Morgunblaðið - 10.01.2008, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 43
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA lag verður allavega að vera
tilbúið fyrir mánaðamótin, við ætlum
samt að reyna að klára það svona
tveimur vikum fyrir frumsýningu
sem er 8. febrúar,“ segir Bergur
Ebbi Benediktsson, forsprakki
Sprengjuhallarinnar, en sveitin hef-
ur verið fengin til þess að sjá um tón-
list fyrir leikritið Fló á skinni hjá
Leikfélagi Akureyrar. Sveitin mun
semja eitt nýtt lag fyrir sýninguna,
auk nokkurra stefja sem munu
hljóma í sýningunni.
Aðspurður segir Bergur ekki ólík-
legt að nýja lagið verði samnefnt
sýningunni. „Við vinnum þetta með
leikstjóranum og leikhópnum, og
textinn verður að vera í samræmi við
sýninguna. Við erum með plottið,
vitum margt um persónurnar og
okkur líst rosalega vel á þetta leik-
rit,“ segir hann. „Þeim hjá leikfélag-
inu fannst okkar stíll passa vel við
leikritið, svona svolítið gáskafullur
stíll. Þannig að þau báðu okkur bara
að gera það sem við erum vanir að
gera.“
Sprengjuhöllin mun ekki koma
fram á sýningunum á Akureyri,
heldur verður um upptöku að ræða.
Hins vegar stefna þeir félagar að því
að fara norður og spila í kringum
frumsýninguna.
Hvað útgáfu varðar segir Bergur
allavega stefnt að því að gefa nýja
lagið út, með einum eða öðrum hætti.
„Það eru endalausir möguleikar í
netútgáfu í dag og lítið mál að koma
þessu lagi til dæmis út á Tónlist.is.
Svo er ekki útilokað að það komi út á
einhverri safnplötu,“ segir hann.
Fló á skinni er farsi eftir George
Feydeau í nýrri leikgerð Gísla Rún-
ars Jónssonar, en leikstjóri er María
Sigurðardóttir. Miðasala hófst í gær
og seldust þá hátt í 3000 miðar. Upp-
selt er því á fyrstu fimmtán sýning-
arnar sem er met hjá leikfélaginu.
Keyra yfir Dani
Annars er það að frétta af
Sprengjuhöllinni að hún mun halda
út fyrir landsteinana og keyra yfir
Danmörku í byrjun mars. „Við mun-
um spila í Kaupmannahöfn 1. mars,
það er Vestnorræna félagið sem
stendur fyrir því,“ segir Bergur.
„Eins og félagi minn sagði, þetta er
svona félag sem er starfrækt til þess
að Danir geti fylgst með því sem er
að gerast í gömlu nýlendunum,“ seg-
ir hann og hlær.
„En tónleikarnir verða annars í
sama húsi og sendiráðið á Norður-
bryggju. Þetta verður örugglega
svolítið flott.“
Miðasala á tónleikana er þegar
hafin og nánari upplýsingar má finna
á www.bryggen.dk, undir liðnum
„program“.
Morgunblaðið/Sverrir
Sprengjó „Þeim hjá leikfélaginu fannst okkar stíll passa vel við leikritið, svona svolítið gáskafullur stíll.“
Enn einn slagari frá
Sprengjuhöllinni?
Farsi Fló á skinni verður frumsýnt
fyrir norðan hinn 8. febrúar.
Semja tónlist fyrir
Fló á skinni hjá
Leikfélagi
Akureyrar
DÍVUSTÆLANA vantar ekki í söng-
dívuna Mariuh Carey.
Carey lýsti því nýlega yfir að hún
vildi frekar koma fram með svíni en
syngja dúett með Jennifer Lopez.
Sá orðrómur hefur gengið að Carey
og hin þungaða J.Lo ætluðu að koma
fram saman. En Carey sló á þann róm
með því að segja í sjónvarpsþættinum
Inside Hollywood: „Ég myndi frekar
kjósa að koma fram með svíni. Dúett
með mér og Jennifer Lopez mun aldr-
ei eiga sér stað.“
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
slær í brýnu milli söngkvennanna
tveggja.
Vill svín
frekar en J.Lo
Jennifer Lopez Mariah Carey
- kemur þér við
Erfitt að vera edrú
á Hrauninu
Paris Hilton drakk
íslenskt vatn í
steininum
Fátæktargildra í
skattatillögum ASÍ?
Gagnrýnandi
velferðarkerfisins fær
tækifæri til að breyta
Rýnt í heimilisbókhald
í Sparibauknum
Bílastæði verslunar-
miðstöðva slysagildra
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
FASTEIGNAMI‹STÖ‹IN
Stofnsett 1958
jardir.is 550 3000
Magnús Leópoldsson, lögg. fasteignasali