Morgunblaðið - 22.11.2007, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007 27
Í tilefni af degi íslenskrar tungufinnst Hólmfríði
Bjartmarsdóttur eða Fíu á Sandi
við hæfi að yrkja hefðbundið „og
hvað er hefð bundnara en ást og
brást“.
Hafðu ekki áhyggjur
heimurinn er stór
löng eru þau löndin
og líka mikill sjór.
„Aldrei kemur aftur sá
er einu sinni fór.“
Hafðu ekki áhyggjur
haltu þinni ró
þó gatan útúr garðinum
sé gróin bæði og mjó.
„Aldrei komi aftur sá
er einusinni dó.“
Hafðu ekki áhyggjur
hér mun gleði fást
gaman var að lifa
gleði og sanna ást.
Allir þurfa að yrkja ljóð
um ástina sem brást.
Séra Hjálmar Jónsson orti er
hann heyrði þetta inn á Leirinn,
póstlista hagyrðinga:
Ljóð hefur síst á listann skort,
ljómandi stef með birtu og yl
og Fía á Sandi ekki ort
annað jafnfagurt hingað til.
Hjálmar Freysteinsson orti
einnig í tilefni af degi íslenskrar
tungu, en svolítið í öðrum dúr:
Íslenska tungan er æðisgengin,
algjört hit
Á svona degi segir enginn
shit.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af íslenskri
tungu
HEIMSÓKN á jólamarkað er
ómissandi hluti af aðventunni í huga
margra og þeir sem eru á faralds-
fæti í desembermánuði gætu gert
ýmislegt vitlausara en að kanna
hvort jólamarkað sé að finna í ná-
grenninu. Ferðavefurinn Standby
birti nýlega lista yfir áhugaverða
jólamarkaði í Evrópu.
Baden Baden í Þýskalandi. Dag-
ana 26. nóv.-26. des. Á hinum ár-
lega „Christkindelsmarkt“ er að
finna meira en 50 sölubása sem selja
allt frá handverki til leikfanga.
Brussel í Belgíu. 1. des.-1. jan.
Sannkallað vetrarævintýri af ævin-
týralegri stærðargráðu. Parísarhjól-
ið er skreytt með 18.000 ljósa seríu
og hér má finna ýmiskonar sælkera-
fæðu, handgert jólaskraut og skart.
Brixen á Ítalíu. 30. nóv.-6. jan.
Ilmurinn af glögg og kanilkökum
berst fyrir vit gesta sem geta fundið
á markaðnum gjafir og sætindi af
ýmsum gerðum.
Maastricht í Hollandi. 1. des.-6.
jan. Jólamarkaðurinn er hluti af
„Vrijthof“-vetrargleðinni og þar er
að finna parísarhjól og skautasvell
og svo að sjálfsögðu hefðbundin jóla-
varning.
Gautaborg í Svíþjóð. 16. nóv.-23.
des. Líkt og Tívolí í Kaupmanna-
höfn, þá er Liseberg-skemmti-
garðurinn í Gautaborg vettvangur
árlegs jólamarkaðar sem skreyttur
er með fimm milljónum ljósapera.
Hér má finna sælgæti, mat, jóla-
skraut og handverk.
Strassbourg í Frakklandi. 24.
nóv.-24. des. Á hverju ári frá því
1570 hefur Christkindelsmärik-
markaðurinn verið haldinn í borg-
inni og er hann elsti jólamarkaður í
Frakklandi.
Kaupmannahöfn í Danmörku. 15.
nóv.-30. des. Jólamarkaðurinn í Tí-
volí í Kaupmannahöfn er ómissandi
viðkomustaður fyrir þá sem heim-
sækja borgina á aðventunni.
Jólamark-
aðir fyrir
ferðalanga
Ljósmynd/Tourist Office Kaupmannahöfn
Kaupmannahöfn Tívólíið fær á sig jólablæ á aðventunni.
SNÆFELLSJÖKULL
DRANGAJÖKULL
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Njóttu dagsins
- taktu flugið
Aðeins nokkur skref á Netinu og þú ferð á loft
Það getur ekki verið auðveldara.
Þú bókar flugið á flugfelag.is þar sem
þú finnur ódýrustu fargjöldin og að
auki frábær tilboð.
Njóttu dagins, taktu flugið
og smelltu þér á flugfelag.is
flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
L
U
3
77
33
0
5/
07