Morgunblaðið - 16.03.2008, Side 12

Morgunblaðið - 16.03.2008, Side 12
12 SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTALÍFIÐ 212 milljörðum króna og fyrirtækið skilaði 21 milljarði í EBITDA- hagnað. Eitt af einkennum Bakka- varar í gegnum tíðina hefur verið sterkt sjóðstreymi. Árið í fyrra var engin undantekning á því, 85 millj- arðar í frjálsu fjárflæði frá rekstri. Við jukum EBITDA-hagnað á milli ára um 1%, sem er óvenju lítið, því EBITDA-hagnaður hefur yfirleitt aukist um 20-30% hjá Bakkavör. Það sem veldur hægari vexti í fyrra er í fyrsta lagi margumtöluð hækk- un á hráefnisverði, til að mynda á hveiti og öðrum landbúnaðar- afurðum.“ – Hveiti hefur hækkað um 150%! „Já, og svo mætti lengi telja, til dæmis hefur mjólk, kjúklingur og egg tvöfaldast í verði. Við erum gríðarstór notandi á þessum vörum. Við kaupum milljón kjúklinga á viku, 70 þúsund tonn af hveiti og um 300 milljón lítra af mjólk á ári, sem samsvarar u.þ.b tvöfaldri fram- leiðslu Íslendinga á ári. Þessar hækkanir skila sér óhjákvæmilega í hærri rekstrarkostnaði fyrir Bakka- vör og voru tiltölulega ófyrirsjáan- legar, sem leiddi til þess að mat- vælaframleiðendur voru almennt berskjaldaðir og það tekur því tíma að koma þessum hækkunum út í verðlagið. Að öðru leyti hefur ýmislegt haft neikvæð áhrif. Veðrið hefur verið slæmt í Bretlandi og sumarið var það versta í 100 ár, sem leiddi til þess að framboð var lélegt á salati og grænmeti. Við erum stærsti selj- andi tilbúins grænmetis í Bretlandi og töluvert var um skemmdir á ökr- um og uppskerum vegna rigninga og flóða, sem leiddi til hærra hrá- efnisverðs og lélegri nýtingar í verksmiðjum okkar. Allt lagðist á eitt, þannig að árið 2007 var erfið glíma.“ – Voruð þið að loka verksmiðju af þeim sökum? „Við tilkynntum nýverið að við værum að skoða mögulega lokun á pastaverksmiðju í Bretlandi, en þar starfa um 100 manns. Það er líklegt að við hættum pastaframleiðslu þar sem hráefnisverð hefur hækkað um 300% á síðustu átta mánuðum. Í þessu tilfelli hefur reynst erfitt að koma hækkununum út í verðlagið.“ Fyrirtækjakaup um allan heim – En þið hafið á sama tíma vaxið með kaupum á fyrirtækjum? „Við keyptum fimm fyrirtæki á síðasta ári og gerðum m.a. okkar fyrstu fyrirtækjakaup í Evrópu í langan tíma þegar við keyptum sal- atframleiðanda í Frakklandi. Við keyptum að fullu fyrirtæki sem sér- hæfir sig í framleiðslu á fersku sal- ati, sem við vorum áður minnihluta- eigandi að í Kína, og síðan keyptum við okkar fyrsta fyrirtæki í Mið- Evrópu, sem framleiðir tilbúna rétti í Prag, og tvö fyrirtæki í Bretlandi þar að auki.“ – Þannig að hagnaðurinn fylgir ekki stækkun félagsins? „Nei, við jukum veltuna á milli ára um 21%, en EBITDA-hagnaður jókst um 1%. Við skiluðum minni hagnaði en í fyrra, fyrst og fremst vegna aukins vaxtakostnaðar. Við greiddum hærri vexti en á árinu áð- ur og afskriftir voru meiri, þannig að rekstrarhagnaður dróst saman um 3%, en hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði jókst um 1%. Það er gaman að geta þess að Bakkavör hefur skilað auknum EBITDA- hagnaði á hverju einasta ári frá 1991, eða samfleytt í 16 ár. Ég held að það sé einsdæmi á Íslandi og með því vil ég undirstrika hvað vöxturinn hefur verið stöðugur hjá Bakkavör.“ – Og þið haldið áfram að kaupa fyrirtæki á þessu ári? „Við höfum keypt þrjú fyrirtæki á þessu ári. Við keyptum í fyrsta skipti fyrirtæki í Bandaríkjunum í janúar, en það er 300 manna fyr- irtæki sem framleiðir eftirrétti og ídýfur og er með eina verksmiðju í Los Angeles og aðra í Pennsylv- aníu. Það framleiðir fyrir veitinga- húsakeðjur og stórmarkaði, þar á meðal Tesco, sem er stærsti við- skiptavinur Bakkavarar. Við teljum gríðarlega möguleika fyrir hendi á markaðnum í Bandaríkjunum.“ – Í hverju felast þeir? „Í fyrsta lagi er Tesco, stærsti viðskiptavinur okkar í Bretlandi, farið að byggja upp starfsemi vest- anhafs. Tesco mun ekki kaupa keðj- ur heldur byggja upp frá grunni og hefur fengið góðar viðtökur við þeim stórmörkuðum sem hafa verið opnaðir, en þar er fyrst og fremst stólað á vörur og vöruúrval sem Bakkavör hefur byggt upp í Bret- landi. Á árinu 2008 verður komið upp 150 verslunum, þær verða 400 í árslok 2009 og stefnt er að 10 þús- und verslunum eftir tíu ár. Við sjáum því mikil tækifæri, bæði með Tesco og eins öðrum stórmörkuðum í Bandaríkjunum, sem hafa lýst áhuga á að byggja upp vöruúrval svipað því sem Tesco leggur áherslu á.“ – Hvaða fleiri fyrirtæki keyptuð þið? „Hitt fyrirtækið sem við keyptum í janúar er í Kína, en það er annað fyrirtækið sem við kaupum þar. Við erum með 1.400 starfsmenn þar í sjö verksmiðjum og erum að byggja þá áttundu. Og við erum að kynna nýjar vörur, byrjuðum í nóvember að framleiða samlokur og vefjur fyrir StarBucks. Margir möguleikar eru til skoðunar og við sjáum fyrir okkur mikinn vöxt í Kína á næstu árum. Á föstudag tilkynntum við þriðju kaupin á þessu ári, keyptum 48% í fyrirtæki í Hong Kong og er- um með kauprétt á afganginn eftir tvö ár. Það fyrirtæki er dæmigert fyrir Bakkavör, framleiðir tilbúin salöt, tilbúna rétti, pasta og ýmsa drykki, einkum fyrir markaðinn í Hong Kong og Macau. Síðan horf- um við í auknum mæli til meg- inlands Evrópu um frekari vöxt og ætlum okkur að vaxa hratt þar á næstu árum.“ – Þið haldið vaxtarstefnu til streitu þrátt fyrir að fjármögnun sé dýrari en áður? „Þó að staðan sé erfið á fjár- málamörkuðum eiga rekstrarfélög með góða rekstrarstöðu og sjóð- streymi ekki í vandræðum með að fá lán. Fyrir rúmum mánuði geng- um við t.d. frá fjármögnun í Asíu þar sem lánskjörin voru á vel undir 100 punktum, sem þykir mjög gott. Skortur á lánsfé hefur ekki náð til fyrirtækja eins og Bakkavarar.“ Ekki kollsteypur – Er hætta á því að með minnk- andi kaupmætti hætti fólk að kaupa tilbúna matrétti? „Það hefur örugglega áhrif en mótrökin eru þau að fólk sparar fyrst við sig í að fara út að borða. Í staðinn leyfir það sér að kaupa góð- an mat og hita hann eða elda hann heima. Það getur vel verið að sala verði hægari, en þetta verða aldrei þær kollsteypur sem þekkjast úr öðrum greinum. Matvælageirinn er stöðugur og þar verður síst sam- dráttur í sölu þegar kreppir að. Mikil vakning hefur verið á und- anförnum árum um hollustu og gæði matvæla og njótum við góðs af því. Síðan erum við einfaldlega með svo breitt vöruúrval að jafnvel þótt fólk breyti neyslumynstri sínu er líklegt að þær vörur sem keyptar eru í staðinn séu líka hluti af okkar framleiðslu. Það má búast við tíma- bundnum samdrætti, en til langs tíma höfum við engar áhyggjur. Neytendur eru orðnir vanir ákveðnum gæðum, hollustu og þæg- indum þegar kemur að matvælum og ólíklegt er að þeir hverfi aftur til matvara sem uppfylla ekki þær kröfur.“ – Á aðalfundinum var samþykkt að gefa hlutaféð út í erlendri mynt. „Upphaflega ætluðum við okkur að gefa hlutaféð út í pundum, af því að uppgjörsmynt okkar er pund, en það virðist langt í land með að það sé hægt. Þess vegna ákváðum við að takmarka okkur ekki við þann gjaldmiðil þegar kemur að skrán- ingu hlutabréfa.“ – Nú er Bakkavör ekki með neina sölu eða framleiðslu á Íslandi. Af hverju er fyrirtækið skráð hér á landi? „Við erum með höfuðstöðvar hér, stýrum m.a. fjármögnun og fjár- festatengslum félagsins héðan og það hentar okkur vel. Í fyrsta lagi vegna þess að megnið af hluthöfum félagsins eru íslenskir og í öðru lagi er skattalegt hagræði af því að vera með höfuðstöðvar hér á landi.“ – Er hugsanlegt að Bakkavör verði tekin af markaði? „Hlutabréfaverð Bakkavarar hef- ur lækkað mikið að undanförnu. Ef veiking krónunnar er tekin með í reikninginn, sem er rétt að gera vegna þess að allar tekjur félagsins eru í erlendri mynt, er það 55% ódýrara en það var fyrir sex mán- uðum. Það er að mínu viti langt fyr- ir neðan það sem eðlilegt getur tal- ist. Afskráning er hins vegar ekki í spilunum hjá stærstu hluthöfum fé- lagsins.“ Ekki hentistefnuaðferð – Það hefur verið gagnrýnt að færður hafi verið hlutdeildarhagn- aður í bókhaldi Exista á liðnu ári. Væri eðlilegra að færa eignir á markaðsvirði? „Ég skal skýra þetta í stuttu máli. Frá upphafi árs 2007 hafa Sampo og Kaupþing verið hlutdeild- arfélög Exista. Við erum lang- stærstu eigendur þessara tveggja félaga með um eða yfir 20% hlut- deild í hvoru fyrir sig. Þetta eru kjölfestueignir til langs tíma í kjarnastarfsemi Exista, sem eru tryggingar og fjármálaþjónusta. Þess vegna er rökrétt að við bók- færum raunverulega afkomu fyr- irtækjanna í okkar reikningum en ekki sveiflur í verði hlutabréfa þeirra. Það hefur enginn getað gagnrýnt þetta, enda fullkomlega eðlilegt, en ég hef hins vegar tekið eftir að reynt hefur verið að gera þetta tortryggilegt. Þetta er ekki ný aðferð, þótt stundum sé látið þannig, heldur eru þetta viðurkennd og algeng reikn- ingsskil. Bakkavör er með hlut- deildarfélög, svo dæmi sé nefnt, eins og fjöldamörg önnur fyrirtæki. Það er jafnframt misskilningur að það sé eitthvert laumuspil með þetta, enda vekjum við sérstaklega athygli á mismun á bókfærðu virði og markaðsvirði hlutdeildarfélaga í reikningum félagsins og tilkynn- ingum með uppgjörum. Það má jafnframt minna á að uppgjör Ex- ista er samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilum eins og hjá sam- bærilegum alþjóðlegum fyr- irtækjum. Til gamans má nefna að Bakka- vör var hlutdeildarfélag í reikn- ingum Granda hf. þegar Grandi var stærsti hluthafi Bakkavarar frá 1995 til 2000. Þar réð ríkjum einn helsti kennimaður þjóðarinnar í við- skiptafræði og reikningshaldi, Árni Vilhjálmsson prófessor. Þetta er því engin hentistefnuaðferð, sem Exista hefur fundið upp – aldeilis ekki! Þessi aðferð var ekki tortryggð þegar markaðirnir voru öðruvísi á fyrri árshelmingi 2007 og mikil dul- in eign í bókum Exista vegna Kaup- þings og Sampo, enda var á þeim tíma markaðsvirði hærra en það virði sem við færðum í bækur okk- ar.“ – Er ekki fyrirséð að ef »Hvers vegna að selja frábær- ar eignir í slæmum markaði? Í erindi sínu á aðalfundi Bakkavarar á föstudag gaf Ágúst Guðmundsson hugmynd um um- fang reksturs Bakkavarar. Hann benti á að Bakkavör keypti 310 milljónir lítra af mjólk árið 2007, en 125 milljónir lítra voru notaðar í framleiðslu mjólkurafurða hér á landi sama ár. Bakkavör keypti 52 milljónir kjúklinga, en framleiðslan á Íslandi var 5 milljónir árið 2007. Og Bakkavör keypti 9 þúsund tonn af eggjum árið 2007, en framleiðslan á Íslandi var 3 þús- und tonn. Bakkavör framleiðir 80 milljónir pítsa á ári, sem jafngildir 270 pítsum á hvern Ís- lending. Neytendur verja að meðaltali minna en 15 mínútum í að búa til kvöldmat. Og inn á það stílar Bakkavör, sem framleiðir 46 milljónir tilbúinna máltíða á ári, sem jafngildir tveim máltíðum á dag fyrir hvert heimili á Íslandi árið um kring. Í ársskýrslu Bakkavarar kemur fram að 65% evrópskra og bandarískra neytenda leitast við að temja sér hollara mataræði. Framleiðsla fyrir fimmtán mínútur Vismedia »Ég sé ekki hvernig Ísland á að hafa efni á því að halda þessu vaxtastigi. Af hverju í veröldinni eigum við að borga þessa vexti til eigenda erlendra jöklabréfa? Ég held að við höfum ekki efni á því og ættum að hætta því í snarhasti, hvað sem líður verðbólgumarkmiðum. Það er einfaldlega ekki hægt að keyra þjóðfélagið svona áfram. Enginn rekstur og engin heimili í þessu landi standa undir þessu vaxtastigi. Það er ósköp einfalt. 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.