Morgunblaðið - 02.03.2008, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MARS 2008 47
vissir
þú að...
FLÓRÍDA KYNNING
Hótel Loftleiðum 1. og 2. mars kl. 12-18.
Þórhallur Guðjónsson fasteignasali hjá
Garðatorgi eignamiðlun og Meredith Mahn
fasteignasali hjá Domus Pro í Orlando hafa
undafarin ár aðstoðað marga Íslendinga við
kaup á eignum í Flórída. Við þekkjum vel
hverfin og væntingar Íslendinga og veitum
þjónustu alla leið. Á kynningunni verðum við
mikið af upplýsingum um hin ýmsu hverfi.
Nú er afar hagkvæmt að kaupa fasteignir í Flórída -
hagkvæmt gengi og gott verð.
Íbúðir - raðhús og einbýli að öllum stærðum og gerðum.
Flórída er paradís fjölskyldunnar og himnaríki golfarans.
Þórhallur
sími 896-8232
thor@gardatorg.is
Skriðuland í Dalabyggð - Tækifæri
Til sölu u.þ.b. 400 fm söluskáli með veitingastað og verslun ásamt u.þ.b. 120 fm
íbúðarhúsi. Staðsetning er einstök og er hér um að ræða tækifæri fyrir aðila til að
taka þátt stóraukinni verslun, veitingasölu og þjónustu við ferðamenn m.a. aðstöðu
fyrir gistirými, hjólhýsi, fellihýsi og tjöld. Mjög fallegt útsýni. Staðsetning er miðja
vega á milli Ísafjarðar og Reykjavíkur, athugið að umferð til Vestfjarða verður um
Skriðuland þegar framkvæmdum lýkur við nýjan veg sem liggur um Arnkötludal.
Fjarlægð frá Reykjavík er einungis 2,5 klst. akstur. Innifalið í heildarverði eru öll tæki
og innréttingar svo og lager. Tilboð óskast.
Möguleg eignarskipti á íbúð.
Nánari upplýsingar veitir Geir Sigurðssonfasteignasali.
Sigluvogur 7, botngata
Glæsileg risíbúð
Opið hús í dag milli kl. 14 og 15
BORGARTÚN 29
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
REYNIR BJÖRNSSON
ELÍAS HARALDSSON
L Ö G G. FA S T E I G N A S A L A R
Glæsileg og mikið endurnýjuð 105,6 fm, 4ra herb. risíbúð ásamt bílskúr sem er innr.
sem stúdíóíbúð. Fallegur garður með skjólgirðingum, palli og fallegu garðhúsi. Mjög
fallegt nýlegt eldhús með hvítri innr. mosaikflísum milli innr. og borðkrók við fallegan
kvistglugga m/frönskum gluggum sem einnig eru í stofunni sem er mjög falleg með
nýlegu parketi. 3 herbergi og glæsilegt baðherbergi. Húsið er í rólegri botngötu og
vel staðsett stutt í alla þjónustu. Sjón er sögu ríkari! Verð 31,9 millj.
Sólveig og Elvar taka vel á móti gestum. Teikningar á staðnum.
Húsavík – GOTT ORÐSPOR – TRAUST VIÐSKIPTI
Lögg. fasteignasali
Hrafnhildur Bridde
Agnar Agnarsson
Sigurberg Guðjónsson hdl.
Hrafnhildur Bridde,
lögg.fasteignasali
821 4400
534 2000
www.storhus.is
Skógarhlíð 22 • 105 Reykjavík • Sími 534 2000 • Fax 534 2001 • www.storhus.is
OPIÐ HÚS Í DAG Á MILLI KL. 17:00 - 17:30.
STEINASEL 5, 109 RVK. EINBÝLISHÚS MEÐ NÝUPPGERÐRI,
4RA HERB. ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ M/SÉRINNGANGI.
SÉRSTÆÐUR BÍLSKÚR M/VINNURÝMI UNDIR.
Húsið er skráð um 244 fm en er að sögn eiganda um 300 fm.
Hæðin og risið skiptast í tvö rúmgóð svefnherb., baðherb.,
rúmgóða stofu, sjónvarpshol og eldhús. Íbúðin á jarðhæð
skiptist í þrjú svefnherb., rúmgóða stofu, eldhús, þvottahús,
baðherb. og vinnuherb.
VERÐ 69 MILLJ. ÁHV. 16,5 MILLJ. GOTT LÁN.
Í NÝLEGRI umfjöllun um vænt-
anlega Búðarhálsvirkjun á Tungn-
ársvæðinu kom fram
að Landsvirkjun hefði
áform eða væntingar
um Skaftárveitu, sem
felst í því að Skaftá sé
veitt úr sínum alda-
gamla farvegi og yfir
á Tungnársvæðið.
Þessi umræða eða
vangaveltur Lands-
virkjunar eru með
öllu óskiljanlegar, þar
sem skýlaus réttur
Skaftfellinga er að
Skaftá sé virkjuð
heima í héraði.
Þessi réttur nýtur líka verndar
eignarréttarákvæðis stjórnarskár
Lýðveldisins Íslands. Í Grágás sem
er forn lagaskrá og lögskýringarrit
Íslendinga, ritað einhvern tímann á
þjóðveldisöld, kemur fram að árfar-
vegi megi ekki breyta og er því
hluti af eign heimamanna. Líklegt
er að þetta ákvæði hafi verið til frá
upphafi landnáms og hafi lög-
sögumenn varðveitt þar til lög voru
fyrst skráð hér á landi.
Ljóst er að virkjunin yrði gíf-
urlegt hagsmunamál og lyftistöng
fyrir Skaftfellinga, sem hingað til
hafa borið skarðan hlut frá borði
þegar kemur að uppbyggingu og
sköpun atvinnutækifæra. Ekki síst í
ljósi þess að fræðimenn telja að ol-
íuverð muni hækka mjög mikið á
næstu árum og jafnvel margfaldast
í verði. Um leið mun verðmæti raf-
orku aukast, er gerir virkjanir dýr-
mætari og virkjanakosti fýsilegri..
Skaftárvirkjun er líka mjög góð-
ur kostur þegar tekið er tillit til
umhverfissjónarmiða, sjálfbærrar
þróunar og arðsemi framkvæmda.
Vatnsaflsvirkjanir eru líka í eðli
sínu umhverfisvænar og sjálfbærar,
enda byggja þær afkomu sína á
vistvænni og endurnýt-
anlegri orku. Rafmagn-
ið sem þær framleiða
er líka hreint orkuform
og er því beislun fall-
vatnsins mikilvægt
framlag Íslands gegn
losun gróðurhúsa-
lofttegunda.
Það er því erfitt að
réttlæta það til lengdar
að þessi mikla fallorka
sem Skaftá ber til sjáv-
ar skuli um aldur ævi
vera ónotuð, engum til
gagns. Sérstaklega í
ljósi þess að umhverfisáhrif af
virkjuninni eru ásættanleg og með
tilheyrandi mótvægisaðgerðum má
samnýta þessa virkjun til gróð-
urverndar og til uppgræðslu, land-
inu til hagsbóta.
Það er alveg ljóst að í framtíðinni
verður Skaftá virkjuð. Spurningin
er ekki hvort heldur hvenær. Því
verða Skaftfellingar að tryggja það
að orkan frá Skaftá verði beisluð
heima í héraði og helst nýtt þar líka
við uppbyggingu hátæknistarfa eins
og til dæmis fyrir hýsingu netþjóna
fyrir öflug og framsýn fyrirtæki.
Skaftfellingar, látum ekki tækifærið
renna okkur úr greipum.
Virkjum Skaftá heim í héraði
Virkjun Skaftár er gífurlegt
hagsmunamál og yrði lyfti-
stöng fyrir Skaftfellinga, segir
Ágúst Thorstensen
Ágúst Thorstensen
»Réttur Skaftfellinga
til að tryggja sér sér
Skaftá og nýtingu árinn-
ar er verndaður í stjórn-
arskránni.
Höfundur er matvælafræðingur.
Sími 551 3010