Morgunblaðið - 02.03.2008, Page 29
F.v. Örn Karlsson, Alma frá Sviss,
Margrét Árnadóttir, Benóný Ægisson,
Árni Pétur Guðjónsson, Þórir Lautsen
(Löddi) og Hafliði. Undir borðinu er
Guðmundur Einarsson (Búi).
jafnfljótt og ég byrjaði.
6. Alveg örugglega ekki í þá átt sem það hef-
ur þróast, ég sá mig í hlutverki móður og
eiginkonu fyrst og síðast og fór mjög leynt
með trúaráhuga minn. Það þótti ekki áhuga-
vert í mínum kreðsum :-)
7. Að vera trúr sjálfum sér og sjálfum sér
samkvæmur.
8. Ég veit ekki hvað skal segja, það er í mín-
um huga alltaf ósannfærandi þegar ein kyn-
slóð tekur eitthvað upp eftir annarri án þess
að það spretti upp úr grasrót þeirrar sömu
kynslóðar. Hippakynslóðin spratt upp úr
ákveðnu ástandi sem ríkti í hinum vestræna
heimi, það er auðvitað ekki allt sem skyldi í
heiminum í dag, en ég held að margt í hug-
myndafræði hippanna eigi ekki við í dag, hafi
sannað sig að vera til skaða. Eins og til
dæmis neyslan á hassi og ofskynjunarlyfjum.
9. Andúð á stríðsrekstri stórveldanna. Ég er
ekki viss um að ég haldi í
lífsstílinn nema ef vera
kynni að hafa dálæti
á austrænum
skartgripum og
fatastíl.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MARS 2008 29
1. Ég get í raun alls ekki
talist meðal hippanna þó
að mér fyndist þau sem
voru þar stödd á margan
hátt spennandi fólk.
2. Árið 1968 útskrifaðist ég
úr Myndlista- og hand-
íðaskólanum, ég gifti mig
sama ár og var því nýgift
og ófrísk þegar ég lauk
kennaraprófi úr MHI (átti son minn í lok
desember 1968). Ég var fyrst og fremst upp-
full af ábyrgðartilfinningu og að undirbúa
mig undir að hefja starf sem mynd-
menntakennari. Svo að ég gat alls ekki talist
til hippa í fullum skilningi þess hugtaks.
3. Kannski er rétt að segja að tónlistin hafi
hrifið mig mest í tengslum við hippana. Ég
var ekki sérlega hrifin af lífsstíl þeirra, alls
ekki af því að búa í kommúnu, á þessum tíma
var ég skíthrædd við hass, svo að eitthvað sé
nefnt.
4. Ég er ekki viss um að ég hafi verið með
sterka fyrirmynd á þessum árum, heillaðist
þó alltaf af þeim sem þorðu að standa fyrir
því sem þeir voru, hvort sem þeir voru hipp-
ar eða ekki.
5. Ætli að það hafi ekki verið þegar ég fékk
mér Angelu Davis permanent eða afro-
permanent, það var seinna, um 1973, sonur
minn varð svo hræddur við mig að hann grét
heilan dag. Seinna lærði ég að reykja hass,
var mjög fljót að afgreiða það. Hætti því
Anna Sigríður Pálsdóttir prestur, fædd 1947
Fór leynt með
trúaráhugann
1. Nei ég var ekki hippi í þess orðs
merkingu en hippatískan náði al-
gjörlega til mín.
2. Ég var í íþróttakennaranámi en
minnisstæðust er mér hljómveitin
Flowers. Á böllunum hjá þeim var
hippatískan allsráðandi og þeir lang-
flottastir.
3. Hugsjónir hippanna voru örugg-
lega góðar og gildar þeim sem tileink-
uðu sér þær. Á mig virkaði þetta sem letilíf. „Peace“-
merkið í sjálfu sér kemur manni ekki langt í lífinu.
4. Man ekki eftir neinni einni fyrirmynd, það var svo
margt að skoða.
5. Fór í Þórsmörk um verslunarmannahelgi með vina-
hópnum. Sátum inni í tjaldi umvafin teppum
og flaska af Cointreau gekk hringinn. Hef reyndar
aldrei drukkið Cointreau síðan.
6. Sá fyrir mér heilbrigt og íþróttatengt líf og það hefur
gengið eftir.
7. Vera samkvæm sjálfri mér og lifa samkvæmt því.
8. Allt er þetta spurning um hvaða væntingar við
höfum til lífsins. Öll viljum við frið og
elsku í hvívetna. Ég held að það sé
spurning um aðferð á hverjum tíma.
9. 68-hugsunin var auðvitað bara partur
af mótun á því hvað maður ætlaði
sér í lífinu og hvernig
mann langaði að
líf manns þró-
aðist. Ég er
bara mjög
sátt.
Lóló Guðmundsdóttir einkaþjálfari í World Class og
ungbarnasundkennari, fædd 1949
Fannst Flowers
langflottastir
Lóló Guðmunds-
dóttir í nýjustu tísku
kringum 1970.
Rolling Stones