Morgunblaðið - 22.11.2007, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
F
Y
R
IR
F
Ó
L
K
S
E
M
G
E
R
IR
K
R
Ö
F
U
R
KRINGLUNNI / SMÁRALIND
TILBOÐ samstarfsaðila íslensku orkufyrirtækj-
anna, Geysir Green Energy og Reykjavík Energy
Invest, First Gen Corp. á Filippseyjum, í filipps-
eyskt orkufyrirtæki reyndist það sem hæst var og
verulega hærra en næstu tilboð, en tilboð voru opn-
uð í gær. Gert er ráð fyrir að liggja muni fyrir í dag
hvaða tilboði verður tekið, en samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins eru líkur til þess að íslensku
fyrirtækin dragi sig til baka, þar sem þeim þykir
það verð sem boðið var of hátt.
Tilboðið sem Geysir Green Energy (GGE) og
Reykjavík Energy Invest (REI) stóðu að ásamt fil-
ippseyska félaginu First Gen Corp. í filippseyska
orkufélagið PNOC Energy Development var það
hæsta sem barst, að sögn þarlendra stjórnvalda.
Hljóðaði tilboðið, sem var í 60% hlut ríkissjóðs Fil-
ippseyja, upp á 58,5 milljarða pesóa, jafnvirði tæp-
lega 85 milljarða króna, en lágmarksverð ríkisins
var rúmir 45 milljarðar pesóa. „Við höfum trú á
þessu fyrirtæki,“ hefur blaðið Manila Times eftir
Francis Giles Puno, aðstoðarforstjóra og fjármála-
stjóra First Gen. „Við erum afar ánægðir með að
hafa náð þessum áfanga.“
Að sögn fréttaveitunnar Thomson bárust þrjú
önnur tilboð í orkufélagið. Næsthæsta tilboðið var
frá FDC Geo-Energy Holdings Inc. sem fjárfest-
ingarfélagið Filinvest Development Corp. fór fyrir.
Það tilboð hljóðaði upp á 48,5 milljarða pesóa. Til-
boð frá Panasia Energy hljóðaði upp á 39 milljarða
pesóa en lægsta tilboðið barst frá Aboitiz Power
Corp og Mighty River Power, 33,165 milljarðar
pesóa.
Tilboð First Gen Corp. og íslensku samstarfs-
aðilanna var lagt fram undir nafninu Red Vulcan.
First Gen er í eigu First Philippine Holdings
Corp., eignarhaldsfélags fjölskyldu sem hefur fjár-
fest í orkuvinnslu og byggingariðnaði og á einnig
hlut í fjölmiðlum og orkudreifingarfyrirtæki.
Thomson hefur eftir Antonio Cailao, forstjóra
filippseyska ríkisolíufélagsins, móðurfélags
PNOC-EDC, að tilkynnt verði í dag, fimmtudag,
hvort tilboði Red Vulkan verði tekið eftir að farið
hefur verið yfir tilboðsgögnin. Ekki hefur verið
upplýst hver hlutur íslensku fyrirtækjanna er í til-
boði Red Vulcan og hver hlutur First Gen Corp. er,
né hver endanleg niðurstaða verður í þeim efnum
og vörðust menn allra frétta af því í gær.
Cailao segir við Manila Times að salan sé á
heppilegum tíma fyrir stjórnvöld á Filippseyjum í
ljósi mikils áhuga fjárfesta og ólíklegt sé að jafn-
hátt verð myndi fást fyrir fyrirtækið síðar. Blaðið
segir að PNOC-EDC sé annað stærsta fyrirtæki af
þessu tagi í heimi og framleiðslugetan sé 1.150
megavött.
Samstarfsaðili íslenskra orku-
fyrirtækja með hæsta tilboðið
Líkur á að íslensku orkufyrirtækin dragi sig til baka þar sem verðið þykir of hátt
UMFERÐARDEILD lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu hefur áfram eftirlit með frágangi farms á flutn-
ingabílum og segir nokkuð strembið að fá bílstjóra til
að festa farm sinn. Skjólborð vanti gjarnan á pallana
auk ýmissa stoða og styttna til að fyrirbyggja að hlöss-
in detti af eða það sem verra væri, á nærliggjandi bíla.
Segir lögregla nokkuð um að bílstjórar reyni að taka
áhættuna og vanrækja vandaðan frágang samkvæmt
reglugerðum.
Farmur á flutningabílum má hvorki vera glannalega
frágenginn né of þungur. Á bílnum sem myndaður var í
gær eru ekki skjólborð eða bönd til öryggis.
Bílstjórar taka mikla áhættu
Morgunblaðið/Júlíus
LAUNAVÍSITALAN sem Hagstofa
Íslands reiknar út hækkaði um hálft
prósent í október frá fyrra mánuði
og hefur þá hækkað um 8,1% á síð-
ustu tólf mánuðum, þ.e.a.s. frá nóv-
embermánuði í fyrra. Á sama tíma
hefur vísitala neysluverðs hækkað
um 4,5%. Launavísitalan hefur því
hækkað nær tvöfalt á við það sem
vísitala neysluverðs, sem mælir út-
gjöld heimilanna í landinu, hefur
hækkað og hefur því kaupmáttur
aukist sem því nemur á þessu tíma-
bili.
Iðnaðarmenn hækkað minnst
Þegar launaþróun einstakra laun-
þegahópa er skoðuð kemur hins veg-
ar í ljós að hún hefur verið nokkuð
mismunandi á undanförnum rúmum
tveimur árum. Þannig hafa laun iðn-
aðarmanna hækkað minnst eða um
20% frá ársbyrjun 2005 til annars
ársfjórðungs í ár, þrátt fyrir að á
þessu tímabili hafi verið miklar
framkvæmdir í landinu. Á sama
tímabili hafa laun verkafólks og af-
greiðslufólks hækkað um 24%, skrif-
stofufólks um 26% og sérfræðinga
um 27%.
Fjármálaþjónusta mest
Launaþróunina er einnig hægt að
skoða eftir einstaka atvinnugreinum.
Þegar hún er skoðuð kemur í ljós að
laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóð-
um og vátryggingum hafa hækkað
mest á ofangreindu tímabili eða um
30%, sem er nær þriðjungi meiri
hækkun en í þeirri atvinnugrein þar
sem hækkunin er minnst sem er í
iðnaði, en þar er hækkunin 20,7% á
undanförnum tveimur og hálfu ári.
Laun í samgöngum og flutningum
hafa hækkað litlu minna eða um 29%
að meðaltali á þessu tímabili. Hækk-
unin í byggingarstarfsemi og mann-
virkjaferð nemur 25,6% á tímabilinu
og hækkun í verslun og viðgerða-
þjónustu er talsvert minni, 21,7%.
Laun hækka nær tvöfalt
á við verðlag að meðaltali
!"#$
!"
"
"
"!
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
vestra hefur sakfellt tvo 19 ára pilta
vegna ýmissa brota, þar á meðal
eignaspjalla með því að sprengja
skoteld í garði raðhúss á Skaga-
strönd þar sem lögreglumaður býr.
Þeir voru þó báðir sýknaðir af ákæru
fyrir brot gegn valdstjórninni. Pilt-
arnir voru dæmdir fyrir ýmis önnur
brot en þar var annar þeirra stór-
tækari. Hann var meðal annars
fundinn sekur um líkamsárás, ítrek-
aðan ölvunarakstur og akstur án
ökuréttinda. Óumdeilt þótti að hátt-
semi ákærða gagnvart lögreglu-
manninum beindist gegn honum þótt
eignir lögreglumannsins væru ekki
verndaðar af ákvæði lagagreinar um
brot gegn valdstjórninni. Pilturinn
var dæmdur í fimm mánaða fangelsi,
þar af fjögurra mánaða skilorðs-
bundið fangelsi. Hinn pilturinn var
dæmdur í 350 þúsund króna sekt.
Dæmdir
fyrir spjöll
♦♦♦
GRÍÐARLEGUR gufumökkur frá
bilaðri hitavatnslögn í Borgarnes-
kirkju fyllti kirkjuna í fyrrinótt svo
slökkviliðsmenn sáu ekki handa
sinna skil er þeir opnuðu kirkjudyrn-
ar í gærmorgun. Gufan þéttist í lok-
uðu rýminu og var komið 2 cm vatn í
skírnarfontinn en hann hefði átt að
vera tómur. Gærdagurinn fór í að
þrífa og þurrka kirkjuna með sér-
hæfðum búnaði. Bjarni Þorsteins-
son, slökkviliðsstjóri í Borgarnesi,
segir að til bóta hafi verið niðurfall
sem tók við sjálfu vatnsrennslinu í
kjallara byggingarinnar þar sem
lögnin sprakk en gufan fór um húsið.
Hitalögn
sprakk
Gufa Borgarneskirkja var undir-
lögð gufu er að var komið í gær.
Í ATHUGUN er að flytja hluta af
starfsemi Innheimtustofnunar sveit-
arfélaga til Ísafjarðar og voru nið-
urstöður starfshóps þar að lútandi til
umræðu á síðasta fundi í stjórn Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga.
Fram kemur að ekki sé skynsam-
legt að flytja stofnunina í heild sinni
frá Reykjavík, en það eigi að vera
mögulegt að flytja hluta af starfsem-
inni eða sem nemi sex til átta störf-
um til Ísafjarðar.
Stjórnin beinir því til stjórnar Inn-
heimtustofnunar sveitarfélaga að
hún vinni að skipulagsbreytingum á
stofnuninni með það að markmiði að
hluti starfseminnar flytjist til Ísa-
fjarðar. „Hvatt er til þess að þar um
verði haft náið samstarf við bæjar-
stjórn Ísafjarðarbæjar sem lýst hef-
ur sig reiðubúna til aðstoðar svo að
af flutningnum megi verða. Sérstak-
lega verði hugað að því að nýta
starfsmannaveltu stofnunarinnar í
þessum tilgangi og jafnframt verði
undirbúningi flutningsins stýrt í eins
miklu samráði við starfsfólk stofn-
unarinnar og mögulegt er.“
Sex til átta
störf til
Ísafjarðar