Morgunblaðið - 10.02.2008, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2008 61
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Félagsmiðstöðin er opin virka daga kl. 9-
16.45.
Bústaðakirkja | Kvenfélag Bústaðasóknar heldur aðalfund
næstkomandi mánudag, 11. feb. kl. 20. í safnaðarheimilinu,
venjuleg aðalfundarstörf, súpa og brauð.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan í Gullsmára 9 er
opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 10-11.30, s. 554-1226.
Skrifstofan í Gjábakka er opin á miðvikudögum kl. 15-16, s.
554-3438. Félagsvist í Gullsmára á mánud. kl. 20.30, í Gjá-
bakka á miðvikud. kl. 13 og á föstud. kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur sunnudagskvöld
kl. 20, Caprí tríó leikur fyrir dansi. Dansleikurinn verður tekinn
upp á myndband
Félagsstarf Gerðubergs | Breiðholtshátíð, menningar og
listahátíð eldri borgara, kl. 11, messa í Fella- og Hólakirkju,
Gerðubergskórinn syngur, stjórn. Kári Friðriks, kl. 11, messa í
Breiðholtskirkju, Senjórítukórinn syngur stjórn. Ágota Joó, kl.
14, messa í Seljakirkju sönghópur frá Árskógum annast söng.
Hraunsel | Athygli skal vakin á að lokadagur skráningar á
Sæludaga á Örkinni 9-14. mars, er 12. febrúar, skráning er í
Hraunseli, nefndin.
Hæðargarður 31 | Fjölbreytt dagskrá. alla daga. Dæmi: skap-
andi skrif, Bör Börsson í Baðstofunni, bridge, framsögn og
upplestur, spjallhópurinn „Þegar amma var ung“, bókmennta-
hópur í Betri stofunni, söngur, línudans, söngur og Listasmiðj-
an opin alla daga! Málverkasýningu Stefáns Bjarnasonsr er að
ljúka. S. 568-3132
Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthúsinu á mánu- og mið-
vikudögum kl. 9.30. Hringdansar í Kópavogsskóla á þriðjudög-
um kl. 14.20. Ringó í Smáranum á miðvikudögum kl. 12 og í
Snælandsskóla á laugardögum kl. 9.30. Línudans í Húnabúð,
Skeifunni 11, Rv. kl. 17. Uppl. í símum 564-1490 og 554-2780.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er ganga frá Egilshöll kl. 10.
Vesturgata 7 | Þeir sem eiga pantaða miða á þorrablótið
fimmtud. 14. feb. eru vinsamlegast beðnir um að nálgast mið-
ana í síðasta lagi þriðjud. 12. feb. Upplýsingar í síma 5352740
Kirkjustarf
Bústaðakirkja | Farið verður í heimsókn til eldri borgara í
kirkjunni á Akranesi 13. feb. Lagt verður af stað frá Bústaða-
kirkju kl. 12.30 og er áætluð heimkoma um kl. 17. Skráning er
hjá kirkjuvörðunum í síma 553-8500.
Fríkirkjan Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11, kennsla, söngur, leikir
fyrir krakka, almenn samkoma kl. 14, þar sem Hreimur H.
Garðarsson prédikar, á samkomunni verður lofgjörð, barna-
starf og fyrirbænir í lokinn verður kaffi og samfélag.
Grensáskirkja | Tómasarmessa kl. 20. Tónlist einkennir
messuformið, predikunin er stutt og tími fyrir fyrirbænir.
Laugarneskirkja | Athugið að fundur Harðjaxlanna (7. bekkur)
flyst yfir á kvöldið í kvöld, þar sem þau munu selja vöfflur til
styrktar starfi sínu að lokinni kvöldmessu kl. 20, við messuna
mun Freyja Haraldsdóttir tala.
Óháði söfnuðurinn | Guðsþjónusta kl. 14, prestur séra María
Ágústsdóttir. Elías og Hildur sjá um barnastarfið á sama tíma
og eru öll börn velkomin með foreldrum/forráðamönnum sín-
um. Maul eftir messu
dagbók
Í dag er sunnudagur 10. febrúar, 41. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.)
Mímir-símenntun býður síð-ar í mánuðinum upp ánámskeiðið Evrópa ábreytingaskeiði –Fé-
lagslegar og pólítískar breytingar í
Evrópu á 20. öld.
Kennsla hefst 13. febrúar og verður
kennt fjóra miðvikudaga. Kennari á
námskeiðinu er dr Þorleifur Frið-
riksson.: „Á námskeiðinu gef ég al-
mennt yfirlit um evrópska sögu á 20.
öld, og dreg einnig fram þau miklu
áhrif sem samtök alþýðufólks höfðu á
þá þróun sem varð á öldinni,“ segir
Þorleifur, en hann er með doktorspróf
í sagnfræði frá Háskólanum í Lundi
og hefur stundað umfangsmiklar rann-
sóknir á sögu verkalýðshreyfing-
arinnar.
„Mjög stutt er síðan venjulegt fólk
gat leyft sér að hafa skoðanir um
gangverk samfélagsins, hvað þá að
fylgja þeim eftir og stilla gangverkið
af. Oft vill þetta gleymast í umræðum
um fall hins svokallaða „komm-
únisma“, – að það voru samtök alþýðu
sem bæði skópu draumahöllina og
brutu hana niður. Þáttur pólsku
verkalýðssamtakanna Samstöðu var
þar gríðarlega mikilvægur,“ útskýrir
Þorleifur, en í framhaldi af námskeið-
inu verður boðið upp á söguferð til
Póllands þar sem m.a. verða heimsótt-
ar aðalstöðvar Samstöðu í Gdansk, og
Úlfagrenið þaðan sem Hitler stýrði
lengi vel stríðinu á austurvígstöðv-
unum.
Á fyrsta degi námskeiðsins verður
fjallað um tímabilið 1900-1920, alda-
mótabjartsýni, spennu, þjóðernis-
hyggju og alþjóðahyggju. Á öðrum
kennsludegi er sjónum beint að ár-
unum 1920-1945, bandalagi þjóða og
þjóðernishreinsunum, og á þriðja degi
fjallar Þorleifur um kalt stríð og vel-
ferðarstjórnmál tímabilsins 1945-1980.
„Síðasta námskeiðið spannar tímabilið
frá 1980 til 2000, og skoðar m.a. hrun
kommúnismans, áhrif verkalýðshreyf-
ingarinnar á breytingaferli aldarinnar,
og hina íslensku þjóðarsátt,“ segir
Þorleifur.
Námskeiðið er öllum opið og að-
gengilegt. Kennsla verður í formi fyr-
irlestra og umræðna, og vísað til val-
inna bóka og greina til lestrar.
Heimasíma Mímis-símenntunar er á
slóðinni www.mimir.is og er þar að
finna upplýsingar um námskeiðið.
Námskeið | Fjallað um sögu Evrópu á 20. öld og áhrif verkalýðshreyfinga
Draumar, átök og breytingar
Þorleifur Frið-
riksson fæddist í
Reykjavík 1952.
Hann lauk kenn-
araprófi frá KÍ
1973 og stúdents-
prófi frá sama
skóla ári síðar.
Hann stundaði
nám í sagnfræði
við HÍ, lauk fil.cand.-prófi frá Háskól-
anum í Lundi 1978 og doktorsprófi í
sagnfræði 1990. Þorleifur hefur starf-
að við kennslu, fræðastörf, leiðsögn
um söguslóðir og útvarpsþáttagerð.
Eiginkona Þorleifs er Þóra Birna
Björnsdóttir innanhússarkitekt og
eiga þau tvo syni.
Tónlist
Barinn | Til minningar um að tvö
ár eru liðin frá andláti meistara
Dilla (Jay Dee) mun DJ Flip
ásamt Introbeats og DJ Acer
spila lög eftir snillinginn, frítt inn.
Barinn – Laugavegi 22 kl. 22. Sjá
nánar á www.hiphop.is
Kvikmyndir
MÍR-salurinn | Alexander
Névský, hin fræga kvikmynd snill-
ingsins Sergeis Eisenstein frá
1938 verður sýnd í MÍR-salnum
Hverfisgötu 105 í dag kl. 15. Í
myndinni segir frá Alexander
fursta af Novgorod sem stjórnaði
herjum Rússa er þeir hrundu inn-
rásum erlendra hersveita í lönd
þeirra á 13. öld. Aðgangur er
ókeypis
Fyrirlestrar og fundir
Bókasafn Kópavogs | Röð erinda
um ástina hefst 14. feb. kl. 17.15.
Alls eru erindin 5, um 1 klst. í
hvert sinn, vikulega til 13. mars.
Sólveig Anna Bóasdóttir, Guð-
finna Eydal, Þorgrímur Þráins-
son, Katrín Jónsdóttir og Óttar
Guðmundsson ræða hvert sitt
sjónarhorn. Ókeypis aðgangur.
KÍNVERSKIR ofurhugar sýndu aflraunir og ýmsar þrautir á hátíðarhöldum í borginni
Xiangfan í Kína í gær, en þá hófst ár rottunnar þar í landi.
Veisluhöld standa yfir í marga daga og fara ekki aðeins fram í Kína, því um 35 milljónir
Kínverja búa víða um lönd og halda upp á daginn fjarri heimahögum. Þeir sem koma því
við ferðast þó um langan veg til þess að vera í faðmi fjölskyldunnar yfir hátíðina.
Þrautin þyngri
ReutersSÚ breyting hefur verið
gerð á skráningu í Stað og
stund að nú birtist skrán-
ingin á netinu um leið og
skrásetjari staðfestir hana.
Skrásetjari getur nýtt sér
þann möguleika að nota
leiðréttingaforritið Púkann
til að lesa yfir textann og
gera nauðsynlegar breyt-
ingar.
FRÉTTIR
MEÐ tilkomu nýrra langdrægra GSM-senda er GSM-þjón-
ustusvæði Vodafone orðið það stærsta á Íslandi, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu. Þar með er viðskiptavinum Vodafone
tryggt talsamband allt að 100 kílómetra á haf út og á hálendinu.
„Alls verða um 50 langdrægir GSM-sendar settir upp víðs vegar
á landinu, en nú þegar eru um 10 komnir í notkun. Ráðgert er að
uppsetningu sendanna ljúki að fullu á fyrri hluta ársins og GSM-
samband verði þá komið á stærstan hluta hálendisins og á hafinu
umhverfis landið.
Langdræga kerfið er hrein viðbót við núverandi GSM-kerfi og
bylting í öryggismálum fyrir marga sjófarendur og ferðalanga á
hálendinu. Með uppsetningu skapast tækifæri fyrir fólk til að nota
GSM-símann sinn miklu víðar en hingað til og ekki þarf að skipta
um símtæki þegar farið er út á sjó eða upp á hálendi. Enginn auka-
kostnaður fellur á símnotandann við notkun á hinu nýja langdræga
kerfi, því sama gjaldskrá gildir fyrir símtöl í langdræga GSM-
kerfinu og því hefðbundna.
Til viðbótar við þessa uppbyggingu hefur Fjarskiptasjóður sam-
ið við Vodafone, fyrir hönd íslenska ríkisins, um að fyrirtækið taki
að sér uppbyggingu á GSM-þjónustu á völdum svæðum á landinu
þar sem markaðslegar forsendur standa ekki undir rekstri slíkrar
þjónustu. Alls er um að ræða 32 svæði, sem flest eru á Vestfjörðum
og Norðausturlandi. Stefnt er að því að ljúka því verkefni á árinu,“
segir í tilkynningunni.
GSM-þjónustusvæði
Vodafone stækkað
EINAR Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, og Sigurgeir Þorgeirsson ráðuneytisstjóri voru í vikunni
viðstaddir uppboð á minkaskinnum hjá uppboðshúsinu Kopen-
hagen Fur í Dan-
mörku sem þótti tak-
ast vel, að því er
fram kemur í frétta-
tilkynningu frá sjáv-
arútvegs- og land-
búnaðarráðuneyt-
inu. Margar gerðir
skinna voru að venju
til sölu en minka-
skinn eru lang-
stærsti hlutinn. „Að
þessu sinni voru 3,4
milljónir minka-
skinna boðnar upp,
þar af tæplega tíu
þúsund íslensk. Mjög
gott verð fékkst fyrir skinnin, eða 261 dönsk króna að meðaltali,
sem svarar til 3.393 ísl. kr. Þetta er um 30% hærra verð en á síðasta
uppboði Kopenhagen Fur sem haldið var í desember síðast-
liðnum,“ segir í tilkynningu.
Hækkunin mun hafa komið mönnum ánægjulega á óvart og að
sögn er skýringarinnar að leita í miklum kuldum í Rússlandi, Kína
og á fleiri mikilvægum skinnamörkuðum.
Ráðherra átti fund með Torben Nielsen, framkvæmdastjóra
uppboðshússins, og kom þar fram að sú mikla aukning sem sögð
hefur verið á skinnaframleiðslu Kínverja væri orðum aukin. Því
væri minni ástæða til að óttast þá miklu samkeppni sem talin var
yfirvofandi.
Haft er eftir Einari Einarssyni, loðdýraræktarráðunauti Bænda-
samtaka Íslands, að afrakstur Íslendinga á uppboðinu gæfi tilefni
til að ætla að íslensku skinnin væru ívið betri en verið hefði.
Góð sala á minka-
skinnum í Danmörku
Á uppboðinu F.v. Sigurgeir Þorgeirsson,
Einar K. Guðfinnsson og Torben Nielsen.
LJÓSMYNDASÝNINGIN Útkall 2007 var opnuð á föstudag í
Kringlunni af Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra. Í fréttatilkynningu
segir að sýningin sé haldin í tengslum við „1-1-2“-daginn 11. febr-
úar nk. Stefán sagði í opnunarávarpi sínu að sýningin væri haldin
til þess að minna á verkefni og mikilvægi þeirra fjölmörgu við-
bragðsaðila sem störfuðu í landinu og raunar væri einkar viðeig-
andi að opna þessa sýningu þennan dag, þegar þúsundir viðbragðs-
aðila um allt land væru að búa sig undir dýpstu lægð vetrarins.
Myndirnar á sýningunni eru ríflega 20 talsins og sýna lögreglu,
slökkvilið, björgunarsveitir og fleiri viðbragðsaðila að störfum við
ýmsar aðstæður, frá miðborg Reykjavíkur til Svínafellsjökuls.
Ljósmyndarar frá Morgunblaðinu, Fréttablaðinu, Víkurfréttum og
Austurglugganum ásamt fleiri miðlum eiga myndir á sýningunni
og þakkaði Stefán þeim sérstaklega þeirra framlag. Gerði hann
öflugt og gott samstarf viðbragðsaðila og fjölmiðla að umtalsefni
og sagði hlut fjölmiðla mikilvægan frá ýmsum sjónarhornum, segir
í tilkynningu.
Sýningin stendur til 18. febrúar nk.
Árvakur/Júlíus
Ljósmyndasýningin
Útkall opnuð