Morgunblaðið - 02.03.2008, Side 6
6 SUNNUDAGUR 2. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Í
pistli mínum fyrir viku rifjaði
ég upp hendingar úr gamalli
revíu, sem mig rámaði í, en
sló þann varnagla sem betur
fer, að mér þætti ósennilegt,
að ég færi rétt með. Og það kom á
daginn. Það hafði verið Árni
Tryggvason leikari, sem fór með
textann, en ekki Alfreð Andrésson.
Tilefnið var sagan um lamaða mann-
inn, sem Jesús læknaði og sagði við:
„Statt upp, tak sæng þína og gakk.“
En Árni hafði verið ráðinn til þess af
eigendum Bláu stjörnunnar, Alfreð,
Haraldi Á. Sigurðssyni og Indriða
Waage, að fara með kveðskap eftir
Tómas Guðmundsson. Þetta hefur
verið einhvern tíma á árunum eftir
stríðið, en á þessum tíma kom Tómas
að því að skrifa revíur með þeim fé-
lögum og eflaust fleirum. Árna þótti
kveðskapurinn frekar klúr, svo að
Tómas kom til hans viku síðar með
tvö atómljóð, og hér er annað þeirra
eins og Árni man það best. En á
þessum árum skemmtu menn sér við
hvers konar skopstælingar, eins og
menn geta séð með því að fletta
Speglinum, þar sem m.a. Sveinn
Bergsveinsson leikur sér að text-
anum í Tímanum og vatninu, sem
mér er sagt að Steini Steinarr hafi
ekki verið vel við.
Fyrir eitthvað um tvö þúsund árum mælti ein-
hver maður við einhverja konu sirka þetta:
„Tak sæng þína og gakk“
og konan tók sængina sína og sagði „takk“.
Og árin runnu,
ár og árhundruð runnu
eins og tíeyringur í gegnum götóttan vasa á
gamalli brók,
og konan sem tók sængina og sængin sem kon-
an tók
eru hvorttveggja horfin
í aldanna öskutunnu.
Og í dag mælti allt annar maður við allt annan
mann sirka þetta:
„Tak sæng þína og gakk því hér læt ég loka!“
En ég plataði svínið, ég svaf í poka.
Það sem gefur þessum texta gildi
og gerir hann lifandi og skemmti-
legan er tilvitnunin í orð Krists, sem
allir kunna, – brosa kannski að, en
minnast þess þó um leið, að þau hafa
dýpri skírskotun en í fyrstu virðist.
Og hér er ég kominn að því, sem ger-
ir biblíuna einstaka, svo að henni
verður einungis jafnað til Íslend-
ingasagnanna. Í texta hennar úir og
grúir af orðasamböndum, orða-
tiltækjum og málsháttum, sem eru á
hvers manns vörum, eins og hin
gagnmerka bók Jóns G. Friðjóns-
sonar prófessors, Rætur málsins, er
skýrasti votturinn um. Um leið og
farið er að hrófla við þessum tals-
háttum dregur það úr áhrifum bibl-
íunnar. Orð heilagrar ritningar verða
ekki lengur trúverðug, ef þau missa
þann enduróm í brjóstum manna,
sem trúarrit verður að hafa.
P.S.
Í pistli mínum fyrir viku sagði ég,
að ég þekkti ekki orðasambandið „að
leggja net til fiskjar“, sem virðist
hafa misskilist, þótt skrítið sé. Auð-
PISTILL » Orð heilagrar ritningar
verða ekki lengur trú-
verðug, ef þau missa þann
enduróm í brjóstum
manna, sem trúarrit verð-
ur að hafa.
Halldór
Blöndal
„Statt upp, tak sæng þína og gakk“
vitað var ég að finna að viðbótinni
„til fiskjar“ í nýju biblíuþýðingunni,
sem er málskemmandi. Aldrei er tal-
að um að renna færi til fiskjar (fisk-
veiða) og enginn leggur línu til fiskj-
ar. Þetta er sorglegt dæmi um þá
tilhneigingu að eyðileggja myndir og
gróin hugtök með útskýringum.
Hljóðpistlar Morgunblaðsins,
Halldór Blöndal les pistilinn
HLJÓÐVARP mbl.is
SLÁTURFÉLAG Suðurlands hefur
hækkað verð á nautgripakjöti til
bænda og er þetta fyrsta verðbreyt-
ing á nautgripakjöti í rúmt ár, sam-
kvæmt frétt á vef Landssambands
kúabænda.
Verðbreytingar eru misjafnar
milli flokka, þær mestu eru um 10
krónur á kíló kjöts en sumir flokkar
hækka þó ekkert.
Verðhækkun
til bænda
NÝR forstjóri
tekur við hjá bif-
reiðaumboðinu
B&L 10. mars
næstkomandi.
Erna Gísladóttir
sem verið hefur
forstjóri hverfur
til annarra starfa
en Kristinn Þór
Geirsson tekur
við forstjórastöð-
unni hjá félaginu, að því er fram
kemur í tilkynningu frá B&L.
Kristinn Þór hefur undanfarið
starfað sem stjórnarformaður B&L
jafnhliða stjórnarformennsku í
eignarhaldsfélaginu Sævarhöfða,
en félagið á og rekur nokkur félög,
þ.á m. bifreiðaumboðið Ingvar
Helgason.
Í tilkynningu er haft eftir Ernu
Gísladóttur að hún kveðji fyrir-
tækið í fullri sátt en jafnframt með
söknuði. Kristinn Þór Geirsson seg-
ist fullur tilhlökkunar að takast á
við verkefnið. „B&L er sterkt félag
með mörg spennandi vörumerki og
stefnan er að nýta enn betur þau
sóknarfæri sem felast bæði í mann-
auði og þeim umboðum sem félagið
býr yfir.“
Kristinn for-
stjóri B&L
Kristinn Þór
Geirsson
BÚNAÐARÞING verður sett í
Súlnasal Hótels Sögu í dag, sunnu-
dag, kl. 13.30, en yfirskrift setning-
arathafnarinnar verður „Að lifa af
landsins gæðum“. Haraldur Bene-
diktsson, formaður Bændasamtaka
Íslands, flytur ávarp, forseti Íslands
Ólafur Ragnar Grímsson flytur há-
tíðarræðu og Einar Kristinn Guð-
finnsson, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra, ávarpar samkomuna
og veitir árleg landbúnaðarverð-
laun.
Blásarakvintett Reykjavíkur
kemur fram og Grundartangakór-
inn syngur nokkur lög.
Meðal gesta verður Ib W. Jensen,
varaformaður dönsku bænda-
samtakanna, en aðgangur er öllum
opinn og í boði eru kaffiveitingar.
„Lifa af lands-
ins gæðum“
Eftir Eyþór Árnason
SÍÐASTLIÐIÐ fimmtudagskvöld
fór fram keppni í tölti í Meistara-
deild VÍS. Keppnin var að venju
haldin í Ingólfshvoli. Húsið var
kjaftfullt af áhorfendum sem létu
vel í sér heyra og bjuggu til
skemmtilega stemningu.
Keppnin var gríðarlega spenn-
andi en tveir knapar voru efstir og
jafnir eftir úrslitin. Þeir Þorvaldur
Árni Þorvaldsson og Viðar Ingólfs-
son voru langbestir þetta kvöld og
áttu dómararnir greinilega í vand-
ræðum með að velja á milli þeirra.
Þorvaldur sem reið hinum stóra og
mikla stóðhesti Rökkva frá Hár-
laugsstöðum gekk ágætlega í for-
keppninni en náði samt einungis inn
í B-úrslit. Í B-úrslitunum var
Rökkvi greinilega kominn í stuð og
lék á als oddi og skilaði honum og
Þorvaldi áfram inn í A-úrslitin. Í úr-
slitum var Rökkvi greinilega kom-
inn í enn meira stuð og sýndi sínar
allra bestu hliðar.
Hlífðu hestunum við bráðabana
Efstur inn í A-úrslitin var Viðar á
Tuma frá Stóra-Hofi. Tumi hefur
verið helsti keppnishestur Viðars
síðustu ár og hafa þeir farið mikinn í
brautinni og unnið nokkra titlana.
Það má einnig geta þess að Þorvald-
ur og Rökkvi hafa einnig verið dug-
legir við það að sópa til sín verðlaun-
um en samt aldrei áður í tölti.
Tumi var greinilega einnig í góðu
formi þetta kvöldið. Hraðabreyting-
arnar hjá þeim félögum voru alveg
magnaðar enda létu áhorfendur
heyra vel í sér þegar þeir voru að
sýna þær. Svo fór að þeir Þorvaldur
og Viðar voru hnífjafnir eftir úrslitin
og stefndi í það að þeir ættu að ríða
bráðabana en þeir ákváðu að gera
það ekki til þess að hlífa hestum sín-
um. Dómararnir áttu þá að endur-
reikna einkunnir þeirra með meiri
nákvæmni og gefa þeim svo sæt-
isröðun. Svo fór að Þorvaldur Árni
fékk fyrsta sætið hjá fjórum af fimm
dómurum og því fyrsta sætið hans.
Í þriðja sæti lenti Sigurður Sig-
urðarson á Æsu frá Flekkudal en
þau fengu hæstu einkunnina fyrir
hægt tölt. Eftir þann árangur trónir
Sigurður efstur í stigakeppni knapa
með 22 stig en hann hafði áður unn-
ið fjórgang og varð þriðji í smala. Í
fjórða sæti var Jakob Svavar Sig-
urðsson á Fróða frá Litla-Landi
með einkunnina 7,50. Fimmti varð
Hinrik Bragason á Lokk frá Þor-
láksstöðum. Þeir áttu gríðarlega
góða sýningu í forkeppninni en náðu
ekki að halda sér uppi í samanburð-
inum við aðra í úrslitum. Sigurbjörn
Bárðarson á Kaliber frá Lækjar-
botnum endaði svo í sjötta sæti með
7,33.
Næst verður keppt í Meistara-
deild VÍS 13. mars í gæðingafimi en
hana vann einmitt Þorvaldur Árni í
fyrra á Rökkva og verður spennandi
að sjá hvort hann endurtaki leikinn.
A-úrslit
1. Þorvaldur Árni Þorvaldsson,
Rökkvi frá Hárlaugsstöðum, Máln-
ing, 8,28.
2. Viðar Ingólfsson, Tumi frá Stóra-
Hofi, ÍB, 8,28.
3. Sigurður Sigurðarson, Æsa frá
Flekkudal, Skúfslækur, 7,89.
4. Jakob Svavar Sigurðsson, Fróði
frá Litla-Landi, Skúfslækur, 7,50.
5. Hinrik Bragason, Lokkur frá Þor-
láksstöðum, Top Reiter, 7,39.
6. Sigurbjörn Bárðarson, Kaliber
frá Lækarbotnum, Top Reiter, 7,33.
B-úrslit
7. Eyjólfur Þorsteinsson, Komma
frá Bjarnanesi, Blend, 7,44.
8. Daníel Ingi Smárason, Þjótandi
frá Svignaskarði, Frumherji, 7,22.
9. Hulda Gústafsdóttir, Völsungur
frá Reykjavík, Blend, 7,17.
10. Jón Gíslason, Stimpill frá Kálf-
hóli 2, ÍB, 7,17.
11. Ísleifur Jónasson, Gæfa frá Kálf-
holti, ÍB, 6,61.
Liðakeppnin
1. Skúfslækur 58,5 stig
2. Málning 54 stig
3. IB 53,5 stig
4. Blend 49,5 stig
5. Top Reiter 46 stig
6. Frumherji 38,5 stig
Staðan í stigakeppninni
(10 efstu)
Sigurður Sigurðarson 22 stig
Þorvaldur Árni Þorvaldsson 14 stig
Eyjólfur Þorsteinsson 12 stig
Viðar Ingólfsson 11 stig
Jakob Svavar Sigurðsson 11 stig
Ísleifur Jónasson 10 stig
Svanhvít Kristjánsdóttir 8 stig
Ragnar Tómasson 8 stig
Hinrik Bragason 6 stig
Hulda Gústafsdóttir 4 stig
Staðan í liðakeppni
Blend 177,5 stig
Skúfslækur 176,5 stig
Top Reiter 153,5 stig
ÍB ehf. 136 stig
Frumherji 117,5 stig
Málning 110 stig
Hnífjafnir kappar í tölti
Morgunblaðið/Eyþór Árnason
Efstir í tölti Þorvaldur Árni Þorvaldsson og Rökkvi frá Hárlaugsstöðum.
Morgunblaðið/Eyþór Árnason
Traustir Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi.