Morgunblaðið - 03.12.2007, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 03.12.2007, Qupperneq 21
Morgunblaðið/Kristinn u auga Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur. er þörf þeim er víða ratar á Háskólatorginu. balsson við vígsluna. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007 21 Það er ójafnvægi í kolefn-isbúskap Jarðar og áhverju ári eykst magn kol-díoxíðs og annarra gróð- urhúsalofttegunda í andrúmsloftinu. Nú er magnið meira en það hefur nokkurn tíma verið í um 300 þúsund ára sögu mannsins sem tegundar. Geta andrúmsloftsins til að taka á móti gróðurhúsaloftteg- undum af mannavöld- um án þess að það valdi hættulegum breytingum á lofts- lagi Jarðar er tak- mörkuð. Frá iðnbylt- ingunni hefur magn koldíoxíðs í andrúms- loftinu af mannavöld- um aukist um 35%. Geta Jarðar til að binda koldíoxíð fer minnkandi og losun eykst. Ef ekki næst víðtækt al- þjóðlegt samkomulag um að breyta þessari þróun er allt útlit fyrir að uppsöfnun gróðurhúsaloftegunda í andrúmsloftinu muni valda hættu- legum breytingum á lífsskilyrðum manna á Jörðinni. Takmarka ber hitahækkun við 2 gráður Eitt mikilvægasta úrlausnarefni samtímans er að svara þeirri spurn- ingu hvernig þjóðir heims eigi að takmarka og skipta á milli sín rétt- inum til að losa gróðurhúsaloftteg- undir út í andrúmsloftið. Þetta var eitt meginviðfangsefni Kyotobók- unarinnar sem gildir fyrir tímabilið 2009 til 2012. Í því samkomulagi samþykktu liðlega 30 iðnríki efri mörk fyrir sína losun. En þessi mörk voru einungis lítið skref og leysa ekki vandann. En tíminn til að bregðast við er takmarkaður. Nú þegar hefur meðalhiti Jarðar hækk- að um liðlega hálfa gráðu og leitt hef- ur verið líkum að því að ef hitastig hækkar um meira en 2 gráður geti komið til stigmagnandi breyting í vistkerfum með afar hættulegum af- leiðinum fyrir samfélagið. Nýleg skýrsla breska hagfræðingsins Rich- ard Stern sýnir að hærra hitastigi fylgir afar mikill kostnaður fyrir samfélagið. Til að koma veg fyrir 2 gráða hitahækkun þarf að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um lið- lega 50% fyrir miðja þessa öld. Enn sem komið er vex losunin. Þannig jókst losun 40 helstu iðnríkja heims um 2,6% á árunum 2000 til 2005. Stern fullyrðir að það sé ódýrara að draga úr losun en mæta afleiðingum hlýnunar. Bandaríkjamenn hafa lengi verið stórtækastir í losun og losuðu um 7,24 milljarða tonna á árinu 2005, sem er liðlega 1/5 af heildarlosun af mannavöldum á Jörðinni það ár. Þetta nokkuð áþekkt því sem Kín- verjar losuð sama ár. Vonir eru bundnar við að ná megi víðtæku samkomulagi um aðgerðir og los- unarmörk á loftslags- ráðstefnu sem ráðgert er að halda í Kaup- mannahöfn síðla árs 2009. Ábyrg nú og í framtíðinni Iðnríkin bera ábyrgð á þeirri uppsöfnun gróð- urhúsalofttegunda sem átt hefur sér stað. En ört vaxandi losun í þró- unarlöndunum, einkum Kína og Indlandi, verður ein helsta uppspretta vaxandi gróðurhúsa- lofttegunda í andrúmsloftinu á næstu áratugum verði ekkert að gert. Þróunarríkin halda réttilega fram að núverandi ójafnvægi í kolef- nabúskap Jarðar stafi af losun í iðn- ríkjunum. Hver Bandaríkjamaður losar árlega 18 sinnum meira magn en hver Indverji. Iðnríkin benda á að þó að þau myndu draga úr losun sinni um 50 til 80% myndi það ekki leysa vandann þar sem aukning los- unar frá þróunarríkjunum yrði væntanlega enn meiri en þessu næmi. Vísað er til þess að þróun- arlöndin hafa valdið um 2/3 hlutum af vextinum undanfarin ár. Þessar andstæður, þ.e. að þau ríki sem bera ábyrgð á þróuninni fram til þess eru ekki sömu ríki og væntanlega munu losa mest í framtíðinni, gerir samn- ingaviðræður vandasamar. Samningaviðræður um hvað á að taka við af Kyotobókuninni eru hafn- ar og vonast er til að á samn- ingafundi í Balí nú í desember náist samkomulag um fyrirkomulag og markmið samningaferlis sem stefnt yrði að að ljúka á Kaupmannahafn- arráðstefnunni í árslok 2009. Eitt helsta viðfangsefni samninga- viðræðnanna verður eflaust spurn- ing um hvernig eigi að deila byrð- unum. Hvað er réttlát skipting byrða? Búast má við því að margir reyni nú að móta hugmyndir um skiptingu byrða. Nýlega birti heimspeking- urinn Peter Singer grein þar sem hann bendir á leið til lausnar sem að hans mati er bæði réttlát og einföld í framkvæmd. Í fyrsta lagi, segir Pet- er Singer, þarf að fastbinda leyfilega hámarkslosun gróðurhúsaloftteg- unda. Hann telur að miða eigi mörk- in við að hitastig af mannvöldum hækki ekki meira en sem nemur 2 gráðum. Þar næst á að deila leyfi- legu magni á samanlagðan mann- fjölda á Jörðinni. Svo skal leyfilegu magni deilt á einstök ríki í samræmi við mannfjölda þeirra. Til að auð- velda aðlögun skal heimilt að eiga viðskipti með losunarkvóta milli landa. Singer telur að við svo fyr- irkomulag búi allir Jarðarbúar við sama rétt til að losa. Hann telur þetta lausn sem þróunarlöndin muni geta sætt sig við. Hann telur einnig að iðnríkin geti sátt við unað þar sem þau hafi fjárhagslega getu til að afla sér losunarheimilda meðan á aðlög- un stendur. Tvö tonn á hvern Íslending Meðallosun í heiminum í dag af mannavöldum er um 4 tonn á ári á íbúa. Til að ná markmiðum um að koma í veg fyrir að hitastig hækki um meira en 2 gráður af mannavöld- um þyrfti að lækka það í 2 tonn á ári hægt og bítandi fram til ársins 2050, en þá er ekki tekið tillit til vaxandi mannfjölda. Miðað við 300.000 íbúa á Íslandi yrðu losunarheimildir Ís- lands um 600.000 skv. tillögu Sin- gers. Til samanburðar má benda á að losunarmörk Íslands í Kyotobók- uninni eru um 3,6 milljón tonn á ári, auk þess sem á tímabilinu 2009 til 2012 eru í gildi ákvæði um 1,6 millj- óna tonna árlega losun vegna nýrrar stóriðju. Samkvæmt athugun sem sam- tökin Landvernd létu vinna mætti með góðu móti með markvissum að- gerðum binda árlega kolefni sem svarar til um 1 milljónar tonna á ári. Þannig gæti heildarlosunarheimild Íslands orðið á grundvelli hug- myndar Singers um 1,6 milljón tonn gróðurhúsalofttegunda á ári. Það yrði óumflýjanlegt að auka orku- nýtni og notkun mengunarminni orkugjafa á Íslandi afar rösklega til þess að ná þessum markmiðum. En einnig mætti kaupa losunarkvóta til að gera aðlögunina viðráðanlegri. 100 ára mörk, magni skipt eftir getu Sænska fyrirtækið Vattenfall er stórtækt í orkuframleiðslu í Evrópu og forstjóri þess, Lars G. Josefsson, hefur verið atkvæðamikill í um- ræðunni um loftslagsbreytingar. Jo- sefsson hefur lagt fram hugmyndir um hvernig má skipta réttinum til aðgangs að andrúmsloftinu. Hann vill gera áætlun til 100 ára með það markmið að á því tímabili verði los- un gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum ekki meiri en 1.600 milljarðar tonna. Þetta telur hann vera þau mörk sem muni koma í veg fyrir hættulegar breytingar á lofts- laginu. Þessu magni á að dreifa á ár- in 100 og á löndin 180. Deila á byrð- unum á þeim grundvelli að öll lönd eigi rétt til efnahagslegrar framþró- unar. Þetta felur í sér að fátækustu þróunarlöndin þurfa ekki að draga úr losun en þau sem lengra eru kom- in í efnahagslegri framþróun taka á sig vaxandi byrðar. Samkvæmt út- reikningum Josefsson gætu iðnríkin skipulagt losunarmörkin með þeim hætti að losun nái hámarki árið 2025 en tæki svo dýfu og félli hægt og bít- andi fram til ársins 2100. Þróun- arlöndin hefðu hins vegar los- unarferli þar sem hámark losunar yrði árið 2040 en félli svo nokkuð mikið fram til ársins 2100. Bandaríkin, Indland og Kína ráði úrslitum Ýmsar aðrar hugmyndir hafa ver- ið viðraðar á undanförnum árum. En helsta forsenda þess að komast megi að einhverri niðurstöðu er afstaða Bandaríkjanna. Bandaríkin neituðu að staðfesta Kyotobókunina og und- anfarin ár hafa stjórnvöld í Wash- ington ekki léð máls á að semja um losunarmörk. En það kann að vera að sú afstaða sé að breytast. Leiðin frá Balí til Kaupmannhafnar verður löng og ströng fyrir samningamenn- ina og líklega veltur niðurstaðan mest á því hvaða afstöðu Bandarík- in, Kína og Indland taka til þeirra hugmynda um lausn sem fram kunna að koma á næstu misserum. Ekki hef ég heyrt hvaða augum þessi ríki líta þær hugmyndir sem hér hafa verið nefndar. Sanngjörn skipting andrúmsloftsins Eftir Tryggva Felixson »Eitt mikilvægastaúrlausnarefni sam- tímans er að svara þeirri spurningu hvern- ig þjóðir heims eiga að takmarka og skipta á milli sín réttinum til að losa gróðurhúsaloft- tegundir út í and- rúmsloftið. Tryggvi Felixson Höfundur er auðlindahagfræðingur og tók þátt í samningaviðræðum um Kyotobókunina á árunum 1995 til 1997. Í dag er alþjóðadagur fatlaðra.Fáum dylst að gríðarlegarumbætur hafa átt sér stað ímálefnum þeirra hér á landi undanfarinn aldarfjórðung. Fram- förum í málaflokknum má líkja við byltingu. Það á ekki einungis við um bætta þjónustu við fatlaða heldur einnig breytt hugarfar gagnvart þeim, réttindum þeirra og aðbúnaði og möguleikum á virkri þátttöku í samfélaginu. Verkefnaflutningur frá ríki til sveitarfélaga Sé horft yfir sviðið framundan ber hæst fyrirhugaðar breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfé- laga í þjónustu við fatlaða. Fyrir liggur samkomulag ríkisins og Sam- bands íslenskra sveitarfélaga um viðræður þess efnis að sveitarfélög taki í auknum mæli við verkefnum ríkisins á því sviði. Verkefnahópar starfa nú á vegum félagsmálaráðu- neytisins að því viðfangsefni og er niðurstöðu að vænta innan skamms. Verkefnið er yfirgripsmikið þar sem þjónusta við fatlað fólk nær til á þriðja þúsund einstaklinga og fjöl- skyldna þeirra. Meginatriðið er að færa þjónustuna nær notendum hennar, í heimabyggð þeirra, og samþætta hana annarri fé- lagslegri þjónustu sveitarfélaga. Mark- miðið er meðal annars að auka skilvirkni og hagkvæmni og auka áhrif notenda á til- högun þjónustunnar. Biðlistum eytt – börn í forgang Af öðrum brýnum verkefnum sem unnið er að má nefna áætlun um að eyða á næstu 24 mánuðum biðlistum eftir greiningu hjá Greiningar- og ráð- gjafarstöð ríkisins. Það er gríðarlegt átak og munu 240 börn og fjöl- skyldur þeirra njóta ávinningsins. Átakið mun flýta fyrir því að börn um land allt fái þjónustu við hæfi og tryggja þarf að þeirri auknu þjón- ustuþörf sem átakið skapar verði mætt. Tíminn er dýrmætur þegar þroskaferli barna og unglinga er annars vegar. Þetta átak mun án efa skila sér í auknum lífsgæðum barna og fjölskyldna þeirra. Öflugra öryggisnet Ég hef lagt fram á Alþingi frum- varp um breytingar á lögum um greiðslur til langveikra eða alvar- legra fatlaðra barna. Þar er mælt fyrir um endurskoðun á greiðslukerfi sem kom- ið var á fót árið 2006. Markmiðið er að tryggja betri þjónustu og aðbúnað við lang- veik börn og foreldra þeirra. Reynslan hefur sýnt að þeir lenda oft í fjárþröng þar sem tækifærin til tekjuöfl- unar takmarkast af umönnun barnanna. Ég tel þetta afar brýnt hagsmuna- mál og að í frumvarpinu felist mik- ilvæg réttarbót miðað við gildandi lög. Í framhaldinu verður unnið að því að bæta félagslega þjónustu fyrir langveik börn til samræmis við rétt fatlaðra barna. Réttindi fatlaðra tryggð Réttindagæsla fatlaðra hefur um árabil verið meðal helstu áherslu- atriða þeirra sem láta sig málefni fatlaðra varða. Þá er átt við að fatlað fólk, sem einatt á erfitt með að gæta hagsmuna sinna sjálft, njóti til þess aðstoðar. Rannsóknir benda til að fatlað fólk verði oftar en aðrir fyrir kynferðislegu ofbeldi og öðru of- beldi. Ég hef nýverið falið starfshópi að fjalla um þessi mál. Þá skal getið hins mikilvæga sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötl- un. Hann var undirritaður af Íslands hálfu 30. mars síðastliðinn. Nefnd starfar nú að því að kanna hvort lög og reglugerðir hér á landi uppfylli kröfur sáttmálans þannig að Ísland geti orðið meðal þeirra 20 þjóða heims sem fyrstar fullgilda sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Átak í búsetumálum og stoðþjónustu Áherslur félagsmálaráðuneytisins á árinu 2008 í þjónustu við þá sem búa við fötlun eru fyrst og fremst á þjónustu við fötluð börn, búsetumál og ýmiss konar stoðþjónustu eins og liðveislu og skammtímaþjónustu. Veruleg aukning verður á fram- lögum í þennan málaflokk á næsta ári enda þurfum við að gera enn bet- ur til að bæta þjónustu við fatlaða og að því er stefnt. Dagurinn í dag á erindi við okkur öll því málefni fatlaðra eru málefni samfélagsins í heild. Alþjóðadagur fatlaðra Eftir Jóhönnu Sigurðardóttur » Stefnt er að því að Ísland verði meðal þeirra 20 þjóða sem fyrstar fullgilda sáttmála Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðra. Jóhanna Sigurðardóttir Höfundur er félagsmálaráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.