkur því á þriðja fótboltaleikinn í
ferðinni og sáum Inter Milan leggja Roma á 90
þúsund manna leikvangi,“ segir Hjörvar.
Ramblan iðar af mannlífi
Þegar hér var komið sögu var síðasta ferða-
vikan að renna upp. Þau Unnur og Hjörvar áttu
flug heim frá Benidorm og því var ákveðið að
koma við í Barcelona, en þangað er 23 tíma lest-
arferð frá Róm. „Barcelona er mjög falleg og
skemmtileg borg og var einstaklega gaman að
labba Römbluna, sem ávallt er iðandi af mann-
lífi og alls konar listamönnum. Eftir tveggja
daga Barcelona-dvöl var haldið til Benidorm
þar sem við höfðum aðgang að íbúð. Lítið var
þar gert annað en að hanga á ströndinni og leika
með svokallað „wakeboard“, sem líkist einna
helst snjóbretti á sjó. Vinir okkar, sem heimsótt
höfðu Benidorm að sumri, höfðu lýst næturlíf-
inu þar nokkuð fjálglega fyrir okkur. En þar
sem við vorum á Benidorm undir lok ferða-
mannatímabilsins fylltu eldri borgarar alla
skemmtistaði öll kvöld,“ segir Unnur og bætir
við að ekki hafi verið laust við að vart hafi orðið
síþreytu hjá þeim Hjörvari eftir að hafa þurft að
skipta um gistingu á þriggja daga fresti í heilar
fimm vikur. Lestarferðamátinn hafi þó átt vel
við þau og gaman hafi verið að kynnast og deila
gistiaðstöðu með fólki af ólíku bergi brotnu.
join@mbl.is
Brautarstöðvabið Farið var um ófáar lestarstöðvar í ferðinni og hér er beðið eftir lest í Brat-
islava í Slóvakíu, en borgin var að sögn þeirra Unnars Ágústu og Hjörvars einkar ódýr.
Grænir í gegn Unnur Ágústa í góðum félagsskap írskra „frænda“ sem mættir voru til Prag
vegna fótboltaleikjar þar sem Írar og Tékkar öttu kappi.
Skjötuhjúin Hjörvar Hermannsson og Unnur Ágústa Guðmundsdóttir komu við í Prag í
Tékklandi og eru hér með Charles-brúna í baksýn.
Sjósport Hjörvar gerir sig klára á „wake-
board“ á sólarströnd í Benidorm.
Hamborg Fílarnir í Hagenbeck-dýragarð-
inum eru hressir og skemmtilegir.
Ævintýri í lestarferð um Evrópu
Kærustuparið Unnur Ágústa
Guðmundsdóttir og Hjörvar
Hermannsson svalaði ferða-
þorstanum með fimm vikna
Interrail-ferðalagi um Evr-
ópu. Jóhanna Ingvarsdóttir
heyrði ferðasöguna.
Fróðleikur fyrir Ís-
lendinga á Kan-
aríeyjum
Kanaríeyjar eru vin-
sæll viðkomustaður Ís-
lendinga á öllum aldri og
nú nýlega tók Eva
Hreinsdóttir sig til og
gaf út bæklinginn Hand-
argagn Íslendinga á
Kanarí 2007-2008. Þar
er að finna upplýsingar um þá þjónustu sem
býðst á Kanarí og eins er fjallað um þau mál
sem Íslendingum, bæði ferðamönnum og þeim
sem búa á eyjunni er efst í huga. Í frétta-
tilkynningu segir að um tilraunaútgáfu sé að
ræða en að útgáfustjórnin telji góðar líkur á að
fleiri bæklingar fylgi í kjölfarið.
Íþrótta- og hóp-
ferðir til Albir
ÍT ferðir kynna
fimmtudaginn 15. nóv-
ember íþrótta- og hóp-
ferðir til Albir á Spáni
og fer kynningin fram í
Íþróttamiðstöðinni í
Laugardal kl. 18.
Laugardaginn 17. nóvember frá kl. 10-14
verður síðan opið hús hjá ÍT-ferðum í Íþrótta-
miðstöðinni í Laugardal og er tilefnið útkoma
Ársbæklings ÍT-ferða fyrir 2008. Kynntar
verða boltaferðir, fyrirtækjaferðir, golf- og
gönguferðir, íþróttaferðir, knattspyrnuskóli
Bobby Charlton og margt fleira. Einnig er
hægt að skoða ársbækling ÍT-ferða á heima-
síðu fyrirtækisins, www.itferdir.is.
vítt og breitt