Morgunblaðið - 03.12.2007, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007 9
FRÉTTIR
Nýjar vörur Mbl 924851
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Gjafakort í jólapakkann
ÚTHLUTUN styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði vegna
ársins 2008 er lokið og þar með þrítugustu og
fyrstu úthlutun úr sjóðnum. Úthlutað var að
þessu sinni 55 styrkjum að fjárhæð samtals
25.300.000 kr.
Eftirtaldir aðilar hlutu hæstu styrkina, eða
eina milljón króna hver: Ljósmyndasafnið á Ísa-
firði, Minjasafn Egils Ólafssonar, Landnáms-
setur Íslands ehf., Kvæðamannafélagið Iðunn og
Stofnun Árna Magnússonar.
Alls bárust 106 umsóknir um styrki samtals að
fjárhæð um 123 milljónir króna.
Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til stofn-
ana og annarra aðila, er hafa það verkefni að
vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta
lands og menningar, sem núverandi kynslóð hef-
ur tekið í arf. Við það skal miðað, að styrkir úr
sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verk-
efna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að
lækka önnur opinber framlög til þeirra eða
draga úr stuðningi annarra við þau.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
25 milljónum úthlutað úr Þjóðhátíðarsjóði
upp á á næsta ári eru Tunguá í Lund-
arreykjardal, Straumarnir í Borgar-
firði, en í júní verða þeir seldir með
Munaðarnessvæðinu í Norðurá,
nokkur holl í Langá á Mýrum, og
Hróarslækur, sem rennur í Ytri-
Rangá. Ný silungsveiðisvæði eru
Presthvammur í Laxá í Aðaldal og
veiðisvæðið á Suðurlandi sem kallast
Voli, Baugstaðaós og Tungu-Bár en
það er leigt ásamt Stangaveiðifélagi
Selfoss.
Veitt og sleppt í Svalbarðsá
Tungufljót í Skaftártungu er eitt
vinsælasta sjóbirtingsveiðisvæði
landsins. Venjulega er veitt til 20.
október en nú hefur stjórn SVFR,
sem leigir veiðisvæðið, ákveðið að
SÖLUSKRÁ Stangaveiðifélags
Reykjavíkur fyrir 2008 er komin út.
Að sögn Guðmundar Stefáns Marías-
sonar, sem kjörinn var formaður fé-
lagsins á aðalfundi um liðna helgi, er
um að ræða viðamestu skrá sem gefin
hefur verið út til þessa, með mesta
fjölbreytileikann í veiðileyfum. Sagði
hann töluvert aukið framboð á veiði-
leyfum, bæði fyrir lax og silung. Þá er
í fyrsta sinn boðið upp á leyfi í Noregi,
í ánni Orkla, þar sem er góð stórlax-
avon. Félagsmönnum hefur fjölgað
gífurlega á síðustu misserum og sagði
Guðmundur Stefán mikla áherslu
lagða á að fjölga veiðisvæðum í sam-
ræmi við það. Boðið væri upp á um
18.000 stangardaga, eða tæplega sex
á hvern félagsmann. Hefur framboð
stangardaga aukist gífurlega síðustu
árin. Tók hann sem dæmi að árið 1993
hefði stangardagar verið tæplega þrír
á hvern félaga.
„Við höfum reynt að standa á móti
verðhækkunum og það hefur tekist
ágætlega. Hækkun milli ára er nú um
10% að meðaltali. Flest svæði hækka í
samræmi við vísitölu, önnur eitthvað
meira en þá er um endurnýjaða
samninga að ræða. Sogið hækkar um
12-16% umfram vísitölu, en segja má
að sú upphæð sé framlag í netaupp-
kaupasjóðinn.“
Ný laxveiðisvæði sem SVFR býður
skylt verði að sleppa öllum veiddum
fiski í októbermánuði.
Fleiri leigutakar hafa boðað hertar
og breyttar reglur á sínum veiðisvæð-
um. Lax ehf., sem leigir margar kunn-
ustu veiðiár landsins, hefur tilkynnt
að frá og með næsta sumri verði að
sleppa öllum veiddum laxi í Sval-
barðsá. Vesturdalsá fer aftur á mark-
að, eftir að hafa verið friðuð að mestu
um skeið vegna rannsóknarverkefnis.
Er þegar uppselt í ána en þar verður
einnig skylt að sleppa öllum fiski og
ennfremur er settur kvóti á veidda
fiska. Kvótinn mun ekki hafa verið
ákveðinn. Í Selá í Vopnafirði verður
sex laxa kvóti á hverri vakt, þar af má
hirða einn lax sé þess óskað. Að sex
fiskum veiddum ber að hætta veiðum.
Aukið framboð veiðileyfa
hjá Stangaveiðifélaginu
Veitt og sleppt á fleiri veiðisvæðum, kvóti minnkaður á öðrum
Veiði Sölvi Ólafsson landar hér vænni bleikju nærri Gunnbjarnarhyl.
STANGVEIÐI
Morgunblaðið/Einar Falur
MEIRIHLUTI íbúa Álftaness styð-
ur nýja skipulagstillögu um mið-
svæði Álftaness sem nefnd hefur
verið „Grænn miðbær“. Þetta er ein
helsta niðurstaða könnunar sem
Capacent Gallup gerði nýlega fyrir
bæjaryfirvöld.
Í henni var spurt um viðhorf Álft-
nesinga til helstu álitamála sem upp
hafa komið við útfærslu á skipulagi
nýs miðbæjar.
Könnunin var gerð til að kanna
hug bæjarbúa sem best og tryggja
að bæjarstjórn og íbúar verði sam-
stiga við uppbyggingu nýs miðbæj-
ar. Samkvæmt könnuninni er meiri-
hluti bæjarbúa hlynntur tillögu um
opin svæði, garða og stíga í stað
stórra einkalóða. Sama á við um bíl-
hýsi neðanjarðar, styttingu Breiðu-
mýrar og byggingu bensínsjálfsala.
Flestir eru líka á því að tillögurnar
komi til móts við óskir og þarfir íbúa
um þjónustu og uppbyggingu at-
vinnulífs.
Mjótt var á mununum þegar spurt
var um áform um menningar- og
náttúrufræðasetur ásamt ráðstefnu-
hóteli sunnan Suðurnesvegar. Þar
eru álíka margir með og á móti.
Í úrtaki könnunarinnar voru 720
íbúar á Álftanesi, 18 ára og eldri.
Svarhlutfall var 51,7%.
Styðja
„Grænan
miðbæ“
Skoðanakönnun
meðal íbúa Álftaness