Morgunblaðið - 03.12.2007, Page 25

Morgunblaðið - 03.12.2007, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007 25 Elsku mamma. Takk fyrir allt sem þú gafst okkur. Þú söngst með okkur, þú fórst að veiða með okkur, þú gerðir allt með okkur. Þú varst besta mamma í heimi. Ég, Helena, pabbi og allir sem þekktu þig eiga eftir að sakna þín rosalega því að þú varst svo góð, skemmtileg, og falleg bæði að utan sem innan og besta mamma í heimi. Ástarkveðja. Mun elska þig að eilífu. Rakel. Elsku elsku Jóhanna, ég er búin að reyna að skrifa til þín í nokkra daga, það er bara erfitt að sjá á tölvuskjá- inn þegar tárin leka stanslaust. Þetta er bara svo ótrúlegt … hvernig getur svona gerst? Ung kona í blóma lífsins tekin frá okkur. Og frá yndislegu stelpunum sínum. Þetta er ósanngjarnt. Mig langaði helst að fara út fyrir bæinn og öskra í smá- tíma þegar ég fékk þessar hrikalegu fréttir. Maður fær lífið svo beint í æð þeg- ar svona hlutir gerast. Og það er ótrúlegt hvað tíminn líð- ur hratt, við kynntumst í gegnum stelpurnar okkar litlu. Þær voru svo litlar báðar þegar þær byrjuðu á Efstahjalla á leikskólanum aðeins tveggja og hálfs, nánast jafngamlar, 20 dagar á milli þeirra, og þær gjör- samlega smullu saman eins og þetta hefði verið planað fyrir löngu. Ég man hvað fóstrurnar á Efstahjalla sögðu um þær: Þær eru eins og göm- ul hjón … hehehe, tuðandi hvor í annarri en aldrei að rífast, og alltaf ✝ Jóhanna Þor-björnsdóttir fæddist í Reykjavík 6. júlí 1965. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans 7. október síðastliðinn og var jarðsungin frá Fossvogskirkju 17. október. bestu bestu vinkonur. Og Jóhanna mín, þær munu alltaf vera vin- konur ef ég fæ því ráð- ið, og trúðu mér ég mun ráða því. Mér þykir svo rosa- lega vænt um litluna þína að mér finnst ég eiga hluta í henni. Rósa og Rakel hafa alltaf verið eins og englar saman, aldrei neitt vesen, og þegar þær eru hérna heima hjá mér saman þá búa þær yfirleitt til skemmtileg leikrit sem þær sýna yngri stelpunum mín- um við mikla lukku. Ég þekkti ekki meiri húsmóður en þig Jóhanna, ég meina, hver staujar allt í dag? Haha, jú, þú. Þú varst al- veg ótrúleg, alltaf allt hreint og fínt þegar ég kom við hjá þér að ná í Rósu, ótrúlega flott heimili. Og, já, allt straujað. Yfirleitt þegar ég kom við hjá þér þá réttirðu mér fulla poka af fötum af stelpunum þínum sem voru orðin of lítil, takk, þú veist ekki hvað þú hefur hjálpað mér mikið með öllum þessum fatnaði sem þú hefur gefið mér í gegnum árin. Ég er rosalega þakklát fyrir að leiðir okkar lágu saman í þessi sex ár. Vá, ótrúlegt hvað þetta líður hratt, stelpurnar okkar komnar í 2. bekk, alveg að verða átta ára pæjur. Elsku Jóhanna, ég skal knúsa og kyssa Rakel í bak og fyrir þegar hún er hérna hjá okkur fyrir þig, ég veit að þú hefðir viljað það. Svo er hún líka heppin að eiga góð- an pabba sem passar hana vel og góða stóra systur sem mun ekki líta af henni. Elsku Helena, það er hrikalegt að þurfa að leggja svona lagað á unga stúlku eins og þig. En þetta hefði ekki verið lagt á þig nema þú gætir það, svo ég veit að þú munt koma sterkari út úr þessari sorg og passa Rakel vel. Elsku Gaui, Helena og Rakel, ég samhryggist ykkur alveg svakalega mikið. Guð gefur ykkur styrk til að komast í gegnum þennan missi, guð þarf greinilega á Jóhönnu að halda í stærri og meiri verkefni. Hún var, jú, einstök manneskja. Elsku Jóhanna, gangi þér vel á nýjum slóðum og ég hlakka til að hitta þig aftur síðar. Saknaðar- kveðja, Katrín L. Rúnarsdóttir (Kata). Hún Jóhanna mín er farin yfir móðuna miklu. Ekki átti ég von á að fá þessar fréttir. Þessi fallega, greinda og skemmtilega stelpa sem ég kynntist fyrir mörgum árum þeg- ar við unnum saman í Landsbank- anum, í Múlaútibúi. Jóhanna var ákaflega vinsæl með- al þeirra sem unnu í bankanum og hún átti mjög gott með að kynnast fólki. Aldrei heyrði ég hana hallmæla neinum og hún tók það ákaflega nærri sér ef hún varð vör við illindi á einhvern hátt. Hver aldursmunurinn var á fólki skipti hana engu máli þeg- ar hún eignaðist vini. Jóhanna var mjög þroskuð, sérstaklega fé- lagslega, og ákaflega trygg þeim sem hún bast vinaböndum. Jóhanna talaði oft um Örnu vinkonu sína, hún var eins og daglegur hluti af lífi hennar. Ef eitthvað var í bígerð hjá Jóhönnu þá virtist Arna vinkona hennar alltaf vera með í því. Síðast þegar ég hitti Jóhönnu var hún í jólainnkaupum með elstu dótt- ur sína sem hún var svo stolt af. Og nú hef ég fengið að vita að hún hafði eignast annað barn, auk stjúpbarna, og verið í hamingjusamri sambúð undanfarin ár. Þetta er mikill missir fyrir fjölskylduna og börnin hennar svo ung að þurfa að horfa á eftir móð- ur sinni. Ég fyllist sorg þegar ég hugsa út í það. Með þessum örfáu orðum vil ég senda samúðarkveðjur til foreldra, eiginmanns og barna þótt ég þekki þau ekki. Eins til Örnu vinkonu hennar sem hún talaði svo oft um, það var ekki erfitt að skynja að hún var stór þáttur í lífi Jóhönnu. Einnig til allra sem tengdust henni á einn eða annan hátt. Farðu í friði elsku Jóhanna mín. Ég bið Guð að varðveita þig og styrkja alla þá sem stóðu að þér og eiga um sárt að binda. Megi Guð varðveita minningu þína. Kveðja, Drífa. Jóhanna Þorbjörnsdóttir Hún var mér afar kær og góð frænka. Þórunn var ein af þrem systrum föður míns, sem hún kallaði litla bróður. Hún var fjölskyldu minni mjög nærkomin og það var alltaf gott að fá hana í heimsókn. Hún var skemmti- leg og létt í lund þrátt fyrir að hún væri með erfiðan sjúkdóm. Þórunn var alltaf mjög áhugasöm að fylgjast með mínum uppvexti og gaf sér góð- an tíma með frænda sínum. Ég á margar góðar minningar með frænku. Hún fór oft með mig í leik- hús, sund og einnig í kvikmyndahús. Fyrsta kvikmyndin sem ég man eftir var E.T. sem við fórum saman að sjá í Laugarásbíó. Myndin var fyrir mig ansi stormasöm og spilaði mikið á til- finningar. Þá var ég átta ára og ég man eftir hversu gott það var að hafa trygga hönd að halda í. Einnig fékk ég oft að koma og heimsækja hana í vinnuna. Það var afar spennandi, en hún vann hjá rannsóknarlögreglunni. Þar gengum við um og hún gaf sér tíma til að sýna mér vinnustaðinn sinn.Nú eru liðin allnokkur ár síðan. Nú er ég sjálfur orðinn faðir og á þrjú börn. Þórunn hefur reynst mér, konu minni og börnum afar vel. Hún var mjög barn- góð og hafði mikinn áhuga á að fylgj- ast með börnunum mínum. Þar sem við búum nú í Noregi, voru oft sím- tölin á milli. Henni þótti afar vænt um að heyra sögur frá börnunum Þórunn J. Sigfúsdóttir ✝ Þórunn JónaSigfúsdóttir fæddist í Reykjavík 6. maí 1941. Hún lést þar 18. október síðastliðinn og var jarðsungin í kyrr- þey 30. október. okkar. Síðasta símtalið var í sömu viku og hún lést á heimili sínu. Ég hringdi til frænku til að segja henni hvernig fæðing yngsta barns- ins okkar gekk í vik- unni þar á undan. Hún var fámælt og sagðist vera ansi slöpp. En þrátt fyrir það var hún spennt að heyra hvernig hefði gengið. Ég heyrði hana hlæja þegar ég sagði henni frá því hversu langur nýfæddur strákurinn hefði verið, að fæturnir stóðu 2 cm út úr vigtinni og það þurfti að nota bók og málband til að mæla strákinn sem var 57 cm og 4665 gr. Nú er kominn tími til að hringja í frænku og segja henni frá nýjustu fréttunum. Steinar er búinn að missa tönn og Katrín er búin að senda allar snuddurnar sínar til jólabarnanna. En það er undarlegt að hugsa til þess að það er enginn á hinum endanum. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt lit og blöð niður lagði líf mannlegt endar skjótt. Ég lifi’ í Jesú nafni, í Jesú nafni’ eg dey, þó heilsa’ og líf mér hafni, hræðist ég dauðann ei. Dauði, ég óttast eigi afl þitt né valdið gilt, í Kristí krafti’ eg segi: Kom þú sæll, þá þú vilt. (Hallgrímur Pétursson.) Eyþór Sigurðsson og fjölskylda. Núna er þjáningum þínum lokið, mamma, eftir hetjulega baráttu þína í tæp 3 ár. Ég veit að nú ertu komin á einhvern af þeim fallegu stöðum sem þú talaðir um rétt áður en þú fórst. Ég hef átt erfitt með að skrifa minningargrein til þín vegna þess að mér finnst engin orð í heiminum nægilega merkileg fyrir þig, ekki vegna þess að þú mundir ekki verða ánægð, því ég veit að þú yrðir ánægð með einn koss, heldur vegna þess að mér finnst ekkert nógu merkilegt fyrir þig. Þú varst svo yndisleg mamma og svo frábær og hæfileikarík kona. Allt sem þú gerðir var svo gott og fallegt. Það er alveg sama hvert ég lít, þú ert allsstaðar. Þú skildir svo mikið eftir þig. Allir fallegu hlutirnir sem þú gafst mér voru ekki bara ómerki- legir hlutir, þeir voru svo mikið af sjálfri þér. Þú hafðir einstakt lag á að gera alla hluti í kringum þig svo skemmtilega og merkilega. Fallega hillan sem þú gafst mér í jólagjöf með öllum litlu hlutunum er mér Geirfinna Guðrún Óladóttir ✝ Geirfinna Guð-rún Óladóttir (Geira) fæddist á Akranesi 8. júlí 1958. Hún andaðist 29. október síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík 2. nóv- ember. mjög dýrmæt því hver einasti litli hlutur hef- ur sína minningu. Hringurinn sem þú smíðaðir handa mér mun fylgja mér hvert fótmál. Þú kenndir mér að allt það góða og fallega er að finna inn í manni sjálfum, þú kenndir mér að hafa trú á mér og að ég geti allt sem ég vil, þú kenndir mér að gefast ekki upp, þú kenndir mér að taka engu sem sjálfsögðu, þú kenndir mér að bera virðingu fyrir sjálfri mér og öðrum en fyrst og fremst þá kenndirðu mér að sjá allt það fallega og góða í lífinu. Þú varst alltaf að hugsa um okkur Líf og alltaf vorum við ljósin í lífi þínu eins og þú kallaðir okkur. Stuttu áður en þú lést og varst orðin mjög veik varstu samt alltaf að hugsa um okkur stelpurnar þínar þó svo að þú hefðir nóg með sjálfa þig. Þú hringdir oft í mig til að láta í ljós áhyggjur þínar um hitt og þetta hjá mér og Eiði. Þú útskýrðir allt svo fallega og útfrá hjartanu. Það eru ekki til orð sem lýsa því hve yndisleg þú varst. Tveimur dögum áður en þú lést sátum við Líf inn í herbergi hjá þér, þú varst orðin mikið veik en það var eins og þú ferðaðist aftur í fortíðina. Þú varst þá alltaf að spyrja um okk- ur Líf , en fallegast fannst mér þeg- ar þú spurðir hjúkkurnar hvort stelpurnar þínar væru sofnaðar. Ég held að þú hafir ekki viljað að við sæjum þig þegar þú mundir deyja enda tókstu síðustu andardrættina þína þegar við Líf sofnuðum á rúm- stokknum hjá þér. Elsku mamma, þú munt lifa inní hjarta mínu og Eiðs alla ævi og ég veit að þú munt fylgjast með okkur og vísa okkur veginn. Þú varst mikilvæg mann- eskja í lífi Eiðs og hann saknar þín mikið og spyr oft, oft um þig og vildi ekki sætta sig við þá staðreynd að amma væri ekki heima en nú er hann farinn að segja: ,,Uss, ekki hafa hátt, amma lúlla á himninum.“ Ég er svo þakklát að hafa fengið að njóta þín í 22 ár og mun ég hafa þig hjá mér í hjarta mínu og halda minningu þinni á lofti fyrir Eið. Eins og ég sagði alltaf þegar ég var lítil: „Mamman á þessa belbu“ (stelpu). Það mun ekkert breytast, elsku mamma. Þín stelpa, Tinna Vigdís Jónsdóttir frá Stóru-Hildisey í Austur-Landeyjum er látin, 82 ára að aldri. Ég kynntist Vigdísi ekki per- sónulega fyrr en á síðari hluta ævi hennar, eftir að hún kom á Selfoss. Hún flutti ung að heiman, og bjó mestan hluta starfsævi sinnar í Reykjavík. Alltaf vissi ég þó af Vig- dísi, mér er í barnsminni þegar hún kom í jólamessu í Krosskirkju, þegar hún var í jólafríi, hjá bróður sínum og hans fjölskyldu í Stóru-Hildisey, hvað hún var einhvern veginn öðruvísi. Hún var glæsileg kona, grönn og tígu- leg í fasi, vel snyrt og fallega klædd. Í minningunni var hún með uppsett hár og dökk á brún og brá, einhver heims- Vigdís Jónsdóttir ✝ Vigdís Jóns-dóttir fæddist í Stóru-Hildisey í Austur-Landeyjum 15. júlí 1925. Hún lést á vistheimilinu Kumbaravogi á Stokkseyri 31. okt. síðastliðinn. Vigdís var jarðsungin frá Krosskirkju í Austur-Landeyjum 10. nóvember sl. borgarabragur yfir henni. Hún var mikill Rangæingur í sér, og sérstaklega bar hún hag sinnar heimasveitar, Austur-Landeyja, og íbúanna hér fyrir brjósti. Okkar persónulegu kynni hófust þegar hún eitt sinn hringdi í mig, vegna minningargjafar, sem hún og ættmenni hennar ætluðu að gefa til Krosskirkju, sem þau og gerðu. Hún bar mikinn hlýhug til sinnar gömlu sóknarkirkju og vildi hag hennar sem mestan. Síðar gaf hún kirkjunni nýja Biblíu, sem staðsett er í Systkinahúsi. Einnig peningagjafir, sem notaðar voru til kaupa á ýmsum munum í sam- ráði við hana, m.a. krossi á altarið og nýjum dregli á kirkjugólfið o.fl. Fyrir þetta allt er þakkað hér. Vigdís var mjög trúuð kona, og ævinlega þegar hún hringdi spurði hún um heilsufar hér í sveitinni, um líðan mína og fjöl- skyldu minnar og sagðist minnast okkar í bænum sínum. Ég kveð Vigdísi með virðingu og þökk. Veri hún Guði falin. Guðrún Aradóttir. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR SVEINSSON húsasmiður, Skógargerði 7, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 24. nóvember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðju- daginn 4. desember kl. 13.00. Ásdís Aðalsteinsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Halldór Baldursson, Hermína Dóra Ólafsdóttir, Aðalsteinn Ólafsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.