Morgunblaðið - 10.01.2008, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
SAMKOMULAG hefur náðst á
milli Gnúps fjárfestingarfélags og
stórra lánardrottna félagsins um
fjárhagslega endurskipulagningu
þess en eins og fram hefur komið í
fréttum var félagið komið í mjög
erfiða stöðu í kjölfar lækkunar á
hlutabréfamarkaði á undanförnum
vikum og mánuðum.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
Gnúpi felur endurskipulagning fé-
lagsins í sér að stór hluti eigna þess
hefur verið seldur, dregið hefur
verið úr skuldsetningu þess og
rekstur dreginn saman. Þá hefur
náðst samkomulag um að eftir-
standandi skuldir félagsins hjá við-
skiptabönkum verði endurfjár-
magnaðar og samið hefur verið um
aðrar skuldir. Í fréttatilkynning-
unni segir að aðgerðirnar hafi
„tryggt félaginu fjárhagslegan
stöðugleika til að mæta erfiðum
markaðsaðstæðum áfram“.
Ein stærsta eign Gnúps var
11,11% hlutur í FL Group en félag-
ið seldi í gær stærstan hluta þeirrar
eignar, 8,65% hlut – í tveimur
skömmtum. Annan skammtinn,
6,08% hlut í FL Group, keypti Fons
eignarhaldsfélag – félag Pálma
Haraldssonar – og er hlutur þess
félags í FL Group þar með orðinn
10,76%, samkvæmt flöggun. Fons
er þar með orðið þriðji stærsti hlut-
hafi FL Group.
Í gær voru ennfremur seldir
hlutir í Kaupþingi sem voru í eigu
Gnúps en fyrir þau viðskipti átti fé-
lagið 0,94% hlut í bankanum eftir
að hafa um tíma verið á meðal allra
stærstu hluthafa.
Umfjöllun í Berlingske
Mál þetta hefur vakið athygli ut-
an landsteinanna og er m.a. fjallað
um það hjá fréttaveitu Dow Jones í
gær, sem og á vef Berlingske Ti-
dende.
Þórður Már Jóhannesson, for-
stjóri Gnúps, vildi lítið tjá sig um
málið í gær og vísaði til tilkynn-
ingar félagsins.
„Það er ljóst að erfiðar aðstæður
á fjármálamörkuðum hafa haft mik-
il áhrif á félagið og lykileignir þess
hafa lækkað um tugi prósentna síð-
ustu mánuði, sem hefur haft mikil
áhrif á okkur, eins og aðra á mark-
aðnum,“ sagði Þórður Már.
Helstu eignir Gnúps
voru seldar í gær
Fons keypti
megnið af hlut
Gnúps í FL Group
Í HNOTSKURN
» Eigendur Gnúps eru ÞórðurMár Jóhannesson (5,6%),
Magnús Kristinsson (47,2%) og
Kristinn Björnsson og fjölskylda
(47,2%).
» Kristinn er formaður stjórn-ar félagsins en Þórður Már
forstjóri þess.
» Félagið eignaðist hlut sinn íFL Group í kjölfar átaka í
hluthafahópi Straums-Burðaráss
á sumarmánuðum 2006.
AÐALMEÐFERÐ máls Saga Capi-
tal fjárfestingabanka gegn Insol-
idum ehf., sem er í eigu Daggar
Pálsdóttur, lögmanns og varaþing-
manns Sjálfstæðisflokksins, og Páls
Ágústs Ólafssonar, sonar hennar,
fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur
í gær. Gerir Saga Capital þá kröfu í
málinu að fá félagið Insolidum af-
hent með innsetningargerð.
Kaupin fjármögnuð með láni
Insolidum tók lán hjá bankanum í
júlí á síðasta ári, til þess að kaupa
stofnfjárbréf í SPRON. Eftir hluta-
félagavæðingu SPRON hefur verð
bréfanna lækkað mjög. Stafar mál-
ið af því að bankinn gjaldfelldi lánið
og fór í innheimtu þess, þar eð eig-
endur Insolidum veittu ekki frekari
tryggingar fyrir láninu eftir að
stofnfjárbréfin fóru að falla í verði.
Við málflutninginn bar lögmaður
Insolidum því við að samningum fé-
lagsins við bankann hefði verið rift
með lögmætum hætti, enda hefðu
lög um verðbréfaviðskipti og verk-
lagsreglur Saga Capital verið brot-
in í viðskiptunum. Samningarnir
veiti ekki heimild til að ganga að
eigum félagsins.
Málsaðila greindi á um efnis-
atriði málsins, hvort komið hefði
fram í viðskiptunum hverjir væru
að selja bréfin. Tiltók verjandi In-
solidum ehf. að ekki hefði verið
upplýst hverjir væru að selja, m.a.
Sundagarðar, félag sem á hlut í
Saga Capital. Hefðu eigendur Insol-
idum vitað af þessu hefðu þeir ekki
fallist á viðskiptin. Leynd hefði
hvílt yfir verðmati SPRON og bréf-
in verið seld á of háu verði.
Lögmaður Saga Capital hélt því
einnig fram að jafnvel þótt ekki
hefði verið upplýst um þetta atriði,
ætti að fallast á kröfu Saga Capital
í málinu. Kaupin gætu ekki gengið
til baka eftir marga mánuði, þegar
bréfin hefðu fallið í verði um tugi
prósenta. Væri ekki hægt að fulln-
usta kröfu bankans í þessu máli
yrðu afleiðingar þess víðtækar,
enda hefðu téðir samningar ekki
verið frábrugðnir mörgum öðrum
samningum sem gerðir hefðu verið.
Fjárfestar segjast
beittir blekkingum
Bankinn Saga Capital gerir kröfu um
yfirráð hlutaskrár Insolidum ehf.
KRISTÍN Guð-
mundsdóttir, sem
var elsti Íslend-
ingurinn, lést á
Sólvangi í Hafn-
arfirði á þriðju-
dagskvöldið, 105
ára að aldri.
Kristín fæddist
11. maí 1902. Þur-
íður Samúelsdótt-
ir í Reykjavík,
sem fæddist 19. júní 1903, er nú elsti
Íslendingurinn, 104 ára að aldri.
Um þrír tugir Íslendinga 100 ára
og eldri eru nú á lífi. Þær Torfhildur
Torfadóttir á Ísafirði og Margrét
Hannesdóttir í Reykjavík eru báðar
103 ára. Fjórði elsti Íslendingurinn
og elsti karlmaðurinn er Sigsteinn
Pálsson í Mosfellsbæ, 102 ára.
Elsti Íslending-
urinn látinn
Kristín
Guðmundsdóttir
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„MÉR finnst þetta mjög góð tillaga,“ segir Guðný
Gerður Gunnarsdóttir borgarminjavörður, en á
fundi skipulagsráðs Reykjavíkurborgar í gær var
lögð fram tillaga Argos að breytingu á deiliskipu-
lagi Grjótaþorps vegna flutnings Gröndalshúss,
nú á lóð nr. 5B við Vesturgötu, að lóð á mótum
Fischersunds og Mjóstrætis fyrir ofan húsið þar
sem Hlaðvarpinn var áður til húsa. Skipulagsráð
samþykkti á fundi sínum að auglýsa framlagða
tillögu og upplýsa hagsmunaaðila á svæðinu sér-
staklega um tillöguna með kynningarbréfi. Málið
fer væntanlega til afgreiðslu borgarráðs í næstu
viku.
Að mati Guðnýjar er jákvætt að húsið verði
áfram í nágrenni við sinn upphaflega stað, þótt
það sé flutt. „Þessi tillaga felur í sér að húsið
verður í umhverfi þar sem það nýtur sín, enda
eru hús frá svipuðum tíma þarna hjá,“ segir
Guðný og tekur fram að hún sé sannfærð um að
Gröndalshús, sem sé bæði fallegt og sérstakt hús,
geti orðið til þess að bæta þetta umhverfi í
Grjótaþorpinu.
Húsið bæði gamalt og upprunalegt að gerð
Að sögn Guðnýjar voru í vor alls fimm væn-
legar staðsetningar í Grjótaþorpinu skoðaðar.
Segir hún menningar- og ferðamálaráð borg-
arinnar hafa komist að þeirri niðurstöðu að
ákjósanlegasti staðurinn fyrir húsið væri á fyrr-
greindu horni. Að sögn Guðnýjar verður húsið í
vörslu Minjasafnsins, en markmiðið sé að í húsinu
verði menningarstarfsemi sem tengist sögu húss-
ins og þekktasta íbúa þess, Benedikt Gröndal,
skáldi og náttúrufræðingi. Segir hún stefnt að því
að húsið verði opið fyrir almenning.
Aðspurð segir Guðný varðveislugildi Gröndals-
húss felast í því hvað það er bæði gamalt og upp-
runalegt að gerð. „Því hefur svo lítið verið breytt
og það er mjög sérstakt og sérkennilegt að bygg-
ingarlagi,“ segir Guðný og bendir á að saga húss-
ins sé mjög tengd Benedikt Gröndal þar sem
hann bjó í húsinu um árabil auk sem það hýsti
Náttúrugripasafnið, en Benedikt var vörslumað-
ur þess.
Gröndalshús verði flutt í Grjótaþorp
Borgarminjaverði
líst vel á tillöguna
Morgunblaðið/Golli
Upphafið Gröndalshús á Vesturgötu.
Í GÆRKVÖLDI var unnið við að
steypa sökkul undir þriðja og síð-
asta vegginn undir brúna, sem á að
tengja saman bílastæðin við Smára-
torg og Smáralind í Kópavogi, en
stefnt er að því að framkvæmdum
við brúna ljúki í byrjun febrúar.
Júlíus Finnsson, verkefnisstjóri
hjá Jáverki, aðalverktaka verksins,
segir að vegna steypuvinnunnar í
gærkvöldi hafi þurft að loka Fífu-
hvammsvegi við Smáralind til aust-
urs. Röskunin stóð þó ekki lengi yf-
ir því vinnan hófst um klukkan
hálfátta og tók um fjóra tíma.
Að sögn Júlíusar fóru um 120
rúmmetrar af steypu í verkið í gær-
kvöldi. Uppslátturinn hófst í fyrra-
kvöld en byrjað var að grafa strax
eftir áramót.
Framkvæmdir hafa gengið vel.
Næst verður lokið við að steypa
vegginn og síðan verður brúin lögð
ofan á til að tengja saman Smára-
torg og Smáralind.
Síðasti
sökkullinn
Morgunblaðið/Ómar
Unnið að tengingu bílastæðanna við Smáratorg og Smáralind í Kópavogi
ELDRI karlmaður slasaðist alvar-
lega í umferðarslysi við Svertings-
staði á Hrútafjarðarhálsi í gærdag.
Ók hann á jepplingi inn á þjóðveg-
inn í veg fyrir vöruflutningabíl.
Skall flutningabíllinn aftan á jepp-
linginn, sem fór út af veginum og
valt. Flutningabíllinn skemmdist
töluvert. Þyrla flutti manninn, sem
var meðvitundarlaus við aðkomu,
til Reykjavíkur. Líðan hans var
stöðug í gær og honum haldið sof-
andi í öndunarvél í nótt.
Slys á Hrúta-
fjarðarhálsi
ÞRÖSTUR Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar
Ísafjarðarbæjar, hefur ritað bæj-
aryfirvöldum bréf og krefst þess að
tæknideild grípi strax til ráðstaf-
ana vegna tíðra flóða í sjúkrahúsi
bæjarins, sem slökkvilið hefur
ítrekað þurft að eiga við. Tækni-
deildinni hafi verið kunnugt um
vandamálið árum saman, án viðeig-
andi viðbragða. Nær 14 milljóna
króna tjón varð í sjúkrahúsinu í lok
janúar 2005 og á síðasta ári flæddi
vatn fjórum sinnum inn í húsið.
Kvartar vegna
tíðra flóða