Morgunblaðið - 02.03.2008, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MARS 2008 55
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
Gunnar Ingi mágur
minn er látinn, allt of
snemma. Ungur maður
sem á konu og börn á
náttúrulega að fá að ala upp börnin
sín, eignast barnabörn og fá að spilla
þeim eins og allir afar gera. En því
miður er það ekki hlutskipti allra.
Þegar Gunnar veiktist fannst mér
að þetta hlyti að líða hjá, en því miður
markaði það þrautagöngu í tvö ár.
Göngu sem hann gekk, þjáður á lík-
ama. Og alla gönguna gekk Linda við
hlið hans, hélt utan um hann og gaf
honum styrk, alltaf, alltaf til staðar
bæði á nóttu og degi. Lífið er brot-
hætt, það höfum við séð síðustu mán-
uði. Ekkert er sjálfsagt.
Gunnar kvartaði aldrei yfir hlut-
skipti sínu, var æðrulaus hvað sem á
gekk, tók þátt í sorgum vina sem
misstu sína ástvini, þó hann fyndi
sjálfsagt sjálfur hvert stefndi. Hann
trúði að eitthvað nýtt tæki við. Sjálf-
sagt er hann farinn að hanna nýja
leikvelli fyrir börnin í landinu án þján-
inga. Já, örugglega búinn með nokkr-
ar rennibrautir og kastala.
Elsku Linda, þú ert frábær og
börnin þín líka. Kannski smá villing-
ar, en það var pabbinn líka. Ég veit að
Gunnar er frjáls núna og er að segja
einhverjar sögur og brandara, þar
sem allir hlæja, honum tókst oftast
vel upp með það.Við getum tekið
Gunnar okkur til fyrirmyndar á
margan hátt. Hann kvartaði ekki,
felldi aldrei dóm, heldur þakkaði fyrir
það sem hann átti, konuna sína, börn-
in, tengdasoninn og svo hann Tiger,
hundinn sinn og bara alla í kringum
sig. Og ekki má gleyma besta vini
Gunnars, honum Óskari, sem mitt í
sinni sorg kemur 2-3 á dag til vinar
síns og tekur þátt í okkar sorg.
Elsku Linda og börn og tengdason-
ur, Stína og allir aðrir sem sakna
Gunnars. Gunnar er frjáls.
Gunnar, takk fyrir samfylgdina í
gegnum árin.
Kær kveðja,
Jón H. Björnsson.
Elskulegur mágur minn Gunnar
Ingi er látinn eftir hetjulega baráttu
við hvítblæði.
Elsku Gunnsi, mikið er sárt að
kveðja þig, þú hefur verið mér sem
bróðir í svo mörg ár.
Hjörtu okkar gráta.
Ég þakka Guði fyrir að hafa fengið
að vera með þér á laugardaginn, við
töluðum um margt, þú varst svo
ánægður með allt, kvartaðir aldrei og
með húmorinn á réttum stað eins og
vanalega. Þið Linda ætluðuð á Ladda-
showið á sunnudaginn og þú varst
glaður yfir því, þér fannst fátt
skemmtilegra en að hlæja.
Kara Ísabella kom auðvitað með
eitt listaverkið enn fyrir þig, það
gladdi þig ávallt að sjá litlu skottuna,
þú ljómaðir af gleði þegar hún var hjá
þér, hún elskar þig svo mikið og skil-
ur þetta ekki enda er gott að hún
minnist þín eins og þú varst, með gít-
arinn í hönd að spila og syngja fyrir
hana eins og þú hafðir gert síðan
snúllan fæddist. Þú varst ætíð dug-
legur við að spila fyrir hana og jafnvel
þegar þú veiktist reyndir þú þitt
besta. Músíkin átti vel við þig, þú
varst með hana í blóðinu.
Mikið eigum við eftir að sakna þín,
elsku Gunnsi.
Margar eru þær minningar sem við
eigum með þér og við munum minnast
þín eins og þú varst fyrir veikindin.
Annað mundir þú ekki vilja. Barðist
ávallt eins og hetja, elskaðir systur
mína og börnin ykkar svo heitt.
Elsku Gunnsi, sárt er að kveðja, við
elskum þig ávallt og varðveitum
minningar um þig í hjörtum okkar,
Gunnar Ingi
Ingimundarson
✝ Gunnar IngiIngimundarson
fæddist á Hólmavík
21. janúar 1969.
Hann lést á Líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi 10.
febrúar síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Keflavík-
urkirkju 19. febrúar.
guð blessi þig, elsku
Gunnsi.
Elsku Linda systir,
Sara María,
Guðjón Ingi, Unnur
Ágústa,
Sverrir Svanhólm,
Egill, Tiger og fjöl-
skylda.
Við biðjum góða Guð
um að blessa ykkur og
styrkja ykkur á þessum
erfiða tíma, munið
ávallt að Gunnar var
hetjan okkar allra og að
hann gafst aldrei upp.
Megi ljós Gunnars ávallt lifa með
okkur öllum.
Við elskum ykkur öll.
Góði guð, blessaðu okkur öll.
Samúðarkveðjur,
Ásdís Sverrisdóttir og fjölskylda.
Ég óska þess að þú værir hér, vegna
þess að þú brosir svo fallega, þú hlærð
svo ljúft, þú ert svo fallegur, ljúfur og
góður, af því þú ert faðir minn.
Þín
Unnur.
Elsku Gunnar minn. Nú ertu kom-
inn á betri stað eftir erfiða baráttu í
gegnum veikindinn. Alltaf þegar ég
spurði þig hvernig þú hefðir það,
svaraðir þú ávallt, bara fínt eða mjög
gott. Þú kvartaðir aldrei og þú varst
svo sterkur. Elsku Gunnar mér þykir
ótrúlega vænt um þig.
Elsku Linda og börn, megi Guð
hjálpa ykkur í gegnum sorgina og
vaka yfir ykkur og fjölskyldum.
Rushit Derti. Dimitri.
Ég mun aldrei gleyma því hve erf-
iður, sorglegur og langur þessi dagur
var. Dagurinn sem ég fékk þær fréttir
að þú, elsku frændi minn, værir að
deyja. Ég vissi að þessi dagur kæmi
en var þó engan vegin undir hann bú-
in. Ég mun heldur aldrei gleyma þeim
friði og þeirri ró sem var yfir þér þeg-
ar ég kom til þín í stofuna þína. Aldrei
framar kvalir, eftir langa og hetjulega
baráttu tekur við nýtt og betra líf hjá
þér, elsku frændi.
Ég las eitt sinn ljóð eftir Stein
Steinarr en í því stóð
… hvort er ég heldur hann, sem eftir lifir,
eða hinn, sem dó?
Í þetta sinn er ég hvort tveggja, nú
hefur stór partur í lífi mínu og okkar
allra dáið en annar komið í staðinn.
Nú byrjar kafli í lífi okkar þar sem
minningin um þig lifir sterkt og alltaf.
Í 29 ár erum við, ég og þú, búin að
gera okkur minningarsjóð. Ég man
kannski ekki öll árin en ég man þau
bestu. Þegar ég loka augunum og
hugsa um þig kemur strax í huga mér
mynd af þér hlæjandi. Þú hlóst alltaf
svo innilega að það var ómögulegt að
hlæja ekki með þér. Það er heldur
ekki sjaldan sem ég man eftir þér með
tárin í augunum í þvílíku hláturskasti
að segja frá einhverju stórkostlegu
sem þú lentir í, heyrðir eða sást.
Það er mér líka í svo fersku minni
þegar ég fór að læra á gítar. Þú komst í
heimsókn til mömmu og pabba og sást
gítarinn minn. Þegar þú vissir að ég
var að læra á hann fórum við í borð-
stofuna og þú spilaðir fyrir mig og
sagðir mér frá því þegar þú fórst á gít-
arnámskeið. Við sátum lengi saman, þú
að spila á gítar og að sýna mér hvernig
ég átti að bera mig að og ég að hlusta á
sögur frá því þú varst í iðnskólanum og
á gítarnámskeiði í Reykjavík. Þessa
stund ætla ég alltaf að muna.
Síðast þegar ég hitti þig rétt rúm-
um degi áður en þú kvaddir þennan
heim áttum við saman ljúfa stund. Ég
kom til þín eftir skóla á föstudegi, það
lá svo vel á þér og þú varst svo frábær
eins og alltaf. Þú opnaðir augað og
hreyfðir höndina sem var búin að vera
máttlaus svo lengi. Þegar ég hrósaði
þér fyrir það sagðir þú bara: „hann er
seigur kallinn“ og brostir út í annað.
Já, þú varst sko seigur og átt heiður
skilinn fyrir alla þá baráttu sem þú
háðir við aðstæður sem margir hefðu
ekki umborið eins lengi og þú.
Við töluðum líka um krakkana þína
þennan dag, þú varst svo stoltur af
þeim öllum og elskaðir svo mikið. Þau
eru búin að heyja hetjulega baráttu
með þér og eru svo einstaklega dug-
leg að orð fá því ekki lýst. Minning þín
mun lifa í þeim og með okkur.
Eftir að þú komst frá Svíþjóð gönt-
uðumst við stundum með það að þú
værir nú alveg að verða pabbi minn.
Og þegar Eygló Rún, litla systir mín,
frétti að þú værir dáinn spurði hún
hvort pabbi fengi þá aftur frumurnar
sínar. Elsku skinnið.
Ég sakna þín svo mikið, elsku
frændi minn, og mun varðveita minn-
ingu þína alltaf. Elsku amma, Linda,
Sara María og Egill, Guðjón Ingi,
Unnur Ágústa og Sverrir Svanhólm
ég sendi ykkur mínar dýpstu samúð-
arkveðjur og öll mín stærstu knús eru
ykkar alltaf.
Hjartans kveðjur, elsku frændi.
Ragna Kristín Árnadóttir
(Ragna Stína.)
Elsku Gunni, þá er „Gullvagninn“
kominn að sækja þig, með pabba þín-
um, Lofti, ömmu Dísu, Kidda litla og
fleirum. Allir taka þér með opinn faðm.
Það er sárt til þess að vita að ungur
maður í blóma lífsins með eiginkonu og
4 börn er hrifinn á brott frá okkur.
Gunnar Ingi var hetjan okkar, allt-
af glaður og kátur, sama hvað á dundi.
Linda og Gunni, alltaf talað um þau
sem eitt. Það verður lengi minnst síð-
asta gamlárskvölds á Skaga, allir
saman komnir til að fagna nýju ári
sem fyrr. Það var sungið og dansað
eftir plötu Bjögga fram eftir nóttu
„Gullvagninn“ og fl. Það var ekki
gamlárskvöld nema fjölskyldur okkar
væru saman.
Um sumarið á nýju ári greinist þú
með hvítblæði, það var mikið áfall fyr-
ir alla. En þið Linda lögðust ekki í
neitt volæði. Þú fórst í þínar meðferð-
ir hér heima og um haustið fóruð þið
Linda og Árni bróðir þinn til Svíþjóð-
ar, hann gaf þér merg. Allt tókst vel
með það og gaf það ykkur lengri frest
til að vera saman, hetjuleg barátta
hélt áfram hjá ykkur og börnunum.
Það var frábært að koma á styrkt-
artónleikana fyrir þig, sem hún Sara
dóttir ykkar var búin að undirbúa án
þess að þið vissuð af því. Svona er
Sara alltaf að bralla eitthvað Gunni
minn, ekki ólík þér.
Það var gott að fá ykkur til okkar í
Lambhagann rétt fyrir jólin, þú
gekkst hér um eins og fínn herramað-
ur. En stutt er á milli, þegar úrskurð-
ur kom um að það væri ekki hægt að
gera neitt meira fyrir þig, nema að
halda niðri verkjunum og næsta
stoppistöð væri líknardeildin í Kópa-
vogi, var okkur brugðið ,,það voru all-
ir alltaf með veika von“.
Það var alveg með ólíkindum þegar
þú komst á líknardeildina, hvað þú
varst alltaf jákvæður og skemmtileg-
ur. Við sátum saman ég, þú, Linda,
Óskar vinur ykkar, Erling bróðir þinn
og gerðum að gamni okkar þessa 11
daga sem þú varst þarna.
Það var mjög gott að þú skyldir
geta ráðstafað því sem þú vildir fyrir
útförina þína. Það eru bara ungar
hetjur sem geta það eins og þið Linda
eruð. Stína móðir þín er ekki síður
hetjan þín, Gunni minn, hún sat með
þér og stjanaði við þig. Starfsfólkið á
líknardeildinni reyndist ykkur mjög
vel og var gott að koma þangað, hafi
það þökk fyrir.
Elsku Gunni minn, það er tómleiki í
hjörtum þeirra sem þekktu þig, þú
kenndir okkur svo margt gott.
Linda mín og börn, ykkar missir er
mikill, við viljum votta ykkur okkar
dýpstu samúð.
Hvíl í friði, elsku Gunnar.
Jóhanna, Hafberg, börn og
tengdabörn, Lambhaga.
Vinur okkar Gunnar Ingi hefur
kvatt þessa jarðvist eftir langa og
hetjulega baráttu.
Linda og börnin hafa staðið eins og
klettar við hlið hans í öllu því mótlæti
sem á þeim hefur dunið.
Vert er að minnast frumkvæðis
Söru Maríu, er hún skipulagði styrkt-
artónleika til handa pabba sínum sem
tókust mjög vel, auk þess hafði Gunn-
ar Inga lengi langað að sjá sýninguna
með Ladda, en þar sem erfitt hafði
reynst að fá miða setti Sara sig í sam-
band við Ladda, sem reyndist þeim
vel og hugðust Gunnar og Linda fara
á sýninguna á sunnudagskvöldinu, en
æðri máttarvöld leyfðu það ekki.
Gunnar Ingi var hjartahlýr, hjálp-
samur og sannur vinur og var alltaf
fyrstur til þess að rétta öðrum hjálp-
arhönd þegar á þurfti að halda. Það
hefur ætíð verið notalegt að kíkja í
kaffisopa til þeirra hjóna og erum við
ekki ein um þá skoðun, því heimili
þeirra hefur ætíð verið eins og um-
ferðarmiðstöð, stöðugur gestagang-
ur, staður þar sem allir gátu verið
þeir sjálfir, engin tilgerð eða múrar.
Bara góðir straumar og ekki var
verra ef Gunnar var að spila á gít-
arinn eða hljómborðið, því hann var
virkilega tónelskur og dundaði sér við
að semja og spila í frístundum.
Hann var glaðlyndur og hafði smit-
andi hlátur og hans létta lund og já-
kvæðni fleytti honum síðustu metr-
ana í gegnum þessa dimmu
kólgubakka lífsins.
Sonur okkar, 8 ára gamall, hefur
fylgst grannt með gangi mála og kom-
ið með einlægar og staðgóðar lausnir
á vandamálunum. Fyrir nokkrum
mánuðum, er við vorum að koma okk-
ur fyrir í nýja heimilinu hér í Dan-
mörku, höfðum við verið að ræða um
þessi illvígu veikindi sem hrjáðu
Gunnar og bar þá á góma orð eins og
vírus, hvítblæði og fleira í þeim dúr.
Um kvöldið var verið að koma heim-
ilistölvunni í samband og af þeim sök-
um þurfti að keyra í gegn vírusvörn
og fleira sem þurfti að uppfæra. Eitt-
hvað fannst þeim stutta þessi gjörn-
ingur taka of langan tíma, þar sem
hann hafði verið í tölvusvelti í ca mán-
uð, og var orðinn frekar óþolinmóður.
Á meðan var reynt að útskýra fyrir
honum hvernig þessi vírusvörn ynni
og hvers vegna hún væri nauðsynleg.
Þá datt út úr honum þessi gullmoli:
Hvers vegna keyra læknarnir ekki
bara vírusvörn í gegnum Gunnar?
Bara ef lausnin væri svona einföld.
Við minnumst hans með söknuði og
biðjum guð að vernda og styrkja
Lindu, Söru Maríu, Guðjón Inga,
Unni Ágústu og Sverri Svanhólm sem
og aðra aðstandendur og vini.
Það voru forréttindi að fá að kynn-
ast þér, vinur.
Okkar innilegustu samúðarkveðjur
frá Danmörku,
Sólveig Ásta, Stefán Karl, Snæ-
fríður Aþena og Oliver Flóvent.
Elsku sonur minn. Takk fyrir alla
þá ástúð og hetjudáð sem þú hefur
sýnt mér á þessum stundum. Það
verður mér ómetanlegt þegar
fram líða stundir. Nú veit ég að þú
er í öruggum höndumhonum hjá
föður þínum og bræðrum. Þakka
þér fyrir allt Guð blessi þig.
Þín
mamma.
HINSTA KVEÐJA
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
HÓLMFRÍÐAR PÁLMADÓTTUR
Tómasarhaga 19,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 3-A
á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Pálmi Ó. Bjarnason,
Anna K. Bjarnadóttir, Þorvaldur Gylfason,
Kristinn Bjarnason, Kolbrún Eysteinsdóttir,
Sigurður Bjarnason
Bjarni Bjarnason, Ásdís Axelsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur
samúð og hlýhug vegan andláts,
ARNÓRU FRIÐRIKKU SALÓME
GUÐJÓNSDÓTTIR,
síðast til heimilis að
Sléttuvegi 13,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hjúkrunarheimilisins
Skjóli 3. hæð.
Eiríkur Valdimarsson,
Arnfríður H. Valdimarsdóttir, Ólafur Árnason,
Magnúsína G. Valdimarsdóttir, Þór G. Þórarinsson,
Sigurjóna Valdimarsdóttir, Kristjón Sigurðsson,
Arnór V. Valdimarsson, Guðlaug Jónsdóttir,
Páll G. Valdimarsson, Soffía Gísladóttir,
Sigurborg Valdimarsdóttir, Jón Egilsson,
Guðjón Valdimarsson, Ólafía G. Einarsdóttir,
og aðrir aðstandendur.