Morgunblaðið - 22.11.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 319. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
TÓNKÖKULIST
SKYNFÆRI GESTA VERÐA GLÖÐ YFIR
GÓÐGÆTI Í EYRU OG MAGA >> 16 Leikhúsin í landinu
Ævintýrin gerast
í leikhúsinu >> 49
Fær fjölskylda þín endurgreiðslu?
Skráðu fjölskylduna á spron.is fyrir áramót
og þú gætir tryggt henni endurgreiðslu þessa árs!
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
BANKARNIR hafa að undanförnu haft sam-
band við fjárfesta, stóra sem smáa, sem tekið hafa
lán til þess að fjármagna hlutabréfakaup sín, með
bréfin sem veð, og óskað eftir frekari tryggingum
fyrir lánunum (það sem á ensku er kallað margin
call) vegna mikillar lækkunar á hlutabréfamark-
aðinum. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að
hafi fjárfestar ekki getað bætt við tryggingum
hafa bankarnir í sumum tilvikum selt bréfin til
þess að greiða upp lánin og er það meðal þeirra
þátta sem hafa valdið mikilli gengislækkun ís-
lenskra hlutabréfa að undanförnu.
Það sem af er vikunni hefur úrvalsvísitala að-
allista kauphallar OMX á Íslandi lækkað um ríf-
lega 6% og þannig fylgt eftir þróun hlutabréfa-
markaða víðsvegar um heim, sem flestir hafa farið
lækkandi m.a. vegna óvissu um ástand efnahags-
mála í Bandaríkjunum. Á undanförnum mánuði
hefur úrvalsvísitalan lækkað um 17%.
Sem dæmi um erlend félög sem lækkað hafa
mikið að undanförnu má nefna að gengi AMR Cor-
poration hefur lækkað um 13% á einni viku (reynd-
ar hækkaði gengi þess um 0,5% í gær), gengi
Commerzbank um 12,6% og gengi Finnair um
16,8%. FL Group hefur sem kunnugt er tekið stór-
ar stöður í þessum félögum. Ennfremur hefur
gengi Sampo, sem er hlutdeildarfélag Existu,
lækkað töluvert að undanförnu – um 6,6% á einni
viku og um 4,35% bara í gær. Þá hefur gengi Glitn-
is, sem er langstærsta skráða eign FL Group á Ís-
landi, lækkað um 4,7% það sem af er vikunni.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er FL
Group eitt þeirra fyrirtækja sem bankarnir hafa
óskað eftir að bætti tryggingastöðu sína. Halldór
Kristmannsson, framkvæmdastjóri samskipta-
sviðs FL Group, segir félagið hafa staðið við skuld-
bindingar sínar og muni gera það áfram. „Það er
ekki stefna FL Group að tjá sig um fjármögnun á
einstaka eignum félagsins,“ segir Halldór.
Bankarnir óska eftir
auknum tryggingum
Geti fjárfestar ekki bætt tryggingastöðuna eru bréfin seld sem á þátt í lækk-
unum á markaði Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 6% það sem af er viku
Miklar sviptingar á hlutabréfamarkaði og gengi hlutabréfa í Kauphöll Íslands lækkar
Í SVONEFNDRI „sáttatillögu“ eða
„vinnuskjali“ sem meirihluti borgar-
stjórnar í stýrihópi um málefni
Orkuveitu Reykjavíkur lagði fram í
liðinni viku eru línur lagðar eftir
höfnun OR á samruna GGE og REI.
Heimildir herma að þar komi
fram að eign OR í Hitaveitu Suð-
urnesja verði látin renna inn í REI
og þaðan inn í GGE, en í staðinn
komi hlutafé í GGE. Lagt er upp
með að hlutur REI í GGE verði
aldrei hærri en 25%, ekki lægri en
15%, og að REI tryggi sér einn
stjórnarmann í GGE.
Borgarfulltrúar í stýrihópnum
hafa ekki viljað upplýsa um efni til-
lögunnar í borgarráði, þótt eftir því
hafi verið leitað af oddvita sjálfstæð-
ismanna. Tillagan ku vera margþætt
og samkvæmt heimildum hefur hún
verið rædd innan OR og víðar í við-
skiptalífinu. Hún hefur hins vegar
ekki verið afgreidd af stýrihópnum.
Samkvæmt heimildum sinnir REI
áfram verkefnum OR erlendis og
verður í 100% eigu OR, sem sinnir
einungis grunnrekstrinum. Stofnuð
verði félög um annan rekstur OR
með takmarkaðri ábyrgð, þ.m.t.
orkuframleiðslu til stóriðju.
Þá segir að selji Hafnarfjörður
hlut sinn í HS til OR verði greiðslan
að þriðjungshluta í formi eignarhlut-
ar í OR. Kveðið er á um að hlutlaust
mat óháðra aðila fari fram vegna söl-
unnar. Hlutur REI í HS renni síðan
áfram til GGE á sömu kjörum.
Samkvæmt heimildum er lagt upp
með að rekstri HS verði skipt upp í
þrjú félög. Í fyrsta lagi er það félag
um framleiðslu á orku, í öðru lagi fé-
lag í 100% eigu Reykjanesbæjar
sem sér um smásölu og dreifingu
orku á Reykjanesi og jarðhitarétt-
indi HS og í þriðja lagi félag í 100%
eigu OR um smásölu og dreifingu
orku í Hafnarfirði.
Í tillögunni segir að verkefni REI
sem tengist Filippseyjum og
Indónesíu verði seld GGE og einnig
30% hlutur REI í Enex, en með því
kemst félagið í 100% eigu GGE. Þá
kemur fram að starfsmenn REI geti
unnið fyrir GGE eins og ef af sam-
runanum hefði orðið.
Hlutur OR í Hitaveitu Suð-
urnesja til Geysir Green?
Dagur B.
Eggertsson
Svandís
Svavarsdóttir
Óskar
Bergsson
Margrét
Sverrisdóttir
BJÖRK Vil-
helmsdóttir, for-
maður Velferð-
arráðs
Reykjavík-
urborgar, segir
að ákvörðun hafi
verið tekin í gær
um að koma upp
sambærilegri
þjónustu við geð-
fatlaða í borginni
og boðið hefur verið upp á á Ak-
ureyri. Ákveðið hefur verið að ráða
verkefnisstjóra frá og með næstu
áramótum til að vinna að þessu máli.
Á Akureyri hefur verið lögð
áhersla á að veita þjónustu við geð-
fatlaða á einum stað í stað þess að
fólk þurfi að ganga milli stofnana til
að leita lausna.
Björk sagði í samtali við Morg-
unblaðið að borgin væri búin að
vinna að þessu máli í nokkurn tíma
og það væri ekki eftir neinu að bíða
með að hrinda því í framkvæmd.
Bæta þjón-
ustu strax
Björk
Vilhelmsdóttir
MATSFYRIRTÆKI og mark-
aðir ofmeta áhættuna í ís-
lensku efnahagslífi og skulda-
tryggingaálag á íslensku
bankana er of hátt. Þetta er
meðal þess sem kemur fram í
nýrri skýrslu sem viðskiptaráð
hefur látið vinna um íslenska
fjármálakerfið.
Þar er bent á að í kjölfar
bankakreppunnar 2006, þegar
erlendir greinendur fóru mik-
inn í gagnrýni á íslensku
bankana, hafi miklar breyt-
ingar verið gerðar á fjár-
mögnun bankanna, breytingar
til hins betra.
Richard Portes, annar höf-
unda skýrslunnar, segir að sú
ákvörðun Standard & Poor’s
að breyta horfum íslenska
ríksins í neikvæðar ætti ekki
við rök að styðjast. Í skýrsl-
unni segir að viðvera Íbúða-
lánasjóðs á húsnæðislánamark-
aði og tilvist verðtryggingar
séu orsakavaldar verðbólg-
unnar. | Viðskipti
Áhættan
ofmetin