Morgunblaðið - 02.03.2008, Blaðsíða 57
ekki má gleyma Ragnhildi dóttur
Þórdísar sem bættist í stórfjöl-
skylduna. Nú varð bara enn fleira
fólk og meira fjör í fjölskylduboð-
unum.
Þórdís lést árið 1989.
Jón var jafnaðarmaður af bestu
gerð og lét til sín taka á þeim vett-
vangi, sat m.a. í bæjarstjórn Ak-
ureyrar nokkur ár.
Með Jóni er genginn sómamaður
sem mátti ekki vamm sitt vita,
sannfæringu sinni trúr, vinfastur,
traustur og tryggur.
Að leiðarlokum þökkum við hon-
um samfylgdina í rúmlega 60 ár.
Við sendum Hrafnhildi, Kristínu
og Ragnhildi ásamt fjölskyldum
innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Jóns B.
Rögnvaldssonar.
Margrét og Úlfhildur
Rögnvaldsdætur.
Ég hef verið átta ára þegar ég
kynntist Jomba frænda mínum
fyrst. Var þá hjá ömmu og afa á
Hvammstanga þegar hann, kona
hans og dóttir komu þangað í heim-
sókn. Svipmikill og broshýr maður
mætti mér þá, hláturmildur og
hreinn og beinn. Skemmst er frá
því að segja að strax frá fyrstu
kynnum leið mér afar vel í návist
Jomba og fjölskyldu hans. Þeir voru
þrír bræðurnir, Mundi í Laufási
sem var elstur, þá Björn afi og
Jombi, og það er svo sterkt í minn-
ingunni hvað þeir áttu það sam-
merkt að vera léttir í lund og alltaf
með svo hlýtt og traustvekjandi við-
mót. Þessi létta lund þeirra var
jafnvel í nokkru ósamræmi við þá
staðreynd að á æskuárunum ólust
þeir upp hver í sínu lagi við harða
lífsbaráttu, eins og títt var um fá-
tækar fjölskyldur í þá daga. En það
segir sitt um upplag þeirra og það
hve sterk bönd tengdu þá saman, að
þeir unnu bug á þessum aðskilnaði
þegar þeir stálpuðust, fluttust til
Hvammstanga og byggðu móður
sinni torfhús, á stað þar sem nú er
inngangurinn í félagsheimilið þar.
Örlögin höguðu því nú þannig að
engir þeirra bræðra voru samfeðra,
því fyrsti unnusti hennar Sigríðar
langömmu minnar fórst í sjóslysi og
henni auðnaðist ekki að stofna til
varanlegs sambands upp frá því. En
það þykist ég vita að þessi kona
hefur verið alveg einstök mann-
eskja, með slíkt geðsupplag að ekk-
ert fékk bugað glaðværð hennar og
jafnaðargeð, því einmitt þannig
voru þeir bræðurnir. Andstreymið
varð aðeins til að efla þau. Enda
minnist ég þess t. d. ekki að hafa
hitt Jomba fyrir án þess að hann
hafi verið brosandi og léttur í lund,
jafnvel eftir að hafa misst tvo lífs-
förunauta, því nokkur ár eru nú síð-
an Þórdís kvaddi, og áður var
Jombi búinn að missa fyrri eig-
inkonu sína. Í hvert sinn er ég hitti
hann sagði hann gamansögur og fór
með kveðskap sem hann kunni í
ómældu magni, enda naut hann
þess að skemmta öðrum, og góða
skapið hans smitaði út frá sér frá
fyrsta augnatilliti. Á æskuárunum
dvaldist ég mikið á sumrin hjá
ömmu og afa, og eftir þessi fyrstu
kynni mín við Jomba, Þórdísi og
Kristínu urðu gagnkvæmar heim-
sóknir þeirra mér mikið tilhlökk-
unarefni. Ferðin sem ég fór eitt
sinn með ömmu og afa til Akureyr-
ar verður mér alltaf minnisstæð, því
þau hjónin Jombi og Þórdís voru
frábær heim að sækja. Seinna átti
ég oft eftir að njóta þess að gista
hjá Jomba í Grænugötunni þegar ég
sótti vinnu til Akureyrar, og hve-
nær sem ég kom því við á ferðum
mínum um landið sótti ég frænda
minn heim, enda var það eins og að
hlaða batteríin að njóta návistar
hans. Það var sama hvert samræður
okkar leiddu okkur, nálgunin við
umfjöllunarefnið var alltaf krydduð
þessum léttleikandi húmor sem ein-
kenndi Jomba. Hann var slíkur
maður að öll samskipti við hann
voru kennslustundir um jákvætt
hugarfar og afstöðu til lífsins. Það
að eiga Jomba að voru forréttindi
sem hafa gert mig að ríkari manni.
Ég votta öllum aðstandendum
Jomba samúð mína.
Þorkell Á. Jóhannsson.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MARS 2008 57
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
JÓNS BJARNASONAR
hæstaréttarlögmanns,
Bergstaðastræti 44,
sem lést 10. febrúar.
Sérstakar þakkir færum við öllum þeim
starfsmönnum á Landspítalanum við Hringbraut, í
Fossvogi og á Landakoti, svo og á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni, sem um lengri eða skemmri tíma
veittu honum kærleiksríka hjúkrun og aðstoð á
allan hátt. Megi ósérhlífni ykkar, gæska og fag-
mennska nýtast áfram sem best öðrum til líknar.
Kristín Haraldsdóttir,
Bjarni Jónsson, Ásthildur Helga Jónsson,
Haraldur Örn Jónsson, Agla Ástbjörnsdóttir,
Ásgeir Pálsson
og barnabörn.
✝
Hjartans þakkir færum við öllum þeim er sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
HARÐAR GUÐMUNDSSONAR
hárskerameistara.
Sérstakar þakkir færum við Friðbirni Sigurðssyni
lækni, hjúkrunarfólki krabbameinsdeildar LSH,
heimahlynningu og líknardeild LSH í Kópavogi.
Guð blessi ykkur öll.
Rósa Helgadóttir,
Helga Harðardóttir,
Halla Harðardóttir,
Þóra Harðardóttir, Sigurgeir Þorleifsson,
Inga Sigríður Harðardóttir, Gunnar Guðjónsson
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem sýndu
okkur samúð og vináttu vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
SNORRA ÞÓRS RÖGNVALDSSONAR
húsgagnasmíðameistara,
Goðabyggð 12,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks F.S.A. , sjúkraþjálfunar á Hlíð,
séra Svavars A. Jónssonar, Oddfellowreglunnar á Akureyri,
Karlakórs Akureyrar-Geysis, einsöngvara og tónlistarfólks.
Guð blessi ykkur öll.
Margrét H. Ögmundsdóttir og fjölskylda.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ARNAR SIGURÐSSONAR,
(BILLA),
frá Hauganesi,
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dalbæjar á
Dalvík fyrir einstaklega góða umönnun og hlýju.
Örn Viðar Arnarson og fjölskylda,
Ómar Eyfjörð og fjölskylda.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru
móður, tengdamóður, ömmu, systur og frænku,
SVANDÍSAR JÚLÍUSDÓTTUR,
Skúlagötu 78,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til Óskars Þ. Jóhannssonar læknis
og starfsfólks deildar 11-E á Landspítala Hring-
braut, heimahlynningar, Valgerðar Sigurðardóttur
yfirlæknis og starfsfólks á líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Guð blessi ykkur öll.
Karl Valur Guðjónsson, Díana Björnsdóttir,
Brynja Guðjónsdóttir, Sveinn Þór Hallgrímsson,
Júlíus Kristinsson, Lotte Knudsen,
Kristján Kristinsson,
Egill Kristinsson, Hafdís Ósk Gísladóttir,
barnabörn og aðrir aðstandendur.
✝
Hjartans þakkir öllum þeim er sýndu okkur hlýhug,
samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður,
systur, ömmu og langömmu,
JÓHÖNNU ELÍNAR ÁRNADÓTTUR,
Furugrund 30,
Kópavogi.
Þakklæti til góðs starfsfólks líknardeildar
Landspítalans Landakoti.
Einar Jónsson,
Bjarni Bergmann Sveinsson, Þorbjörg Kristvinsdóttir,
Úndína Bergmann Sveinsdóttir, Björn Brynjólfsson,
Ásmundur Bergmann Sveinsson, Hallveig Finnbogadóttir,
Árni Bergmann Sveinsson, Sigríður Ólafsdóttir,
Rúnar Bergmann Sveinsson,
Jón Þór Bergmann Sveinsson, Steinhildur Hjaltested,
Róslind Bergmann Bordal, Dag Bordal,
Sigrún Friðgeirsdóttir, Logi Úlfljótsson,
Haukur Örn Björnsson, Sigrid E. Guðmundsdóttir,
Úndína Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
vegna andláts og útfarar föður okkar, tengdaföður
og afa,
STEINGRÍMS HELGASONAR
stórkaupmanns.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á 2. hæð norður á
hjúkrunarheimilinu Eir.
Unnur Heba Steingrímsdóttir, Nikulás Róbertsson,
Helga Guðrún Steingrímsdóttir,Eiríkur Hauksson,
Jón Hólmgeir Steingrímsson, Soffía Hilmarsdóttir,
Ingunn Steingrímsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ELÍAS GUÐBJARTSSON
sjómaður,
Hrafnistu Reykjavík,
áður til heimilis á Klapparstíg 11,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju í Reykjavík
þriðjudaginn 4. mars kl.15.00.
Viðar Elíasson, Guðrún Halldórsdóttir,
Hilmar Elíasson, Linda B. Gunnarsdóttir,
Svanur Elí Elíasson,
Selma Björk Elíasdóttir,
Halldór Guðbjartur Elíasson, Sesselja Guðbjörg Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Minningarathöfn um konu mína, móður okkar,
ömmu og langömmu,
RANNVEIGU EIRÍKSDÓTTUR
Skerjavöllum 8,
Kirkjubæjarklaustri,
fer fram í Selfosskirkju mánudaginn 3. mars
kl. 13.30.
Athöfn að Prestbakka verður auglýst síðar.
Einar Bárðarson, börn, barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Guðmunda S. Stephensen,
Skeiðarvogi 95,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju mánudaginn
3. mars kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Félag
Aðstandenda Alzheimerssjúklinga (FAAS),
s. 533 1088.
Eiríkur F. Stephensen,
Borghildur Stephensen,
Gyða Stephensen, Carl van Kuyck,
Finnur og Kasper.