Morgunblaðið - 10.02.2008, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 10.02.2008, Qupperneq 56
56 SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Yvonne Tix ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS ÁRNASONAR, Laugarbrekku 3, Húsavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki öldrunar- deildar Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Sigurgeir Jónsson, Guðrún Óskarsdóttir, Björg Jónsdóttir, Pálmi Pálmason, Guðmundur A. Jónsson, Sigríður Ingvarsdóttir, Ásdís Jónsdóttir, Sigurgeir Á. Stefánsson og fjölskyldur. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRUNNAR BJARNEYJAR GARÐARSDÓTTUR, Stigahlíð 30, Reykjavík. Garðar Halldórsson, Inga Jónsdóttir, Kristín Jóna Halldórsdóttir, Anna Þórunn Halldórsdóttir, Ágúst Þorsteinsson, Helgi Þór Helgason, Guðbjörg Hanna Gyl- fadóttir, Hanna Ragnheiður Helgadóttir, Steffen Simbold, barnabörn og langömmubörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og stuðning við andlát og útför elskulegs föður og fósturföður okkar, BJARNA JÓNSSONAR, listamanns og kennara, Ægisíðu 101. Halldór Bjarnason, Jón Haukur Bjarnason, Lúðvík Bjarnason, Guðrún V. Bjarnadóttir, Erna Svala Ragnarsdóttir og fjölskylda. ✝ Hjartans þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð við andlát og útför elskulegs föður míns, sonar, fóstursonar, barnabarns, bróður og mágs, ÞÓRIS ARNAR ÞÓRISSONAR. Hrefna Mjöll Þórisdóttir, Kolbrún Bjarnadóttir, Guðmundur Símon Guðleifsson, Kristín Jónasdóttir, Kristján Hrafn Guðmundsson, Heiðrún Grétarsdóttir, Helena Guðrún Guðmundsdóttir,Þorsteinn Pétur Hlífarsson, Sæmundur Rúnar Þórisson, Arna Vignisdóttir, Jóhann Þórisson, Elsa Soffía Jónsdóttir, Steinar Þór Þórisson, Marina Quintanilha Mendonca, Hugrún Hrönn Þórisdóttir, Þórarinn Friðjón Þorleifsson, Guðrún J. M. Þórisdóttir, Gylfi Þór Þorsteinsson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGURÁSTA GUÐNADÓTTIR, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 11. febrúar og hefst athöfnin kl. 11.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Minningarsjóð Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar. Guðni G. Sigurðsson, Þóra Hallgrímsson, Benedikt G. Sigurðsson, Áslaug Þorleifsdóttir, Ingibergur Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Minningarathöfn um hjónin STEFAN OG OLLU STEFANSON, Gimli, Nýja Íslandi, verður haldin í Bústaðakirkju miðvikudaginn 13. febrúar kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast þeirra er bent á reikning í Landsbanka Íslands nr. 0116-05-070754, kenni- tala 610174-2059, og renna framlögin til Íslenska landnemasafnsins í Gimli samkvæmt beiðni ættingja. Þjóðræknisfélag Íslendinga ✝ Þökkum innilega auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför okkar einlægu sam- býliskonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, RAGNHILDAR STEINUNNAR HALLDÓRSDÓTTUR, STELLU, Reyrengi 31, áður Gautaborg. Sonny Andersson, Sæmundur Steinar Sæmundsson, Halldóra Lára Svavarsdóttir, Hjálmar Kristjánsson, Jökull Svavarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Mín fyrstu kynni af Unni voru um það leyti sem þau Sveinn bróðir minn og Unnur bjuggu á Flyðru- granda, hann á 3. hæð og hún á 4. hæð. Hann hafði boðið henni í bíó og hitt þar á réttan streng, þau felldu hugi saman. Það þóttu mér góð tíð- indi. Fyrr en varði höfðu þau byggt sér hús í Hraunási og flutt í Garða- bæinn. Mér varð fljótt ljóst að Sveinn Unnur Fadila Vilhelmsdóttir ✝ Unnur FadilaVilhelmsdóttir píanóleikari fæddist í Leipzig í Þýska- landi 22. janúar 1962. Hún andaðist á líknardeild Land- spítalans 27. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Bústaðakirkju 7. febrúar. hafði fundið sér yndis- lega konu, lífsglaða og hæfileikaríka. Það sást vel í öllu sem hún tók sér fyrir hendur hve dugleg hún var. Tónleikar sem hún hélt fyrir fjölskylduna í Hraunási síðasta haust eru mér ofarlega í huga, hún spilaði af slíkri innlifun að það er ógleymanlegt og ekki voru veitingarnar síðri. Í baráttu sinni við ill- vígan sjúkdóm var hún jákvæð, æðrulaus og ótrúlega þrótt- mikil, fór erinda sinna hjólandi til Reykjavíkur, ef þannig lá á henni. Unnur og Sveinn nutu vel áhugamála sinna saman, þau voru dugleg að ferðast bæði um Ísland og erlenda grund. Ég er þakklátur fyrir þær stundir sem við áttum saman, jafnt við árbakka í sumarblíðu sem í skíða- brekkum um vetur. Unnar er minnst með djúpum söknuði. Blessuð sé minning hennar. Jón Benediktsson. Kæra Unnur, frænka og vinkona, fyrstu minningar mínar um þig eru þegar þú komst til okkar í sveitina, Kaupang, til sumardvalar. Þú kennd- ir okkur alla leikskólaleikina og varst óþreytandi í sandkassanum. Á ung- lingsárum sástu um matreiðsluna í nokkra daga og varst alltaf með hrís- grjónarétti með eggjum og grænmeti sem féll misjafnlega í kramið hjá karl- peningnum. Þá fékk ég að heimsækja ykkur í Ljósheima 12. Móðir þín hélt upp á átta ára afmælið mitt. Það er ógleym- anlegt því þetta var fínasta veisla með öllum frændunum og frænkunum í Reykjavík. Ég fékk þó nokkurn pen- ing í afmælisgjöf og gat keypt mér rauða leðurskólatösku sem ég átti í mörg ár og var mjög ánægð með. Leiðir okkar lágu aftur saman í Reykjavík þegar við vorum báðar búnar að eiga drengina okkar. Geng- um saman með þá í barnavögnum í Smáíbúðahverfinu og spáðum í hvað þeir ættu að heita. Þeir heita að sjálf- sögðu ágætum nöfnum, Eðvarð Þór og Gunnar Már. Svo skildi leiðir og við höfum lítið sést undanfarin ár. Hringurinn. Þið Gunnar Már kom- uð í heimsókn til mín í Vættagilið á leið ykkar í kringum landið á nýja Audiinum þínum. Það var gaman og við héldum ágætis grillveislu. Þú heimsóttir foreldra mína í Kaupangi og rifjaðir upp dvöl þína þar. Því miður komst ég ekki í brúð- kaupið ykkar Sveins. Nú ertu farin frá okkur svo alltof fljótt. Við munum aldrei gleyma lífs- gleði þinni og baráttuanda. Hlátur þinn hjómaði svo fallega og gat hrifið mann með sér. Píanóið fylgdi þér frá unga aldri. Þá varstu ötul við að baka. Spáðir mikið í heilsuna og hjólaðir í tónlistarskólann í Kópavogi þegar þú bjóst á Nesinu. Kær kveðja, Vala í sveitinni, Valgerður Kristjánsdóttir. Þegar ég frétti að Unnur væri dáin, þá trúði ég ekki mínum eigin augum. Ég hafði vitað að hún var veik, en að þessi lífsglaða manneskja gæti dáið fannst mér einhvern veginn útilokað. Þetta er þó hinn kaldi veruleiki. Eftir sitjum við sem þekktum Unni sorg- mædd og fátækari en við vorum áður. Við höfðum að vísu ekki mikið sam- band síðustu árin en þeim mun meira þegar við vorum skólasystur í Tónlist- arskólanum í Reykjavík. Fyrst vorum við saman í ýmsum tónfræðigreinum. Ég var dálítill græningi utan af landi og talsvert yngri en Unnur, en við náðum engu að síður mjög vel saman og höfðum góðan stuðning hvor af annari í ýmsum fögum. Síðan hófum við báðar nám á sama tíma í píanó- kennaradeild skólans. Við vorum ein- ungis þrjár í „bekknum“ og því varð samband okkar talsvert náið og átt- um við þarna þrjú ógleymanleg ár í skemmtilegu námi og hjá góðum kennurum. Unnur var alltaf kát og hress og til í prakkarastrik ef því var að skipta. Það er góður eiginleiki sem fleiri mættu hafa, tala nú ekki um í listgreinum þar sem okkur hættir til að taka okkur of hátíðlega. Eftir nám- ið skildust leiðir okkar, ég fór til Nor- egs og hún til Bandaríkjanna. Mér fannst við hafa allan heimsins tíma til að hittast og rifja upp gömul kynni og búa til ný, en þannig varð það því mið- ur ekki. Mig langar til að senda Gunnari Má og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur með ljóðinu Glerlist eftir Gylfa Gröndal. Kristalshljómur hreinn eins og næturdögg á nýju grasi. Gleymum þó ekki: Gler brýtur sá er syngur hæst. Andinn ofar efninu ljóð og tónar. Jónína Erna Arnardóttir píanóleikari. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og systir mín, JÓHANNA ELÍN ÁRNADÓTTIR, Furugrund 30, Kópavogi lést mánudaginn 4. febrúar á líknardeild Landspítalans Landakoti. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 13.febrúar kl 13.00. Einar Jónsson, Bjarni Bergmann Sveinsson, Þorbjörg Kristvinsdóttir, Úndína Bergmann Sveinsdóttir, Björn Brynjólfsson, Ásmundur Bergmann Sveinsson, Hallveig Finnbogadóttir, Árni Bergmann Sveinsson, Sigríður Ólafsdóttir, Rúnar Bergmann Sveinsson, Jón Þór Bergmann Sveinsson, Steinhildur Hjaltested, Róslind Bergmann Bordal, Dag Bordal, Sigrún Friðgeirsdóttir, Logi Úlfljótsson, Haukur Örn Björnsson, Sigrid E. Guðmundsdóttir, Úndína Árnadóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.