Morgunblaðið - 02.03.2008, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MARS 2008 31
H-dagurinn Hægri umferð tók gildi á Íslandi 26. maí.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Mótmæli Natofundi í Reykjavík og fasisma mótmælt
4. mars fara um 20 þúsund manns í
mörgum verkalýðsfélögum í verk-
föll, sem standa í rúman hálfan mán-
uð.
18. mars er undirritað samkomulag
um greiðslu verðlagsuppbóta í
áföngum og rúmlega hálfsmán-
aðarverkfalli aflýst.
19. mars býður dr. Kristján Eldjárn,
þjóðminjavörður, sig fram til for-
seta.
22. mars tilkynnir dr. Gunnar Thor-
oddsen, sendiherra í Kaupmanna-
höfn, forsetaframboð sitt.
25. mars hrapar bandarísk herþota af
Keflavíkurflugvelli í Landssveit og
reyndist hún vera með 24 flug-
skeytum, ætluðum til að granda
óvinaflugvélum.
3. maí liggur hafís fyrir norðan og
austan og hefur ísinn að sögn fróðra
manna ekki verið meiri hér við land
síðan 1915.
26. maí tekur hægri umferð gildi og
Íslendingar eru hvattir til að fara út
að aka.
24. – 25. júní er ráðherrafundur Atl-
antshafsbandalagsins haldinn á Ís-
landi í fyrsta sinn. Andstæðingar
Nato efna til mótmæla og skera nið-
ur einn Natofána.
30. júní var Kristján Eldjárn kjörinn
forseti Íslands.
Í ágúst eru haldnir fjölmennir úti-
fundir til að mótmæla innrás Rússa
og fylgiríkja þeirra í Tékkóslóvakíu.
24. ágúst er Norræna húsið vígt.
3. september hefjast viðræður full-
trúa allra stjórnmálaflokkanna um
hið alvarlega efnahagsástand þjóð-
arinnar.
3. október kemur út ný skáldsaga,
Kristnihald undir jökli, eftir Halldór
Laxness.
11. nóvember Gengi íslenskrar krónu
er fellt um 35,2% gagnvart erlendri
mynt. Seðlabankinn segir ástæðuna
léleg aflabrögð síðustu tveggja ára
og lækkandi fiskverð á erlendum
mörkuðum.
17. nóvember heldur Alþýðusamband
Íslands fjölmennan útifund þar sem
mótmælt er þeirri stórfelldu árás á
launakjör alþýðu sem felst í nýaf-
staðinni gengisfellingu.
21. desember verða átök milli lög-
reglu og fólks sem var að koma úr
Tjarnarbúð af fundi í tilefni af 8 ára
afmæli þjóðfrelsishreyfingar Víet-
nams. Átta manns eru handteknir og
tvennt flutt á slysadeild.
Heimild: Öldin okkar
1968 Innlent
vissir
þú að...
• Nýir tímar - nýjar hugmyndir www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/
S
IA
.I
S
/O
R
K
4
06
54
0
2/
08
Umhverfis- og
orkurannsóknasjóður
Orkuveitu Reykjavíkur
Veittir eru styrkir í tveimur flokkum. Í opnum flokki ræður þitt
hugarflug ferðinni. Í lokuðum flokki höfum við sérstakan áhuga á
að styrkja eftirtalin verkefni:
• Heilsufarslegur ávinningur af greiðu aðgengi að veitum
• Áhrif breytinga á veðurfari á starfsemi veitna
• Hagkvæmniathugun þess að fara alfarið í fjarmælingar
raforkunotkunar
• Endurheimt vistkerfa og kolefnisbinding
• Snefilefni í ferskvatnsfiski
• Rannsóknir á botnseti í Skorradalsvatni
• Áhrif gufu og heits vatns á gróður og vistkerfi umhverfis
upprunastaðinn
• Upphitun náttúrulegra grasvalla með heitu vatni
• Lestarsamgöngur
• Orkugjafar í samgöngum
• Varmalosun frá jarðstrengjum
• Umhverfisáhrif lýsingar
• Rannsóknir á virkni settjarna í Reykjavík
• Rannsókn á umhverfisþáttum snjóframleiðslu.
Sendu inn umsókn um styrk
Markmið Umhverfis- og orkurannsóknasjóðs OR er að veita
vísindamönnum, stúdentum og öðrum sérfræðingum á sviði um-
hverfis- og orkumála tækifæri til að hrinda góðum rannsókna-
hugmyndum í framkvæmd.
Allar nánari upplýsingar um sjóðinn, s.s. úthlutunarreglur, til-
högun umsókna, skilmála og verkefni í lokuðum flokki eru á vef
sjóðsins, www.or.is/uoor
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum, útfylltum á vef
sjóðsins og er síðasti skiladagur umsókna 1. apríl 2008.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum, sem hefur 100 milljónir króna til ráðstöfunar árið 2008.
Sérstaklega er hvatt til umsókna um styrki til þverfaglegra rannsókna.
Einstakt enskunámskeið
Fyrir þá sem vilja styrkja enskugrunninn,
tala og skilja enska tungu.
• Fjarnám með 27 1/2 tíma enskunámskeiði á cd diskum
• Slökunardiskur með jákvæðri staðfestingu með tónlist
frá Friðriki Karlssyni
• Vinnubók með enska og íslenska textanum
• Taska undir diskana
• Áheyrnarpróf í lok náms
Mörg stéttarfélög, fræðslusjóðir og fyrirtæki styrkja þetta námskeið
Allar uppl‡singar
www.tungumal.is
eða í símum 540-8400 eða 820-3799