Morgunblaðið - 02.03.2008, Side 66
Þegar fyrstu hljóm-
arnir af The Mercy
Seat ómuðu tók ég eftir því
að kona við hlið mér fór að
gráta… 70
»
reykjavíkreykjavík
vissir
þú að...
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
KIMI records eða Afkimi ehf. gerir
út frá Akureyri og voru fjórar plöt-
ur á þess vegum í umferð síðasta
haust. Tvær þeirra, plötur Benna
Hemm Hemm og Mr. Silla & Mon-
goose, voru í dreifingu á meðan
Hellvar og Hjaltalín voru alfarið
gefnar út af Kima. Aðkoma Kima að
útgáfu og dreifingu er mismunandi
eftir verkefninu hverju sinni og boð-
ar Baldvin nýjar áherslur í þessum
efnum.
„Bráðum kemur út platan Sweaty
Psalms með raftónlistarmanninum
Klive, sem er listamannsheiti Úlfs
nokkurs Hanssonar. Þetta er eins
konar æfing fyrir útgáfuna. Úlfur
kom með tilbúinn „master“ (frum-
eintak) til mín ásamt umslags-
hönnun og ég sé svo um að fram-
leiða og dreifa. Tónlistin er
tilraunakennd og illseljanleg svo ég
tali nú tæpitungulaust. Við gerum
okkur báðir grein fyrir því. Tónlistin
er það góð að mér finnst að hún eigi
að komast víðar. Platan fer svo inn í
titlaskrá Kima, gefur henni vigt, og
ég og Úlfur „dreifum“ áhættunni ef
svo má segja.“
Baldvin segir að engin ein regla
gildi um hvernig útgáfum er háttað.
„Allar ákvarðanir eru teknar í
samráði við listamennina og pen-
ingamál og slíkt er allt uppi á borð-
um. Ég legg áherslu á þennan sýni-
leika. Framkvæmdin við hvert
verkefni fer svo bara eftir því hvað
hentar hverju sinni. En þetta fyr-
irkomulag snýst um að listamað-
urinn sjái einhverja uppskeru fyrir
það sem hann er að leggja fram,
eitthvað sem hefur engan veginn
verið sjálfgefið í þessum bransa.“
Eftirspurnin mikil
Baldvin segist mikill áhugamaður
um tónlist og það hafi rekið hann út
í þessa starfssemi.
„Mig langaði til að starfa innan
þessa geira. Maður er að taka þátt í
að koma einhverju á framfæri sem
hefur tilfinningalegt gildi fyrir fólk,
maður er á óbeinan hátt að taka þátt
í sköpunarferlinu og það er gefandi.
Ég sé ekki annað en að það sé þörf
fyrir það sem ég er að gera. Eft-
irspurnin eftir minni þjónustu er
meiri en ég kemst yfir að anna. Ég
er með tvo hjálparkokka en enga
skrifstofu – ennþá.“
Um þessar mundir er verið að
styrkja stoðir fyrirtækisins, bæði
fjárhagslegar og svo vörulegar.
„Íslenski markaðurinn gerir mér
kleift að halda þessu úti. Íslendingar
gera sér far um að kaupa íslenska
tónlist og styðja við bakið á henni.“
Margar útgáfur af smærri gerð-
inni hafa notið virðingar jafnt sem
vinsælda um heim allan í gegnum
tíðina. Þar fara einatt saman tónlist-
arleg gæði og sterk, listræn sýn og
nægir að nefna nöfn eins og Sub
Pop, Touch & Go, Domino og 4AD
þessu til sönnunar. Baldvin segist
helst taka Thomas Morr og útgáfu
hans, Morr Music, sem gerir út frá
Berlín, til fyrirmyndar.
„Ég hef orðið þess heiðurs aðnjót-
andi að kynnast honum persónulega
og þetta er frábær gaur. Ég hef tek-
ið dálítið mið af því hvernig hann
stundar þessi fræði en honum hefur
orðið verulega ágengt með sína
listamenn. Ég verð líka að nefna
Mugison, sem gerir þetta sjálfur frá
A til Ö.“
Horft til útlanda
Baldvin, sem er fæddur 1979, hef-
ur í gegnum tíðina verið stórtækur í
alls kyns félagsmálum og gegnt for-
mannsstöðu í ótal nefndum og ráð-
um. Hann lýsir því að í fyrra hafi
myndast gat í stundatöfluna, en
hann hefur átt því að venjast að
sýsla í ýmsu öðru meðfram námi, en
hann stundar nú nám í við-
skiptafræði. Stjörnurnar röðuðust
svo allar saman síðasta sumar, þeg-
ar Björn Kristjánsson, Borko, var
að leita sér að útgefanda. Útgáfan
var þá stofnsett. Baldvin neitar því
að fyrirtækið hafi verið hugsað sem
einhvers konar æfing meðfram
náminu, en það hafi þó vissulega
hjálpað til við reikningshaldið. Bald-
vin er auk þess heimspekimennt-
aður og segir hann að þrýstingur á
að hann eigi að ganga inn í banka-
kerfið að loknu viðskiptanámi sé lítt
heillandi. Hann hafi engan áhuga á
slíku.
Baldvin segist horfa til útlanda
með plötur sínar, margar þeirra
krefjist einfaldlega stærri markaðar
en þrífst hér. Í ár koma fimm plötur
út á vegum kimi records sem bætast
við þær fjórar sem fyrir eru. Nú sé
hann að leita að dreifingaraðilum í
Skandinavíu og svo verði fleiri lend-
ur unnar í framhaldinu.
„Það sem mig langar til að gera
er að auglýsa þetta vel úti en til þess
þarf ég að fá fjársterkan aðila inn í
þetta – einhvern sem er reiðubúinn
til að tapa peningum eins og ég! En
grínlaust, ég vil byggja listamennina
upp á öðrum mörkuðum. Ég vil ekki
selja 100 eintök í Þýskalandi af ein-
hverri plötunni, ég vil selja 5000 ein-
tök eða hvað það nú er. En til þess
að koma þessu í gang þarf töluverða
fjármuni í kynningu. Plata Klive er
ágætt dæmi sem á góðan séns á
ýmsa markaði erlendis en sala hér
innanlands yrði alltaf takmörkuð.“
Baldvin er bjartsýnn á fram-
haldið.
„Svona útgáfa á að geta þrifist
vel, svo fremi að maður fari ekki
fram úr sér. Ég vil frekar gefa út lít-
ið og vanda mig heldur en að ryðja
efni í massavís út. „
Næstu útgáfur Kima er þriðja
breiðskífa Benna Hemm Hemm,
sem kemur út í sumar. Önnur plata
Morðingjanna kemur síðan 13. mars
og um líkt leyti hoppar plata Borko,
Celebrating Life, upp í hillur.
„FULL ÞÖRF Á
SVONA ÚTGÁFU“
HIÐ NÝSTOFNAÐA ÚT-
GÁFU- OG DREIFINGAR-
FYRIRTÆKI KIMI RE-
CORDS KOM AF KRAFTI
INN Í SÍÐASTA JÓLA-
PLÖTUFLÓÐ. BALDVIN
ESRA EINARSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI
ER BJARTSÝNN Á
FRAMHALDIÐ.
www.kimirecords.net
Morgunblaðið/G. Rúnar
Morgublaðið/Ómar
Útgefandinn „Allar ákvarðanir eru teknar í samráði við listamennina og peningamál og slíkt er allt uppi á borð-
um. Ég legg áherslu á þennan sýnileika,“ segir Baldvin Esra Einarsson, framkvæmdastjóri Kimi Records.
Ljósmynd/Matthías Ingimarsson
Gítarhetjur Mr. Silla & Mongoose, Benni Hemm Hemm og Hjaltalín eru á meðal þeirra sem eru komin á mála hjá Kimi með einum eða öðrum hætti.
Morgunblaðið/Árni Sæberg