Morgunblaðið - 22.11.2007, Qupperneq 48
Er hægt að
standast þessi
hvolpaaugu? ... 52
»
reykjavíkreykjavík
VEFSÍÐAN Land og synir segir frá því að Anna og
skapsveiflurnar sé á meðal 33 stuttra teiknimynda sem
komnar eru á forvalslista vegna komandi Óskars-
verðlauna. Úr þessum hópi verða valdar tíu myndir og
þeim svo fækkað niður í fimm tilnefndar myndir. Til-
nefningar verða kynntar 22. janúar næstkomandi en af-
hending Óskarsverðlaunanna fer fram 24. febrúar á
næsta ári. Hilmar Sigurðsson hjá CAOZ, sem framleiðir
Önnu og skapsveiflurnar, segir að þetta sé töluverður
heiður í sjálfu sér. Þúsundir mynda af sama toga séu
framleiddar á hverju ári og því úr mörgum að velja. Hins
vegar sé þetta bara forvalslisti og því engin ástæða til að
slá um sig enn. Anna og skapsveiflurnar hlaut Edduna í
flokki stuttmynda á síðasta ári en myndin hefur nú verið
á stanslausu flakki á milli kvikmyndahátíða. Að sögn
Hilmars eru þær líklega á fjórða tug, hátíðirnar þar sem
myndin hefur verið sýnd og segir hann að myndin fái alla
jafna mjög góð viðbrögð, ekki síst vegna þess að hún sé
talin öðruvísi en aðrar kvikaðar myndir og vísar þá til
persónusköpunarinnar sem sé óhefðbundin.
Þættir byggðir á Önnu og skapsveiflunum koma út á
þarnæsta ári en von er á mynddiski með stuttmyndinni
nú um mánaðamótin. Þá er búið að selja sjónvarpsrétt-
inn af myndinni til 14 landa.
Anna á séns á Óskar
Unglingaveikin Anna breytist úr fyrirmyndarbarni í ung-
lingsófreskju.
Eins og
komið hefur
fram í fjöl-
miðlum virð-
ast Hara-
systur eiga
vísan frægð-
arferil í Póllandi og í einu dagblað-
anna í gær kom meira að segja
fram að pólsk aðdáendasíða væri
kannski í smíðum. Hvað næst? Að
Hara þýðir kúkur á maltnesku?
Nei, bíddu, það hefur líka komið
fram. Hvað er eiginlega í gangi? Jú,
systurnar koma fram í næsta und-
anúrslitaþætti Laugardagslaganna
og því hafa sumir bent á það að til-
viljun ein ráði því ekki að fréttir um
yfirvofandi heimsfrægð í Póllandi
birtist nú í fjölmiðlum landsins.
Hvað ætli umboðsmaður þeirra
systra taki nú til bragðs fyrir úr-
slitakeppnina, fari svo að systurnar
komist áfram á laugardaginn?
Umboðsmaður Íslands
má fara að vara sig
Tónlist-
arspekúlantar
standa nú á gati
gagnvart tónlist-
arsigrum Brynj-
ars Más Valdi-
marssonar á
vinsældalistum
víða um heim. Hér á landi hefur
Brynjar Már aðallega verið kennd-
ur við hljómsveitina Snooze, þar
sem hann stóð í fylkingarbrjósti
ásamt rapppíunni Kristínu Ýr i
Bjarnadóttur, en fyrir utan það
hefur BMV, eins og hann vill láta
kalla sig, verið fyrirferðarmestur
sem útvarpsmaður á FM 95,7. Nýj-
ustu fréttir af BMV eru þær að
hann stendur í dyragættinni að
heimslista nokkrum, The World
Chart Show, en eftir því næst verð-
ur komist safnar listinn saman vin-
sældalistum helstu útvarpsstöðva
heims og hrærir í einn. Einhver
sagði að best væri að flauta Laug-
ardagslögin af og senda bara BMV.
Er ekki bara best að
senda Brynjar Má?
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
HJALTI Andrason er óvenjulegur ungur maður.
Sem fjölmiðlafulltrúi í franska sendiráðinu sér
hann um að ímynd okkar á Frökkum sé ekki
einvörðungu bundin við að þeir séu hvítlauks-
elskir dónar sem hafi gaman af verkföllum. Á
kvöldin leiðbeinir hann ungum leiðsögumönnum
um eðli villtra dýra með dýrafræðikennslu í
Leiðsöguskóla Íslands og á sumrin þegar lítið er
að gera í sendiráðinu vinnur hann sem leið-
sögumaður um landið og túlkur. En þá er ekki
öll sagan sögð því nú hefur Hjalti búið til borðs-
pil byggt á kvikmyndinni Astrópíu eftir Gunnar
B. Guðmundsson, sem frumsýnd var í ágúst síð-
astliðnum.
„Þetta byrjaði á því að myndin sló í gegn í
kvikmyndahúsum og í kjölfarið fóru framleið-
endur að velta því fyrir sér hvort þeir gætu ekki
gert eitthvað meira með þetta,“ segir Hjalti.
„Ég hef verið að leika mér við að búa til spil,
það er nokkuð sem mér finnst gaman að gera í
frítímanum. Þannig að ég greip tækifærið og
tók þetta að mér,“ segir Hjalti sem hefur verið
áhugamaður um borðspil frá því hann var barn.
„Ég hef aldrei gefið spil út, en ég hef verið að
leika mér við þetta síðan ég var krakki. Ég
gerði fyrsta spilið mitt þegar ég var svona níu
ára gamall, það var búið til úr frönskum lest-
armiðum, en var alveg ótrúlega skemmtilegt og
við vinirnir spiluðuð það alveg heillengi,“ segir
hann og hlær. „Það þarf ekki mikið þegar mað-
ur er níu ára.“
Eitthvað fyrir alla
Spilið er stórt um sig og segir Hjalti það til
komið vegna þess að mikið hafi verið lagt upp
úr gæðum spilaborðsins. Þá eru reglurnar sem
fylgja mjög ítarlegar og segir höfundurinn
ástæðu fyrir því. „Markmið mitt var alls ekki að
búa til spil í anda Matador, þar sem maður kast-
ar teningi og fer áfram jafnmarga reiti og ten-
ingurinn segir til um, og svo er það bara búið.
Matador er með einfaldar reglur og það er nán-
ast engin ákvörðunartaka. Markmið mitt var
hins vegar að búa til spil sem er í anda æv-
intýramennsku, og til þess að ná því þarf það að
vera aðeins flóknara en til dæmis Risk eða
Matador. Um leið var markmiðið samt að gera
spilið eins einfalt og mögulegt var,“ segir Hjalti
og bætir því við að spilið taki ekki mjög langan
tíma í spilun. „Ætli þetta taki ekki svona tvo
tíma, þetta er svona kvöldstund. En það tekur
auðvitað lengri tíma fyrst, á meðan maður er að
læra reglurnar.“
Aðspurður segir Hjalti að Astrópíuspilið ætti
að geta höfðað til allra. „Það var líka markmið
frá upphafi, að búa til spil fyrir alla, en ekki ein-
blína á einhvern hóp eins og hlutverkaspilara.
Þótt þetta sé í sama anda er þetta miklu einfald-
ara. Við miðuðum við að tíu ára börn gætu spil-
að þetta, ef maður skýrir þetta fyrir þeim geta
þau vel spilað þetta og skilið reglurnar.“
Félagsleg skemmtun
En getur borðspil staðist samkeppnina frá nú-
tíma-afþreyingu á borð við tölvuleiki?
„Ég held að spilið standist samkeppnina af því
að þetta er allt annað mál. Vissulega eru tölvu-
leikir flottir, maður lifir sig inn í þá, tölvan
hugsar fyrir öllu og maður þarf ekki að raða
spilaborðinu upp og svona. En það kemur ekki í
staðinn fyrir að spila borðspil sem er meira fé-
lagslegt, fólk kemur saman, situr við borð og
skemmtir sér saman á sama stað.“
Ekki í anda Matador
Hjalti Andrason er höfundur Astrópíuspilsins sem kom út fyrir skömmu
Morgunblaðið/Frikki
Spilakarl „Ég gerði fyrsta spilið mitt þegar ég var svona níu ára gamall,“ segir Hjalti.
■ Í kvöld kl. 19.30
Pétur Gautur Tónlist Griegs við stórvirki Ibsens. Nótt á
Nornastóli eftir Mussorgsky og Ævintýri Ugluspegils eftir Richard
Strauss. Stjórnandi: Petri Sakari
Einsöngvari: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
Sögumaður: Gunnar Eyjólfsson
■ Fim. 29. nóvember kl. 19.30
Adés og Stravinskíj. Dáðasta tónskáld Breta af yngri kynslóðinni,
Thomas Adés, sækir okkur heim og stýrir hljómsveitinni og
Hamrahlíðarkórunum í verkum Stravinskíjs og sínum eigin.
■ Fös. 7. desember kl. 19.30
Lífið kallar. Styrktartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar og FL
Group. Uppselt.
■ Lau. 15. desember kl. 14 nokkur sæti laus og kl. 17
Jólatónleikar. Hnotubrjóturinn eftir Tsjajkovskíj. Nemendur úr
Listdansskóla Íslands dansa og trúðurinn Barbara segir söguna.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is