Morgunblaðið - 22.11.2007, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
FAXAFLÓAHAFNIR SF. sam-
þykktu nýverið að færa Víkinni –
Sjóminjasafninu í Reykjavík núver-
andi húsnæði þess að gjöf í tilefni af
90 ára afmæli Reykjavíkurhafna.
Faxaflóahafnir keyptu fasteignina í
upphafi sérstaklega með rekstur
safnsins í huga og áttu því stóran
þátt í opnun þess fyrir þremur árum
síðan.
Mikilla endurbóta þörf
„Þetta er svo stór gjöf að manni
verður orða vant,“ segir Sigrún
Magnúsdóttir, forstöðumaður Vík-
urinnar – Sjóminjasafnsins í Reykja-
vík.
„Þetta eykur sjálfstæði stofnunar-
innar tvímælalaust því safnið er
sjálfseignarstofnun. Það er ljóst að
húsið þarfnast talsverðra endurbóta
að innan og munum við því veðsetja
húsið í janúar til að taka lán sem not-
að verður til að fjármagna end-
urbæturnar. En þá verðum við kom-
in með stórglæsilegt hús að innan
sem utan, sem vonandi mun vekja
eftirtekt,“ segir Sigrún ennfremur.
Faxaflóahafnir munu ljúka við
framkvæmdir á húsnæðinu að ut-
anverðu á næsta ári samkvæmt skil-
málum samþykktarinnar, en Sjó-
minjasafnið stendur um þessar
mundir að miklum endurbótum á
innviðunum.
Húsið var illa farið, neðri hæðin lá
undir skemmdum þegar Sjóminja-
safnið tók við því og hefur safnið
nær eingöngu verið starfrækt á efri
hæðinni.
„Faxaflóahafnir hafa alltaf verið
okkar aðalstyrktaraðili, eins og
kaupin á húsnæðinu sýna, en til-
lagan að safninu og undirbúningur
var unninn af nefnd á vegum borg-
arráðs, í samvinnu við hags-
munaaðila. HB Grandi, Eimskip og
Glitnir eru okkar aðalmáttarstólpar
í rekstrinum ásamt borginni,“ segir
Sigrún.
Höfnin var miðstöð fólksins
Húsnæðið í Grandagarði 8 er um
1.800 fermetrar á tveimur hæðum og
hefur verið samtvinnað útgerð-
arsögu Reykjavíkur í gegnum árin.
Húsið var reist árið 1947 sem fisk-
iðjuver ríkisins, en síðan kom í húsið
Bæjarútgerð Reykjavíkur (BÚR) og
þar var starfrækt hraðfrystihús til
ársins 1985, þegar starfsemin var
flutt annað. Þann 1. desember nk.
verður opnuð á safninu viðamikil
sýning sem nefnist „Lífæð lands og
borgar“ og fjallar um 90 ára sögu
Reykjavíkurhafnar.
„Höfnin í Reykjavík var alltaf
kölluð lífæð borgarinnar. Hún gjör-
breytti öllu atvinnulífi þegar hún
kom. Við vonumst til að nýja sýn-
ingin veki upp þau hughrif sem urðu
þegar komið var niður á bryggju.
Þar hittust borgarbúar og spjölluðu
saman, þar var miðstöð fólksins og
þar fóru samskiptin fram,“ segir
Sigrún.
Þar sem safnið er sjálfseign-
arstofnun er starfsemi og fjár-
mögnun sýninga alfarið háð ut-
anaðkomandi styrktaraðilum.
Fjárhagsáætlun vegna nýju sýning-
arinnar og endurbóta er upp á 30
milljónir króna og segir Sigrún að
fjármögnun vegna hennar sé komin
langt á veg.
Björn Ingi Hrafnsson, formaður
stjórnar Faxaflóahafna sf., gerði
grein fyrir samþykktinni um gjöf
hússins þann 16. nóvember sl. og af-
henti Sigrúnu Magnúsdóttur og Vil-
hjálmi Þ. Vilhjálmssyni, varafor-
manni stjórnar safnsins, yfirlýsingu
þar að lútandi.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
hefur jafnframt greint frá því að
borgarráð muni hækka rekstr-
arstyrk borgarinnar til Sjóminja-
safnsins um 7 milljónir króna.
Víkin – Sjóminjasafnið fær
húsnæði afhent til eignar
Afhending Björn Ingi Hrafnsson, formaður Faxaflóahafna, afhenti húsnæðið að viðstöddum fjölda gesta. Þ.á m. voru
Sigrún Magnúsdóttir forstöðumaður, Gísli Gíslason hafnarstjóri og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi.
AKUREYRI
UM þessar
mundir er að
hefjast vinna
við heild-
arskipulag
svæðisins vest-
an núverandi
byggðar á Sel-
tjarnarnesi,
sem meðal
annars nær yf-
ir Gróttu, Suð-
urnes og Vest-
ursvæði. Markmiðið með
skipulagsvinnunni er að móta heild-
stæða framtíðarsýn sem byggir á
stefnu þeirri sem sett er fram í Að-
alskipulagi Seltjarnarness 2006-
2024.
Af þessu tilefni hefur verið
ákveðið að efna til hugmyndaþings
sem haldið verður í Lyfjafræðisafn-
inu við Neströð á Seltjarnarnesi
milli kl. 10 og 12 laugardaginn 24.
nóvember næstkomandi.
Tilgangur þingsins er að kynna
skipulagsvinnuna sem er að hefjast
og kalla eftir hugmyndum íbúa um
framtíðar skipulag umrædds svæð-
is.
Dagskrá þingsins verður sem hér
segir:
Kl. 10: Kynning á skipulagsvinn-
unni og stefnu bæjaryfirvalda, er-
indi um náttúrufar svæðisins og er-
indi um sögu svæðisins
Að loknu kaffihléi klukkan
11taka umræðuhópar til starfa og
klukkan 12 verður þingi slitið.
Seltirningar eru hvattir til að
mæta og taka þátt í að móta skipu-
lag Vestursvæðisins, segir í frétt
frá Seltjarnarnesbæ.
Þingað um
skipulag vest-
ursvæða á
Seltjarnarnesi
Dalvík | Samkvæmt fjárhagsáætlun
Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2008
verður rekstrarafgangur aðalsjóðs
158 milljónr króna og samanlagður
afgangur af rekstri A- og B-hluta
bæjarins (bæjarsjóðs sjálfs og fyr-
irtækja bæjarins) um 146 milljónir
króna. Áætlað er að verja 300 millj-
ónum króna til framkvæmda.
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun
Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2008 fór
fram í vikunni. „Einkenni áætlunar-
innar eru traustur rekstur og miklar
framkvæmdir án nýrrar lántöku.“
Engin ný lán
Um áætlaðar niðurstöðutölur, sem
áður er getið, segir:
Þetta er afar jákvæð og góð nið-
urstaða sem byggist einkum á því að
tekist hafi að halda vel utan um
rekstur sveitarfélagsins, að aukin
umsvif í sveitarfélaginu skapi meiri
tekjur og að á undanförnum árum
hafi lán verið greidd niður og ekki
hafa verið tekin ný langtímalán, þó
að framkvæmdir hafi verið miklar.
Veltufé frá rekstri er 322 milljónir
kr. eða um 25% af heildartekjum.
„Það sýnir hvað reksturinn skilur
eftir til fjárfestinga og/eða til
greiðslu afborgana á langtímaskuld-
um og sýnir jafnframt rekstrarhæfi
sveitarfélagsins.“
Heildartekjur sveitarfélagsins eru
áætlaðar um 1,2 milljarðar króna, og
að í reksturinn, án fjármagnsliða,
fari ríflega milljarður. Helstu tekju-
liðir eru útsvarstekjur sem áætlað er
að verði um 468 milljónir. Þá hefur
verið áætlað fyrir lækkun útsvars-
tekna vegna þorskniðurskurðar sem
talinn er verða 21 milljón sbr.
skýrslu Hagfræðistofnunar. Þá er
gert ráð fyrir að heildarframlög
Jöfnunarsjóðs verði um 419 milljónir
króna og að fasteignaskattar á árinu
verði um 124 milljónir.
Ekki er gert ráð fyrir lántöku á
árinu 2008 en afborganir langtíma-
lána eru um 75 milljónir kr.
Áætlað er að framkvæma fyrir
tæplega 300 milljónir á árinu 2008.
Þar eru helstar framkvæmdir við
stofnanir upp á ríflega 40 milljónir,
þ.e. viðbygging og endurnýjun á
leikskólanum Fagrahvammi, lyfta og
önnur aðgengismál í Ráðhúsi auk
framkvæmda á efstu hæð þess.
Nefna má að 43 milljónir fara til frá-
veituframkvæmda og er þeim þá lok-
ið á Dalvík. Þá er áætlað að verja um
32 milljónum til gatnagerðarfram-
kvæmda og gert er ráð fyrir nokkru
fé til viðhalds og uppbyggingar leik-
svæða. Auk þessa eru áætlaðar
framkvæmdir við hafnirnar.
300 milljónir
til framkvæmda
Ljósmynd/Hörður Geirsson
Í HNOTSKURN
»Nýtt íþróttahús á að rísa áDalvík innan skamms. Í
fyrsta áfanga þess verða settar
150 milljónir á næsta ári.NEMENDUR 9. bekkjar Lundarskóla unnu að verk-
efnum í tilefni forvarnardagsins eins og aðrir í gær.
Þremenningarnir á myndinni eru Aníta Rán Stef-
ánsdóttir, Áskell Viðar Bjarnason og Vilborg Fönn
Tómasdóttir, sem setja þarna saman tillögur varðandi
forvarnir. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri og
Bryndís Arnardóttir forvarnarfulltrúi sóttu Lund-
arskóla heim í bítið og hlýddu á hugmyndir nemenda.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hugmyndir að forvörnum
FJÖLMENNI var á almennum
íbúafundi í Hrísey í gær á vegum
hverfisnefndar staðarins. Að sögn
Kristins Árnasonar formanns voru
skiptar skoðanir um ýmislegt en
fundurinn mjög málefnalegur.
Mikill áhugi er á því í Hrísey að
staðurinn verði eins vistvænn og
kostur er og í gær var kynnt Stað-
ardagskrá 21 fyrir eyna. „Bílum hef-
ur fjölgað nokkuð síðustu tvö til þjú
ár, við viljum helst að bílaeign
minnki og það eru vinsamleg tilmæli
nefndarinnar. Því hefur verið ágæt-
lega tekið,“ sagði Kristinn.
Hitt aðalmál fundarins var sú hug-
mynd fyrirtækisins Sæfangs að
koma upp hausaþurrkun í Hrísey en
töluverð andstaða er við það í ljósi
lyktarinnar sem starfseminni fylgir.
Sumir telja það ekki gott fyrir ímynd
hins vistvæna samfélags, en Kristinn
segir að þótt menn greini á í málinu
sé umræðan málefnaleg. Sigrún
Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á
Akureyri, tekur undir það. „Ég fann
fyrir fundinn að það eru átök manna
á milli um þetta mál en umræðan var
engu að síður mjög málefnaleg,“
sagði hún við Morgunblaðið.
Mjög málefnalegur fundur
Rætt um Staðardagskrá 21, atvinnumál, ferðamál í Hrísey