Morgunblaðið - 22.11.2007, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007 45
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9-16.30,
jóga kl. 9, boccia kl. 10, útskurður og myndlist
kl. 13-16.30, vídeóstund kl. 13.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 9.30, handav. kl. 8-16,
smíði/útskurður kl. 9-16.30, boccia kl. 9.45,
leikfimi kl. 11, helgistund kl. 10.30 og myndlist kl.
13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, almenn
handavinna, jóga, myndlist, morgunkaffi/
dagblöð, fótaaðgerð, hádegisverður, bókband,
kaffi.
Dalbraut 18-20 | Postulínsnámskeið kl. 9-12.
Lýður með harmonikkuna kl. 14, guðsþjónusta
annan hvern fimmtudag. kl. 15.10.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Bingó í Gjá-
bakka kl. 13.45. Kortaverð 100 kr. Vinnings-
upphæðir fara eftir fjölda þátttakenda. Gleði-
gjafarnir syngja í Gullsmára 23. nóvember kl. 14.
Stjórnandi: Guðmundur Magnússon. Kaffiveit-
ingar að söng loknum.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13, op-
inn fundur í Stangarhyl 4, kl. 17, um stöðu aldr-
aðra, Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra mætir á fundinn. Aðventuhátíð 30.
nóvember.
Félag kennara á eftirlaunum | EKKÓ-kórinn æf-
ir í KHÍ kl. 17-19. Nýjar raddir velkomnar.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og
9.55, rammavefnaður kl. 9.15, málm- og silf-
ursmíði kl. 9.30, róleg leikfimi kl. 13, bókband kl.
13, bingó kl. 13.45, myndlistarhópur kl. 16.30,
stólajóga kl. 17, jóga á dýnum kl. 17.50.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handavinna kl.
9, ganga kl. 10, hádegisverður kl. 11.40, handa-
vinna og brids kl. 13, jóga kl. 18.15.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatns-
leikfimi kl. 12.40, karlaleikfimi kl. 13, boccia kl.
14, bókband kl.10, gler og leir kl. 13, handa-
vinnuhorn kl. 13, gönguhópur frá Jónshúsi kl. 11.
Óperukvöld í Garðabergi kl. 16, Töfraflautan eft-
ir Mozart, lýsing Sigrún Hjálmtýsdóttir. Skrifs-
stofa FEBG opin kl. 13-15.
Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ | Að-
göngumiðasala á jólaskemmtunina í Hlégarði
29. nóvember stendur yfir á skrifstofu fé-
lagsstarfsins á Hlaðhömrum, kl. 13-16 virka
daga.
Félagsstarf Gerðubergs | Helgistund kl. 10.30,
umsj. sr. Svavar Stefánsson. Frá hádegi vinnu-
stofur opnar, m.a. myndlist og perlusaumur, um-
sj. Nanna S. Baldursd. Á morgun kl. 10.30 er
leikfimi (frítt) o.fl. í ÍR-heimilinu v/ Skógarsel,
umsj. Júlíus Arnarsson íþróttakennari, kaffi-
spjall.
Furugerði 1, félagsstarf | Aðst. við böðun kl. 9,
alm. handavinna, smíðar og útskurður. Sam-
verustundin í salnum kl. 13.15.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, boccia kl. 10,
leikfimi kl. 11, hádegismatur kl. 12, félagsvist kl.
14, kaffi kl. 15. Hárgreiðslustofan Blær opin alla
daga sími 894-6856.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, bíómyndir kl.
10.30, leikfimi kl. 11.20, tréskurður kl. 13, bingó
kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir hjá Þorbjörgu
kl. 9-16. Boccia kl. 10-11, félagsvist kl. 13.30,
kaffiveitingar í hléi. Böðun fyrir hádegi, hádeg-
isverður kl. 11.30. Hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Listasmiðjan með ýmsa
möguleika í handverki. Leiðbeinendur Laufey
Jónsdóttir og Selma Jónsdóttir. Hjördís Geirs
með gítarinn kl. 13.30. Uppl. 568-3132.
Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun föstudag er
sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9:30 og
Listasmiðjan á Korpúlfsstöðum er opin kl. 9-12
og 13-16 alla föstudaga.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögustund og
spjall kl. 9.45, boccia karlaklúbbur kl. 10.30,
handverks og bókastofa opin kl. 13, postulíns-
málun kl. 13, boccia kvennaklúbbur kl. 13.30,
kaffiveitingar kl. 14.30.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan kl. 9-16, vinnust. í
handm. kl. 9-12. m/leiðb. Halldóru frá kl. 9-12.
Leirlistarnámskeið kl. 9-12, boccia kl. 10, hug-
mynda- og listastofa kl. 13-16 með Halldóru og
Hafdísi.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höfuðborg-
arsvæðinu | Skák kl. 19, í félagsheimili Sjálf-
bjargar á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12.
Slysavarnadeildin Hraunprýði | Jólafundur í
Skútunni 27. nóv. kl. 19.30. Söngur, lestur úr
bók, happdrætti og hugvekja. Aðgöngumiðar
verða seldir í Versl. Kakí, Strandgötu 9-11,
fimmtu-, föstu- og laugard.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir kl.
9-10, boccia kl. 9.15-14, aðstoð v/böðun, kl. 9.15-
15.30, handavinna kl. 10-12, spænska framh. kl.
11.45-12.45, hádegisverður kl. 13-15, kóræfing kl.
13-14, leikfimi kl. 14.30-15.45, kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | smiðja kl. 8.30, bók-
band kl. 9, handavinnustofan opin kl. 9.00-
16.30. hárgreiðslu og fótaaðgerðarstofur opnar
alla daga frá kl. 9, morgunstund kl. 9.30, boccia
kl. 10, upplestur kl. 12.30, mósaík gerð kl. 13,
frjáls spil kl. 13-16.30.
Þórðarsveigur 3 | Bænastund og samvera kl.
10, kl. 13 opinn salurinn, leikfimi kl. 13.15, bingó/
félagsvist kl. 14.30,
Kirkjustarf
Áskirkja | Foreldrasamvera kl. 10, tónlist fyrir
ungbörn, söngstund með organista kl. 14, sam-
kirkjuleg bænastund á ensku kl. 16.30, fylgt er
bænakveri „True life in God“. Samvera með
nýbúum, spjall, súpa og brauð kl. 17.30, klúbbur
8 og 9 ára kl. 17.30 og kl. 18 TTT-starfið, efni
fundanna er Survivor-ratleikur.
Breiðholtskirkja | Biblíulestur í umsjá dr. Sig-
urjóns Árna Eyjólfssonar kl. 20.
Digraneskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12.
Leikfimi ÍAK kl. 11, bænastund kl, 12, 6-9 ára
starf kl. 16-17. Æskulýðsstarf Meme fyrir 8.
bekk kl. 19.30-21.30. www.digraneskirkja.is
Dómkirkjan | Opið hús í safnaðarheimilinu kl.
14-16. Kaffi á könnunni. Kvöldkirkjan er opin kl.
20-22. Bænastund er kl. 20.30 og 21.30. Kveik-
ið á bænakerti, skrifið bænir, prestur á staðn-
um.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12,
samverustundir og fyrirlestrar. Kaffi á könn-
unni, djús og brauð fyrir börnin. TTT fyrir 10-12
ára kl. 15-16 í Víkurskóla.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Org-
elleikur, íhugun, bænir. Málsverður í safnaðarsal
efir stundina.
Háteigskirkja | Íhugunartónlist, orð Guðs, bæn-
ir, kvöldmáltíð Drottins, fyrirbæn með handa-
yfirlagningu og smurningu kl. 20. Vinafundir kl.
14 í Setrinu í október og nóvember.
Hjallakirkja | Opið hús fyrir eldri borgara kl. 12-
14. Léttur hádegisverður og samverustund.
Laugarneskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Léttur
málsverður á eftir, samvera eldri borgara kl. 14,
barnakór Laugarness syngur, kaffiveitingar.
Umsjón hafa sóknarprestur, kirkjuvörður og
þjónustuhópur kirkjunnar. Adrenalín gegn ras-
isma kl. 17, 9. og 10. bekkur.
Neskirkja | Foreldramorgunn kl. 10. Mataræði
ungbarna. Hjúkrunarfræðingur kemur í heim-
sókn. Kaffi.
Njarðvíkurkirkja | Foreldramorgunn kl. 10.30. í
safnaðarheimilinu. Umsjón hefur Þorbjörg
Kristín Þorgrímsdóttir.
Ytri-Njarðvíkurkirkja | Spilakvöld aldraðra og
öryrkja 22. nóvember kl. 20. Umsjón hafa fé-
lagar í Lionsklúbbi Njarðvíkur, Ástríður Helga
Sigurðardóttir, Gunnhildur Halla Baldursdóttir
og sóknarprestur.
80ára afmæli. Áttræður er ídag 22. nóvember, Trausti
Eyjólfsson, hárskeri og ökukenn-
ari. Hann er að heiman með fjöl-
skyldu sinni og fagnar tímamót-
unum. Laugardaginn 24.
nóvember tekur hann á móti vin-
um og vandamönnum á heimili
dóttur sinnar í Ljósalandi 25 á
milli kl. 16 og 19.
Brúðkaup | 18. ágúst síðastliðin
gengu í hjónaband, í Kópavogs-
kirkju, Oscar Angel Lopez og
Berglind Lopez Gísladóttir.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 22. nóvember, 326. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Því getum við öruggir sagt: Drottinn er minn hjálpari, eigi mun ég óttast. Hvað geta mennirnir gjört mér? (Hebr. 13, 6.)
Sagnfræðingafélag Íslands býð-ur til fyrirlestrar í Þjóðminja-safninu í dag kl. 12.05. Þarætlar Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir utanríkisráðherra að flytja er-
indið Minn staður er hér þar sem Evr-
ópa endar.
„Yfirskriftina fæ ég lánaða úr ljóði
eftir Hannes Pétursson, og hún vísar til
stöðu Íslands, innan Evrópu en samt á
mörkum hennar,“ segir Ingibjörg Sól-
rún. „Við Íslendingar hljótum að skil-
greina stöðu íslensks samfélags með
tilliti til þess að við erum hluti af Evr-
ópu. Með samningnum um Evrópska
efnahagssvæðið má segja að tekið hafi
verið afgerandi skref í þá átt að tengja
Ísland sterkari böndum við Evrópu.“
Í erindi sínu segist Ingibjörg Sólrún
ætla að líta um öxl: „Ég ætla að fara yf-
ir þann ávinning sem við höfum haft af
EES-samningnum, skoða þá pólitísku
umræðu sem var í kringum samnings-
gerðina og hvort hrakspár hafi ræst.“
Til að skilja betur stöðu Íslands í
samfélagi þjóðanna ætlar Ingibjörg
Sólrún að skoða það sem hún kallar
goðsagnir í sjálfsmynd þjóðarinnar:
„Þessar goðsagnir eru mjög lífseigar í
íslenskri utanríkisumræðu. Fyrst má
nefna goðsögnina um ásælni erlends
valds í íslenskt land, sem undirliggj-
andi er í allri umræðu þegar áætlanir
eru uppi um að binda trúss okkar við
önnur ríki, hvort heldur er í varn-
armálum eða viðskiptamálum,“ segir
hún. „Hin goðsögnin er sú að smáþjóð-
in Ísland skipti engu máli á al-
þjóðavettvangi, og að við getum ekki
haft áhrif í félagsskap stærri þjóða.
Þessi goðsögn tengist kannski því að
menn líti svo á að enginn geti haft áhrif
nema hann hafi vald til að fylgja óskum
sínum eftir.“
Í erindi sínu kemur Ingibjörg Sólrún
einnig inn á mismunandi hugmyndir
um sjálfstæði þjóðarinnar: „Smáríki
eru yfirleitt innan áhrifasvæðis stærri
ríkja eða ríkjasambanda, og er Ísland
þar engin undantekning. Norskar aldir
voru í sögu þjóðarinnar, ensk öld, þýsk
öld, og danskar aldir. Má jafnvel kalla
20. öldina ameríska öld, og hver veit
nema 21. öldin verði evrópska öldin,“
segir hún. „Mikilvægt er að skilja að
smáríki þurfa alltaf á ákveðnu skjóli að
halda frá stærri ríkjum og ríkja-
samböndum sem þó þarf alls ekki að
stefna sjálfstæði og fullveldi þjóð-
arinnar í hættu.“
Sagnfræði | Fyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins heldur áfram í dag
Litið um öxl á jaðri Evrópu
Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir
fæddist í Reykja-
vík 1954. Hún lauk
BA í sagnfr. og
bókm. frá HÍ 1979,
stundaði nám við
Hafnarháskóla
1979-81 og cand.
mag. nám í sagnfr.
við HÍ 1983. Ingibjörg Sólrún á að
baki langan feril í borgarstjórn og á
Alþingi, og hefur verið formaður
Samfylkingarinnar frá 2005. Hún var
skipuð utanríkisráðherra í maí 2007.
Eiginm. hennar er Hjörleifur Svein-
björnsson þýð. og eiga þau tvo syni.
Tónlist
Háskólabíó | Sinfóníuhljómsveitin flytur Till Eulen-
spiegel eftir Strauss, Nótt á nornastóli eftir Mussorgs-
kíj og valda kafla úr Pétri Gaut eftir Grieg með hjálp
Gunnars Eyjólfssonar. Petri Sakari stjórnar og Guðrún
Jóhanna Ólafsdóttir syngur. Miðasala á www.sinfonia-
.is og í síma 545-2500. Tónleikarnir hefjast kl. 19.30.
Uppákomur
Bókasafn Hafnarfjarðar | Upplestur úr jólabókum kl.
20. Edda Andrésdóttir, Yrsa Sigurðardóttir, Þráinn
Bertelsson, Lóa Aldísardóttir og Vigdís Grímsdóttir
lesa. Kaffihúsastemning í samstarfi við Súfistann sem
selur veitingar.
Fyrirlestrar og fundir
Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafnsins | Sagnfræðinga-
félagið kynnir: Ingibjörg S. Gísladóttir utanrík-
isráðherra heldur hádegisfyrirlestur kl. 12.05-12.55
sem heitir „Minn staður er hér þar sem Evrópa endar“.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Geðhjálp | Sjálfshjálparhópur þeirra sem þjást af kvíða
er starfræktur kl. 18. Hópurinn er opinn öllum sem eiga
við áðurnefnt vandamál að stríða.
Landakot | Fræðslunefnd RHLÖ heldur fyrirlestur kl.
15, í kennslusalnum á 7. hæð á Landakoti. Guðrún Val-
gerður Stefánsdóttir, lektor KHÍ, fjallar um Lífssögur
Íslendinga með þroskahömlun sem fæddir eru á fyrri
helmingi 20. aldar. Sent út með fjarfundabúnaði.
Fréttir og tilkynningar
AA-samtökin | Neyðarsími AA-samtakanna er 895-
1050.
AUSTURRÍSKI skíðakappinn Georg Streitberger skíðar til æfingabúða
en hann er að undirbúa sig fyrir heimsbikarmót í Lake Louise í Alberta-
fylki í Kanada.
Skíðað í sólskini
Reuters
FRÉTTIR
NÝ NORRÆN vefgátt um vel-
ferðarmál, www.nordically.org,
hefur verið opnuð. Þar má lesa
um heilsu, félagsmál, menntun
og starfsemi á Norðurlöndum.
Fjórar stofnanir sem heyra und-
ir Norrænu ráðherranefndina
standa að vefnum.
Markmiðið hafi verið að skapa
vettvang til að miðla reynslu af
velferðarþjónustu til Norður-
landabúa og annarra, segir Inge
Ovesen framkvæmdastjóri Nor-
rænu samstarfsnefndarinnar
um málefni fatlaðra, en stofnun-
in er ein af fjórum sem taka þátt
í verkefninu.
Vefgáttin var í upphafi verk-
efni um rannsóknir í velferðar-
málum og samstarf norrænna
stofnana á félags- og heilbrigð-
issviðinu; Norrænu samstarfs-
nefndarinnar um málefni fatl-
aðra, NSH, Norræna lýðheilsu-
háskólans, NHV og norrænu
menntaáætlunarinnar um þróun
félagslegarar þjónustu, NO-
PUS. Seinna bættist Nordic
Institute for Advanced Training
in Occupational Health, NIVA, í
hópinn.
Ólíkar áherslur stofnananna
gera vefgáttina fjölbreytta með
fréttum og upplýsingum um nor-
ræna velferðarkerfið. Starfs-
menn frá þátttökustofnununum
uppfæra síðuna. Markhópur vef-
gáttarinnar eru norrænir emb-
ættismenn, fræðimenn og aðrir
sem starfa við eða fjalla um vel-
ferðarmál.
Auk faglegra upplýsinga
verða birtar fréttir á vefnum,
upplýsingar um menntun, ráð-
stefnur og útgefið efni. Jafn-
framt gefst kostur á því að svara
fréttum og mynda eigið tengsl-
anet um áhugaverð efni.
Nafnið, Nordically, sameinar
norræn sjónarmið og norrænt
samstarf „Nordic Ally“. Á vef-
gáttinni er boðið upp á nýstár-
legt norrænt samstarf og nor-
rænt notagildi fyrir
þátttakendur. Við vonum að vef-
gáttin verði upphafssíða allra
sem áhuga hafa á norrænum vel-
ferðarmálum, segir Inge Ove-
sen.
Nánari upplýsingar er hægt
að nálgast á vefsíðunni nordi-
cally.org
Ný norræn vefgátt
um velferðarmál