Morgunblaðið - 16.03.2008, Page 8

Morgunblaðið - 16.03.2008, Page 8
8 SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Látið fagöndina um djobbið. VEÐUR Framkvæmdir eru hafnar við ál-verið í Helguvík. Umhverf- isráðherrann er horfinn af landi brott og iðn- aðarráðherr- ann lætur ekk- ert til sín heyra.     Það er ekkihægt að skilja þetta nema á einn veg. Samfylkingin er samþykk því að álver verði byggt í Helguvík.     Það er allavega jákvætt, að af-staða beggja stjórnarflokk- anna liggur þá fyrir. Sjálfstæð- isflokkurinn er hlynntur framkvæmdinni og Samfylkingin samþykkir hana með þögninni.     Það hefði að vísu verið karlmann-legra af Samfylkingunni að taka hreina afstöðu og skýra hvers vegna flokkurinn er hlynntur framkvæmdinni.     En ráðherrar flokksins hafa ber-sýnilega verið eitthvað myrk- fælnir og kjósa að samþykkja með þögninni.     Athyglisvert er að Vinstri grænirhafa ekki komizt í neitt upp- nám, þótt framkvæmdir við þetta nýja álver séu hafnar. Er það í samræmi við þá afstöðu þeirra, sem virðist blasa við, að þeir vilja ekki snerta hár á höfði Samfylk- ingar?     Niðurstaðan er hins vegar sú, aðsvo virðist sem allsherjar sam- staða sé á hinum pólitíska vett- vangi um byggingu álvers í Helgu- vík.     Það er nýtt. Það hefur ekki áðurgerzt.     Hvað ætli valdi? STAKSTEINAR Framkvæmdir hafnar SIGMUND                            ! " #$    %&'  ( )                         * (! +  ,- . / 0     + -                                !"#        12       1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                    !"#  :  3'45;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@).?   $ $   $ $    % $   $  %$$ %$ % %                            *$BCD                                              *! $$ B *!   & ' !( ) ') "  ! !  *! <2  <!  <2  <!  <2  & ( ) !+ # ,-! . ) C                    !        "           "   6  2  !     #$% &  '                (    )*   B  !     #$% &  '       $                      +$  /0  11 ) !2" !  + # 3   )!)! % Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Helga R. Einarsdóttir | 15. mars Ægivald peninganna Ég var búin að heyra það áður, en las svo í blaði í dag. „Kaupþing banki“, sem einu sinni var Búnaðarbanki og enginn veit hvað verður í framtíðinni, ætlar að loka útibúinu á Fúðum. Það er auðvit- að hin mesta firra að halda úti þjón- ustu í sveitarfélagi þar sem búið er lengst frá sjó á Íslandi. Ólíklegt að þeir kotungar geri sér nokkra grein fyr- ir mikilvægi peningastofnana og ægi- valdi þeirra sem þeim stýra [...] Meira: ammatutte.blog.is Ómar Eyþórsson | 15. mars Góðir tónleikar Hef löngum haldið uppá Sálina hans jóns míns. Hef hvorki flaggað því opinberlega eða hlaup- ið útí búð eftir nýjustu plötunni en mér hefur alltaf fundist sálin vera besta íslenska poppbandið. [Við] skelltum okkur á afmælistónleikana. Húsið pakkað og eitt mesta fjör sem ég hef orðið vitni að í Laugardalshöll- inni. Það er greinilegt að Íslendingar elska þetta band og ekki að ósekju. Til hamingju sálin hans jóns míns. Meira: bonham.blog.is Hermann Einarsson | 15. mars Skútumiðstöðin Siglufjörður Bæjarstjórn samþykkti á síðasta fundi sínum að hefja viðræður og ganga frá samningi við Sigmar B. Hauksson um að taka að sér verk- efnastjórn. Þetta verkefni er [...] mjög spennandi og á eftir að koma Siglu- firði aftur á kortið sem „heimsbæ“. Verkefnið er nýsköpun [...] en það gengur út á það að Siglufjörður verði miðstöð skútusiglinag í Norður Atl- antshafi. Meira: smalinn.blog.is Jakob Smári Magnússon | 15. mars Gerir lítið úr Bubba Biggi í Maus virðist vera harður á því að Bubbi og Utangarðsmenn hafi ekki breytt miklu í ís- lenskri tónlistasögu og virðist vilja gera sem minnst úr þeirra fram- lagi til sögunnar. Hann dregur per- sónulegan smekk inn í málið og segir að honum finnist að önnur bönd „hafi staðið sig betur í að gera hinu upp- runalega pönki skil eins og það var þegar það byrjaði í London“. Hann nefnir bönd eins og Sjálfsfróun, Von- brigði, Fræbbblana og Þey. Ég er sammála honum að Fræbb- blarnir og Sjálfsfróun hafi spilað pönk- tónlist og Fræbbblarnir eru fyrsta ís- lenska pönkbandið sem vitað er um og eru reyndar eina bandið af þeim sem Biggi nefnir sem voru til áður en Utangarðsmenn komu fram á sjón- arsviðið. Bubbi og Utangarðsmenn opnuðu hins vegar augu og eyru fólks gagnvart þessari tónlist og bylting átti sér stað. Ég fer aldrei ofan af því á meðan ég lifi. Og að segja að Þeys- ararnir hafi verið að spila svipaða tón- list og tíðkaðist í upphafi pönksins er ekkert nema bull og vitleysa. Ég veit að Biggi fílar Þeysarana og það geri ég líka en þeir spiluðu ekki pönk eins og það hljómaði í upphafi tímabilsins. Tónlist þeirra líktist meira því sem pönkið þróaðist út í síðar og að mínu mati eru þeir eitt magnað- asta band íslenskrar tónlistarsögu ef ég má koma því að. Tónlist Utangarðsmanna var hins vegar miklu skyldari pönki, þ.e.a.s hrátt og óbeislað rokk með beittum textum og svo geta menn deilt um hvort það er gott eða slæmt. Og það er endalaust hægt að deila um hvað sé hreinræktað pönk og hvað ekki og hverjir voru fánaberar og hverjir „teik- arar“ en það þarf ekki að deila um það hvort Bubbi og Utangarðsmenn hafi verið í fararbroddi í íslensku pönkbylgjunni þó menn geti vissulega haft sínar skoðanir á þeim. Svo er það nú reyndar þannig að þeir sem bera fánann spila yfirleitt ekki sjálfir. Þeir bera bara fánann og láta aðra um tónlistina. Það er ábyrgðarhlut- verk að ritstýra tónlistartímariti og mér finnst óábyrgt af ritstjóranum að varpa fram fullyrðingum eins og hann gerir og afsaka sig svo með því að hvað honum finnist persónulega. Það kemur málinu ekkert við. Meira: jakobsmagg.blog.is BLOG.IS MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá ungum jafnaðarmönnum þar sem þeir ítreka andstöðu við álver í Helgu- vík: „Framkvæmdastjórn Ungra jafnaðarmanna á landsvísu og stjórn Ungra jafnaðarmanna á Suðurnesjum vilja ítreka andstöðu sína við byggingu álvers í Helguvík og taka þar undir með Náttúru- verndarsamtökum Íslands og Græna netinu, samtökum umhverf- issinnaðra jafnaðarmanna. Jafn- framt er lýst hundrað prósenta stuðningi við Þórunni Sveinbjarn- ardóttur umhverfisráðherra, sem hefur gert alvarlegar athugasemd- ir við stjórnsýslu af hálfu bæj- arstjórna Reykjanesbæjar og Garðs. Í fyrsta lagi hafna Ungir jafn- aðarmenn frekari uppbyggingu mengandi áliðnaðar á Íslandi og telja að landsmenn ættu að ein- beita sér að því að auka fjölbreytni íslensks atvinnulífs í stað þess að hlaða áfram í hina yfirfullu álkörfu. Hvað varðar Helguvík sérstak- lega eru engin tæk rök fyrir að hefja þar framkvæmdir og því sýna sveitarstjórnirnar mikið ábyrgðar- leysi. Mikið vantar upp á að orka til framkvæmdanna og flutningur hennar sé tryggður og í því sam- bandi er óljóst um afstöðu ná- grannasveitarfélaga. Þá hefur um- hverfisráðuneytið ekki lokið við að úrskurða um kæru Landverndar þar sem farið er fram á heildstætt umhverfismat fyrir álverið, orku- öflun og orkuflutninga til þess. Þessar framkvæmdir á suðvestur- horninu núna verða ekki til þess að [gera öðrum byggðum landsins auðveldara fyrir] og verða síst til þess að hraðar gangi að lækka hina fáránlegu háu vexti, verðbólgu og gengissveiflur sem íslensk heimili og fyrirtæki búa við. Síðast en ekki síst hefur ekki verið aflað losunarkvóta fyrir mengunina frá álveri í Helguvík en Ísland hefur þar afar lítið rými til viðbótar. Það beinlínis blasir við að þarna þarf að taka í taumana og er þeim orðum beint jafnt til hlut- aðeigandi sveitarstjórna, ríkis- stjórnar og Alþingis. Að lokum vilja Ungir jafnaðar- menn taka skýrt fram að þeir hafna alfarið þeirri afstöðu að gera megi Ísland að nýlendu fyrir mengandi stóriðju, á þeim forsend- um að landið búi yfir endurnýj- anlegum orkugjöfum.“ Ítreka andstöðu við álver í Helguvík FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.