Morgunblaðið - 03.12.2007, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007 27
Starf á endurskoðunar skrifstofu
Viðskiptafræðingur
/bókari
Lítil endurskoðunarskrifstofa óskar eftir að
ráða tvo starfsmenn, viðskiptafræðing og
bókara. Hlutastörf koma til greina og eins
vinna með háskólanámi. Fjölbreytt verkefni í
góðu starfsumhverfi. Gott tækifæri fyrir fólk
sem vill öðlast reynslu og færni í bókhaldi,
uppgjörsvinnu, endurskoðun og skatta-
málum.
Umsóknir, sem innihalda upplýsingar sem
máli skipta, óskast sendar á netf:
threp@threp.is
Atvinnuauglýsingar
Rizzo!
Pizzeria, Grensásvegi
Óskum eftir að ráða starfsfólk í afgreiðslu, bíl-
stjóra og vana pizzubakara. Um er að ræða
hlutastörf og 100% störf í vaktavinnu. Þarf að
geta hafið störf sem fyrst.
Uppl. í síma 661 2000, Sverrir.
Bifreiðastjóri
Ferðaþjónusta fatlaðra í Kópavogi óskar
eftir að ráða bifreiðastjóra.
Upplýsingar fást í síma 860 0761 .
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á skrif-
stofu embættisins að Hafnarstræti 1, Ísafirði, sem hér segir:
Fjarðargata 35a, 01-0101, fastanr. 212-5522, Ísafirði, þingl. eig. Bárður
Olsen, gerðarbeiðendur Ísafjarðarbær og Sjóvá-Almennar tryggingar
hf., fimmtudaginn 6. desember 2007 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
30. nóvember 2007.
Tilboð/Útboð
Lóðir & lagnir
Einn verktaki í allt verkið
Tökum að okkur verk fyrir fyrirtæki, stofnanir,
húsfélög og einstaklinga. Grunnar, dren,
skolplagnir, jarðvegsskipti, efnissala og
smágröfuleiga o.fl. Gerum föst verðtilboð.
Guðjón, s. 897 2288.
Félagslíf
MÍMIR 6007031219 III°
I.O.O.F. 19 18812038 J.v.
I.O.O.F. 10 1881238 0
HEKLA 6007120319 VI
GIMLI 6007120319 l
Margt er í minninga heimi
mun þar ljós þitt skína,
englar hjá guði þig geymi
við geymum svo minningu þína.
(Höf. ók.)
Elsku Helga, lífshlaupi þínu er nú
lokið, eftir langa og vinnusama ævi,
en fyrir níu árum fluttirðu suður til
dóttur þinnar Guðnýjar og fjölskyldu,
og áttir þú ánægjulegt ævikvöld með
fjölskyldu þinni og fylgdist vel með
langömmubörnunum, vaxa úr grasi.
Helga Kristinsdóttir
✝ Helga Krist-insdóttir fædd-
ist á Öngulsstöðum í
Eyjafjarðarsveit 10.
apríl 1918. Hún lést
á Hjúkrunarheim-
ilinu Sunnuhlíð í
Kópavogi 18. sept-
ember síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Fossvogs-
kapellu 3. október.
Það var mjög kær-
leiksríkt samband á
milli ykkar mæðgn-
anna, sem var yndis-
legt. Það var alltaf jafn
gaman að koma í heim-
sókn til ykkar. Ég
þakka þér góð kynni
og vináttu og tryggð,
alla tíð við mig og fjöl-
skyldu mína.
Hér átt þú blómsveig
bundinn af elsku
hlýrri þökk og blikandi
tárum.
Hann fölnar ei
en fagur geymist
í hjörtum allra
ástvina þinna.
Elsku vinir mínir Guðný, Gunther,
Helga, Sonia og fjölskyldur, innilegar
samúðakveðjur til ykkar allra. Bless-
uð sé minning hennar.
María G. og fjölskylda.
Eitt fegursta bæj-
arstæði á landinu þyk-
ir mér vera að Odd-
geirshólum í Flóa og
hjálpast þar að frum-
smíð náttúrunnar, klettaborgin sem
rís upp frá sléttunni miklu, sem á
upptök sín frá Hestfjalli í Gríms-
nesi.
Síðan hafa tvær síðustu kynslóðir
ábúenda byggt smekklega bæjaröð
og reisulega, að þörfum fólksins á
bæjunum og þarfar og fjölbreytileg-
ar byggingar fyrir glæsilegt búfé og
afurðasamt, í grænum túnflákanum.
Það mun hafa verið árið 1906 að
prestsdóttirin í Hruna í Hruna-
mannahreppi þurfti á nýju jarðnæði
að halda, þar sem faðir hennar hafði
ekki lengur umráð yfir prestssetr-
inu, en hún var þá nýgift unnusta
sínum, Árna Árnasyni í Hörgsholti.
Ungu hjónunum tókst ekki að fá
jarðnæði sem þeim líkaði í sveitinni,
en loks tókst þeim að fá jörðina
Oddgeirshóla í Hraungerðishreppi
til eignar og ábúðar og einmitt nú, á
þessum árum, er lokið 100 ára bar-
áttu við að gjöra þessa jörð byggi-
lega og meira en það, gera jörðina
að glæsilegu höfuðbóli með ágæt-
lega ræktuðum bústofni og góðri af-
komu og mannvænlegu fólki.
Í Oddgeirshólum var alltaf mann-
margt heimili og margt sér til gam-
ans gert og arfleifðin frá prestsetr-
inu í Hruna leyndi sér ekki. Flest
börnin voru ágætlega hagmælt og
þar urðu oft til skemmtilegir kvið-
lingar. Guðmundur átti mjög létt
með að koma með smellnar stökur í
glöðum hópi á ferðalögum og svo
var hann snillingur að segja sögur
og var mjög minnugur á marga kát-
lega viðburði.
Einn af sterkustu burðarásunum í
þessari sigurgöngu fólksins í Odd-
geirshólum hefur nú lokið sínum
þjóðnýtu störfum þar. Þetta er Guð-
mundur Árnason fæddur í Odd-
geirshólum árið 1916 og varð nú í
ágúst í sumar 91 árs og fékk þá á af-
mælisdaginn Árna son sinn til að
bjóða mér með sér í bíltúr um hag-
ana, þar sem hluti fjárstofnsins var
á beit, og þarna mátti sjá eitt mesta
ræktunarafrek sem hér hefur verið
unnið á síðastliðinni öld.
Sauðféð er núna í Oddgeirshólum
um 360 á vetrarfóðrum og telst það
nú einhver ræktaðasti fjárstofn í
landinu.
Á aðalfundi fjárræktarfélaganna
árið 1988 hlaut fjárbúið í Oddgeirs-
hólum fyrst sauðfjárbúa verðlaun
fyrir frábært kynbótastarf í sauð-
fjárrækt.
Á leið okkar sáum við kúahópinn
og blasti þar við okkur mikill rækt-
unarárangur, enda hafa Oddgeirs-
hólar hlotið tvívegis síðustu 15 árin
verðlaun fyrir besta sæðingarnautið
á landinu.
Við ókum einnig fram hjá rétt þar
sem ung hross biðu þess að verða
Guðmundur Árnason
✝ GuðmundurÁrnason fæddist
í Oddgeirshólum í
Hraungerðishreppi
27. ágúst 1916.
Hann lést 27. októ-
ber síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Hraungerðis-
kirkju 2. nóvember.
tekin í þjálfun um
kvöldið, en í Oddgeirs-
hólum hafa lengi verið
nokkrir úrvals reið-
hestar.
Árið 1949 kom ung
þýsk stúlka frá Lü-
beck að Oddgeirshól-
um, Ilse Wallman að
nafni. Guðmundur og
Ilse feldu hugi saman
og þau giftust um
haustið. Ilse hafði
eignast telpu áður en
hún fór til Íslands.
Þau Ilse og Guðmund-
ur fengu telpuna til Íslands, en hún
var þá þriggja ára og ólst upp sem
eitt af börnum þeirra. Þau eignuðust
svo þrjá efnilega syni, og tveir
þeirra eru nú bændur í Oddgeirs-
hólum og afkomendurnir eru orðnir
20, en tveir létust innan við tvítugt,
en öll voru þau dugnaðarfólk og góð-
ir Íslendingar.
Við Guðmundur í Oddgeirshólum
vorum jafnaldrar og höfum átt mjög
langt og gott samstarf og vil ég nú
að leiðarlokum færa honum innileg-
ar þakkir fyrir góða hjálp, sem hann
veitti mér, um leið vil ég færa Guð-
mundi innilegar þakkir fyrir öll hans
góðu störf í búfjárkynbótunum.
Það gleður mig þó mest að afkom-
endur Guðmundar vinna áfram af
óbiluðum áhuga í kynbótastarfinu.
Blessuð sé minningin um Guð-
mund í Oddgeirshólum.
Hjalti Gestsson.
Elsku afi, það er erfitt að hugsa til
þess að þú sért farinn. Að horfa upp
í bæ og sjá þig ekki í glugganum,
þar sem þú sast og horfðir fram í
sveit eða þegar þú sast á fjóspall-
inum. Fylgdist alltaf vel með, hvort
sem það var á bænum, næstu bæj-
um eða þjóðfélagsmál, svo ekki sé
minnst á hversu vel þú fylgdist með
okkur öllum barnabörnunum þínum.
Hafðir alltaf mikinn áhuga á því sem
við vorum að gera, skóla, vinnu,
íþróttum og fleira. Tókst aldrei
neinn framyfir annan og sýndir okk-
ur öllum mikla hlýju.
Við vorum svo heppin að fá að
alast upp á sama hlaði og þú. Geng-
um inn og út eins og okkar annað
heimili. Þú varst alla tíð mjög góður
maður og vitur. Fáir menn kunna
svo margar sögurnar, sannar eða
lognar en þú varst viskubanki, bók-
staflega. Það var alltaf hægt að fara
til þín og ræða við þig um allt milli
himins og jarðar. Hafðir alltaf eitt-
hvað um málið að segja og endaðir
oftast á einhverri sögu eða vísu
tengdri umræðuefninu. Svo komstu
alltaf þegar við vorum búin að reka
kýrnar, þá varstu á morgunrúntin-
um að skyggnast eftir tófu eða jafn-
vel tjaldshreiðri, kipptir okkur upp í
og við rúntuðum um landareignina
og sögurnar runnu upp úr þér. Oft
fórum við upp í bæ til þín og við spil-
uðum ólsen ólsen, horfðum á sjón-
varpið með þér og þú gafst okkur
mjólk og kex. Það var samt ekki það
sem var aðalatriðið heldur var það
návist þín og viska sem dró okkur til
þín. Manni leið alltaf betur eftir að
hafa verið hjá þér, ef manni leið illa
þá fór maður upp í bæ til þín, jafnvel
ekki til að ræða neitt, bara sitja og
finna friðinn, sem fylgdi þér. Við
munum alltaf minnast þessara
stunda og mikill missir er að þú sért
fallinn frá. Blessuð sé minning þín.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Þín sonarbörn,
Sandra, Árni Steinn, Kristrún
og Elín Inga Steinþórsbörn.
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
(Höf. ók.)
Látinn er góður vinur minn, Guð-
mundur Árnason, bóndi í Oddgeirs-
hólum í Flóa. Hann fæddist í Odd-
geirshólum og bjó þar alla tíð. Sonur
Elínar St. Briem og Árna Árnason-
ar. Við lát föður síns 1936 tóku þeir
bræður Guðmundur, Ólafur og Jó-
hann við búinu með móður sinni.
Faðir minn kynntist þeim bræðr-
um þegar þeir komu á vertíð til Eyja
hver á eftir öðrum og unnu við út-
gerð föðurbróður síns Kjartans
Guðmundssonar ljósm. Foreldrar
mínir báru mikinn vinarhug til Odd-
geirshólafólksins. Þaðan kom alltaf
jólahangikjötið sem fyllti húsið
dásamlegum ilmi og við pabbi feng-
um okkur smáflís á aðventunni.
Elín St. Briem var mæt og merk
kona sem varð velgjörðarmaður
minn, þegar hún fóstraði mig á sínu
góða heimili í fimm sumur eftir móð-
urmissi. Svo kær var hún að yngsta
dóttir mín ber nafn hennar.
Ég átti góða daga á Oddgeirshól-
um hjá góðu fólki. Þar var rekið
myndarlegt félagsbú, regla var á öll-
um hlutum úti og inni, allir höfðu
verk að vinna eftir getu. Þeir bræð-
ur skiptu með sér verkum, Guð-
mundur sá um ærnar sem löngu eru
landsfrægar, Ólafur um kýrnar og
Jóhann um vélar og bíla, saman
ræktuðu þeir land og bú.
Þeir leiðbeindu unglingum og
börnum sem voru á heimilinu, það
var á við góðan skóla að dvelja í
Oddgeirshólum. Oft var tekið í tafl
eða spil og ógleymanlegt er þegar
spilað var við Pál á Litlu-Reykjum.
Guðmundur var þá nýgiftur Ilse
sinni, von var á fyrsta barninu og lít-
il hnáta, Angelika, þriggja ára dóttir
Ilse, lífgaði upp á tilveruna. Guð-
mundur gekk henni í föðurstað. Þrjá
syni eignuðust Ilse og Guðmundur,
Árna, Magnús og Steinþór.
Guðmundur var laghentur og
smiður góður, hann reisti nýtt hús á
hlaðinu fyrir sitt fólk. Þar var mjög
gestkvæmt enda gott að vera gestur
þeirra hjóna. Þau áttu farsæla sam-
búð uns Ilse lést 2003. Guðmundur
Árnason var sístarfandi meðan
heilsan leyfði, var stálminnugur,
hafði yndi af lestri góðra bóka og
alls konar fróðleik í útvarpi. Hann
hafði létta lund og góða nærveru,
glampi kom í augun þegar hann tal-
aði um barnabörnin sín, ekki síst
hana Elínu litlu Steinþórsdóttur.
Hann kvaddi sáttur við Guð og
menn.
Ég og fjölskylda mín kveðjum
Guðmund Árnason með þakklæti og
virðingu og biðjum Guð að blessa
minningu hans.
Ástvinum eru sendar samúðar-
kveðjur.
Hrönn V. Hannesdóttir.
✝
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN E. HALLSSON
Brekkuhvammi 2 , Búðardal
lést á dvalarheimilinu Silfurtúni að kveldi 30.
nóvember. Jarðarförin fer fram frá Hjarðarholts-
kirkju laugardaginn 8. desember, kl.13.00.
Hallur S. Jónsson
Lóa Björk Hallsdóttir
Ingunn Þóra Hallsdóttir
Jón Eggert Hallsson
Helgi Rafn Hallsson
og barnabarnabörn
Kristín S. Sigurðardóttir
Einar Þór Einarsson
Ólafur Ingi Grettisson
Stella Kristmannsdóttir
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning