Morgunblaðið - 02.03.2008, Side 40
40 SUNNUDAGUR 2. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
„ÞEIR hafa verið að elta mig hingað
og þangað um heiminn; hingað til
New York, til Los Angeles fyrr á
árinu og til Santíagó í Chile og verða
svo á hælunum á mér út þetta ár,“
segir Kristinn Sigmundsson óperu-
söngvari en þeir sem fylgja honum
svo grannt eftir eru kvikmyndagerð-
armenn sem vinna að gerð heim-
ildamyndar um hann.
Það eru vel þekktir menn úr
bransanum, þeir Friðþjófur Helga-
son og Páll Steingrímsson, sem gera
myndina; Friðþjófur er framleið-
andi, en Páll meðframleiðandi, að
sögn Páls. Hann segir þá Friðþjóf
ætla sér árið í að klára myndina.
Vildi helst ekki
En hvað segir Kristinn um þenn-
an gjörning – hann er þekktur að
stakri hógværð, og lítið sem ekkert
fyrir að trana sér fram svo vægt sé
til orða tekið. En auðvitað er ekki
hægt að líta á heimildamynd um
söngvarann okkar sem framhleypni
af hans hálfu.
„Páll og Friðþjófur voru búnir að
hafa samband við mig nokkrum
sinnum og ég vildi helst ekkert með
þetta hafa – maður fer hjá sér þegar
svona kemur upp. En svo var það í
þriðja skiptið að ég sagði að það yrði
á þeirra ábyrgð og þeir gætu gert
myndina ef þeir vildu. Þannig standa
málin. Þeir eru líka með gamalt efni
sem ég býst við að þeir vinni úr.“
Kristinn segir að í myndinni verði
myndefni frá Metropolitan-óperunni
frá sýningum með honum í haust, og
einnig frá Óperunni í Los Angeles,
úr uppfærslunni á Tristan og Ísold
sem Kristinn söng í fyrir skömmu.
„Í Chile fékk Friðþjófur að taka
myndir hvar sem hann var og fékk
auk þess efni frá óperunni. Hann
kvikmyndaði baksviðs og um allt
húsið.“
Mikill heiður
Kristinn kveðst reyna að hugsa
sem minnst um kvikmyndatökurnar
meðan á þeim stendur. „Mér finnst
mér vera sýndur mikill heiður, í
fyrsta lagi með því að detta þetta í
hug, og í öðru lagi að koma því í
framkvæmd. Það gerir það að verk-
um að maður getur ekki afþakkað
svona sæmd þótt manni finnist mað-
ur varla hennar verðugur. En þeir
trufla mig ekkert þegar þeir eru ná-
lægt og gott að hafa þá í kringum sig
öðru hvoru eins og góða gesti.“
Gat ekki afþakkað
svona sæmd
Heimildamynd „Ég vildi helst ekkert með þetta hafa – maður fer hjá sér
þegar svona kemur upp,“ segir Kristinn Sigmundsson óperusöngvari.
Friðþjófur Helgason og Páll Steingrímsson vinna að
heimildamynd um Kristin Sigmundsson óperusöngvara
Ljósmynd/Friðþjófur Helgason
LISTASAFN Íslands gefur tóninn
fyrir komandi tíma á safninu á ný-
opnaðri sýningu þriggja listakvenna;
þeirra Emmanuelle Antille, (Sviss
1972), Gabríelu Friðriksdóttur og
Guðnýjar Rósar Ingimarsdóttur
sem vakið hefur athygli á síðustu ár-
um. Sýningarstjóri er Halldór Björn
Runólfsson og aðstoðarsýning-
arstjóri er Harpa Þórsdóttir.
Emmanuelle Antille vinnur verk
sín í myndbönd og ljósmyndir og
beinir sjónum sínum helst að nán-
asta umhverfi. Eftirminnilegasta
verk sýningarinnar er tvímælalaust
myndband hennar Hvirfilbyljir í
hjarta mér, Tornadoes of my heart,
frá árinu 2004–5 sem sýnt er á
feiknastórum veggflötum í myrkv-
uðum sal. Í forgrunni eru unglingar
á leiksviði samtímans, í niðurníddu
umhverfi, hjólabrettabrautum, hrað-
brautum og náttúrunni sem hér er
athvarf til fíkniefnaneyslu. Í bak-
grunni sjáum við skýstrók. Antille
leikur á mörkum draums og veru-
leika, kvikmynda og kvikmyndlistar
og nýtir möguleika frásagnar í mynd
á afar áhrifaríkan hátt með
áherslum í nærmyndum, klippingu
og samspili mynda.
Ljósmyndir og myndbönd Antille
eru einnig sýnd í öðrum sal og gefa
breiðari innsýn í list hennar, sem er
nútímaleg og klassísk í senn. Nær-
myndir úr verkum hennar eru eins
og klipptar úr dramatískum mál-
verkum endurreisnarinnar, tilvist-
arvandi unglinganna sígildur allt frá
því að James Dean skapaði fyr-
irbærið ungling í kvikmynd Nicholas
Ray, Rebel without a cause árið
1955. Unglingar í bókum Douglas
Coupland koma líka upp. Þessi víða
skírskotun gefur verkum Antille
aukið gildi en aðalatriðið er þó að
Listin á öld
hvirfilbyljanna
MYNDLIST
Listasafn Íslands
Til 1. maí. Opið 11–17 alla daga nema
mán. Aðgangur ókeypis.
Streymið/La Durée, samsýning þriggja
listamanna.
bbbbn
Mörk „Antille leikur á mörkum draums og veruleika, kvikmynda og kvik-
myndlistar og nýtir möguleika frásagnar í mynd á afar áhrifaríkan hátt.“
Skurður Guðný Rósa Ingimars-
dóttir sker út í pappír.
smáauglýsingar
mbl.is
REOG
Þarf að leggja göngustíg, hirða gróður, setja upp
körfuboltahring eða framkvæma eitthvað annað?
SAMRÁÐ UM BETRA BORGARUMHVERFI
vissir
þú að...