Morgunblaðið - 22.11.2007, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
RÁÐHERRAR gætu heyrt sögunni
til, en Steinunn Valdís Óskars-
dóttir, þingmaður Samfylkingar,
hefur lagt fram þingsályktunar-
tillögu á Alþingi þess efnis að rík-
isstjórnin undirbúi breytingar á
stjórnarskrá og lögum til að taka
megi upp nýtt starfsheiti ráðherra
sem bæði kynin geta borið. Stein-
unn Valdís rökstyður málið m.a.
með því að kona geti hreinlega ekki
verið herra, á sama hátt og karl
getur ekki verið frú. Í greinargerð
með tillögunni er bent á að í hefð-
bundnum kvennastéttum þar sem
karlar hafa haslað sér völl hafi
starfsheitum verið breytt þannig að
bæði kyn geti borið þau. Þannig
urðu hjúkrunarkonur að hjúkrun-
arfræðingum og fóstrur að leik-
skólakennarum.
Morgunblaðið spurði nokkra
þingmenn á göngum Alþingis hvort
þeir hefðu einhverjar tillögur af
kynhlutlausum orðum sem væri
hægt að nota yfir ráðherra. Hvor-
ugkynsorðið ráð kom nokkrum
sinnum upp en einum þingmanni
þótti þó hljóma ankannalega að
ávarpa manneskju eins og um heilt
ráð væri að ræða.
Amma dreki
Mörður Árnason, fyrrverandi þing-
maður, stakk upp á gamla orðinu
konferensráð og a.m.k tveir þing-
menn nefndu kammerráð.
Nýyrðið ráðvera kom líka upp í
umræðum, eða hreinlega vera,
þannig að „hæstvirtur sjávarút-
vegsráðherra“ yrði „hæstvirt sjáv-
arútvegsvera“.
Kolbrún Halldórsdóttir minnti á
hina ódauðlegu ömmu dreka úr
barnabókum Guðrúnar Helgadótt-
ur og að orðið erindreki gæti vel
komið til greina. Forsætisráðherra
yrði þá forsætiserindreki og líklega
myndi þetta orð um leið mæta
þeirri gagnrýni að orðið ráðherra
sé óþarflega valdsmannslegt.
Orðið Freyja var líka nefnt í sam-
tölum í þinghúsinu í gær en þá yrði
talað um ráðherra og ráðfreyju.
Mögulegt væri að sækja fyrir-
myndir til flugfélaganna og tala um
ráðþjón og ráðfreyju, líkt og flug-
þjón og flugfreyju.
Þá stakk ónefndur þingmaður,
með smá glotti, upp á því að nota
orðið valdaskessa, en ekki fylgdi
sögunni hvort það orð ætti að ná
jafnt yfir karla sem konur.
Ráðvera, kon-
ferensráð eða
erindreki?
KYNJAJAFNRÉTTI og staða
kvenna í stjórnmálum var rædd
fram og aftur í umræðum um þings-
ályktunartillögu Sivjar Friðleifs-
dóttur og sex annarra þingmanna
úr öllum flokkum á Alþingi í gær. Í
tillögunni er lagt til að Jafnrétt-
isstofu verði falið að hrinda af stað
aðgerðum í því skyni að efla hlut
kvenna í sveitarstjórnum fyrir
næstu sveitarstjórnarkosningar
sem verða árið 2010.
Framan af umræðunum í gær
voru einungis konur í þingsal, sem
er óvenjulegt, en þegar leið á batn-
aði kynjahlutfallið. „Staða kvenna
og karla er að mörgu leyti mjög
ósambærileg hér á Íslandi,“ sagði
Siv í ræðu sinni og nefndi sem dæmi
launamun, heimilisofbeldi og lítil
áhrif kvenna í stjórnmálum, at-
vinnulífinu og fjölmiðlum.
Auður Lilja Erlingsdóttir, Vinstri
grænum, tók í sama streng: „Það
þarf að hvetja konur og aðstoða
þær til að komast áfram í þessum
heimi stjórnmálanna sem í dag er
karllægur. Með því móti erum við
ekki einungis að tala rétt kvenna til
að sinna þessum störfum heldur er-
um við sömuleiðis að tala um rétt
samfélagsins til að njóta starfa
kvenna,“ sagði Auður Lilja.
Aðgerðir til að efla hlut
kvenna í sveitarstjórnum
Morgunblaðið/Kristinn
Fleiri konur Jafnréttisstofa mun standa að aðgerðum til að efla hlut
kvenna í sveitarstjórnum ef þingsályktunartillaga Sivjar nær í gegn.
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ATVINNULEYFI verða gefin út til
einstaklinga en ekki til atvinnurek-
enda eins og nú er, ef frumvarp
Pauls Nikolov, þingmanns Vinstri
grænna, verður að lögum.
Paul, sem er fyrsti innflytjandinn
til að taka sæti á þingi, mælti fyrir
frumvarpinu í gær en meðflutnings-
menn eru fimm þingmenn úr öllum
stjórnarandstöðuflokkunum. „Sem
stendur er útlendingur með atvinnu-
leyfi bundinn af því að vinna aðeins á
einum stað, eða sækja aftur um at-
vinnuleyfi ef hann vill vinna annars
staðar. Svona umsóknarferli er bæði
ósveigjanlegt og erfitt fyrir bæði
umsækjendur og atvinnurekendur.
Eigum við ekki frekar að veita er-
lendum starfsmönnum frelsi til að
vinna þar sem þeirra er þörf og þar
sem þeir vilja sjálfir starfa?“ sagði
Paul og lagði einnig áherslu á að með
lagabreytingu yrði atvinnurekend-
um veitt nauðsynlegt aðhald. At-
vinnumarkaðurinn yrði sveigjan-
legri sem aftur myndi bæta efnahag
þjóðarinnar. „Þeir sem fara illa með
starfsfólk sitt eiga þá á hættu að
missa það, en hinir sem virða réttindi
þess eiga auðveldara með að fá til sín
gott starfsfólk.“
Í frumvarpinu er einnig lagt til að
svonefnd 24 ára regla verði felld úr
gildi en rökin fyrir henni voru m.a.
að koma í veg fyrir málamynda
hjónabönd. Paul sagði regluna hins
vegar óþarfa enda væri ekki veitt
dvalarleyfi ef rökstuddur grunur
léki á að um slíkt væri að ræða.
Atvinnuleyfi verði gefin
út til einstaklinga
Paul Nikolov flutti jómfrúræðu sína á Alþingi í gær
Þrefað um
húsnæðismál
Slæm staða á húsnæðismarkaði
var rædd á Alþingi annan daginn í
röð í gær en Kristinn H. Gunn-
arsson fór við tvö tækifæri upp í
pontu til að ræða húsnæðisvand-
ann. Fyrst beindi hann fyrirspurn til
ráðherra um hve-
nær stæði til að
hækka lánshlut-
fall almennra
lána íbúðalána-
sjóðs aftur upp í
90%. Jóhanna
Sigurðardóttir
félagsmálaráð-
herra sagði að
beðið væri eftir
niðurstöðum
nefndar sem er
ætlað að móta
tillögur að lausn-
um.
Kristinn var ekki
sáttur við svörin
og fór aftur upp í
pontu undir liðn-
um störf þings-
ins og gagnrýndi
aðgerðaleysi af
hálfu stjórn-
valda. Sagði
hann félags-
málaráðherra
hafa talað í umræðum í fyrradag
eins og „félagsmálaráðherra
stjórnarandstöðunnar“. „En ráð-
herra þarf að bera ábyrgð,“ sagði
Kristinn.
Stefna og
stefnuleysi
Í framhaldinu spunnust miklar um-
ræður um stefnu og stefnuleysi
einstakra flokka í húsnæðis-
málum, og reyndar fleiri málum og
segja má að ákveðinn galsi hafi
gripið um sig í þingsal.
Skotin gengu manna í milli og lítið
var um að þingmenn kæmust í
gegnum ræður sínar án þess að
einhver kallaði fram í.
Eins og venjulega vísaði samfylk-
ingarfólk allri gagnrýni framsókn-
armanna á bug á þeim forsendum
að það væru syndir Framsókn-
arflokksins sem gerðu það að verk-
um hvernig staðan væri en fram-
sóknarmenn vísuðu því aftur til
föðurhúsanna.
Dagskrá þingsins
Næstu daga eru nefndardagar á Al-
þingi og þingfundur verður því ekki
fyrr en á þriðjudag.
Kristinn H.
Gunnarsson
Jóhanna
Sigurðardóttir
ÚR VERINU
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„ÞETTA hefur verið ansi hressi-
legt síðustu daga,“ segir Hafþór
Þórðarson, skipstjóri á Erling KE
140, skipi Saltvers hf. í Keflavík.
Skipið hefur fengið 170 tonn af
ufsa á sjö dögum.
Erlingur er á netaveiðum á
Kötlugrunni og sækjast skipverjar
eftir ufsa. Síðustu daga hafa þeir
fyllt bátinn á tveimur dögum.
Landað er á fiskmarkað í Þorláks-
höfn, 55 til 60 tonnum í róðri, og
þangað er 8 til 9 tíma stím. „Á
meðan svona vel veiðist förum við
ekki fyrr en öll ker eru orðin full,“
segir Hörður.
Sýnishorn af
öðrum tegundum
Sex trossur eru í sjó og eru að
fást frá einu og upp í sjö tonn á
trossu við hverja vitjun. Nánast
hreinn ufsi. Hörður segir að
þorskur og ýsa sjáist ekki en ein-
hver sýnishorn af löngu, keilu og
karfa, eins og hann tekur til orða.
„Þetta svæði hefur lítið verið
stundað undanfarin ár, það er að
segja í ufsa. Þetta kom okkur dá-
lítið á óvart,“ segir skipstjórinn.
„Þetta er mjög fínt. Við ætluðum
okkur að taka 700 tonn af ufsa í
vetur. Það gengur framar vonum
að ná því.“ Það hefur líka hjálpað
til að gott veður hefur verið á mið-
unum undanfarna daga.
Hörður er 28 ára. Hann hefur
verið með Erling frá því á síðasta
ári en áður var hann háseti og
stýrimaður á Happasæl og gerði
út eigin trillu sem hann á enn.
Segir að gott sé að geta róið sjálf-
ur á sumrin því það hafi aðeins
tekið þá fimm mánuði að veiða
upp í kvóta Erlings í fyrravetur.
Saltver keypti viðbótarkvóta og
hugsuðu skipverjar því gott til
glóðarinnar fyrir þetta fiskveiðiár.
En við skerðingu þorskkvótans í
haust hvarf öll viðbótin og Erling
var komin í sömu stöðu og fyrr.
Þeir juku hins vegar við ufsakvót-
ann, til að reyna að drýgja kvót-
ann, og eru sérstaklega að sækja í
hann um þessar mundir með þess-
um góða árangri.
Þegar rætt var við Hörð
skömmu eftir hádegið í gær voru
skipverjar nýkomnir á miðin, eftir
löndun í Þorlákshöfn, og voru að
draga aðra trossuna. Útlitið var
gott því fyrsta trossan gaf tvö og
hálft tonn og sú næsta var ekki
síðri.
Ufsinn er smár og það eru ansi
mörg handtök við hvert tonn.
Fiskurinn er slægður og raðað
með ís í ker. HB Grandi hefur
keypt mikinn af aflanum.
Hressilegur ufsaafli hjá Erling
Afli Mokveiði hefur verið á netin hjá Erlingi KE á Kötlugrunni. Veðrið hef-
ur líka verið betra en þegar þessi mynd var tekin.
ÞING Norræna vélstjórasambands-
ins (NMF) fordæmir fækkun vél-
stjóra um borð í íslenskum fiskiskip-
um án þess að breytingar séu gerðar
á vaktstöðu þar sem með því sé verið
að rýra öryggi bæði skips og áhafn-
ar.
Í ályktun sem samþykkt var á
þinginu er vakin sérstök athygli á því
að á íslenska fiskiskipaflotanum hafi
komið upp nokkur tilvik þar sem út-
gerðarmenn hafi fækkað vélstjórum
á grundvelli heimildar um tímabund-
ið mannlaust vélarrúm en áfram lát-
ið vélstjórana standa vakt allan sól-
arhringinn. Af því tilefni tekur
þingið skýrt fram að heimildin ein og
sér sé ekki forsenda þess að fækka
vélstjórum, þess í stað verði að reka
vélarrúmið án vaktar í allt að tólf
klukkustundir á sólarhring til þess
að tilætlaður ávinningur náist.
Á þinginu sem haldið var í Åbo í
Finnlandi kom fram að mikill skort-
ur er á vélstjórum og þörf á nýliðun í
stéttinni í framtíðinni. Hvatt var til
kynningar á stéttinni og að vakinn
verði áhugi á starfinu hjá ungu fólki.
Fordæma
fækkun
vélstjóra
ÞETTA HELST …