Morgunblaðið - 16.03.2008, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 16.03.2008, Qupperneq 19
hendur vændishópum. Hrein fjár- mál – hrein fjölskyldumál urðu eins konar vörumerki Eliots Spit- zer. Meðbyrinn varð til þess að Spit- zer tilkynnti framboð sitt til rík- isstjóra New York 2006 og loforð hans um að uppræta spillingu í stjórnkerfi ríkisins af sömu hörku og hann hafði beitt bankana og stórfyrirtækin tryggðu honum stórsigur. Hann tók við ríkisstjóra- embættinu í janúar í fyrra en hef- ur að heita má átt stöðugt undir högg að sækja, einkum vegna vafa- samra aðferða starfsmanna sinna, þar á meðal pólitískrar misnotk- unar á lögreglunni. Sambúð hans við fylkisþingið hefur líka verið stormasöm. Almenningsálitið fjar- aði því fljótt undan fylkisstjóran- um og steininn tók úr, þegar hann í fyrrahaust kynnti ætlan sína um að ólöglegir innflytjendur fengju ökuskírteini. Hún vakti ekki ein- asta mótmæli í New York ríki heldur um gjörvöll Bandaríkin og á endanum dró Spitzer þessa fyr- irætlan til baka. En skaðinn var skeður. Og þá bættist vændismálið við og Spitzer stóð uppi ekki ein- asta sem mistækur stjórnmála- maður heldur og berskjaldaður hræsnari. Viðskiptavinur númer níu 10. marz sl. varð það opinbert að ríkisstjórinn sætti rannsókn vegna viðskipta hans við vændishringinn Emperors Club VIP sem hefur á sjötta tug vændiskvenna á sínum snærum. Í skjölum málsins er vitn- að til Spitzers sem viðskiptavinar númer níu og kemur fram að hann hafi greitt um 5,5 milljónir króna fyrir a.m.k. sex eða sjö stefnumót við vændiskonur síðustu tíu árin. Það eru þó síðustu vændiskaup Spitzers sem gera alríkisyfirvöld- um kleift að ákæra hann, en 13. febrúar óskaði hann eftir því að vændiskona frá New York kæmi til sín á hótel í Washington og valdist Ashley Alexandra Dupre til ferð- arinnar. Í málsskjölunum kemur fram að Spitzer greiddi sem svarar 300.000 krónum fyrir viðskiptin. Eliot Spitzer lætur af embætti á morgun, mánudag, og hefur sagzt ætla að einbeita sér að því að end- urvinna traust fjölskyldu sinnar, en hann er 48 ára, kvæntur og þriggja barna faðir. Eiginkona Spitzers kom fram á blaðamannafundum með manni sínum, þegar hann baðst afsökunar á yfirsjónum sínum og tilkynnti af- sögn sína, þannig að líkt og Hillary Clinton stendur hún með sínum manni. Svo er bara að sjá, hvert fram- haldið verður. Clinton Bill Clinton hélt forsetaembættinu þrátt fyrir Lewinskimálið Reuters Lewinsky Monica Lewinsky fjallar um samband hennar og forsetans. Morgunblaðið/ÞÖK » Í skjölum málsins ervitnað til Spitzers sem viðskiptavinar númer níu og kemur fram að hann hafi greitt um 5,5 milljónir króna fyrir a.m.k. sex eða sjö stefnumót við vænd- iskonur síðustu tíu árin. Britannica The Christian Science Monitor The New York Times Morgunblaðið MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2008 19 Tónlist beint í símann Gríptu augnablikið og lifðu núna Sony Ericsson V640i Lipur og nettur Walkman tónlistarspilari. 3G, EDGE, 256 Mb minniskort. Fer á netið með Vodafone live! Fæst í "Havana Gold" og svörtu. Fæst eingöngu hjá Vodafone. 19.900 kr. Milljón lög til eignar í Vodafone tónlistarsímann þinn Komdu við í næstu Vodafone verslun og kynntu þér tónlist í símann.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.